Dagur - 16.03.1991, Blaðsíða 11

Dagur - 16.03.1991, Blaðsíða 11
10 - DAGUR - Laugardagur 16. mars 1991 Er upp var staðið frá úrvinnslu gagna um nautgriparæktina hér á landi á síðasta ári kom í Ijós að bú eitt á Eyjafjarðarsvæðinu var með mestu afurðir eftir hverja mjólkurkú. Jafnframt því að fram- leiðslan sé langt umfram landsmeðaltal er þetta hæsta meðalnyt á kúabúi sem skýrslur eru til um hér á landi. Bú þetta er Brakandi í Skriðuhreppi í Hörgárdal þar sem búa hjónin Yiðar Þorsteinsson og Elínrós Sveinbjörnsdóttir. Arangur þeirra er ekki hvað síst merkilegur fyrir þær sakir að kjarnfóðurnotkun hjá þeim er lítil og því segir sig sjálft að þessari framleiðslu halda þau uppi með góðu heyi. Dagur brá sér bæjarleið í vikunni og forvitnaðist nánar um leyndardómana á bak við gott kúabú. Óhætt er að segja að kýrnar á Brakanda séu í nokkrum sérflokki hvað mjólkurfram- leiðsluna varðar því á meðan meðalnyt eftir hverja mjólkurkú yfir landið á síðasta ári var 4141 kg skilaði hver mjólkurkýr á Brak- anda að meðaltali 6238 kg. Og þetta er besti árangur sem sést hefur í nautgriparæktar- skýrslum hérlendis. Og sem fyrr segir er kjarnfóðurnotkun á bænum í lágmarki. Bændur að draga úr kjarnfóðurnotkun „Maður hefur reynt að halda kjarnfóður- notkuninni í lágmarki en lagt aðaláhersluna á heyið. Síðari árin hefur kjarnfóður á hverja árskú hjá okkur verið 500-700 kg en áður var kjarnfóðurgjöfin meiri. f>á þótti sjálfsagt að gefa nóg af kjarnfóðri og menn fóru allt upp í tonn á hverja árskú en nú er þetta mikið að breytast. Bændur eru greini- lega að draga mjög úr kjarnfóðurgjöfinni en mjólkin hefur þó ekki að sama skapi minnkað.“ er erfiðara að þurrka. Þessar verkunar- aðferðir eru því góðar saman en við færum aldrei eingöngu út í rúlluheyskapinn. Fólk verður líka að gera sér grein fyrir því að lélegt hey skánar ekki við að fará í plastrúll- ur. Það halda þó margir.“ Viðar segist bera áburð á tún um miðan maímánuð eða eins snemma og hægt er. „Við reynum síðan að byrja að slá eins snemma og hægt er og það er óhætt að segja að grasið sé yfirleitt í sprettu þegar það er slegið. Síðan sláum við talsvert mikið aftur og berum þá áburð á á milli slátta. Að mínu mati fær maður betra og skemmtilegra fóð- ur með því að slá tvisvar. Ég hef stundum sagt að heyið er númer eitt, tvö og þrjú, sem kannski er djúpt í árina tekið, en raunin er samt sú að sé maður með lélegt hey þá kem- ur það fljótt fram í nytinni. Ég skal viður- kenna að við höfum verið heppin með hey- verkunina á undanförnum árum, byrjað snemma að slá og fengið góðan þurrk þann- ig að ég veit ekki hvernig það er að fóðra hámjólka kýr með slæmu heyi,“ segir Viðar. koma til sögunnar sem og sláttuþyrlurnar en hvorutveggja þykja þetta núna hlutir sem eru ómissandi og tilheyra nútímabúskap." - En hvað með hina neikvæðu umræðu um landbúnaðinn. Var hún strax komin upp á yfirborðið í byrjun ykkar búskapar? „Nei, þá var tónninn frekar í þá veru að framleiða meira og þannig var hljóðið allt fram undir 1980. Okkur var ráðlagt að byggja stærra fjós er við síðan gerðum og á því sést vel munurinn á viðhorfunum þá og í dag.“ Að tapa á hlýðninni Strax um 1980 fór umræðan um offram- leiðslu í landbúnaði að komast í hámæli og upp úr því komust á kopp hugmyndir um einhvers konar skömmtun. Stjórnvöld vildu að bændur tækju sjálfir til sinna ráða til að draga úr framleiðslunni. Við þessunt tilmæl- um urðu sumir, þar á meðal bændurnir í Brakanda. „Já, við vorum ein af þeim sem trúðum því að þetta væri betra en að fá eitthvert vald yfir sig. Þetta kostaði okkur það að á viðmiðunarárunum fyrir framleiðsluréttinn var mjólkurframleiðsla okkar minni en áður og því fengum við minni framleiðslurétt. Þeir sem ekkert gerðu með þessi tilmæli komu því betur út og græddu raunverulega á þessu. Maður hefur því aldrei komið vel frá því að vera hlýðinn þegar svona lagað er annars vegar.