Dagur - 27.03.1991, Blaðsíða 6

Dagur - 27.03.1991, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 27. mars 1991 List í Grófargili er ekki andstæð Amtsbókasafninu Amtsbókasfnið er falleg bygging en ekki að öllu leyti hentug til þeirra nota sem henni hafa verið ætluð. Þannig hefur aðstaða starfsfólks nær engin verið allt frá upphafi og geymslur allt of litlar. Rými fyrir Héraðsskjalasafnið hefur og verið allt of þröngt. Þetta sjá þó fæstir þeirra mörgu gesta sem safnið sækja. Þeir reka sig hins vegar á þrengslin í for- stofunni sem er ótrúlega lítil í svo fjölsóttu stórhýsi. Það er því löngu tímabært að bæta úr þessum ágöllum á bygg- ingunni. Suma hefði átt að vera hægt að sjá fyrir, eins og forstof- una og aðstöðuleysi starfsfólks, aðra hafa breyttar aðstæður leitt í ljós. Því var samþykkt bæjar- stjórnar á 125 ára afmælinu um að byggja við safnið eðlileg og sjálfsögð. Hins vegar fól sú sam- þykkt ekki sjálfkrafa í sér að ofan við núverandi safn skyldi rísa það hús sem þar varð síðar til á teikni- borði Guðmundar Jónssonar arkitekts í Osló. Það er margfalt stærra en bókasafnið þarf á að halda enda að langmestu leyti ætlað til annarra nota. Byggjum við safnið - gerum upp gilið! Það er gott að veluunarar safns- ins láti nú til sín taka og hefði mátt fyrr vera. Hins vegar virðist mér misjöfn túlkun þeirra sem nú skrifa upp á lista til stuðnings við- byggingu og a.m.k. sumir þeirra beini þeim ekki síður gegn hug- myndum um að gera Grófargil að miðstöð listiðkunar í bænum. En ég hef líka orðið var við að aðrir sem upp á hafa skrifað eru síður en svo andstæðir þeim hugmynd- um þótt þeir vilji einnig byggja KEA Byggðavegi 98 Til páskanna: Vínber blá kr. 277 Camenbert kr. 254 Ritzkex kr. 73 • Vínber græn kr. 277 Bóndabrie kr. 153 • Appelsínur kr. 99 Tilboð Tilboð v Haustkex / \ kr. 101 / Tilboð Frón mjólkurkex kr. 101 Hy-top maiskorn 480 g kr. 78 Ardmona perur V2 dós kr. 76 K.J. grænar baunir V2 dós kr. 55 Hy-top ananas- sneiðar V2 dós kr. 86 Heinz bakaðar baunir V2 dós kr. 56 K.J. gulrætur Bl. ávextir Knorr sósur og gr. baunir V2 Eldorado 410 g kr. 74 kr. 82 kr. 162 pk. Opnun um páskana 28. mars opið frá kl. 10.00-20.00 29. mars lokað 30. mars opið frá kl. 10.00-20.00 31. mars lokað 1. apríl opið frá kl. 10.00-20.00. ATH! Heimsendingar- þjónusta Erlingur Sigurðarson. við safnið. Það er líka mergurinn málsins: Þessar tv.ær framkvæmd- ir eru ekki andstæðar og má ekki tefla þeim fram sem slíkum. Það verður þeim báðum til tjóns og tafar og af henni er komið nóg. Það er einnig líklegt að það tefji úrbætur á aðstöðu safnsins að fast verði haldið við áform um stórbyggingu þar, bæði vegna umfangs og kostnaðar. Þar á ofan er í meira lagi vafasamt að slíkt yrði safninu til framdráttar og miklar truflanir yrðu á löngum byggingartíma og ónæði af hávaðasamri og óskyldri starf- semi. Auk þess er líklegt að slík bygging yrði óhæfilega dýr og skortur á fé yrði henni mjög til tafar. Það eru a.m.k. algeng við- brögð bæjarbúa að mótmæla skattheimtu og ólíklegt að þeir vilji auka framkvæmdafé bæjar- ins með auknum álögum, t. d. fasteignaskatti! En er þá ekki enn dýrara að standa í framkvæmdum á tveim- ur stöðum í senn? Ekki þarf svo að vera sé skynsamlega að mál- um staðið. Þær 17 milljónir (framreiknaðar) sem þegar hafa verið greiddar vegna stórbygg- ingarinnar við safnið eru vissu- lega stórfé, en það er ekki sjálf- gefið að það sé besta ráðstöfunin á því að halda áfram í blindni á þeirri braut. Ef menn komast að því að þeim hundruðum millj- óna, sem framkvæmdin myndi kosta, yrði betur varið á annan og ódýrari hátt er betra