Dagur - 27.03.1991, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 27. mars 1991 - DAGUR - 9
Akureyri:
Veglegir Vetrarleikar hesta-
manna heflast á skírdag
hagstæðari dreifingu atvinnu-
tækifæra.
Nauðsynlegt að sameina
sveitarfélög - hrepparígur
óviðunandi
Á hinum Norðurlöndunum hefur
byggðastefnan þróast í þá átt að
sveitarfélögin og millistig stjórn-
sýslunnar eru sífellt að taka að
sér fleiri verkefni og aukna
ábyrgð á sviði atvinnu- og
byggðamála. Undanfari þessarar
þróunar var umfangsmikil sam-
eining sveitarfélaga á sjöunda og
áttunda áratugnum samhliða
endurskipulagningu stjórnsýsl-
unnar. Með þessu móti var lagð-
ur grunnur að því að unnt yrði að
fela heimaaðilum aukna ábyrgð á
eigin málum. Á sama tíma og
þessi þróun átti sér stað á meðal
nágranna okkar hefur lítið sem
ekkert verið hugað að þessum
þætti á íslandi. Nefndin bendir á
að sveitarmörk séu ekki aðeins
þrándur í götu í stjórnsýslunni
heldur hindri þau einnig að rætt
sé um sameiningu fyrirtækja milli
sveitarfélaga. Bent er á að
hrepparígur hafi truflað starfsemi
Atvinnutryggingasjóðs þar sem
hugmyndir hafi verið uppi um
endurskipulagningu og samein-
ingu fyrirtækja. Meðal annars
hafi þeirra sjónarmiða orðið vart
hjá einstökum aðilum á lands-
byggðinni að betra væri að missa
fyrirtæki suður en yfir í næsta
byggðarlag.
Hafa verður meiri áhrif
á byggðaþróun með
almennri efnahagsstjórn
en víðast annarsstaðar
í skýrslu nefndarinnar segir að
atvinnuráðgjöf hafi verið í lausu
lofti síðast liðin fimm ár. Lög um
iðnráðgjafa hafi runnið út 1985
án þess að önnur hafi verið sett
og ekkert skipulag sé fyrir hendi
um atvinnu- og þjónustusvæði
fyrir landið. Nauðsynlegt sé að
efla atvinnuráðgjöfina því lítil
von sé til þess að einn atvinnu-
ráðgjafi geti sinnt heilum lands-
hluta svo vel fari. Af þeim ástæð-
um leggur nefndin mikla áherslu
á að sveitarfélög hafi í samráði
við Byggðastofnun frumkvæði að
stofnun atvinnuþróunarfélaga er
ætlað verði að stuðla að nýsköp-
un og alhliða atvinnuþróun á
hverju starfssvæði. Einnig leggur
nefndin tii að atvinnuþróunar-
sjóðir verði efldir. í skýrslu
Byggðastofnunar um endurmat
byggðastefnu er lögð rík áhersla
á að byggðasjónarmiða verði
gætt í almennri efnahagsstjórn.
Bent er á að íslendingar hafi sér-
stöðu meðal sjálfstæðra Vestur-
landaþjóða í byggðamálum sem
felst meðal annars í því að mest-
ur hluti útflutnings á verðmætum
þjóðarinnar fer fram í hinum
ýmsu framleiðslubyggðarlögum á
landsbyggðinni þar sem atvinnu-
líf er annars mjög einhæft. í
Kanada og Noregi eru svæði sem
svipar til hinnar íslensku lands-
byggðar að ýmsu leyti en þar býr
aðeins lítill hluti viðkomandi
þjóðar, framleiðsla þeirra er ein-
ungis brot af þjóðarframleiðsl-
unni og nýtur auk þess opinberra
styrkja. Bent er á að hinir 'ein-
hæfu útgerðarstaðir á lands-
byggðinni standi berskjaldaðir
gagnvart sveiflum og þegar illa
árar koma áhrif þess fram í
tekjum, atvinnumöguleikum og
íbúaþróun. I góðum árum séu
hins vegar fá tækifæri til fjárfest-
ingar í nýjum atvinnugreinum.