“ Framleiöslan í hámarki yfír veturinn í fjósinu á Brakanda eru 26 mjólkandi kýr og gelda þarf kýrnar yfir sumartímann og það getur stundum reynst erfitt,“ segir Elínrós og Viðar bætir við að með þessu móti fáist aukalega greitt því álag er borgað á vetrar- mjólkina. „Mér finnst þó að þessar álagsgreiðslur mættu vera meiri þó þetta álag hafi hækkað frá því sem var fyrir nokkrum árum. Við fáum greitt um 4 kr. á hvern lítra en sjálf- sagt þyrfti álagið að vera 10 kr. til að þessi aðgerð fengi menn til þess að fara að fram- leiða meira yfir vetrarmánuðina en minna á sumrin.“ Þarf að skera fyrst niður hjá „hobbíbændum“ í spjalli okkar víkjum við að landbúnaðar- málunum almennt og nýjum boðum um stórfelldan niðurskurð í sauðfjárframleiðsl- unni. Samkvæmt þeim leggst framleiðsla af á mörgum bæjum sem nú eru í byggð. Margt fólk á þéttbýlisstöðunum hefur kind- ur sem „hobbíbúskap" og segja þau Viðar og Elínrós að nú hljóti sjónum að verða beint að því að skera.fyrst niður hjá þessum aðil- um. „Auðvitað sjá allir óréttlætið í því að t.d. faglært fólk í einhverjum greinum fái að hafa sauðfjárframleiðslu í aukavinnu. Ég er hrædd um að þetta fólk segði eitthvað ef ófaglærðir bændur byrjuðu allt í einu að vinna við hlið þeirra, t.d. færu að múra inni á Akureyri svo dæmi sé tekið. Þá færi að heyrast í fólki. En þessir múrarar geta samt sem áður verið með sauðfé þó bændurnir hafi menntunina í þessari grein. Þetta er auðvitað ekki réttlátt. Stjórnvöld þurfa að byrja á „hobbíbændununV í þessum aðgerð- um en gallinn er sá að margir þeirra hafa í heimsókn hjd verðlaunuðum mjólkurframleiðendum í Hörgdrdal: Blanda af heppni og sérvisku — segja þau Viðar Þorsteinsson og Elínrós Sveinbjörnsdóttir á Brakanda - Hafa menn þá ekki tapað stórum fjár- hæðum í ofnotkun á kjarnfóðri í gegnum árin? „Jú, auðvitað bendir allt til þess en að sama skapi hefur heyverkunin batnað. Á því er enginn vafi. Menn eru líka farnir að vera meðvitaðri um mikilvægi þess að bera rétt á túnin á vorin og ofnota ekki áburð- inn,“ segir Viðar. Leggjum mikið upp úr heyverkuninni Þau Viðar og Elínrós leggja mesta áherslu á þurrheysverkun en eru síður hrifin af rúllu- heyskapnum svokallaða sem nú er að ryðja sér til rúms í íslenskum landbúnaði. Þó hafa þau notfært sér þá tækni á síðustu tveimur árum til verkunar á seinni slættinum en stór hluti túnanna er sleginn tvisvar. „Nei, við einblínum ekki á þennan rúllu- heyskap. Rúllurnar eru góðar með, sérstak- lega í sambandi við seinni sláttinn þegar oft Tæknivæðingunni á síðustu árum þakka þau Viðar og Elínrós að stórum hluta hve gott fóður er hægt að verka nú til dags. Öll vinnubrögð séu nú frábrugðin því sem áður var og útheimti minni mannskap en að sama skapi fylgi tækninni mikill kostnaður sem bændur verði að leggja út í. Margt breyst á síðustu 20 árum Viðar og Elínrós byrjuðu að búa á Brak- anda árið 1973 og þá fyrst í félagsbúi við for- eldra Viðars en hann er fæddur og uppalinn á Brakanda. Árið 1980 tóku þau alfarið við kúabúskapnum. Því eru nú hart nær 20 ár frá því þau byrjuðu sinn búskap og Viðar orðar það svo að þau ættu því að vera kom- in með einhverja reynslu á þessum tíma. En margt hefur breyst á ekki lengri tíma í land- búnaðinum. „Já, ekki síst í tengslum við tæknina í kringum landbúnaðinn. Þegar við vorum að byrja að búa voru heyhleðsluvagnarnir að annað eins af kvígum í eldi en allar kvígur sem fæðast eru látnar lifa og þannig er alltaf til nóg af kvígum ef eitthvað kemur uppá með