Dagur - 16.03.1991, Síða 5

Dagur - 16.03.1991, Síða 5
Laugardagur 16. mars 1991 - DAGUR - 5 Urgur í triUusjómöimum vegna aflakvóta smábáta Nú er lokið endurskoðaðri úthlutun á aflakvóta smábáta. Við upphaflega úthlutun var gert ráð fyrir að um 2,100 smábátar ættu kost á afla- heimildum miðað við forsend- ur síðasta árs og gætu afla- heimildir orðið um 41,5 þús- und tonn af slægðum þorski eða ígildi hans. Veiðileyfum hefur aðeins verið úthlutað til um 1000 báta enda hafa þeir uppfyllt skilyrði um haffærnis- skírteini. Mögulegar aflaheim- ildir svara því til 32,8 þúsund tonna af þorski eða þorskígild- um. Smábátaeigendur hafa ekki tekið úthlutun sjávarútvegsráðu- neytisins með þegjandi þögninni. Landssamband smábátaeigenda hefur sent frá sér harðorða álykt- um vegna endanlegrar úthlutunar aflaheimilda til smábáta fyrir fyrstu átta mánuði þessa árs. I ályktuninni segir meðal annars að þrátt fyrir mikla vinnu sem lögð hafi verið í að koma úthlut- un aflaheimilda smábáta í viðun- andi horf hafi það ekki aðeins mistekist, heldur hafi enn frekari skerðing dunið yfir og miðað við þær forsendur sem notaðar hafi verið við útreikning aflakvótans megi greinilega búast við enn frekari niðurskurði í byrjun næsta fiskveiðiárs. í ályktuninni ér því einnig haldið fram að sú breyting á fyrirkomulagi fisk- veiða, sem tók gildi um síðustu áramót, sýni alvarlega þver- bresti. Eignir margra smábáta- eigenda séu gerðar verðlitlar eða verðlausar og við mörgum smá- bátaeigéndum blasi ekkert annað en gjaldþrot. Örn Pálsson fram- kvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, hefur látið hafa eftir sér að þrátt fyrir að nokkrir smábátaeigendur hafi fengið leið- réttingu á aflaheimildum sé skerðingin engu að síður svo mikil að margir þeirra telji afkomu sinni betur borgið með því að leigja kílóið af aflakvóta á 40 krónur en fást sjálfir við útgerð smábáta sinna og selja afl- ann á því verði sem verðlagsráð sjávarútvegsins ákveður. Smábátaeigendur segja að fara verði eftir lögum um stjórn fiskveiða Er drög að úthlutun aflaheimilda til smábáta voru lögð fram í byrj- un þessa árs mættu þau strax mikilli andstöðu smábátaeig- enda. Heitt var í kolum á fundum þeirra og harðorðar ályktanir voru samþykktar. Margir trillu- sjómenn sendu harðorðar kvart- anir til sjávarútvegsráðuneytis- ins, skýrðu sín mál og kröfðust leiðréttinga. Á fundi smábáta- félaganna á Suðvesturhorni landsins, sem haldinn var um fyrstu helgi ársins var samþykkt ályktun og send til alþingismanna og þingflokka. í ályktuninni var þess krafist að farið yrði eftir lög- um urn stjórn fiskveiða, þar sem ákvæði til bráðabirgða í kafla II, annarri og fimmtu málsgrein, kveði skýrt á um að aflahlutdeild bátar fái rétt hlutfall af þeim kvóta, sem til skipta komi vegna afnáms sóknarmarksins. Stjórn Landssambandsins hefur ítrekað við sjávarútvegsráðherra að hafi hann vilja til þess að leysa vanda- mál þeirra smábáta sem hleypt hefur verið inn í kerfið á síðustu þremur árum án þess að skerða þá sem fyrir voru umfram aðra útgerðarhópa þá sé enn tími til stefnu að taka ákvörðun um það. Arthur Bogason - „Er friðhelgi eignarréttar og atvinnu í gildi?