Dagur - 16.03.1991, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 16. mars 1991
VÁTRYGGINGAFÉIAG
ÍSLANDS HF
Vátryggingafélag íslands hf. óskar eftir tilboð-
um, í eftirtaldar bifreiðar, sem skemmst hafa í
umferðaróhöppum.
1. Chevrolet Monza SLE
2. Fiat Uno 45
3. Citroen BX 14
4. Mazda 323
5. Fiat Uno 55
árgerð 1988
árgerð 1987
árgerð 1986
árgerð 1985
árgerð 1983
Bifreiðarnar verða til sýnis í Tjónaskoðunarstöð
VÍS að Furuvöllum 11 Akureyri, mánudaginn 18.
mars nk. frá kl. 9.00 til 16.00.
Tilboðum sé skilað fyrir kl. 17.00 sama dag hjá
Skoðunnarstöðinni.
Kvennalistinn
í kosningaham
Þriðjudag 19. mars verðum við á Ólafsfirði.
Hittumst í kaffi á Hótel Ólafsfirði kl. 17-19.
Miðvikudag 20. mars verðum við í Hrísey,
á Árskógssandi og Hauganesi.
Hittumst í kaffi í Versluninni á Hauganesi
kl. 17-19.
Fundur í Bergþórshvoli á Dalvík kl. 20.30.
Fimmtudag 21. mars verður fundur á
Bakkanum Húsavík kl. 20.30.
Föstudag 22. mars verður fundur í Félags-
heimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn kl.
20.30.
Laugardag 23. mars verðum við á Þórs-
höfn.
Sunnudag verður fundur í Grunnskólan-
um á Kópaskeri kl. 15.00.
Komið og viðrið skoðanir ykkar við kvennalistakon-
ur, kynnist því sem Máimfríður og stöllur hennar
hafa verið að gera á þingi síðasta kjörtímabil og fáið
að vita hvaða áherslur Kvennalistinn leggur fyrir
næsta kjörtímabil.
tónlist
Hefðbundið skólastarf brotið upp:
Kammermúsíkvika í Tón-
listarskólamim á Akur eyri
- samleikur nemenda og kennara í öndvegi
Nemendur og kennarar í Tón-
listarskólanum á Akureyri
efna til kammermúsíkviku 17,-
23. mars og verður reyndar
tekið forskot á sæluna í kvöld
með kennaratónleikum í
Grundarkirkju. Tónleikarnir
verða endurteknir í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju á
morgun og hefjast þeir kl.
20.30 eins og tónleikarnir
frammi á Grund.
Með kammermúsíkvikunni
víkja kennarar Tónlistarskólans
frá hefðbundinni einkakennslu
og mun kennslan að mestu fara
fram í hópvinnuformi þar sem
samleikur kennara og nemenda
verður í hávegum hafður.
Að sögn Margrétar Bóasdótt-
ur, tónlistarkennara, munu
nemendur og kennarar skólans
heimsækja ýmsa skóla og stofn-
anir bæjarins og einnig Tónlistar-
skóla Eyjafjarðar og ýmsa skóla
innan hans og Tónlistarskólann á
Dalvík og Ieika þar og syngja
saman.
Eins og áður segir hefst dag-
skráin með kennaratónleikum
16. og 17. aprtl í Grundarkirkju
og Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju. Stór hópur kennara við
Tónlistarskólann flytur fjöl-
breytta kammertónlist, m.a.
tónlist fyrir söngrödd og gítar,
fiðlu og píanó, strengjakvartett,
söngrödd og klarinett, selló og
píanó og sópran og píanótríó.
„Undanfarin ár hafa kennarar
skólans lítið fengist við tónleika-
hald en nú ætla þeir að slá til og
sýna um leið að þeir hafi líka
gaman af því að flytja tónlist,“
sagði Margrét.
Tónleikar, fyrirlestur
og „Opið hús“
Fimmtudagskvöldið 21. mars kl.
