Dagur - 16.03.1991, Blaðsíða 3
Laugardagur 16. mars 1991 - DAGUR - 3
f DAGS-ljósinu
Kaup á húsgögnum og leiktækjum fyrir Akureyrarbæ valda titringi í embættismannakerfinu:
„Starfsmeim embættis húsameistara hafa ekki meira vit
á kaupum á leiktækjum og húsgögnum en við fóstrur“
- segir Sigríður Magnea Jóhannsdóttir dagvistafulltrúi
- „leiðindamál sem þarf að leysa,“ segir Valgarður Baldvinsson bæjarritari
Kaup á húsgögnum og leik-
tækjum fyrir dagvistarheimilið
Holtakot hafa valdið töluvcrð-
um titringi í embættiskerfi
Akureyrarbæjar og um leið
hafa þau varpað Ijósi á sam-
starfsörðugleika milli deilda og
stofnana bæjarins.
Akureyringur hafði samband
við ritstjórn Dags og lýsti furðu
sinni á því að Akureyrarbær hefði
keypt húsgögn og innréttingar frá
Reykjavík fyrir milljónir króna
fyrir skrifstofur bæjarins við
Geislagötu. Orðrétt sagði hann:
„Lagfæringar og endurbætur hafa
farið fram á skrifstofu Akureyr-
arbæjar fyrir margar milljónir
króna og húsgögn keypt. Þessi
húsgagnakaup fóru fram í
Reykjavík þrátt fyrir að slík kaup
væri hægt að gera hér á Akureyri.
Verslanir óg iðnaðarmenn á
Akureyri eiga undir högg að
sækja og eru sniðgengnir. Þessi
kaup eru ekki einsdæmi, því sami
' hát'fur var hafður á þegar innan-
stokksmunir voru keyptir til dag-
vistunarheimilisins Holtakots,
sem verður tekið í notkun innan
skamms. Það er óverjandi með
öllu að bæjaryfirvöld skuli sýna
þetta fordæmi. Þeim ber að hlúa
að þeirri starfsemi sem fer fram á
Akureyri bæði í verslun og iðnaði
sem og öðrum starfsgreinum.“
Viðmælanda Dags var heitt í
hamsi og hann bætti við: „At-
vinnulífið á Akureyri hefur verið
og er í lægð. Hvers eigum við að
gjalda bæjarbúar? Heyrst hefur
að eðlilegar skýringar sé hægt að
finna og þær séu að stjórnunar-
kerfi Akureyrarbæjar sé ekki
skilvirkt og að hver höndin vinni
gegn annarri. Hagsmunapot og
hlaup einstakra manna eftir
umboðslaunum ráða oft ferðinni.
Kerfið er morkið og óeining ríkir
á mörgum sviðum stjórnsýslunn-
ar og ég get greint frá fleiri tilfell-
um, svo sem kaupum á húsgögn-
um fyrir Gagnfræðaskólann á
Akureyri." Vegna þessara stóru
orða leitaði Dagur til nokkurra
starfsmanna Akureyrarbæjar
sem málið er skylt.
„Eg hef heyrt af þessum
óánægjuröddum“
Fyrstur varð fyrir svörum Val-
garður Baldvinsson, bæjarritari.
Hann kvað rétt vera að unnið
hafi verið að lagfæringum og
breytingum á skrifstofum Akur-
eyrarbæjar og húsgögn hafi verið
keypt frá Reykjavík í gegnum
Bókval á Akureyri, sem er
umboðsaðili hér í bæ.
„Ég hef heyrt af þessum
óánægjuröddum. Að mínu mati
var stofnað til þessarra kaupa á
eðlilegan hátt. í starfi mínu hef
ég haft rnikla tilhneigingu til að
skipta við aðila á Akureyri svo
framarlega að þeir bjóði sam-
bærilega eða betri vöru en aðrir.
Bókval er umboðsaðili og þeirra
eru umboðslaunin. Á. Guð-
mundsson í Kópavogi er fram-
leiðandi húsgagnanna þannig að
hér er um innlenda smíði að
ræða. Fyrir nokkrum árum hóf-
um við lagfæringar á skrifstofun-
um og arkilekt var hafður með í
ráðum. Hann valdi húsgögn frá
Á. Guðmundssyni og því þótti
rétt nú að kaupa eins húsgögn til
að halda heildarmynd á skrifstof-
unum,“ sagði Valgarður Bald-
vinsson, bæjarritari.
Valgarður kvaðst ekki geta
tjáð sig um húsgagnakaup til dag-
vistunarheimilisins Holtakots,
því það mál væri ekki komið inn
á borð hjá sér, en vísaði á
embætti húsameistara Akureyr-
arbæjar.
„Ég hefði aldrei
mælt með þessu“
Ágúst Berg, húsameistari Akur-
eyrarbæjar sagði að nýleg kaup á
búnaði, þ.e. húsgögnum og leik-
tækjum, hefðu ekki komið til
kasta húsameistara, þó svo að
þannig hefði átt að halda á mál-
um samkvæmt því skipuriti sem
embætti hans starfar eftir.
Einar Jóhannsson, fulltrúi
húsameistara, hefur verið verk-
efnisstjóri í Holtakoti. „Þessi
húsgagnakaup eru afbrigðileg og
vandræðaleg og því er betra að
þú talir við fulltrúann minn, sem
hefur verið í eldlínunni," sagði
Ágúst Berg, húsameistari.
Einar sagði að umrædd
bygging, Holtakot, væri teiknuð
hjá húsameistara Akureyrarbæj-
ar og samkvæmt þeim reglum
sem gilda um embættið, þá ætti
það að hafa yfirumsjón með öllu
því sem lyti að nýsmíði og kaup-
um til hússins.