“ Arthur Bogason formaður Lands- sambands smábátaeigenda ritaði grein í Fiskifréttir nýverið og fer þar mjög hörðum orðum um út- hlutun fiskveiðiheimilda til smá- báta. Hann fullyrðir að skerðing á aflaheimildum smábáta nenti 26% og reikna megi með 30% Endanleg úthlutun' aflaheimilda til smábáta: Ekkert annað en gjaldþrot blai við fjölda smábátaeigenda segir í ályktun Landssambands smábátaeigenda ö J .... l vfir siávarútveesráðui „Stjórn L.S. Iiarmar að þratt fyrir þá miklu vinnu scm liigð hcfur vcrið i að fá úthlutun alla- hcimilda smábáta í viðunandi horf hcfur það ckki aðcins mis- eyri: tekist, heldur hefur enn frekari skerðing dunið yfir og í þeim útreikningum og forsendum sem notaðar eru við síðustu úthlutun má greinilega búast við enn frekari niðurskurði í byrjun næsta fiskveiðiárs. Þessi hrikalegi niðurskurður afla- ’-nilda sem smábátaeigendur ^r?mi fyrb- yfir sjávarútvegsráðuna trillukörlum um allt U)« kvæmt nefndri álykturl sambands smábát?! sem er óvenju harðoj umbjóðendur þess lítt f< > hlut réttan. Sagt er að sil á fyrirkomulagi fiskveitl gildi tók um síðustu árani sýnt alvarlega þverbresti ihátaeigendil ’Jkrf báta, sem veiðileyfi fá í fyrsta sinn eftir 31. desember 1989, án þess að sambærilegir bátar hafi horfið varanlega úr rekstri í þeirra stað, hafi ekki áhrif á út- hlutun aflahlutdeildar þeirra smábáta sem fyrir voru. f>á var þess krafist að efnt verði fastmæli sjávarútvegsráðuneytisins og Landssambands smábátaeigenda um að búinn verði til auka afla- kvóti handa smábátum og að einnig verði efnt það fastmæli sjávarútvegsráðuneytisins og Landssambandsins um að smá- aflaskerðingu á heilsársgrund- velli vegna þeirra aðferða sem sjávarútvegsráðuneytið noti við útreikning aflaheimildanna. Arthur líkir kvótaúthlutuninni við eignaupptöku og segir að verði ekki nú þegar gerð leiðrétt- ing á málefnum smábátaeigenda sé það skylda Landssambandsins að láta á það reyna hvort frið- helgi eignarréttarins og atvinn- unnar sé ekki örugglega í gildi. Arthur segir einnig að dæmi sem einstakir smábátaeigendur standi frammi fyrir séu hrikaleg. Rán- dýrir bátar sem séu smíðaðir í samræmi við lög og reglur séu allt í einu orðnir verðlausir og bendir á að vandamál sem stjórnvöld hafi skapað eigi ekki að leysa á kostnað smábátaeigenda. Hann bendir einnig á að fulltrúar Landssambands smábátaeigenda hafi um mitt ár 1987 gengið á fund sjávarútvegsráðherra og far- ið fram á að hann beitti sér fyrir að fjölgun smábáta yrði stöðvuð en ekkert hafi verið hlustað á það fyrr en núna þremur árum síðar. Farið að lögum - þeir sem hafa smábátaútgerð að hlutastarfi hafa hæst Árni Kolbeinsson, ráðuneytis- stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, "u Prósent ^-------------------- rn ígcuu sauðOár /haust Ekkert^'^'T^.. f'U'lmundur Prótt<iij)Qdur Wð l]öldHsmáSu!!II-r0tblHsir r. •\kunnri: _, ; wjWrdróstmeðbú Wft 5 ***"*+!!?,£?