Dagur - 16.03.1991, Blaðsíða 17
Laugardagur 16. mars 1991 - DAGUR - 17
efst í hugo
I leit að lífsins gæðum
Lífið er leit að gæðum. Sumir eru að leita alla
sína ævi og ná jafnvel aldrei að höndla öll þau
gæði sem þeir vilja komast yfir, en aðrir staldra
við þegar ákveðnu takmarki er náð og lifa sátt-
ir eftir það. En hvaða gæði eru þetta sem fólk
sækist svo ákaft eftir og er jafnvel tilbúið að
fórna sjálfu lífinu fyrir? Til að svara þessu er
hyggitegast að átta sig fyrst á lífsgæðunum
með því að greina þau í flokka. Ég tel rétt að
styðjast viö flokkun Páls Skúlasonar, þ.e. and-
leg gæði, veraldargæði og siðferðisgæði.
Andleg gæði eru í eðli sínu eilíf, varanleg.
Pau skiptast í leiki, vísindi og listir og eiga
upptök sín í mannfólkinu sjálfu og menningar-
arfi þjóða. Hæfileikar mannsins til þess að
ímynda sér, skilja og skapa skipta mestu um
aðgang hans að þessum gæðum.
Ofugt við andleg gæði eru veraldargæðin
fallvölt. Það má versla með þau. Veraldargæð-
in eru ýmist efnahagsleg, stjórnmálaleg (völd)
og félagsleg (frægð). Þessi gæði eiga upptök
sín utan fólksins sjálfs, í stofnunum og reglu-
kerfum þjóðfélagsins.
Siðferðisgæðin eru flokkuð eftir tegundum
samskipta. í öllum samskiptum eru það rétt-
læti og virðing fyrir lífinu sem mestu skipta. (
nánum persónulegum samskiptum eru ástin
og vináttan efst á blaði og fyrir einstaklinginn
sjálfan skipta dómgreind og frelsi mestu máli.
Þetta er aöeins gróf skipting, sótt í kenning-
ar Páls, en hana má þó nota til að varpa Ijósi
á leit fólksins. (fljótu bragði hygg ég að flestir
séu að leita að ást og hamingju og telji þessi
siðferðisgæði þau eftirsóknarverðustu. Við
þekkjum að hamingjusamt fólk lifir oft í sátt og
stöðugleika þótt ytri aðstæðúr séu óhagstæð-
ar og innan siðferðisgæða er líka trúin og
margir sem hafa öðlast hana þurfa ekki á frek-
ari gæðum að halda í lífinu.
Þá er frelsið dýrmætt, þ.e. frelsi úr viðjum
kúgunar og ranglætis, barátta fyrir réttlæti.
Ást, frelsi og réttlæti eru líka þau gæði sem
fólk virðist helst reiðubúið að fórna lífi sínu
fyrir. Þetta sýnir glöggt mikilvægi siðferðis-
gæða.
Andleg gæði eru kannski ekki hátt skrifuð í
heimi auðhyggjunnar en allir ættu að fá tæki-
færi til að þroska ímyndun sína, skilning og til-
finningu. Þessi gæði eru mikilvæg fyrir líöan
mannsins og samskipti fólks. Ástundun lista,
leikja og vísinda gerir mannlifiö fegurra en
ella.
Á íslandi og víðarjDar sem auðhyggjan er
við völd er ásókn í veraldargæðin því miður
yfirgengileg. Þetta köllum við oft „lífsgæða-
kapphlaupið" í daglegu tali og sést þá glöggt
hvaða gæði menn flokka sem lífsgæði. Fólk
fórnar miklu fyrir peninga, hluti, völd og frægð
en veraldargæðin eru fallvölt og ef við bindum
svo miklar vonir við þau að líf okkar glatar gildi
sínu ef þau bregðast þá hlýtur mælikvarði okk-
ar á gæði lífsins að vera brenglaður.
Veraldargæðin eru aldrei fullnægjandi. Sá
sem lifir fyrir peninga verður aldrei nógu ríkur
og það sama gildir um völd og frægð. Hvenær
skyldi Davíð Oddsson fá nóg af völdum? Þessi
stefna er ekki einungis vonlaus til að öðlast
lífsfyllingu heldur getur hún verið hættuleg. Og
því miður er það svo að eftir því sem fólk er
önnum kafnara við að eltast við veraldargæðin
stækkar tómið innra með manninum uns allt
hættir að skipta máli. Stefán Sæmundsson
\ A : :
| ^ >; wWm
-
Framlengdir - Framlengdir
Teppi • Dúkar • Dreglar • Mottur
Langmoen parkett úr beyki, eik
og aski • Spónaparkett Plankelit
Allar flísar i versluninni
Tarket parket, valin eik og beyki
á kr. 3.050. fm stgr.
Vegnagóðra undiríekta viðskiptamanna
ákváðum við að framlengja
Gólfefnadagana út næstu viku
BYGGINGAVORUR
LÓNSBAKKA • 'B? 96-30320, 96-30321, 96-30324
Forsvarsmenn fyrirtækja,
stofnana, félaga og samtaka
Frambjóðendur okkar eru reiðubúnir til að koma á
vinnustaði til viðræðna um þau málefni sem óskað
er eftir, hvenær sem er.
Vinsamlegast hafið samband við kosningaskrifstofu
flokksins, Hafnarstærti 90, Akureyri, sími 21180.
Framsóknarflokkurinn.
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN, DALVlK
Hjúkrunarfræðingar
Okkur á Heilsugæslustöðinni á Dalvík vantar
hjúkrunarfræðinga í fullt starf frá maíbyrjun.
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga í sumarafleys-
ingar.
Til Dalvíkurlæknishéraðs teljast Dalvík, Hrísey,
Svarfaðardalshreppur og Árskógshreppur og þjónar
stöðin um 2.400 manns. Hálfrar klukkustundar akst-
ur er til Akureyrar, höfuðstaðs Norðurlands.
Er ekki tilvalið að breyta til og prófa eitthvað nýtt?
Upplýsingar um kaup og kjör veitir Kristjana Þ.
Ólafsdóttir, hjukrunarforstjóri, I síma 96-61500 (fyrir
hádegi).
HÓTELMXJfliph
Hótel Laugar auglýsir eftir
starfsfólki til almennra
hótelstarfa í sumar
Upplýsingar I síma 43135.
Umsóknir sendist fyrir 25. mars nk. til Hjördísar
Stefánsdóttur, hótelstjóra, 650 Laugum.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Hjúkrunarfræðingar
Laus er til umsóknar staða aðstoðardeildarstjóra á
Slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Um er að ræða fullt starf á nýrri Slysadeild sem tekur
til starfa í apríl 1991.
Staðan veitist strax eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 27. mars nk.
Upplýsingar veita Birna Sigurbjörnsdóttir deildar-
stjóri og Svava Aradóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri
í síma 96-22100.
Sjúkraliðar
Laus er til umsóknar staða sjúkraliða á Skurðdeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða
100% stöðu sem veitist frá 1. júní 1991.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 1991.
Upplýsingar gefa Hjördís Rut Jónasdóttir deildar-
stjóri og Svava Aradóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri
I síma 96-22100 kl. 13.00-14.00.
Tölvunarfræðingar
Laus er til umsóknar ein staða tölvunarfræðings
frá 1. júní nk.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið prófi í tölvunar-
fræði frá Háskóla íslands eða sambærilegu námi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist skrifstofustjóra F.S.A. Vigni Sveinssyni
fyrir 25. mars nk.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.