Dagur - 22.05.1991, Page 1
74. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 22. maí 1991
93. tölublað
Mikil óvissa um framtíð ístess eftir að Skretting sagði upp
samstarfssamningi 8. maí sl.:
Undrast vinnubrögð Skretting-manna
- segir Guðmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri ístess hf.
Vel klæddur
í fötum frá
BERNHARDT
The Taik»rl.ook
arroöooiin
HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 ■ BOX 397
Niðurstaða fyrirhugaðra við-
ræðna fulltrúa ístess hf. og
norska fyrirtækisins T. Skrett-
ing a.s. eftir næstu helgi kann
að ráða úrslitum um framtíð
fóðurverksmiðju Istess hf. og
þar með vinnu um 20 starfs-
manna fyrirtækisins.
Útafakstur í Kinn:
Bflstjóri
bjargast
úr vatni
FólksbíII valt út af vegi og
hafnaði á hvolfi í skurði í Kinn-
inni á mánudagsmorgun.
Skurðurinn var fullur af vatni
og náði það upp á miðjar hurð-
ir bílsins. Ökumaður var einn í
bflnum. Hékk hann í beltinu
með höfuðið á kafi í vatni,
hann hélt meðvitund, gat losað
sig og komist óskaddaður út.
Bíllinn er gjörónýtur.
Mikil umferð var um helgina á
Húsavík og nágrenni en hún
gekk óhappalaust að öðru leyti.
Lögregla þurfti ekki að hafa
nein afskipti af fólki vegna ölvun-
ar um helgina, þeirrar fyrstu eftir
opnun áfengisútsölunnar í
bænum.
Um helgina var unnið það
skemmdarverk að plast var eyði-
lagt í öllum gluggum nýbyggingar
fjölbýlishúss við Grundargarð.
IM
Skretting sagði upp samstarfs-
samningi við Istess 8. maí sl. á
þeim grundvelli að fyrirtækið hafi
verið gjaldþrota um mánaðamót-
in mars-apríl sl. Meirihluti
stjórnar ístess hf. telur hins vegar
að ekki hafi verið efni til upp-
sagnar samningsins og því beri að
leysa þann ágreining sem uppi er
eftir ákvæðum samningsins.
Meirihluti stjórnar telur einnig
að samningurinn sé í fullu gildi
þar til tekist hafi að leysa úr
ágreiningnum, annað hvort í við-
ræðum aðila eða með gerðar-
dómi.
Staða ístess hf. er í algjörri
óvissu eftir uppsögn Skrettings á
samstarfssamningnum. Um 2/3
hlutar framleiðslu ístess hf. fara á
Færeyjarmarkað og nú liggur fyr-
ir að Skretting hefur náð undir
sig dótturfyrirtæki ístess þar í
landi. Þessi mikilvægi markaður
er því á miklum brauðfótum.
Guðmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri ístess hf., segist
ekki vilja spá fyrir um niðurstöðu
viðræðna við fulltrúa Skretting,
sem væntanlega verða í Reykja-
vík nk. mánudag. Hins vegar seg-
ir hann að ekki verði lengur búið
við þá óvissu sem nú sé uppi um
framtíð fyrirtækisins. Guðmund-
ur segist undrast mjög vinnu-
brögð Skretting-manna í þessu
máli og ekki hafi komið rök
þeirra fyrir þeirri skoðun að gera
hefði átt fyrirtækið upp í lok
mars sl. Reksturinn það sem af er
þessu ári sé í viðunandi horfi og
fyrir liggi tillögur starfsmanna
ístess um ýmsar hagræðingarað-
gerðir í rekstri fyrirtækisins.
Fréttatilkynning fstess hf. um
þetta mál er birt í heild á bls. 2.
