Dagur - 22.05.1991, Blaðsíða 10

Dagur - 22.05.1991, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 22. maí 1991 íþróttir Tottenham sigraði Nottingham For. í úrslitaleik FA-bikarsins á Wembley á laugardaginn með tveim mörkum gegn einu. Þetta var áttundi sigur Totten- ham í FA-bikarnum og ekkert lið hefur unnið bikarinn eins oft. Tottenham fékk á sig mark úr aukaspyrnu strax á 15. mín., en sigraði síðan á sjálfsmarki Des Walker í framlengingu. .Skærasta stjarna Tottenham, Paul Gascoigne, kom ekki mikið við sögu í leiknum, hann var bor- inn út af illa meiddur á vinstra hné eftir 17 mín. leik. Tveim mín. áður hafði hann brotið á Gary Charles bakverði Forest rétt utan vítateigs Tottenham. Gascoigne hlaut meiðslin, en Forest fékk aukaspyrnu og úr henni skoraði Stuart Pearce fyrir- liði Forest með glæsilegu skoti efst í markhornið hjá Erik Thorstvedt markverði Totten- ham. Lið Forest lék mun betur í byrjun leiksins, en smám saman náði Tottenham betri tökum á leiknum, en heppnin var ekki með liðinu. Gary Lineker skor- aði mark sem var dæmt af vegna rangstöðu og var sá dómur að minnsta kosti strangur ef ekki rangur og ekki tók betra við hjá Lineker sem lét Mark Crossley markvörð Forest verja frá sér vítaspyrnu. Lineker hafði sloppið í gegnum vörn Forest eftir frá- bæra sendingu Paul Stewart og Crossley felldi Lineker er hann var að leika framhjá honum. Eft- Mark Hughes tryggði Man. Utd. sigur í Evrópukeppni bikarhafa með tveim- ur mörkum gegn Barcelona í vikunni. Úrslitakeppni hafin - jafnt hjá United og Tottenham Um helgina hófst úrslitakeppni í 2., 3. og 4. deild um laust sæti í næstu deild fyrir ofan. Liðin leika heima og að heiman og verða síð- ari leikir liðanna háðir í vikunni. Úrslitaleikirnir fara síðan fram á Wembley um mánaðamótin. En úrslitin á sunnudag urðu þessi: 2. deild. Brighton-Millwall 4:1 Middlesbrough-Notts County 1:1 3. deild. Brentford-T ranmere 2:2 Bury-Bolton 1:1 4. deild. Scunthorpe-Blackpool 1:1 Torquay-Burnley 2:0 Pá léku einnig á sunnudag til úrslita um Welska bikarinn lið Swansea og Wrexham og sigraði Swansea í þeim leik 2:0 og verður þriðja liðið úr ensku deildinni sem leikur í Evrópukeppni bikar- hafa næsta vetur ásamt Man. Utd. og Tottenham. Man. Utd. og Tottenham léku síðasta leik 1. deildar á sunnu- dag. Leiknum lauk með jafntefli, 1:1, Paul Ince skoraði fyrir United á 7. mínútu en Hendry jafnaði fyrir Tottenham á 51. mínútu. - Gascoigne borinn útaf og Lineker misnotaði vítaspyrnu ir þetta sást Lineker varla í leikn- um og Walker hafði mjög góð tök á honum. Tottenham náði síðan að jafna leikinn á 9. mín. síðari hálfleiks er Paul Allen sendi góða sendingu út til hægri á Stewart sem lék áfram og skoraði með góðu skoti í bláhornið niðri. Það sem eftir lifði leiks hafði Tottenham liðið nokkra yfirburði og svo virtist sem hinir ungu leik- menn Forest gæfust upp, en þeim tókst þó að halda jöfnu út leikinn og því þurfti að framlengja. Tottenham hóf framlenging- una með stórsókn og strax á 3. mín. átti Paul Walsh sem komið hafði inná sem varamaður hjá Tottenham skalla í slá og vörn Forest bjargaði í horn. Nayim sem komið hafði inná sem vara- maður fyrir Gascoigne tók horn- spyrnuna og Walker aðþrengdur af Gary Mabbutt skallaði í eigið mark. Leikmenn Tottenham þurftu ekki að hafa mikið fyrir því að ljúka leiknum með sigri, þeir léku af miklu öryggi og lið Forest fann engin svör við því. Sigur liðsins var því sanngjarn og næsta vetur mun Tottenham því leika í Evrópukeppni bikarhafa ásamt Manchester Utd. sem í vikunni sigraði Barcelona í úrslitaleik þeirrar keppni 2:1 í Hollandi. Mark Hughes skoraði bæði mörk Utd. í leiknum sem var frábær- lega vel leikinn af Utd. og skemmtilegur. Gary Lineker sagði eftir leik- inn að það hefði verið mikið áfall Des Walker, miövöröur Nott. Forest, gekk grátandi af leikvelli eftir að sjálfsmark hans hafði fært Tottenham F.A.-bikarinn. fyrir leikmenn þegar Gascoigne meiddist, ekki síst þar sem liðið fékk á sig mark í leiðinni. Hins vegar sagði hann að þetta mótlæti hefði þjappað mönnum saman og stappað í þá stálinu. Og hann bætti því við að enginn hefði ver- ið fegnari en hann sjálfur þegar sigurinn var í höfn eftir að hafa misnotað vítaspyrnuna. Brian Clough framkvæmda- stjóri Forest hefur því enn ekki sigrað í FA-bikarnum, en hann hefur þó Ioks komist í úrslit og mun eflaust gera aðra tilraun næsta vetur. Þ.L.A. Paul Gascoigne, hinn snjalli leikmaður Tottenham, var borinn útaf illa meiddur á Wembley. Tottenham vann á sjálfsmarkí Des Walkers

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.