mjólkurkýrnar. Þessu til viðbótar eru þau Viðar og Élínrós með nokkrar kindur. „En þær eru svo fáar að við flokkumst ábyggilega sem „hobbíbændur,“ segir Viðar hlæjandi. Þau hjón eiga fjögur börn og segja að bú af þessari stærð sé hentugt fyrir þessa fjöl- skyldustærð. „Það borgar sig ekki að vera með stærra bú,“ bætir Elínrós við. Þó ókunnugum kunni að þykja sem rekst- ur allra kúabúa hljóti að vera svipaður er svo ekki. Hver bóndi hefur sitt lag á rekstr inum og aðferðirnar til að ná sem mestu út úr búunum eru ólíkar. Viðar segist hafa þá reglu að láta kýrnar bera að haustinu, eða í upphafi hvers framleiðsluárs. Með þessu móti sé auðveldara að stýra framleiðslunni. „Það er mikill munur að hafa þennan háttinn á. Með þessu nýtir maður heyið bet- ur en auðvitað hefur þetta þann ókost að beitt ráðamennina þrýstingi og fá því frið,“ segir Elínrós. Þau hjón eru sammála um að sú kenning sé veik að „hobbíbændur" á þéttbýlisstöðun- um séu fyrst og fremst gamlir bændur sem tekið hafi með sér nokkrar kindur þegar þeir hættu að búa. Hér sé um að ræða almennt launafólk sem tekið hafi sér þenn- an búskap sem tómstundagaman. Milliliðirnir frekir „Það þýðir ekki annað en sætta sig við niðurskurð þegar fólk vill ekki borða kinda- kjötið. Það er bændum ljóst. Spurningin er fyrst og fremst um aðferðirnar, hvernig á að taka á vandanum. Hitt er annað mál að kjötið selst ef það er lækkað í verði. En þá er krafan alltaf sú að bóndinn lækki sitt verð en ekki milliliðirnir þó þeir vegi enn þyngra í verðlagningunni,“ segja þau Viðar og Elínrós. Dæmin um milliliðakostnaðinn segja þau mörg og áþreifanleg og þar sem nýafstaðin eru þorrablót tekur Elín dæmi af Laugardagur 16. mars 1991 - DAGUR - 11 Viðar, Elínrós og sonurinn Sesar Þór í fjósinu á Brakanda: „Getum verið ánægð með hvað við höfum fengið út úr kúnum á síðustu 10 árum >Sr'K Mynd: Golli verðlagningu á hrútspungum. „Eins og gengur þá eru pungar á sumum lömbum en fyrir það fáum við ekkert sér- staklega greitt enda fylgja pungarnir ekki slátrunum eins og allir vita. En ætli menn síðan að kaupa sér súra hrútspunga fyrir þorrablótið þá kosta þeir tæplega 1000 kr. kílóið út úr búð. Ef þetta er dæmigerður milliliðakostnaður þá er hreint ekki að undra þó eitt lambalæri sé orðið dýrt þegar það er búið að fara í gegnum allt kerfið og inn í búð.“ „Menn gætu lært af mjólkur- og kjötskorti Viðar gagnrýnir það hversu seint boð um aðgerðir koma til bænda. Oft fái bændur slík boð of seint enda þurfi stýring á fram- leiðslu í landbúnaði að hafa nokkurn aðdraganda. Dæmi um þetta nefnir hann að yfirvöld hafi í fyrra gefið skyndilega út reglugerð þar sem heimilað var að framleiða mjólk af framleiðslurétti næsta árs þar sem fyrirsjáanlegur var smjörskortur í landinu. „Þetta varð til þess að ekki varð mjólkur- skortur,“ bætir Elínrós við. „Kannski er það einmitt það sem hér á landi þarf að gerast. Kannski þarf að verða hér mjólkur- og kjöt- skortur til að menn vakni því þeir virðast ætla að fækka sauðfénu það mikið að hér verði kjötskortur. Og þá fara raddirnar um innflutning örugglega að hljóma," segir hún. - Nú eru þessar tillögur sjömannanefnd- arinnar í sauðfjárframleiðslunni opinberar. Eiga menn von á annarri holskeflu þegar kemur að mjólkurframleiðslunni? „Nei, því vil ég ekki trúa vegna þess að hún er mun nær innanlandsmarkaðnum," svarar Viðar. „En verði skerðing á fram- leiðsluréttinum þá held ég að margir mjólk- urframleiðendur, líkt og með marga sauð- fjárbændur, þoli ekki frekari skerðingu. Þess vegna tel ég vænlegra að sú leið verði frekar farin að keyptur verði upp fram- leiðsluréttur." Áhrifín af niðurskurðinum Framtíðin hlýtur að vera mikilvægust fyrir alla, ekki bændur síður