Dagur - 27.03.1991, Blaðsíða 7

Dagur - 27.03.1991, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 27. mars 1991 - DAGUR - 7 Bréfakom - ein örsmá athugasemd Minn elskanlegur einhver í Smáu og Stóru. Það gladdi mig ákaflega mjög að mér tókst að skemmta þér lítillega þarna um daginn. Nú er mér hins vegar stirt um stef því eins og ég hefi áður látið getið í blaði okkar framsóknarjafnaðar- manna þykir mér heldur hvim- leitt að eiga við huldumenn þar sem ég er ekki skyggn hvað þá að eiga í orðastað við menn sem ekki vilja kannst við afkvæmi sín á prenti. Ég hef það svona á tilfinning- unni að ég hafi verið að skemmta skrattanum eins og móðir mín blessuð sagði stundum við mig þegar ég var óþekkur í æsku. Því ætti ég nú að reyna að exorcera en þar sem ég kann það ekki almennilega langar mig að hnykkja á nokkrum atriðum. t>að er auðvitað alveg laukrétt hjá þér minn elskanlegur að svona pólitískt er ég býsna ein- angraður ef ekki forpokaður líka og hef satt að segja ekki hug- mynd um hvernig og hvað hefð- arkratar á þingi hugsa en ég hef óljósan grun um að téður Ólafur Ragnar sé stundum meiri sósíal- demókrat heldur en þeir. Aukin- Hannes Örn Blandon. heldur tel ég ekki ólíklegt að meint daður þeirra við íhaldið hafi ruglað í þeim jafnaðarsell- urnar þar sem nú ríður á að keyra í gegn EB-ið og álverið hvað sem tautar og raular og því má ekki styggja væntanlega samherja í sj álfstæðisflokknum. Þú manst líklega að fyrir nokkrum árum óð Jón Baldvin eiskrandi um landið og hafði uppi stór orð um lúxusliðið og þá sem eiga landið etc.etc. en svo eins og hendi væri veifað þagnaði sá rómur. Hugsaniega fékk hann að vera með í lúxusliðinu og hefur kunnað að meta hið ljúfa líf. En hvurjir eiga landið hef ég ekki fengið nokkurn botn í og veð enn í villu og svíma. Ég hélt satt að segja lengi vel í einfeldni minni að Guð væri svo mikill jafnaðarmaður að hann hefði fært það öllum íslendingum til eignar og ráðstöfunar og hér ætti þessi fámenna þjóð að lifa í sátt og samlyndi og nokkrum jöfnuði. Nú sé ég auðvitað að þetta er ekki rétt því samkvæmt stefnuskrá vilja sjálfstæðismenn einir flokka vera á mála hjá Drottni sem er nákvæmlega sú hin sama niðurstaða sem sr. Vig- fús Þór, sem var á Siglufirði, komst einu sinni að í kosninga- baráttu: D fyrir Drottinn. Er það nema von að fjármagn færist á æ færri hendur. Ef svo heldur áfram sem horfir megum við framsóknarjafnaðarmenn snapa gams í nánustu framtíð. Hannes Örn Blandon. Höfundur skipar 7. sæti á lista Alþýöu- flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra í komandi alþingiskosningum. Tilkynningaskyldu vinnuslysa ekki nægilega sinnt: Tilgangurinn að auðvelda fyrirbyggjandi aðgerðir Fram á síðasta ár, fékk Vinnu- eftirlit ríkisins yfirleitt innan við 400 tilkynningar um vinnu- slys árlega. Á síðasta ári urðu slíkar tilkynningar hins vegar rúmlega 700. Árið 1989 skráði Tryggingastofnun ríkisins rúm- lega 2000 bótaskyld vinnuslys, önnur en slys á sjó. Fjölgun tilkynninga til Vinnu- eftirlitsins má rekja til