„Vissulega er mjög undarlega
staðið að þessum húsgagnakaup-
um og ekki samkvæmt þeim regl-
um er gilda um kaup sem þessi.
Já, það hlýtur að skoðast óeðli-
legt í hæsta máta þegar bæjarrit-
ari, bæjargjaldkeri og embætti
húsameistara vita ekki af hús-
gagnakaupum sem þessum að
upphæð 3 milljónir króna. Ég hef
ekki séð reikningana þó svo að
hér eigi að árita þá áður en þeir
fást greiddir. Sambandsleysið og
sambúðarerfiðleikarnir milli
hinna ýmsu stofnana Akureyrar-
bæjar eru það miklir að til vand-
ræða horfir. Rétt er að dagvist-
arfulltrúi og forstöðukona Holta-
kots fóru til Reykjavíkur til að
annast þessi kaup. Þær fóru ekki
í umboði embættis húsameistara
heldur félagsmálaráðs. Erlend
húsgögn, sem ekki eru sérhönn-
uð fyrir börn voru keypt. Ég sem
Síðastliðinn fímnitudag ræddu
fulltrúar Akureyrarbæjar við
forsvarsmenn Kaupfélags Ey-
fírðinga um kaup á húseignum
KEA í Grófargili með væntan-
Iega listamiðstöð í huga. Við-
ræðunum verður haldið áfram
í næstu viku.
Björn Jósef Arnviðarson,
bæjarfulltrúi, sagði að það væri
ljóst að áhugi væri fyrir hendi hjá
báðurn aðilum að ná samkomu-
lagi. En er hann bjartsýnn á að
aðilar komi sér saman um kaup-
verð?
„Ég tel það alls ekki útilokað.
Já, ég er bjartsýnn á það,“ sagði
Björn Jósef.
Viðræður eru sem sagt enn í
gangi og meöan þeirn cr ekki lok-
verkefnisstjóri við Holtakot hefði
aldrei mælt með þessum hús-
gögnum og þau hefðu ckki verið
keypt hefði verið haldið eðlilega
á málum,“ sagði Einar Jóhanns-
son.
„Hafa ekki meira vit
á kaupum en við“
„Starfsmenn embættis húsameist-
ara hafa ekki meira vit á kaupum
á leiktækjum og húsgögnum en
við fóstrur, sem höfum unnið
okkar starf í meira en 20 ár.
Embætti húsameistara setti sig á
móti þessum kaupum. Við keypt-
um þennan búnað þ.e. leiktæki,
innanstokksmuni og raunar allan
búnað til Holtakots í umboði
félagsmálaráðs og ég sem dag-
vistarfulltrúi skrifaði upp á reikn-
ingana sem og alla reikninga sem
stofnað er til vegna dagheimila
og gæsluvalla. Umrædd húsgögn
eru erlend og við gengum inn í
tilboð sem Reykjavíkurborg
hafði fengið vegna búnaðar til
þriggja dagvistunarheimila. Ég sé
ekkert óeðlilegt við þessi kaup,“
sagði Sigríður Magnea Jóhanns-
dóttir, dagvistarfulltrúi.
Af framansögðu vaknar sú
spurning, hvort samstarfsörðug-
leikar standi í vegi fyrir eðlilegri
ákvarðanatöku hinna ýmsu fram-
kvæmdamála hjá Akureyrarbæ.
Valgarður Baldvinsson sagði
að þetta væri allt leiðindamál.
Samstarf milli embættis húsa-
meistara og embættis dagvistar-
mála væri mjög stirt. Hann vildi
ekki fella dóm um hverjum það
væri að kenna.
„Kerfíð er ekki sem skyldi“
„Fram til þessa hefur embætti
húsameistara annast allt sem hef-
ur fallið undir nýsmíði og lagfær-
ingar. Einnig hafa embættismenn
húsameistara skrifað upp á reikn-
inga. Að undanförnu hefur þetta
verið svolítið á reiki. Kerfið er
ekki sem skyldi. Ef félagsmála-
ráð hefur gefið þessum stúlkum
umboð til húsgagnakaupa og
fleira, þá geri ég ráð fyrir að við
getum ekki hafnað þeim uppá-
skriftum sem á reikningunum
ið er ekkert hægt að segja til um
framgang hugmyndarinnar um
listamiðstöð í Grófargili. Hugs-
anlegt kaupverð fasteignanna
hefur ekki verið gefið upp en
heimildir Dags herrna að í fyrstu
hafi aðilar haft gjörólíkar hug-
myndir um verð. Nú virðist þeim
hins vegar lítið bera á milli. SS
DAGUR
Aliurcyxi
Norðlcnskt dagblað
eru. Hins vegar hefði mér þótt
eðlilegt að fóstrurnar hefðu séð
um leikfangakaupin og húsa-
meistari um annan búnað. Bókun
um samstarfsörðugleika kemur
til kasta bæjarráðs innan
skamms. Þetta mál þarf að leysa
og þar blandast bæjarfulltrúar og
formenn nefnda inn í,“ sagði
Valgarður Baldvinsson, bæjarrit-
ari.
Rétt er að taka fram að ekki
tókst að hafa samband við Sig-
rúnu Sveinbjörnsdóttur, for-
mann félagsmálaráðs, en hún er
stödd í Reykjavík. ój
BEINT FLUG
Akureyri-Ziirich
Sætaframboö í feröum þessum er takmarkað og ef
dæma má af reynslu síöasta sumars þegar öll sæti
seldust upp á skömmum tíma er ekki ráö aö draga
lengi aö panta sér sæti og tryggja ánægjulega ferö
Umboð á Akureyri fyrir Ferðaskrifstofuna
Listagil:
Báðir aðilar hafa
hug á samkomulagi