Dagur - 04.05.1991, Síða 18

Dagur - 04.05.1991, Síða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 4. maí 1991 poppsíðan F Upptökustjórinn frægi Martin Hannett: Fallinn frá langt fyrir aldur fram Upptökustjórinn Martin Hannett, sem átt hefur stóran þátt í hinni geysilega miklu tónlistarbylgju í Manchesterborg, sem myndaðist fyrir röskum áratug og ekki sér fyrir endann á, lést sviplega úr hjartaslagi þann 17. apríl síðast- liðinn 42 ára að aldri. Martin Hannett kom meira og minna við sögu hjá velflestum hljómsveitum borgarinnar, sem eitthvað hefur kveðið að, allt frá Joy Division/New Order til Stone Roses, Happy Mondays og The High. Hannett hafði átt við vanheilsu að stríða um nokkurra mánaða skeið þegar dauðann bar að garði, en hann dó í svefni á heimili sínu. En hann fékkst ekki aðeins við upptökustjórn því um skeið var hann meðstjórnandi Factory- Libresse dömubindi við allar aðstœður, allt tímabilið. \ W ÍFm i-ISifessc I Llbresse LÖh m Libresse bindið er lagað að línum líkamans, er þægilegra og öruggara auk þess að vera eingöngu framleitt úr náttúrulegum efnum. Libresse fæst í öllum verslunum útgáfunnar og allt frá unglings- aldri var hann mjög virkur í tón- listar- og listalífi Manchester- borgar. í janúar 1977, þegar Hannett var farinn að kynnast vinnu í hljóðveri, bauðst honum í fyrsta skipti að stjórna upptöku er um- boðsmaður pönksveitarinnar Buzz- ccks fékk hann til að vinna EP plötuna Spiral Scratch. í kjölfarið komu svo verkefnin á færibandi, Hann stjórnaði upptökum á meirihluta þess efnis sem Joy Division sendu frá sér þ.á m. á breiðskífunni The unknown plea- sures og þegar hljómsveitin breyttist úr Joy Division í New Order í kjölfar þess að söngvar- lllihki . Jk ; |ÍS# Joy Divison naut krafta Martin Hannetts í ríkum mæli. zm? W-* igp- ji The High er ein af yngri sveitunum frá Manchester sem Hannett vann með. inn lan Curtis framdi sjálfsmorð árið 1980 stjórnaði Hannett líka upptökum á fyrstu plötunni undir New Order nafninu. Eins og áður segir þá er þáttur Hannetts stór í hinni miklu grósku sem orðið hefur nú hin seinni ár í Manchester. Hann varð einn sá fyrsti til að vinna með The Stone Roses og tók upp fyrsta smáskífulag hljóm- sveitarinnar So young, sem vakti strax athygli á henni. En Martin Hannett er ekki aðeins þekktur fyrir vinnu sína með Manchester- hljómsveitum því hann hefur unnið með ekki ófrægari hljóm- sveitum en Liverpoolsveitinni O.M.D. (Orchestral Manoeuvres in the dark) og U2, en hann tók upp lagið þeirra 11 o’ clock tic toc. Með ótímabæru fráfalli Hann- etts sem var 42 ára þykir stórt skarð vera höggvið í hóp tónlist- arfrömuða og verður hans sárt saknað, sérstaklega í Manchest- er. Umsjon: Magnús Geir Guðmundsson Pat Ðenatar kveður sér hljóðs á ný Nú síðastliðin þrjú ár hefur harla lítið farið fyrir söngkonunni þokkafullu frá New York, Pat Benatar. Hún sendi síðast frá sér plötuna Wide awake in dream- land árið 1988, sem þótti að mati margra gagnrýnenda hin ágæt- asta, en viðtökur plötukaupenda voru hins vegar heldur dræmari og miðað við sölu á fyrstu plötun- um hennar voru viðtökurnar lélegar. Var Wide awake in dreamland visst afturhvarf til meira rokkaðr- ar tónlistar eins og á fyrstu plötunum og því voru það viss vonbrigði fyrir Benatar að við- tökurnar urðu ekki betri. En þrátt fyrir það hefur hún ekki gefist upp og nú fyrir skömmu sendi hún frá sér nýja plötu undir nafninu True love sem væntanlega er ætlað að ná aftur einhverju af fyrri frægð söngkonunnar. Pat Benatar er eins og áður greinir frá New York, en þar fæddict hún árið 1953. Söngur- inn heillaði hana snemma og þegar hún fór í háskólanám lagði Gardyrkjustöðin á Grisará Sími 96-31129. Blómstrandi dahlíur, flauelsblóm, levkoj og bláhnoður í pottum. Mold í 3 1 pokum og sekkjum. Opið sunnudag frá kl 13.00-18.00. hún jafnframt stund á óperusöng, sem átti eftir að nýtast henni vel þegar út í rokkið var komið. Út í það leiddist hún með þeim hætti að hún fór í hæfileikaþróf í söng- klúbbi einum þar sem hún kynnt- ist verðandi umboðsmanni sín- um Rick Newman árið 1975. Newman kom henni svo á plötusamning við Chrysalis-fyrir- tækið, þar sem hún er enn þann dag í dag. Fyrsta platan In the heat of the night kom svo út árið 1979 og sló hún rækilega í gegn og þótti nú vera ný rokkdrottning fædd. Með annarri plötunni jukust svo vinsældirnar enn frekar, en hún heitir Crimes of passion og kom út 1980. Eftir þessar tvær vinsælu fyrstu plötur fór að halla undan fæti og má í rauninni segja að Benatar hafi alrei náð sér fyllilega á strik fyrr en á Waid. Að vísu náði hún vinsældum með útgáfu sinni á gamla laginu Love is a Battle- field, árið 1984, en það varð skammgóður vermir. True love er níunda platan sem kemur frá Pat Benatar, en hinar eru auk hinna tveggja fyrstu: Prexious time (1981, Get nervous (1982), Live from earth (1983), Tropico (1984) og Seven the hard way (1985). Það verðru svo fróðlegt að sjá hvort nýja platan gengur vel eður ei. Pat Benater reynir að höndla forna frægð með nýrri plötu.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.