Af þeim sökum telur nefndin að
hafa verði meiri áhrif á byggða-
þróun með almennri efnahags-
stjórn á íslandi en víðast annars-
staðar. ÞI
Nk. fimmtudag 28. mars, á
skírdag, efnir íþróttadeiid
Léttis á Akureyri til Vetrar-
leika hestamanna við Verk-
menntaskólann á Akureyri.
Dagskrá leikanna er mjög fjöl-
breytt þar sem keppt verður í
ýmsum greinum hestaíþrótta
og jafnframt eru nokkur sýn-
ingaratriði á dagskrá.
Að sögn Svanbergs Þórðarson-
ar þá eru þessir Vetrarleikar með
svipuðu sniði og þeir Vetrarleik-
ar sem ÍSÍ og Hestamannafélagið
Léttir efndu til í fyrra.
Dagskráin hefst á skírdag kl.
14,00 er hestamenn frá Akureyri
ríða inn á mótssvæðið á gæðing-
um sínum. Mikil gróska er í
hestamennsku á Akureyri og
margir gæðingar á landsvísu eru í
eigu félagsmanna Léttis og félaga
úr hestamannafélögunum við
Eyjafjörð, sem dæmin sanna frá
Landsmótum og öðrum stórmót-
um hestamanna.
Á skírdag verður dagskráin
fjölbreytt og fjöldi sýningaratriða
á dagskrá m.a. sýning unglinga,
sýning á stóðhestum, konur sýna
gæðinga og hryssur verða sýndar.
Dagskrá skírdagsins lýkur með
sölusýningu Félags hrossabænda
og þar getur fólk örugglega nælt
sér í hest eigi það ekki hest eða
hesta fyrir eða vill bæta við hesta-
eign sína.
Laugardaginn 30. mars hefjast
Vetrarleikarnir að nýju kl. 10,00
með töltkeppni í flokkum full-
orðinna, barna, unglinga og ung-
menna. Dagskrá laugardagsins er
afar fjölbreytt og þar gefur að líta
m.a. forvitnilegar ræktunarsýn-
ingar frá Litla-Garði og
Höskuldsstöðum í Eyjafirði.
Mánudagurinn 1. apríl, sem er
annar í páskum, verður síðasti
dagur Vetrarleikanna og þá hefst
dagskráin með fánareið kl. 13.00.
Ræktunarsýningarnar frá Litla-
Garði og Höskuldsstöðum verða
endurteknar svo og sýningar á
stóðhestum og hryssum. Keppt
verður til úrslita í öllum keppnis-
greinum og sýnd verður söðul-
reið.
Á laugardagskvöldið verður
opið hús í félagsheimili Léttis í
Skeifunni í Breiðholti, hvar
hestamenn geta komið saman og
rætt um áhugamál sitt hesta-
mennsku undir léttum veigum.
„Okkur hestamönnum er mik-
ið kappsmál að sem flestir komi
til Vetrarleikanna. Fjöldi kepp-
enda er allnokkur og sýningar-
atriðin eru fjölbreytt, góð og
forvitnileg. íbúar Akureyrar og
byggða Eyjafjarðar ættu að láta
sjá sig á leikunum og fá þannig
nasasjón af því sem er að gerast í
íþróttamálum hestamanna jafn-
framt sem að kynna sér ræktun-
armál hrossa í Eyjafirði.
íslenski hesturinn fer sigur-
göngu um öll lönd og álfur og ég er
viss um að hátíð sem þessi eflir til
muna samheldni og félagsanda
hestamanna um leið og hún er
frábær skemmtun öllum þeim er
ekki stunda hestamennsku,“
sagði Svanberg Þórðarson, for-
maður íþróttadeildar Léttis. ój
í kvöld, miðvikud. MANNAK0RN
Fimmtud. tónleikar BLUES C0MPANIIÐ
Laugardag opið til kl. 23.30
Pálmi, Maggi, Ellen,
Eyþór, Biggi og Steini
ásamt Ellen og Þorstein
Páskadagur opnum kl. 18.00 fyrir matargesti
Dansleikur eftir miðnætti MANNAK0R
Annar dagur páska
opið til kl. 01.00