Dagur


Dagur - 22.05.1991, Qupperneq 4

Dagur - 22.05.1991, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Miövikudagur 22. maí 1991 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 100 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (l'þróttir), KÁRI GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Raunir Davíðs Davíð Oddsson hefur margoft rekið sig á það undanfarna daga að hann ræður ekki einn. Þótt hann sé í senn for- sætisráðherra, alþingismaður, formaður Sjálfstæðis- flokksins og borgarstjóri Reykvíkinga, og þar af leiðandi afar valdamikill einstaklingur, ræður hann ekki öðru en samstarfsmenn hans leyfa honum að ráða. Þetta eru mik- il viðbrigði fyrir Davíð Oddsson, því áður en hann gaf kost á sér til þingmennsku voru orð hans í borgar- stjórnarflokki sjálfstæðismanna lög. Davíð gat sem borg- arstjóri leyft sér að samþykkja hitt og þetta úti í bæ í þeirri fullvissu að félagar hans í bogarstjórnarflokki sjálfstæðismanna myndu ekki hreyfa minnstu andmælum þegar hann leitaði formlegs samþykkis þeirra síðar. Vegna þessara gerræðislegu vinnubragða var Davíð Oddsson stundum nefndur einræðisherra. Sem borgar- stjóri réð hann því einn sem hann vildi ráða. Þegar Davíð Oddsson var kjörinn formaður Sjálfstæðis- flokksins spáðu því margir að hann myndi fljótt reka sig á það að önnur lögmál giltu innan þingflokks Sjálfstæðis- flokksins. Það hefur komið á daginn. Davíð fékk til dæmis ekki að ráða því hverjir yrðu ráðherrar flokksins og hvaða málaflokka þeir fengju. Hann þurfti í fyrsta lagi að semja við Jón Baldvin Hannibalsson, formann Alþýðuflokksins, og fórna talsverðu til að fá krata til samstarfs. Síðan þurfti hann að leita samninga innan þingflokks Sjálfstæðis- flokksins um skipan ráðherra. Niðurstaðan varð sú að Þorsteinn Pálsson og yfirlýstir stuðningsmenn hans í slagnum um formannsembætti flokksins fengu þrjú ráðherraembætti af fimm. Ráðherraskipanin markaði upphafið að raunum Davíðs. Næst varð hann fyrir andstreymi er hann hugðist velja eftirmann sinn í embætti borgarstjóra. Vitað er að Davíð hefur fullan hug á að skipa Árna Sigfússon, borgarfull- trúa, sem eftirmann sinn þar. Samkvæmt venju taldi Davíð víst að borgarfulltrúarnir myndu samþykkja þá ákvörðun hans þegjandi og hljóðalaust. Það gekk ekki eftir. Við svo búið ákvað Davíð að slá málinu á frest í tvo mánuði. Sú niðurstaða er ótvírætt veikleikamerki hjá borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna, eins og Morgun- blaðið benti réttilega á í forystugrein í síðustu viku. Búast má við hatrömmum slag um borgarstjórastólinn næstu vikur með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir sjálfstæðis- menn í höfuðborginni. Sama dag og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hættu að vera viljalaust verkfæri borgarstjórans, hafnaði meiri- hluti þingflokks Sjálfstæðisflokksins Birni Björnssyni sem formanni utanríkismálanefndar Alþingis en kaus Eyjólf Konráð Jónsson í staðinn. Þetta var enn eitt áfallið fyrir Davíð Oddsson, sem hafði lagt ríka áherslu á Björn yrði kjörinn. Allt kom fyrir ekki. Ljóst er að nú þegar hafa margir stuðningsmenn Davíðs Oddssonar orðið fyrir miklum vonbrigðum með framgöngu hans í embætti forsætisráðherra, flokksfor- manns og borgarstjóra. Það verður sannarlega spenn- andi að fylgjast með gangi máli í æðstu valdastöðum sjálfstæðismanna á þingi og í borgarstjórn næstu vikur. Frólegt verður að sjá hvort Davíð tekst að hemja sína menn og ná undirtökunum á nýjan leik eða hvort hann verður að halda áfram að brjóta odd af oflæti sínu og sitja og standa eins og samstarfsmenn hans helst kjósa. BB. Vorpistill IV: Tvær slaufur