Dagur - 27.03.1991, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Miðvikudagur 27. mars 1991
myndlist
Þetta hefur Hörður Vilhjálms-
son greinilega gert, eins og sjá
má á sýningu hans á ljósmynd-
um, sem opnuð var laugardaginn
23. mars í Gamla Lundi á Akur-
eyri. í öllum myndunum á sýn-
ingunni má sjá, að Hörður kann
til verka. Þær eru allar vel teknar
og fara vel í fletinum. Ljós og
skuggar eru í mörgum tilfellum
notuð af natni og markvisst og á
sýningunni eru allnokkrar
myndir, sem segja má, að nái
hinu listræna stigi.
í myndinni „Fram í Fjörð“,
sem tekin er fram eftir Eyjafjarð-
ardal, nær Hörður mikilli dýpt og
vídd auk þess sem leikur og
samspil lita í skýjum og landi
ásamt með hæfilegri hörku gæðir
myndina hrífandi blæ, sem fang-
ar hugann. Meðferð ljóss er
mikilvægt atriði í þessari mynd
og ekki síður í myndinni
„Kranar“, sem tekin er við höfn.
Myndefnið er skip og kranabóm-
ur, sem ber við ígullinn himin. I
þessari mynd eru hughrifin ekki
síst fólgin í nákvæmri en þó
mjúkri notkun ljósra og dökkra
flata og fínlegu, örlítið móskuðu
mynstri kranabómanna, þar sem
þær ber við kvöldbjarma himins-
ins. Ekki síður tekst Herði vel að
nýta dulúð birtunnar í myndinni
„Að kvöldi“, sem sýnir dökka
fjallatinda og gullið ljósrof í
dimmum skýjum. í þessari síðast-
töldu mynd minnir notkun Harð-
ar á ljósi og skuggum nokkuð á
leik fornra meistara málaralistar-
innar með þessa þætti.
Þær myndir, sem hér hefur ver-
ið á minnst sérstaklega, eru allar
hreinar náttúrumyndir, en í þann
flokk falla sem næst allar mynd-
irnar í Gamla Lundi. Segja má,
að ekki sé nema ein mynd á sýn-
ingunni, sem ekki fyllir þennan
flokk, en það er myndin „Hand-
rið“, þar sem Herði tekst talsvert
vel að skipa heldur ómyndrænu
viðfangsefni í flötinn á eftirtekt-
arverðan hátt..
Það ér svipur vandvirkni og
listrænnar viðleitni yfir sýningu
Harðar. Hún nýtur sín vel í
Gamla Lundi og er heimsóknar
virði. Haukur Ágústsson
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ...
...musteri íslenskrar leiklistar, hefur
nú verið endurbyggt að stórum hluta.
Síðastliðið fimmtudagskvöld fögnuðu
íslendingar endurbættu Þjóðleikhúsi
- og um leið betra leikhúsi, þrátt fyrir
lítið breytt svipmót.
|ll| X-B Stórdans-
w leikur X-B
Laugardaginn 6. apríl halda ungir framsókn-
armenn stórdansleik í Miðgarði frá kl. 23.00-
03.00.
Hljómsveitin frábæra Herramenn sjá um
fjörið.
Ungir kjósendur ath. heimsenda boðsmiða. Einnig
verða seldir miðar við innganginn.
Allir velkomnir.
Ungir framsóknarmenn X-B.
Ljósmyndir Ilarðar
Margir stunda ljósmyndun sér til
ánægju. Þeir taka myndir til þess
að varðveita minningar úr ferða-
lögum, af vinafundum og af ævi-
ferlinum. f flestum tilfellum kem-
ur þeim, sem heldur á myndavél-
inni og ýtir á takkann, lítt í hug
formræn uppbygging, samspil
ljóss og skugga, staðsetning
höfuðatriða í fletinum og þau
áhrif, sem myndin gæti haft væru
framangreind atriði og reyndar
fleiri höfð í huga og þjálfuð við
ljósmyndunina.
Ef til vill er það vegna þess, að
við erum öll meira og minna að
taka myndir á ljósmyndavélarnar
okkar, sem okkur mörgum hverj-
um finnst það ekki augljóst, að
ljósmyndun getur verið listgrein í
höndum þeirra, sem leggja stund
á hana sem slíka. Þó vitum við,
að til eru menn, sem leggja stund
á ljósmyndun sem fag, og höfum
öll séð ljósmyndir, sem hafa hrif-
ið okkur sérstaklega og sem okk-
ur finnst að hafi tekist sérlega
vel. Slíkt getur gerst fyrir tilvilj-
un, en miklu líklegra er, að
myndatökumaðurinn hafi á með-
vitaðan hátt velt fyrir sér bygg-
ingu myndarinnar og uppstill-
ingu, ljósi og skuggum, notkun
linsa og filtera og fjölda annarra
þátta, lagt stund á þá og þjálfað
hjá sér listrænt skyn og næmt
auga.
Hundruð manna hafa lagt hönd á plóginn við þessar viðamiklu framkvæmdir.
Um leið og við óskum þjóðinni ánægjulegra stunda í Þjóðleikhúsinu þökkum
við starfsmönnum leikhússins þolinmæðina og verkamönnum, iðnaðarmönnum,
hönnuðum, ráðgjöfum og öðrum sem þátt tóku í verkinu framúrskarandi ötult starf.
Þjóðleikhúsið er tekið til starfa á ný!
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Ljósritunarvélar
Xonica
U-Bix