20 mun prófessor Marek Podh-
ajski, kennari við Tónlistarskól-
ann, halda fyrirlestur um tónlist
Karol Szymanowski á sal
skólans. Fyrirlesturinn verður
fluttur á ensku og þýddur jafnóð-
um á hið ástkæra ylhýra.
Föstudaginn 22. mars kl. 15-
17.30 verður „Opið hús“ í Tón-
listarskólanum. A sal verða tón-
listaratriði, hljóðfæri verða til
sýnis í kennslustofum, viðræður
við kennara og léttar veitingar í
boði. Kl. 17 mun D-blásarasveit-
in leika fyrir utan skólann, ef
veður leyfir, og verður þá göt-
unni lokað fyrir bílaumferð.
Lokatónleikarnir verða laugar-
daginn 23. mars kl. 17 og verður
þá flutt valið efni frá kammer-
músíkvikunni og einnig stendur
til að flytja Brandenborgar-
konsertinn. Að sögn Margrétar
verða tónleikarnir mjög fjöl-
breyttir og með dálítið sérstöku
sniði því ívrri hlutinn verður
haldinn í kirkjuskipi Akureyrar-
kirkju og seinni hlutinn í Safnað-
arheimilinu. Boðið verður upp á
kaffi í hléinu.
Tónlistarskólinn býður alla
velkomna til dagskrár kammer-
músíkvikunnar og væntir þess að
sem flestir geti gefið tónlist og
tónlistariðkun örlítið af tíma sín-
um þessa daga.
Eykur fjölbreytni
í skólastarfinu
Margrét Bóasdóttir var spurð að
því hvort Tónlistarskólinn á
Akureyri væri að fara út á nýjar
brautir í kynningu á starfsemi
sinni með þessari kammermúsík-
viku.
„Já, skólinn hefur kynnt starf-
semi sína á ýmsan hátt og t.d.
fyrir tveimur árum vorum við
með sérstakan kynningardag í
Skemmunni. Kynning í þessum
mæli er nýlunda, það hefur ekki
áður verið tekin heil vika undir
breytta starfsemi í skólanum.
Grunnskólinn breytir út frá
starfsemi sinni þessa síðustu viku
fyrir páskafrí og þar hefur tekist
vel að brjóta hefðbundið skóla-
starf upp á þessum tíma. Ég hygg
að reynslan gæti orðið svipuð hjá
Tónlistarskólanum. Við teljum
okkur vera að auka fjölbreytni í
skólastarfinu með þessum hætti
og jafnframt teljum við nauðsyn-
legt að gefa því verðugan tíma að
fólk iðki og njóti tónlistar
saman.“
Margrét sagði að það væri mis-
jafnt eftir greinum hve nemendur
væru mikið einir í sínu námi en
það væri öllum til gagns og yndis-
auka að koma saman. Það væri
einn aðalþátturinn í því að skapa
ánægjulegt samfélag tónlistar-
fólksins.
„Það er nauðsynlegt að gefa
nemendum sem æfa allan vetur-
inn tækifæri til að koma fram og
spila fyrir aðra, ekki bara einu
sinni sömu verk heldur oftar, til
að þeir geti lært að þekkja verkin
og finna blæbrigðamuninn á
flutningi í það og það skiptið,“
sagði Margrét.
Rétt er að ítreka að dagskrá
kammermúsíkvikunnar hefst
formlega í kvöld nreð kennara-
tónleikum í Grundarkirkju, sem
Margrét segir forkunnarfagurt
hús en of lítið notað fyrir slíka
viðburði. SS
Taktu bátt í íjörinu á
Stóra bókamarkaðiniuu
umhelgina
Opið lauuardaÉ og suimudag
E 12.00-19.00
Sti iri 1m ikaillarkaOurimi
Glerárgötu 32 sími 96-26438
Félag íslenskra liókíuHgefénda