o.fl. Galmaströnd var víst aðeins köll- uð sjávarsíðan innan frá Hörgá og jafnvel alla leið út að Þor- valdsdalsá. En nú er þetta skemmtilega nafn fallið úr dag- legri notkun, og við það að týnast, því miður. Er nokkuð hægt við því að gera? Setja kannske upp vegarskilti merkt Galmaströnd eða skilti við Galmastaði, eyðibýlið gamla sunnan við Fagraskóg? Ég spyr nú bara svona. í síðasta pistli var verið að tala um rannsóknarferðir út frá al- faraleiðinni, Ólafsfjarðarvegi nr. 82. Rétt innan við Fagraskóg, sunnan við Galmastaði, sem áður voru, er hliðarvegur, nefndur Bakkavegur nr. 812, niður fyrir sunnan Arnarnestjörn og ofan- garðs í Arnarnesi. Þennan veg er gaman að fara, suður ásinn fyrir ofan Hjalteyri og koma aftur upp á aðalleiðina norðan við Hof í Hörgárdal, því bæjaröðin Ós, Ásláksstaðir, Hof o.s.frv. er köll- uð vera í Hörgárdal. Auðvitað þarf að fara þangað sem sér niður yfir hina fornfrægu Hjalteyri þar sem mikil saga hefur gerst um aldir og á sjálfsagt eftir að gerast þó að stóriðjuverið brygðist að þessu sinni. Nokkrum metrum innan við vegamót Arnarnes- og Ólafs- fjarðarvegar eru önnur vegamót, þar sem hliðarvegur gengur til hinnar áttarinnar, upp að fjall- inu. Það er Möðruvallavegur nr. 813, sem liggur í stórum boga meðfram bæjaröð og um hlaðið á Möðruvöllum en sameinast aftur Ólafsfjarðarvegi skammt norðan við Hörgárbrú. Nú höfum við ekið utan þjóðvegar 82 á 11,5 km Hjörtur E. Þórarinsson. kafla og séð margt og mikið nýtt og horft á land og byggð frá nýju sjónarhorni. Það borgaði sig ágæt- lega þótt vegurinn sé ekki steypt- ur. Óg nú sleppti ég alveg að nefna Hjalteyrarveg nr. 811, útleggjara af Ólafsfjarðarvegi beint að Hjalteyri, og hann er steyptur og fínn en veitir ekkert nýtt útsýni. Nú ökum við yfir Hörgár- brúna, það er ekki um annað að ræða, ef við á arínað borð ætlum okkur að fara til Akureyrar. Hörgá var fyrst brúuð þarna árið 1900, fyrst eyfirsku „stóránna“. Það var trébrú. Núverandi stein- brú er miklu yngri frá þvf um miðja öldina, en nógu gömul til að vera af gamla skólanum og er því of mjó. Einhverntímann þarf að bæta úr því. Hörgá er falleg á, sem rennur bein og útúrdúralaust 50 km leið innan af Hörgárdals- og Hjalta- dalsheiðum, tekur í sig Öxna- dalsá og vex við það uni helming og stikar síðan að mestu leyti á eyrum beinustu leið niður með Þelamörk og stefnir til sjávar. Er ekki Þelamörk fallegt nafn þó því sé kannske hnuplað af Noregi? Það gefur til kynna gróskumikinn skóg, enda er þar undir miðri hlíð bærinn Skógar. En hvar er skógurinn? Von er að spurt sé. Jú hann er reyndar að vaxa upp á næstu grösum. í friðuðum reit í landi Vagla á Þelamörk vex nú hið fegursta birki sprottið upp af gamla þela- skóginum. Enn meira er þó af lerki, sem hefur verið plantað þar, og unir sér framúrskarandi vel. Svo er víðáttumikil, ung skóg- rækt í landi Laugalands og allt er þetta á vegum Skógræktarfélags Eyjafjarðar. Þegar Krossastaða- land kemur inn í prógrammið og tengir saman Vaglir og Lauga- land verður þarna kominn ný Þelamörk, stærsti samfelldi skóg- ur við Eyjafjörð. Þetta er ekki draumsýn, heldur raunveruleikinn sjálfur á næsta leiti. Við skulum líta á þetta seinna í vor. Nú er kominn ágætur, grænn litur í tún og lambfé er að byrja að sýna sig úti við. Víðirinn er farinn að blómstra, bæði sá guli og sá grái, en bíður með að laufg- ast þangað til seinna. Hann er afskaplega fallegur á Moldhauga- hálsinum, ofan vegar sérstaklega. Og svo er það Kræklingahlíðin. þar er líka gaman að leggja lykkj- ur á leiðina. Ætli við gerum það ekki næst. Hjörtur E. Þórarinsson. Ingólfur Á. Jóhannesson sagnfræðingur: Varði doktorsritgerð í náms- skipunar- ogkennslufræðum