Dagur - 16.03.1991, Síða 20

Dagur - 16.03.1991, Síða 20
sumar, en eftir eigi að koma í ljós hvort þær skili sér. Um er að ræða allt frá einnar viku til þriggja vikna ferðir. í boði eru margvíslegar ferðir. Nefna má svokallaðar hótelferð- ir, en þær eru yfirleitt 8-14 daga. Farnar eru fremur stuttar dags- ferðir og gist á hótelum. Þá eru að sögn Gunnars afar vinsælt að gista á ferðaþjónustubæjum. í Kaup á húsgögnum og leiktækjum fyrir Akureyrarbæ gagnrynd - búnaður í Holtakot og á skrifstofur bæjarins keyptur að sunnan Sérleyfisbílar Akureyrar: Mjög góðar horfiir fyrir sumarið - 19 skemmtiferðaskip koma á þeirra vegum í sumar „Ég er bjartsýnn, það eru mjög góðar horfur fyrir sumar- ið. I fyrra komu 16 skemmti- ferðaskip á okkar vegum til Akureyrar, en þau verða 19 í sumar,“ segir Gunnar M. Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Sérleyfisbíla Akureyrar sf. Hann segir að mikil aukning sé í bókunum í skipulagðar hóp- ferðir erlendra ferðamanna í þriðja lagi skal nefndur sá ferða- máti að þeysa um landið í rútum og gista á tjaldstæðum. Gunnar segir erfitt að segja til um hvort aukning verði í bókun- um íslendinga í sumarleyfisfcrð- ir. Reynslan sýni að landinn bóki sig yfirleitt með mjög stuttum fyrirvara og því sé ekki gott um að segja hvort þar verði einhver marktæk breyting milli ára. óþh „Nútímarómantík“ Mynd: Golli Norðurland: Vor er í lofti Unnur Ólafsdóttir, veður- fræðingur á Veðurstofu íslands lofar Norðlending- um góðu veðri um helgina. „Vindar blása af austri og suðaustri. Þegar svo er, þá er veðrið oftast gott hjá ykkur. Hlýtt loft gengur inn yfir Norðurland. Vor er í lofti, þó svo að élja geti gætt á einstaka stað,“ sagði Unnur Ólafsdótt- ir. ój Skörðugilsfénu lógað í dag: Ráðherra fyrirskipar niðurskurð - eignanámsbætur nú mögulegar Steingrímur J. Sigfússon hefur fyrirskipað niðurskurð á bústofni Einars E. Gísia- sonar bónda á Syðra-Skörðu- gili í Seyluhreppi. Fyrr í vet- ur var staðfest riða í einni kind í hjörð Einars og unda- farið hafa staðið yfir viðræð- ur milli Sauðljárveikivarna og Einars. Tilskipun landbúnaðarráð- herra þýðir að Einar hefur rétt til eignanámsbóta ef ekki semst um bætur fyrir bústofn hans. Að sögn Einars er ekki hægt að segja til um hvort samningar náist að svo stöddu. í gær stóð yfir undirbúning- ur fyrir förgun fjárins á Skörðugili en bústofn Einars er með afurðahæstu bústofn- um og landsþekktur fyrir mikla og góða ræktun. Að sögn Einars bjóst hann við að fénu verði lógað í dag. kg Nokkur gagnrýni hefur komið fram á kaup Akureyrarbæjar á húsgögnum og leiktækjum fyr- ir dagvistarheimilið Holtakot og kaup húsgagna og innrétt- inga fyrir skrifstofur bæjarins. Það sem helst er gagnrýnt, er að þessar vörur eru keyptar frá Reykjavík, í stað þess að versl- að sé við akureyrska aðila. Dagur hafði samband við nokkra embættismenn vegna þessa máls og kom m.a. fram að ekki eru allir á eitt sáttir við það hvernig að þessum kaupum var staðið og þá hvaða embætti ætti að hafa þau með höndum. Varðandi kaup á búnaði fyrir Holtakot, segir Einar Jóhanns- son fulltrúi húsameistara m.a. að vissulega sé undarlega að þeim staðið. „Það hlýtur að vera óeðli- legt í hæsta máta þegar bæjarrit- ari, bæjargjaldkeri og embætti húsameistara vita ekki af hús- gagnakaupum sem þessum upp á 3 millj. kr.,“ sagði Einar. Umferðarráð: Ökumenn hvattir til að virða rautt ljós í fréttatilkynningu frá Umferð- arráði kemur fram að yfirvöld umferðarmála hafi vaxandi áhyggjur af því hve margir ökumenn virðast aka á móti rauðu Ijósi á Ijósastýrðum gatnamótum. Við könnun hef- ur komið í Ijós að þetta athæfi er mun algengara en áður. Af þessum sökum hafa lög- regla og Umferðarráð tekið höndum saman til að vekja athygli á þessu vandamáli og þeirri hættu sem því fylgir. Oft verða mjög harðir árekstrar á Ijósastýrðum gatnamótum sem stafa af því að einn eða fleiri öku- menn fara yfir þau á móti rauðu Ijósi. „Rétt er að hafa í huga þá stór- hættu sem fylgir akstri á móti rauðu ljósi. Um leið þurfa menn að vita hvaða viðurlög fylgja því ef lögregla verður vitni að slíku eða aðrir kæra viðkomandi ökumann. Sekt vegna brota af þessu tagi er 7000 krónur, þannig að þeir sem vilja nota peningana sína til annars, ættu að sleppa því að aka yfir á rauðu ljósi,“ segir í