Dagur - 04.05.1991, Síða 20
Norðurland:
Kalt um helgína
Fremur kalt verður í veðri á
Norðurlandi um helgina,
norðanátt og víða úrkoma með
köflum.
í dag verður breytileg átt,
norðangola, hægviðri og skýjað.
Rigningu er spáð, einkum við
ströndina.
Á sunnudag er spáð norðaust-
anátt, allsterkri á annesjum, rign-
ingu með köflum og hita á bilinu
4 til 8 stig.
Á mánudag á að stytta upp
með norðanátt, veður fer þá
heldur kólnandi. EHB
Akureyrarbær:
Endursala á húsnæði
í Listagili könnuð
- ekki búið að ganga frá samningi við KEA
Ekki hafa verið undirritaðir
samningar milli Akureyrar-
bæjar og Kaupfélags Eyfirð-
inga um kaup bæjarins á hús-
eignum KEA í Grófargili en í
Degi í gær birtist auglýsing þar
sem tilkynnt er um mögulega
endursölu Akureyrarbæjar á
húseignum í „Listagili“ til ein-
staklinga eða samtaka.
Björn Jósef Arnviðarson,
bæjarfulltrúi, sagði að ákveðið
hefði verið að auglýsa hugsanlega
endursölu á húsnæði sunnan
Grófargils til einstaklinga eða
samtaka þótt ekki hafi verið
gengið frá samningum, en við-
brögð við auglýsingunni gætu
liðkað fyrir þeim. Hann sagði að
auglýsingin væri birt með fullri
vitund Kaupfélagsins, sem hefði
ekki sett sig á móti henni.
í umræddu húsnæði, Smjörlík-
isgerð og Flóru, er gert ráð fyrir
að einstaklingar eða samtök geti
komið upp vinnustofu, verk-
stæði, galleríi, veitingasölu,
verslun o.þ.h. Lysthafendum er
bent á að hafa samband við
menningarfulltrúa.
Að sögn Björns Jósefs er nú
verið að ganga frá pappírum og
gæti kaupsamningur legið fyrir
tilbúinn til undirritunar í næstu
viku. SS
Norðurland:
Iitíð sem ekkert um
Ítalíuskreið í ár
Hilmar Daníelsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmiðlunar
Norðurlands hf. segir að á
þessu vori hengi norðlenskir
flskverkendur hvcrfandi lítið
upp og því verði lítið sem
ekkert um útflutning á þessa
árs skreið til Italíu. Saltflsk-
markaðir standa hins vegar vel
um þessar mundir og því fer
nánast hver einasti sporður í
salt í ár.
„Meginþættirnir eru þeir að
hráefnið er orðið mjög dýrt og
saltfiskverkunin hefur á undan-
förnum vikum gefið betur en
áður,“ sagði Hilmar.
Hann sagði að lítið hefði feng-
ist af svokölluðum vertíðarfiski
úti fyrir Norðurlandi og stór hluti
af þeim fiski sem menn hafi verið
að verka hafi verið fluttur að
sunnan. Fremur lítið framboð
hefur verið á fiskmarkaði á Dal-
vík og hefur helst fengist fiskur
frá sjávarplássum í Norður-Þing-
eyjarsýslu.
Hilmar sagði að skreiðarút-
flutningur til Nígeríu heyrði sög-
unni til, en hins vegar væri trygg-
ur markaður þar fyrir herta hausa
og staðreyndin væri sú að eftir-
spurnin væri umfram framboð.
óþh
Mynd: Golli
Gunnar Guðbrandsson við húsgrunn sinn í Borgarsíðu 33 á Akureyri.
Húsbyggjandi á Akureyri gagnrýnir hæga afgreiðslu
byggingaleyfa hjá bænum:
Framkvæintíir stöðvaðar meðan beðið er
reglulegs fundar í bygginganefiid
1 síðustu viku kom upp deilu-
mál vegna framkvæmda viö
byggingu íþróttahúss á félags-
svæöi KA þar sem starfsmenn
byggingafulltrúa Akureyrar-
bæjar stöðvuðu framkvæmdir
þar sem fullnaðarteikningar
höfðu ekki hlotið afgreiðslu í
bygginganefnd. Annað mál í
þessa veru kom upp nú fyrir
helgina og þá vegna einbýlis-
hússbyggingar sem er að hefj-
ast í Borgarsíðu 33 á Akureyri.
Húsbyggjandinn, Gunnar
Guðbrandsson, segir að á
sama tíma og úr vandamálum
vegna byggingar KA sé greitt
með aukafundi bygginga-
nefndar þurfl hann að bíða
reglulegs fundar í nefndinni.
Þó mót hafl verið tilbúin til
steypu sl. flmmtudag verði þau
að bíða fram á miðvikudag í
næstu viku eftir að leyfi fáist til
að steypa. Gunnar hefur þegar
óskað eftir aukafundi bygginga-
nefndar um mál sitt.
Gunnar segir að af jafn hægri
afgreiðslu og þessari tapist ekki
aðeins dýrmætur tími af besta
Útgerðarfélag Akureyringa hf.:
Bókfært verð fasteigna
og skipa er 1,8 milljarður
Bókfært verð skipa og fast-
eigna Útgerðarfélags Akureyr-
Ársfundur Mjólkursamlags KEA:
Framleiðsluauknnig um 5,7% milli ára
nokkur samdráttur í sölu nýmjólkur
Mjólkursamlag Kaupfélags
Eyfirðinga tók á móti 21,618
þúsund lítrum af mjólk á árinu
1990. Er það 1,172 milljón lítr-
um meira en á árinu á undan
sem þýðir 5,7% aukningu á
framleiðsu bænda á samlags-
svæðinu milli ára. Innviktuð
mjólk utan fullvirðisréttar var
108,8 þúsund lítrar og fyrir
hana voru greiddar fimm krón-
ur fyrir lítrann eða 10,29% af
landsgrundvallarverði sem var
48,56 krónur á árinu 1990.