Þann 23. apríl sl. varöi Ingólfur Á. Jóhannesson, sagnfræðingur, Skútustöðum, Mývatnssveit, doktorsritgerð í Bandaríkjunum í námsskipunar- og kcnnsíufræð- um við Department of Curriculum and Instruction í háskóloa Wis- consinfylkis í Madison (University of Wisconsin-Madison). Ritgerð- in ber heitið „The Formation of Educational Reform as a Social Field in Iceland and the Social Strategies of Educationists, 1966- 1991“. Lausleg þýðing á titli rit- gerðarinnar er „Baráttuvettvang- úr íslenskra menntaumbóta og félagsleg skilningarvit mennta- frömuða“. Aðalleiðbeinandi var prófessor Thomas S. Popkewitz. Fjallar ritgerðin um baráttuna um menntaumbætur á íslandi sl. 25 ár, eða frá stofnun Skólarann- sóknadeildar Menntamálaráðu- neytisins til 1991. Ritgerðina má skoða í tvenns konar samhengi: Annars vegar sem greiningu á hugmyndastraumum og bak- grunni menntaumbóta á íslandi og á þann máta framlag til bæði íslenskrar sagnfræði og íslenskrar uppeldisfræði. Hins vegar er rit- gerðin framlag til alþjóðlegrar þróunar í pólítískri félagsfræði menntaumbóta (political socio- logy of educational reform) en rigerðin hagnýtir og þróar kenn- ingaramma franska félags- og mannfræðingsins Pierre Bourdieus og notar sér sögulegan skoðunar- máta franska sagnfræðingsins og heimspekingsins Michel Fouc- aults. Ritgerðin greinir frá gegnum- gangandi stefum (discursive themes) í umræðum um mennta- umbætur með þvf að greina nokkur mikilvæg skjöl og stofn- anir, svo sem Drög ad Aðalnám- skrá grunnskóla frá 1983 og Skólastcfnu Kennarasambands íslands. Þá greinir ritgerðin frá menntun og starfsferli yfir 300 umbótamanna og -kvenna og sýnir tengsl milli bakgrunns þeirra og þeirra sjónarmiða sem tekist er á um í stofnunum og samtökum. T.d. réði Skólarann- sóknadeild til starfa margt fólk sem hafði persónulega reynslu af nýjungum í kennslu í ýmsum skól- um og sarna gildir um Náms- gagnastofnun. Niðurstaða þessarar athugunar er sú að skapast hafi vettvangur menntaumbóta með lögmálum að verulegu leyti óháðum því sem gerist í skólum og á öðrum vettvöngum þjóðfélagsins. Á þessum vettvangi takast á ýmis sjónarmið sem sögulega hafa skipað sér í „löggildingarlögmál" (legitimating principles) sem fela í sér sex „skaut“. Þessi skaut eru umbótastefna (sem aftur skiptist í framsækna umbótastefnu og tæknilega umbótastefnu), hefð- arstefna, akademískt lögmál og uppeldis- og kennslufræðilögmál. Skýra má átök um samfélags- fræði og fagvitund kennara út frá þessum sögulegu og pólítísku lögmálum. Að lokum ræðir ritgerðin um áhrif niðurstaðna ritgerðarinnar á í fyrsta lagi lýðræðislega mennt- un á íslandi og hvernig nauðsyn- Ingólfur Á. Jóhannesson. legt sé að frelsa skóla og skóla- stefnu út viðjum íhaldssamra hefða og tæknihyggju, í öðru lagi á rannsóknir á menntaumbótum á íslandi og annars staðar, og í þriðja lagi á hagnýtingu niður- staðnanna fyrir þróun ný- marxískra (neo-Marxist) mennta- rannsókna. Höfundurinn, Ingólfur Á. Jóhannesson, er fæddur 1954, sonur hjónanna Gerðar Bene- diktsdóttur og Jóhannesar Krist- jánssonar. Stundaði nám í Barna- og unglingaskólanum á Skútustöðum, í Héraðsskólanum að Laugum, Menntaskólanum á Akureyri, og Háskóla íslands þar sem hann lauk BA prófi (1979) ogcand. mag. prófi (1983) í sagn- fræði. Kennaraprófi lauk Ingólf- ur 1980 frá HÍ og kenndi um nokkurra ára skeið, m.a. í Breið- holtsskóla og Menntaskólanum við Sund. Ennfremur hefur Ing- ólfur skrifað, einn eða í félagi við aðra, nokkrar kennslubækur og kennslugögn sem Námsgagna- stofnun hefur gefið út og um árabil starfaði hann sem land- vörður á sumrum.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.