** '**»• hefur opinberlega borið til baka þær ásakanir smábátaeigenda að ekki hafi verið farið að lögum við úthlutun aflakvóta. Hann hefur bent á, að ákvæðið til bráða- birgða í kafla II, annarri og fimmtu málsgrein í lögum um stjórnun fiskveiða hafi verið sett inn í frumvarpið í meðförum Alþingis að beiðni Landssam- bands smábátaeigenda og almennur skilningur hafi verið á því að aflaúthlutun til nýrra smábáta, sem bæst hefðu við flot- ann frá og með 1990, yrði tekin af heildarkvótanum áður en skipt yrði á milli þeirra skipa og báta sem fyrir séu í flotanum. Jón B. Jónasson, deildarstjóri í sjávar- útvegsráðuneytinu sagði að ekki væri rétt að leiðréttingar sem gerðar voru á aflakvóta við síðari úthlutunina hefðu orsakað frek- ari skerðingu á aflaheimildum. Einhverjar tilfærslur gætu hafa átt sér stað þar sem miðað væri við tvö tiltekin viðmiðunarár og misjafnt væri hvað smábátaeig- endur hefðu aflað á þessu tveggja ára tímabili miðað við árin á undan. Af þeim sökum gætu ein- hverjir trillusjómenn hafa fengið minni aflaheimild en hefði orðið væru viðmiðunarárin önnur. Varðandi þær ásakanir sem fram hafa komið af hendi smábátaeig- enda að margir þeirra standi nú frammi fyrir gjaldþroti sagði Jón B. Jónasson að einhverjir hefðu eflaust fjárfest í dýrum bátum í þeirri trú að engar aflatakmark- anir yrðu settar. Hins vegar hefði afli smábátanna sífellt farið vax- andi og umræða því búin að eiga sér stað í nokkurn tíma um að þeim yrði sett aflamark eins og öðrum fiskiskipum. Menn hefðu því getað búist við aflatak- mörkunum í einhverju formi. Jón B. Jónasson benti einnig á að einungis um 600 smábátaeigend- ur hefðu sent kvartanir af rúm- lega 2000 og sýndi það vel að hvort sem menn væru fyllilega sáttir við sinn hlut eða ekki þá væri hópur hinna háværari til- tölulega smár miðað við heildina. Mest bæri þar á aðilum sem hefðu smábátaútgerðina ekki að fullu starfi en stunduðu hana ásamt fleiri viðfangsefnum. Hlutasjómennirnir væru einnig fyrstir til að vilja selja aflakvót- ann. Menn sem hefðu smábáta- útgerð að heilsársstarfi væru margir hverjir með ágætar veiði- heimildir þótt segja megi að eng- inn geti verið alveg ánægður með að vera settar skorður í atvinnu- rekstri sínum og lífsbjörg. Fjöldi smábáta aukist mikiö - eigendum báta sem ekki hafa haffærnis- skírteini gefinn kostur á að afla þess Sjómenn eru óánægðir með trillu- kvótann. í sjálfu sér er það ekki óeðlilegt þegar um takmörkun á starfsmöguleikum er að ræða. Við ýmsan vanda er einnig að fást þegar setja á hverjum veiði- manni hámarkskvóta. Föst við- miðunarár koma misjanflega út hjá einstökum mönnum og þann- ig geta sumir verið heppnir en aðrir óheppnir og í slíkri úthlut- un, sem veiðikvóti er verður aldrei gert svo að öllum líki. Þeirri staðreynd verður þó ekki breytt að fjöldi smábáta hefur aukist mikið á undanförnum árum og nokkuð er um nýlega eða nýja báta sem ekki voru til á þeim árum sem höfð voru til við- miðunar. Einnig er eðlilegt að miða við að hver bátur sem fær aflaúthlutun hafi haffærnis- skírteini. Þeim smábátaeigend- um sem af einhverjum ástæðum hafa ekki haffærnisskírteini fyrir báta sína hefur þó verið gefinn kostur á að afla þeirra og rennur endanlegur frestur til að gera þá báta, sem nú teljast ekki haffær- ir, klára fyrir 1. maí næstkom- andi og eiga þeir þá kost á afla- kvóta í samræmi við þann afla sem þeir hafa flutt að landi á við- miðunarárunum. PI : HU , I í 1/2 LlTRft : nmy •-iSsSS una meb þvi sl neturöu gert úr ■ trefjaríkum kornblöndum. iSnd?ma8ur i bliSu og stríbu

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.