óþh
Islandsmótið í knattspyrnu hófst á mánudagskvöldið með heilli umferð í 1.
deild karla. KA-menn mættu IBV á Akureyri og töpuðu 2:3 eftir að hafa
náð tveggja rnarka forystu. Hér sést Tékkinn Pavel Vandas sækja að einum
varnarmanni ÍBV en hann var besti maður KA og skoraði fyrsta mark leiks-
ins. Sjá nánar um íslandsmótið og aðrar íþróttir á bls. 7-10. Mynd: Golli
Skýrsla skoðunarmanna Ólafsfjarðarbæjar vegna Fiskmarsmálsins:
Rædd á lokuðum fundi í bæjarstjóm
Síðdegis í gær var lokaður
fundur í bæjarstjórn Ólafs-
fjarðar þar sem skýrsla skoð-
unarmanna bæjarins vegna
ábyrgðaveitinga bæjarstjórnar
til Fiskmars hf. var til
umfjöllunar. Deilur hafa stað-
ið að undanförnu í bæjar-
stjórninni um þessar ábyrgða-
veitingar en Ijóst er að bæjar-
sjóður mun tapa verulegu fé í
kjölfar gjaldþrots Fiskmars hf.
Fram kemur í skýrslunni að á
bæjarstjórnarfundi þ. 14. mars
1989 var staðfest ákvörðun
bæjarráðs um að veita Fiskmar
hf. ábyrgðir vegna tveggja lána
hjá Iðnlánasjóði. í bókun bæjar-
ráðs um málið sagði að að fengn-
um fullnægjandi tryggingum skuli
málið lagt að nýju fyrir bæjarráð
og benda skoðunarmennirnir á í
skýrslu sinni að ekki verði séð að
þetta hafi verið gert.
Lán með einfaldri bæjarábyrgð
var greitt út hjá Iðnlánasjóði þ.
28. mars 1989 og benda skoðunar-
mennirnir einnig á að ekki verði
séð að tryggingar hafi þá legið
fyrir.
Pann 19. júlí 1989 heimilaði
bæjarstjórn bæjarstjóra að skrifa
upp á nýja bæjarábyrgð til Fisk-
25 milljóna króna tap af rekstri Slippstöðvarinnar á Akureyri árið 1990:
„Næsti vetur verður sá erfiðasti í mörg ár“
- segir Sigurður Ringsted, forstjóri Slippstöðvarinnar
25 milljóna króna tap varð af
rekstri Slippstöðvarinnar hf. á
Akureyri á síðasta ári. Þetta
kom fram á aðalfundi fyrir-
tækisins, sem haldinn var sl.
laugardag. Arið 1989 var 40
milljóna króna rekstrartap.
Um síðustu áramót var eigna-
staða Slippstöðvarinnar 859
milljónir króna, eigið fé nam
230 milljónum, sem er um
24%.
Sigurður Ringsted, forstjóri
Slippstöðvarinnar hf., segir tvær
meginástæður fyrir rekstrartap-
inu. í fyrsta lagi vaxtagreiðslur af
raðsmíðaskipinu umtalaða, sem
á síðasta ári námu um 30 milljón-
um króna, og lág verð fyrir verk
sem unnin voru á árinu. „Það er
mikil samkeppni um verk sem
bjóðast, margir bjóða í alltof fá
verk,“ sagði Sigurður.
Heildarvelta Slippstöðvarinnar
hf. á árinu 1990 var 600,4 millj-
ónir króna. Sigurður segir að
veltan hafi minnkað ár frá ári.
„Framreiknuð velta ársins 1987
er einn milljarður króna. Við
erum því komnir niður í 60% af
veltu þess árs,“ sagði Sigurður.
Sigurður sagði að taprekstur ár
eftir ár gengi ekki. Slippstöðin
yrði að losna við raðsmíðaskipið,
sem reynt hefur verið árangurs-
laust árum saman að selja. „Hins
vegar koma verkefni ekki, þó svo
að við losnum við skipið. Þetta
sveiflukennda verkefnaástand
truflar starfsemina töluvert.
Verkefnastaðan er góð í sumar,
en næsti vetur verður að mínu
mati sá erfiðasti í mörg ár. Við
höfum ekki lengur óselt skip sem
við getum flúið í með mannskap-
inn. Raðsmíðaskipið hefur fleytt
okkur í gegnum nokkra vetur, en
það verður ekki næsta vetur. Og
það er lítil breyting fyrirsjáanleg
á fjárfestingu útgerðar í nýsmíð-
um og endurbótum. Það eina
sem við höfum á hendi fyrir
næsta vetur eru endurbætur á
Harðbaki. Unnið verður að þeim
einhverntímann í vetur. Hins
vegar er þetta verkefni smátt í
samanburði við heildarverk-
efnaþörf fyrirtækisins," sagði
Sigurður.
