Dagur - 01.03.1991, Síða 25
J3r~rr
Föstudagur 1. mars 1991 - DAGUR - 25
hafist handa við að ryðja
veginn.
Eins og áður segir var
Sigurður Ringsted einn af
hvatamönnum að vegarlagn-
ingu fyrir Múlann. Hann var
framsýnn maður og sá mikil-
vægi þess að koma á tryggu
vegsambandi við EyjaQörð.
Jafnframt var hann eldhugi
sem lét sér ekki allt fyrir
brjósti brenna. Því má heldur
ekki gleyma að Sigurður ók
rútu- og vörubifreið í þá daga
og af þeim sökum var það
honum mikið kappsmál að
stytta vegalengdina milli
ÓlafsQarðar og Akureyrar.
Blaðamaður heimsótti
Sigurð og Sumarrós konu
hans á heimili þeirra á Akur-
eyri og riQaði upp með þeim
fyrstu skref Ólafsfirðinga að
gerð vegar fyrir Múlann.
Sigurður minntist þessara
daga með gleði og ekki var
laust við bros þegar hann lét
hugann reika.
„Ég þvargaði í Birni heitn-
um Stefánssyni, kennara og
síðar skólastjóra, en hann var
þá á sumrum í vegagerð á
vegum bæjarins, að leggja
mér lið við að heQa vegarlagn-
ingu fyrir Múlann. Ég vissi að
það yrði frekar tekið mark á
honum en mér.
Eg fékk Björn, Stefán Ólafs-
son og Martein Friðriksson
í göngutúr með mér út í Múla
til þess að kanna aðstæður og
í kjölfarið var ákveðið að fara
af stað með undirskriftalista í
Ólafsfirði og safna peningum
til vegargerðarinnar.
Strax daginn eftir byrjuðum
við að ryðja Brimnesgilið með
jarðýtu í eigu búnaðarfélags-
ins. Ingvi Guðmundsson
stjórnaði ýtunni. Þessi sama
jarðýta var notuð til þess að
ryðja vegarspotta upp frá
Reykjum, en ekkert varð
meira úr þeirri framkvæmd.“
Þessi fyrsti vísir að vegi fyrir
Ólafsijarðarmúla lá eilítið nær
íjallinu en sá Múlavegur sem
við þekkjum.
Verkið sóttist hægt, en því
miðaði þó í rétta átt. Áður en
vetur skall á komust vega-
gerðarmenn að Kúhagagili.
Þessi fyrsti vísir að Múla-
vegi herti í Ólafsfirðingum að
fá ríkisvaldið í lið með sér að
fjármagna vegargerð fyrir
Múlann. En hið opinbera var
ennþá heldur tregt í taumi og
því fór svo að Ólafsfirðingar
foru af stað með annan sam-
skotalista í bænum vorið 1954
til þess að fjármagna komu
norsks verkfræðings til þess
að kanna heppilegt vegarstæði
í Múlanum. í „haus“ sam-
skotalistans, sem dagsettur er
23. júní 1954 segir orðrétt:
„Vegna þess hve seint hefir
gengið að fá raunhæfa rann-
sókna og kostnaðaráætlun á
Múlaveginum, réðumst við
nokkrir áhugamenn í það
stórræði með hjálp og aðstoð
Sveinbjörns Jónssonar bygg-
ingameistara að fá hingað til
landsins norskan vegaverk-
fræðing, sem er þrautreyndur
við að leggja vegi í gegnum
kletta og klungur. Vegamála-
stjóri vill ekki taka þátt í þeim
kostnaði, sem þessari rann-
sókn er samfara. Við komum
því einu sinni enn til ykkar,
góðir áhugamenn, í þeirri von
að þið getið hlaupið undir
bagga með okkur, svo að við
getum leyst verkfræðinginn
ánægðan út héðan. Hann
verður hér þessa daga fram
að helgi við rannsóknir í Múl-
anum.“
Norski verkfræðingurinn
Lengd: Göngin sjálf eru
3130 metrar en heildarlengd
með vegskálum er 3400
metrar.
Breidd: 5,0 metrar
Hæð: 5,4 metrar
Bil milli útskota: 160 metrar
Hæð austurenda: 125
m.y.s.
Hæð vesturenda: 70 m.y.s.
Halli: 2,0%
Vegskálar: Vegskálarnir eru
samanlagt 265 metrar á
lengd, eystri vegskálinn er
100 metra langur en vestari
skálinn 165 metra langur.
Jarðfræði: Göngin liggja í
u.þ.b. 12 milljón ára gömlum
basaltlögum, sem eru um 10
metra þykk að meðaltali.
Milli þeirra eru þynnri lög úr
seti og gjallkaga. Göngin
skera marga bergganga,
sprungur og misgengi. Berg-
ið var styrkt eftir þörfum
með sprautusteypu og berg-
boltum. Vegna mikils vatns-
elgs í göngunum var stærri
hluti ganganna klæddur dúk
en gert var ráð fyrir.