að eyða ekki meiru þar en vinna áfram á grundvelli hugmyndanna um list í Grófargili. Til þeirra virðist tæpri milljón hafa verið vel varið, jafn- vel þótt hinar sautján nýtist tak- markað og hefði þó mátt fram- kvæma mikið fyrir þær. Reisum við okkar eigin vallargarð! Vonandi tekst að ganga frá sam- komulagi við KEA um húsin í gilinu með það fyrir augum að endurbyggja þau bænum til sóma í mörgum skilningi. Þar yrði hægt að vinna að framkvæmdum hús frá húsi og taka þau í notkun jafnóðum. Það yrði mönnum líka til hvatningar að sjá þannig endurskapast þau hús sem eru á vissan hátt andlit bæjarins en líða nú fyrir skort á starfsemi og við- haldi. Slíkt myndi þá hraða fram- kvæmdinni og Akureyri fyrr en ella eignast verðugt húsnæði yfir myndlist, tónlist og hvers kyns aðrar nytjalistir. Samfara því sem bærinn fengi slíka andlitslyftingu efldist sjálfsvirðing og kjarkur bæjarbúa og skilaði sér á allan hátt í betra mannlífi. Hér má minna á kjörorð Dana eftir áföll þeirra í stríði á síðustu öld: „Hvad udad tabes, skal indad vindes.“ Óhætt er að segja að starf undir slíku kjörorði hafi skilað þeim langt í átt til menningar og velferðar og svo má enn verða. En jafnframt því sem uppbygg- ing er hafin í Grófargili ætti á næstu 2-3 árum að undirbúa hóf- lega byggingu við Amtsbókasafn- ið sem miðuð sé við þarfir þess. Vegna hugmyndanna um hina stórbrotnu menningarmiðstöð þar eru ekki til tillögur að slíkri viðbót við safnið, og verður eðli- lega einhver bið á að þær fæðist. En þá bið má ekki nota til að tefja framkvæmdir í Grófargili ef samningar takast þar. Þvert á móti ætti að byrja þar strax en gera jafnframt skynsamlega framkvæmdaáætlun frá húsi til húss fyrir bæði verkin næstu ár. Þá verður gaman að vera Akur- eyringur og stórt skref stigið til að gera bæinn miklu fallegri en hann hefur verið um hríð. Það er því fyrir mestu nú, þegar loks sér hylla undir verulegar fram- kvæmdir í menningarmálum, að menn skemmti ekki skrattanum með því að tefja þær með átök- um um hvað skuli helst gera. Þetta kostar vissulega peninga. En það kostar ekki bara peninga heldur einnig missi sjálfsvirðing- ar að láta andlit bæjarins hrörna og missa lit og líf. Það líf verður ekki sótt í nýja glæsibyggingu sem fyrst er á teikniborðinu mörg ár og síðan enn fleiri ár í bygg- ingu. Á sama tíma og hún þyrfti á mestu framkvæmdafé bæjarins að halda, grotnaði miðbærinn enn frekar niður vegna þess að menn gleymdu að reisa við hinn hálfhrunda vallargarð heima hjá sér en einblíndu í staðinn á há- reistan turn sem þá langaði að byggja. Erlingur Sigurðarson. Höfundur er kennari viö Menntaskólann á Akureyri. hvað er að gerast Akureyri: Tónleikar og dans- leikir í 1929 - Uppinn einnig opinn Það verður mikið um að vera á skemmtistaðnum 1929 og veit- ingastaðnum Uppanum um pásk- ana. Á morgun skírdag verða tónleikar í 1929 með Blús- kompaníinu og hefjast þeir kl. 21.00. Blúskompaníið er skipað nokkrum af fremstu tónlistar- mönnum landsins. Pálmi Gunn- arsson leikur á bassa, Magnús Eiríksson á gítar, Eyþór Gunn- arsson á hljómborð, Birgir Bald- ursson á trommur og Ellen Kristjánsdóttir sér um sönginn. Sérstakur gestur kvöldins verður gítarleikarinn Þorsteinn Magnús- son. Blúskompaníið mun m.a. leika lög af væntanlegri plötu sveitarinnar. í kvöld og eftir miðnætti á páskadag, leikur Mannakorn á dansleikjum í 1929 og verður hljómsveitin skipuð sömu tónlist- armönnum og skipa Blús- kompaníið. Uppinn verður opinn fram undir miðnætti á laugardag og á páskadag verður Uppinn opinn fyrir matargesti frá kl. 18.00.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.