tilkynningunni. Lögreglan verður með aukið eftirlit á næstunni og eru öku- menn hvattir til að leggja sitt af mörkum til aukins umferðar- öryggis og virða umferðarlögin við umferðarljós sem annars staðar. SS Sigríður Magnea Jóhannsdótt- ir dagvistarfulltrúi segir hins veg- ar að starfsmenn embættis húsa- meistara hafi ekki meira vit á kaupum á leiktækjum og hús- gögnum en fóstrur, sem hafi unn- ið í sínu starfi í meira en 20 ár. „Við keyptum allan búnað í Holtakot í umboði félagsmála- ráðs og ég sem dagvistarfulltrúi skrifaði upp á reikingana, sem og alla reikninga sem stofnað er til vegna dagheiinila og gæsluvalla," sagði Sigríður Magnea. Valgarður Baldvinsson bæjar- ritari segir að fram til þessa hafi embætti húsameistara annast allt sem fallið hefur undir nýsmíði og lagfæringar og m.a. skrifað upp á reikninga. Að undanförnu hafi þetta hins vegar verið á reiki. „Mér hefði þótt eðlilegt að fóstr- urnar hefðu séð um leikfanga- kaupin og húsameistari um ann- an búnað,“ sagði Valgarður. Hann sagði jafnframt að í sínu starfi hafi hann haft mikla til- hneigingu til að skipta við aðila á Akureyri, svo framarlega að þeir bjóði sambærilega eða betri vöru en aðrir. Sjá nánar bls. 3 f Ólafsflörður: Oánægja með að bifreiða- skoðun flyst til Akureyrar Með tilkomu nýrrar skoðunar- stöðvar Bifeiðaskoðunar ís- lands hf. á Akureyri, sem formlega verður vígð fimmtu- daginn 21. mars nk., færist aðalskoðun bifreiða í Ólafs- firði til Akureyrar. Sá háttur hefur verið hafður á að skoðunarmenn frá Bifreiða- skoðun hafa farið til Ólafsfjarðar og skoðað bílaeign Ólafsfirðinga. Á þessu ári eru hins vegar engir sérstakir skoðunardagar fyrir Ólafsfjörð á dagskrá hjá Bifreiða- skoðun og er ætlunin að skoðun Ó-bifreiða færist í nýju skoðun- arstöðina á Akureyri. Kjartan Þorkelsson, bæjai fógeti í Ólafsfirði, sagðist ver heldur ósáttur við að Ólafsfirc ingum væri gert að aka um 10 kílómetra leið til þess að fær bifreiðar sínar til skoðunar. Skú Pálsson, lögreglumaður í Ólafí firði, tók undir þetta og sagc Ólafsfirðinga vera mjög ósátt við þessa skipan mála. Hjá Bifreiðaskoðun fenguí þær upplýsingar að með þess væri ætlunin að nýta betur nýj skoðunarstöðina á Akureyri, au þess sem hún gæfi möguleika mun nákvæmari skoðun bifreið en áður hefði þekkst. óþ Glerársókn: Svavar og Gurni- laugursækjaum Umsóknarfrestur um stöftu sóknarprests við Glerárkirkju á Akureyri rann út í gær. I gærmorgun fengust ekki upplýsingar á Biskupsstofu um fjölda umsækjenda, en Dagur hefur fyrir því heimildir að Svavar Alfreð Jónsson, sókn- arprestur í Ólafsfirði, og Gunnlaugur Garðarson, að- stoðarprestur við Garðakirkju í Gárðabæ, sæki um. öþh Dalvík: Innbrotí Svarfdælabúð Innbrot var framift í Svarf- dælabúð, verslun KEA á Dalvík, aðfaranótt föstu- dagsins og 70 þús. kr. skipti- mynt stolift. „Við vorum að fá tilkynningu um innbrotið og erum að fara á vettvang til rannsókna,“ sagði vakt- hafandi lögreglumaður í lög- reglunni á Dalvík. Að sögn Rögnvaldar Frið- björnssonar, útibússtjóra KEA á Dalvík, þá var aðkom- an að versluninni Svarfdæla- búö heldur óskemmtileg í gærmorgun. „Þjófurinn haföi höggvið upp útihurö og komist inn í verslunina. Fimm afgreiðslu- kassar voru sprcngdir upp og skiptimynt stolið. Annað er ekki komið í ljós á þessu stigi,“ sagði Rögnvaldur Frið- björnsson. ój Deilumál við Blöndu: Eignanámsbætur niðurstaðan? - gæti tafíð opnun virkjunarinnar Engin hreyfing virðist vera á þrætumáli Landsvirkjunar og bænda á Löngumýri í Aust ur-Húna vatnssýslu. Framkvæmdum við veg og línustæði átti að Ijúka um áramót en cngar fram- kvæmdir hafa verið síðan Löngumýrarbændur stopp- uðu verkið. Að sögn Páls Ólafssonar yfirmanns byggingardeildar Landsvirkjunar gæti farið svo að línan yrcði ekki tilbúin 1. október en þá á virkjunin að hefja raforkuframlciðslu sam- kvæmt áætlun. Línustæðið þarf umfjöllun Byggingarnefndar og síðan mun málinu líklega verða vís- að til eignanámsbótanefndar. Að sögn Páls ber það niikið í milli að útilokað er að sanin- ingar náist milli landeigenda og Landsvirkjunar. Að mati Landsvirkjunar er eðlilegast að málið fái umfjöllun eigna- námsbótanefndar svo fram- kvæmdir geti hafist sem fyrst. Ekki náðist í Björn Björnsson bónda á Lögumýri vegna málsins. kg

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.