Undirbúningur að gerð
jarðganganna: í höndum
Vegagerðar ríkisins. Rann-
sóknir hófust árið 1980 og
var unnið eitthvað flest ár til
ársins 1988 þegar opnuð
voru tilboð í gerð ganganna.
Verktaki: Krafttak sf. var
með lægsta tilboðið í gerð
Múlaganganna, 537 milljón-
ir króna. Auk Krafttaks bauð
Qöldi innlendra sem
erlendra verktaka í verkið.
Samningar voru undirritaðir
við Krafttak 1. júlí 1988 og
þá þegar hófst undirbúning-
ur verktakans við sjálfar jarð-
gangasprengingarnar.
Fyrsta sprengingin: Stein-
grímur J. Sigfússon, sam-
gönguráðherra, sprengdi
fyrstu hleðsluna í ÓlafsQarð-
armúla 11. október 1988 og
markaði þar með upphaf
jarðgangagerðar í Múlanum.
Síðasta sprengingin: Stein-
grímur J. samgönguráðherra
var aftur á ferðinni þann 15.
mars 1990 þegar hann
sprengdi síðustu hleðsluna í
göngunum. Þar með var leið-
in greið í gegn.
Fjöldi sprenginga: Nærri
lætur að um eitthundrað þús-
und rúmmetrum af grjóti,
sem molnuðu niður í um eitt
þúsund sprengingum, hafi
iverið ekið út úr göngunum.
Gangur verksins: í öllum
aðalatriðum má segja að
jarðgangagerðin hafi verið á
áætlun. Sprengingarnar voru
umfangsmesti verkþátturinn
og gengu þær mjög vel. Lokið
var við að ganga frá dren-
kerfi í göngunum 10. sept-
ember á síðasta ári. Sex dög-
um síðar lauk uppsetningu
motta innan í göngin, þar
sem þess þurfti. Þann 6.
nóvember lauk lagningu slit-
lags í göngunum, en síðari
lagið verður lagt í vor. Þá
lauk uppsetningu kapalstiga
íloft ganganna 12. desember
sl. og uppsetningu ljósa var
lokið 15. desember.
Opnuð fyrir umferð: Ólafs-
fjarðargöngin voru opnuð
formlega fyrir umferð 16.
desember 1990. Stefán Guð-
bergsson frá Krafftaki sf.
afhenti Guðmundi Svafars-
syni, umdæmisverkfræðingi
Vegagerðar ríkisins, göngin
formlega til umsjár og
reksturs. Göngin voru síðan
lokuð að næturþeli um skeið
í febrúar á meðan unnið var
við að setja upp hurðir fyrir
gangamunnana.
Endanlegur kostnaður:
Lætur nærri að sé einn millj-
arður króna. Framreiknað er
tilboð Krafttaks sf. á bilinu
900-950 milljónir króna.
Ekki ósvipaður kostnaður og
við breytingar á einu stykki
af Þjóðleikhúsi.
Vígsla: Formleg vígsla í
Ólafsfirði 1. mars 1991, tæp-
um 29 mánuðum eftir að
samgönguráðherra sprengdi
fyrstu hleðsluna í Múlanum.
kannaði aðstæður og féllst í
stórum dráttum á áður fram-
komnar tillögur Snæbjarnar
Jónassonar. En þar með var
björninn ekki unninn. Enn átti
eftir að afla málinu fylgis á
Alþingi.
En þetta breyttist á haust-
þinginu 1954. Þá lögðu tveir
þingmenn Norðlendinga fram
frumvarp til laga um vegar-
lagningu fyrir Ólafsfjarðar-
múla, sem fékk jákvæðar
undirtektir þingheims. Múla-
vegur var staðfestur á vega-
lögum árið 1955 og það sama
ár hófust framkvæmdir. Þeim
lauk ellefu árum síðar. Múla-
vegur var formlega opnaðúr
fyrir umferð 17. september
1966.
„Ég var aldrei í vafa um að
hægt væri að leggja veg fyrir
Múlann,“ sagði Sigurður. „Ég
fór aldrei með Drang svo ég
væri ekki að mæla út hvernig
best væri að leggja veginn."
Það fór vel á því að Sigurður
slóst í för með Steingrími sam-
gönguráðherra þegar Múla-
göngin voru opnuð fyrir
umferð í desemeber sl.
Sigurður var dreyminn á svip-
inn þegar hann var að lokum
spurður um hvernig tilfinning
það hafi verið að keyra í gegn-
um Múlann. „Blessaður vertu,
maður vissi ekki af þessu."
óþh
Óskum Ólafsfirdingum til
hamingju meö mikilsverða
samgöngubót
Minnum a feróir okkar
Akureyri—Ólafsfjörður
mánudaga, mióvikudaga, föstudaga.
Oruggar ferðir — Góö þjónusta
Frakt sf. vöruflutningar
Afgreiðsla Akureyri, Hafnarstræti 86 b
Afgreiösla Ólafsfirði, Útibú KEA
i