Nokkrar breytingar urðu á
stjórn Slippstöðvarinnar á aðal-
fundinum. Fjórir fulltrúar ríkisins
í stjórn eru Tómas Ingi Olrich,
Sigurður Arnórsson, Hólmsteinn
Hólmsteinsson og Magnús Pét-
ursson. Fulltrúar Akureyrarbæj-
ar eru Hákon Hákonarson og
Knútur Karlsson og Magnús
Gauti Gautason er fulltrúi Kaup-
félags Eyfirðinga.
Stjórnin á eftir að skipta með
sér verkum. óþh
Listagilið og Amtsbókasafnið:
Heildarkostnaður um 370 milljónir
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti í gær rammasamning
vegna húsakaupa og fram-
kvæmda í Listagili, en kaup-
samningur við KEA verður
líklega undirritaður í vikunni.
Kaupverð eignanna í Kaup-
vangsstræti er 70,8 milljónir
króna, þar af er verðmæti lóða
um 12,8 milljónir.
Samkvæmt samningnum verða
húsin sunnan götunnar afhent í
næsta mánuði ásamt 1. hæð
gamla mjólkursamlagsins, en
jarðhæð og kjallari þeirrar bygg-
ingar afhendast í haust. Húsnæði
Brauðgerðar KEA verður afhent
um áramót, en KEA mun Ieigja
það pláss af Akureyrarbæ til ein-
hverra ára.
Framkvæmdum við Listagil og
Amtsbókasafn verður þannig
háttað að á næsta ári verður lokið
hönnun 1000 til 1100 fermetra
viðbyggingar við Amtsbókasafn-
ið, og sú bygging síðan reist á
árunum 1993-1996. Þar á eftir
verður farið í framkvæmdir á
vegum bæjarins í Listagili. Björn
Jósef Arnviðarson sagði í gær að
heildarkostnaður við fram-
kvæmdir á báðum stöðum yrði
um 370 milljónir króna, þar af
færu 120 milljónir í viðbyggingu
bókasafnsins. EHB
mars og nú vegna láns að upphæð
rúmlega 3,5 milljónir króna sem
fyrirtækið hugðist taka hjá Iðn-
þróunarsjóði. Fram kemur í
skýrslu skoðunarmannanna að
frá þessari lántöku hvarf Fiskmar
en svo virðist sem ábyrgðin hafi
verið flutt yfir á lán Iðnlánasjóðs
án þess að formleg afgreiðsla hafi
farið fram um það.
Tryggingabréf lagði Fiskmar
ekki fram fyrr en í október 1989
og þar kom fram að bæjarsjóður
fengi 2. veðrétt í tækjum Fisk-
mars hf. en 1. veðrétt hafi Spari-
sjóður Ólafsfjarðar fyrir allt að
kr. 12 milljónum en tryggingar
bæjarins nái til allt að 8 milljóna
þar á eftir. Við þinglýsingu þessa
bréfs gerði bæjarfógeti athuga-
semdir á því.
Þetta tryggingarbréf gera skoð-
unarmennirnir að umræðuefni í
skýrslu sinni og segja að athuga-
semdir bæjarfógeta rýri gildi þess
auk þess sem á því sé formgalli.
Greinilega hafi menn metið
tryggingar fyrir veittum ábyrgð-
um mjög mismunandi, allt frá 7
til 20 milljónum króna. Þessu
megi kenna um óskýrri uppsetn-
ingu bréfsins og mismunandi
skilningi manna á athugasemdum
fógeta við bréfið.
í skýrslunni segir einnig að
hvorki komi fram í umsóknum
um bæjarábyrgðir né í gögnum
um afgreiðslu þeirra hvaða veð-
réttur í vélum og tækjum var
boðinn en ljóst sé að verðmæti
þeirra véla sem boðnar hafi verið
fram sem bakábyrgð hafi ekki
nægt nema að fengnum 1. veð-
rétti.
Þá segir að svo virðist sem önn-
ur atriði en verðmæti véla hafi
einnig haft áhrif á mat sumra á
áhættuþætti ábyrgðaveitinganna
s.s. hugsanleg þátttaka Byggða-
stofnunar og Þróunarsjóðs
íslands í fyrirtækinu. JÓH