þess að í ársbyrjun gengu í gildi nýjar regl- ur um tilkynningu vinnuslysa og voru þær kynntar stærri fyrirtækj- um með bréfi og sagt frá þeim í fjölmiðlum. Einnig má vera að vinnuverndarfræðsla á starfs- fræðslunámskeiðum fyrir iðn- og fiskvinnslufólk valdi nokkru um breytinguna. Þessar upplýsingar koma fram í Fréttabréfi um vinnuvernd er gefið er út af Vinnueftirliti ríkis- ins. Þar segir ennfremur, að sam- kvæmt vinnuverndarlögunum er það atvinnurekandi eða fulltrúi hans (verkstjóri) sem á að til- kynna Vinnueftirliti og lögreglu alvarleg vinnuslys strax. Önnur slys, þ.e. þau sem valda fjarvist í einn dag auk slysadagsins, skal tilkynna innan hálfs mánaðar á sérstökum eyðublöðum sem Vinnueftirlitið dreifir. Tilgangur- inn með tilkynningaskyldunni er sá að auðvelda fyrirbyggjandi aðgerðir. Því fer víðs fjarri að tilkynn- ingaskyldunni sé sinnt sæmilega. T.d. kom nýlega fram í yfirliti frá Tryggingastofnun, að tilkynnt bótaskyld vinnuslys voru 2039 árið 1989. Auk þess 631 slys á sjó. Með vinnuslysi er átt við slys á launþegum eða sjálfstæðum atvinnurekendum við störf sín eða á leið úr eða í vinnu. Með bótaskyldu er átt við að einhverj- ar bætur slysatrygginga hafi kom- ið fyrir slysið. Þar getur verið um að ræða dagpeninga, ef hinn slas- aði er frá vinnu í 10 daga eða meira, greiðslu fyrir sjúkrahjálp, örorkubætur eða dánarbætur. AUGLYSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) ÁKR. 10.000,00 1980-1.fl. 15.04.91-15.04.92 kr. 286.016,02 *)lnnlausnarverö er höfuöstóll, vextir, vaxtavextir og veröbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu Seölabanka íslands, Kalkofnsvegi 1 og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, mars 1991. SEÐLABANKI ÍSLANDS Frá yfirkjörstjórn Norðurlandskjördæmis eystra Framboösfrestur til Alþingis rennur út föstudag- inn 5. apríl nk. kl. 12 á hádegi. Framboðum skal skila fyrir þann tíma til formanns yfirkjörstjórnar Ragnars Steinbergssonar, hrl., á skrifstofu hans aö Gránufélagsgötu 4, Akureyri. Framboöunum skal fylgja listi með nöfnum meðmælenda, sem nú skulu vera eigi færri en 140 og eigi fleiri en 210 svo og tilkynning um umboösmenn listans. Yfirkjörstjórnin kemur saman til fundar um listana í dómssalnum, Hafnarstræti 107, 2. hæð, Akur- eyri, föstudaginn 5. apríl nk. kl. 14, og eru umboðsmenn listanna hér með boðaðir til þess fundar. Akureyri 25. mars 1991, Yfirkjörstjórn Norðurlandskjördæmis eystra. Ragnar Steinbergsson, Freyr Ófeigsson, Páll Hlöðvesson, Magnús Þorvaldsson, Hólmfríður Jónsdóttir. verður haldin í Hlíðarfjalli norðan Skíðastaða dagana 29. og 30 mars. Föstudagur 29. mars kl. 11.00 - Spyrnukeppni (1/8 míla) Laugardagur 30. mars kl. 11.00 - Brautarkeppni. - Klifurkeppni ef aðstæður leyfa. Verdlaunaafhending fer fram í skemmtistaðnum Strætinu á laugardagskvöld Væntanlegir keppendur skrái sig í síma 96-22840 eöa 96-21705 fyrir miðvikudaginn 27. mars. Bílaval h.f. ski-doo söluumboð Bílaklúbbur Akureyrar POLRRIS umboðið J.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.