en aðra. Áhrifin af verulegum niðurskurði í sauðfjárfram- leiðslu og hugsanlegum aðgerðum í mjólk- urframleiðslunni eru því ofarlega í hugum bænda þessa dagana. Þau Viðar og Elínrós segjast viss um að margir geri sér ekki grein fyrir að í kjölfar þessara aðgerða kunni margir að flytjast til þéttbýlisstaðanna og keppa þar um störfin. „Éf næg atvinna væri í þéttbýlinu í dag þá væri þetta allt í lagi en því er ekki að heilsa. Hvað varðar Eyjafjarðarsvæðið þá held ég að hér muni ekki margir flosna upp í sveit- unum og flytja til þéttbýlisins. Að því leyt- inu til gæti þetta svæði sloppið betur en mörg önnur í þessum niðurskurði,“ segir Viðar. Góöar vörur úr góðri mjólk Viðar telur að vel hafi verið staðið að vöru- þróun í mjólkuriðnaðinum á síðustu árum, a.m.k. hjá mjólkursamlaginu á Akureyri. Jafnframt standi menn vel að mjólkureftir- liti á svæðinu og því flokkist um 99% inn- veginnar mjólkur í fyrsta flokk. Ekki þurfi því að undra þó hægt sé að framleiða góðar mjólkuivörur úr þessu hráefni. „Síðan er bara að koma nægu skyri á markað í Bandaríkjunum þó ekkert sé orðið ljóst í þeim efnum. Þarna gæti verið að opn- ast stór markaður en samt má það ekki verða svo að menn fari að borga með skyr- inu til úlflutnings. Manni finnst að stundum hafi ekki verið staðið nógu vel að sölu- átökunum á íslenskum landbúnaðarvörum erlendis því ekki hefur heyrst annað en útlendingum líki yfirleitt mjög vel við þær vörur sem við erum að bjóða þeim. Manni finnst þetta skrýtið en kannski er það svo með sumar vörur að ómögulegt sé að selja þær fyrir einhvern pening jafnvel þó þær séu góðar." Hæfílegur skammtur af sérvisku Ekki þarf að renna augum lengi urn stofuna á Brakanda áður en augu festir á viðurkenn- ingum frá Mjólkursamlagi KEA fyrir góða framleiðslu. Því spyrjum við þau Elínrós og Viðar hvort þau ætli að halda áfram á sömu braut og standa jafn framarlega í flokki mjólkurframleiðenda sem hingað til í búskap sínum. „Við sjáum bara fyrst og fremst til hvað kýrnar gera. Við getum verið ánægð með það sem við höfum fengið út úr kúnum á síðustu 10 árum sem er að meðaltali um 5500 kg. eftir hverja kú á ári. Síðasta ár var sérstakt því tíðarfarið var einstaklega gott en hvort annað svona ár kemur aftur verður bara að koma í ljós,“ svara þau. „Auðvitað má segja að inn í svona lagað spili heppni og kannski er maður með hæfilegan skammt af sérvisku líka, það efa ég ekki,“ bætir Viðar við. „Eitt af þessum sérviskuatriðum er að við gefum kúnum hey árið unt kring. Kannski skiptir þetta engu máli en samt sem áður éta kýrnar heyið líka yfir sumartímann. Auðvitað er þetta ekki mikið heymagn en við gefum þeim örlítið af heyi í stokk fyrir utan fjósið eftir kvöld- mjaltirnar og reyndin er sú að kýrnar fara ekki í nátthagann fyrr en þær eru búnar að fá heyið og jafnvei ekki þó bíði þeirra græn- fóður. Hvort þetta atriði spilar inn í eða ekki þá er tilfellið að þegar kýrnar koma inn á haustin og fara alfarið á hey þá minnkar nytin ekki í þeim. Ég man að foreldrum mínum þótti það vitlaust að gefa kúnum hey yfir hásumarið en einhvern veginn atvikað- ist þetta svona og okkur líkar þetta vel á meðan kýrnar vilja þetta. Við reynum líka að koma kúnum sem allra fyrst út á vorin en erum ekki hörð við að hafa þær úti á haustin. Síðan færi ég þær til í fjósinu yfir veturinn þannig að ég raða nýbærunum saman og get þannig betur stýrt fóðruninni á þeim. Þannig eru kýrnar held- ur aldrei heilan vetur á sama básnum. Ég hef líka stundum sagt að maður verði að setja sig sjálfan í spor gripsins sem maður er að hugsa um. Þannig skynjar maður bet- ur hvað skepnunum þykir gott og hvað ekki.“ JÓH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.