Þessar upplýsingar komu fram
í skýrslu Þórarins E. Sveins-
sonar, mjólkursamlagsstjóra á
ársfundi mjólkursamlagsins sl.
þriðjudagskvöld.
í skýrslunni kom einnig fram
að flokkun innlagðrar mjólkur á
árinu var mjög góð og fór
99,13% mjólkurinnar í fyrsta
flokk. Alls voru 149 mjólkur-
framleiðendur ætíð með mjólk
sína í fyrsta flokki. Fituinnihald
mjólkur var 4,08% og prótein
3,38% en meðaltal sem lagt er til
grundvallar útborgunar og gefur
svonefnda meðalmjólk er með
3,98% fitu og 3,38% prótein.
Nokkur samdráttur varð í sölu
nýmjólkur en sala á léttmjólk og
undanrennu jókst þótt sú aukn-
ing væri ekki nægjanleg til að
vega upp á móti samdrætti í
nýmjólkinni. Nokkur samdráttur
varð einnig í sölu á jógúrt en það
stafar að nokkru leyti af tilfærslu
á milli tegunda. Um síðustu ára-
mót voru fastráðnir starfsmenn
Mjólkursamlagsins 64, ásamt sex
tankbifreiðastjórum og hefur
starfsmönnum heldur fækkað frá
fyrra ári þrátt fyrir aukið mjólk-
urmagn.
í lok fundarins var 21 mjólk-
urframleiðanda veittar viður-
kenningar fyrir úrvals mjólk á
árinu 1990 og þrír framleiðendur
þeir Leifur Guðmundsson í
Klauf, Sverrir Sverrisson á Neðri
Vindheimum og Þorsteinn Rúts-
son á Þverá hlutu verðlaun fyrir
að hafa framleitt úrvalsmjólk
þrjú ár í röð. ÞI
inga hf. er rúmur 1,8 milljarð-
ur króna. Bókfært verð skipa
félagsins er 1,4 milljarður en
fasteignir eru bókfærðar á
385,6 milljónir króna. Þetta
kemur fram í árskýrslu ÚA
sem lögð var fram á aðalfundi
félagsins í gær.
Samkvæmt ársskýrslunni er
Sléttbakur EA-304 dýrasta skip
Útgerðarfélags Akureyringa hf.
Bókfært verð hans er 458,4 millj-
ónir króna. í öðru sæti kemur
Sólbakur EA-307 (sem áður hét
Aðalvík KE) með 448,4 milljón-
ir. Bókfært verð Sólbaks EA-305
er 239,7 milljónir, Hrímbaks
EA-306 190,2 milljónir, Svalbaks
EA-302 44,5 milljónir, Harðbaks
EA-303 37,7 milljónir og Kald-
baks EA-301 37,0 milljónir
króna.
Af öðrum eignum ÚA er verð-
mæti sjálfs frystihússins mest.
Bókfært verð þess er 301,4 millj-
ónir króna. Þá er bókfært verð
fiskverkunarstöðvar 33,7 milljón-
ir og verkstæðisbyggingar 28,6
milljónir króna. óþh
byggingatíma ársins, heldur
skapist í þessu tilfelli stórhætta
þar sem húsgrunnurinn verði að
standa opinn og dæla þurfi vatni
úr honum oft á dag til að draga úr
hættu á að börn fari sér að voða í
honum.
Gunnar segir að hann hafi á
miðvikudag í fyrri viku skilað inn
tillöguteikningum til bygginga-
nefndar og fengið heimild til að
moka út úr húsgrunninum. Það
hafi verið gert og jafnframt geng-
ið frá fullnaðarteikningum. Þeim
hafi verið skilað inn sl. fimmtu-
dagsmorgun og þá hafi mót jafn-
framt verið tilbúin fyrir steypu.
Þau svör liafi þá fengist að fram-
kvæmdir geti ekki haldið áfram
fyrr en teikningarnar hafi farið
fyrir bygginganefnd.
„Þarna er að mínu mati komið
að alvarlegum ágalla, þ.e. þeim
að starfsmenn byggingafulltrúa
hafi ekki vald til að samþykkja
fullnaðarteikningar þegar um
jafn litlar breytingar er að ræða
frá tillöguteikningum og í þessu
tilfelli. í stað þessa er fram-
kvæmdin stöðvuð og beðið eftir
pólitískt kjörinni nefnd. Það
finnst mér fráleitt,“ sagði
Gunnar.
Jón Geir Ágústsson, bygginga-
fulltrúi Akureyrarbæjar, vísaði
þeirri gagnrýni til formanns bygg-
inganefndar að hér væri verið að
mismuna aðilum í afgreiðslu
bygginganefndar. Hann sagði
starfsmenn byggingafulltrúa
vinna eftir bókun bygginganefnd-
ar og þeim lögum sem eru um
þessi mál en sagði jafnframt að
það sé sín skoðun að breyta þurfi
reglum um byggingaleyfi þannig
að afgreiðslan verði mun hraðari
en nú er. Hann hafi þegar sett
fram tillögur í þessa veru en þær,
enn sem komið er, ekki fengið
hljómgrunn. Það vandamál sem
hér er komið upp sé gott dæmi
um hve seinvirkt þetta kerfi er.
Ekki tókst að ná í formann
bygginganefndar áður en vinnslu
blaðsins lauk í gær. JÓH