Dagur - 01.10.1991, Page 4

Dagur - 01.10.1991, Page 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 1. október 1991 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 100 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 „Engar kauphækkanir næstu árin, takk!“ Eincrr Oddur Kristjánsson, íormaöur Vinnuveitenda- sambands íslands, hefur af hálfu sinna umbjóðenda gefið tóninn í þeim kjarasamningaviðrœðum sem í hönd fara. í rœðu sinni á aðalfundi Samtaka fisk- vinnslustöðva, sem haldinn var á Akureyri í síðustu viku, sagði hann að spurningin vœri ekki sú hvernig hcegt vceri að bceta kjör fólks, heldur hvernig hcegt vœri að „lágmarka það tjón sem framundan vceri". Orðrétt sagði Einar Oddur við þetta tcekifceri: „Svo langt sem við sjáum er ekki útlit fyrir bata í efnahags- málunum. Því eigum við að segja af fullri einurð og hreinskilni við viðsemjendur okkar að kauphœkkan- ir, svo langt sem augað eygir, hvort sem.það er í eitt, tvö ár eða lengur, virðast ekki vera í sjónmáli, enda vceri hið mesta glaprceði ef við cetluðum okkur að sökkva enn dýpra í skuldafenið." Formaður Vinnuveitendasambandsins segir sem sagt að kauphœkkanir séu ekki inni í myndinni ncestu tvö árin hið minnsta og boðar að komandi kjarasamningaviðrceður muni fyrst og fremst snúast um það að halda kaupmáttarskerðingunni í scemi- legum skorðum. Fyrir duttlunga örlaganna, að því er virðist, birti Morgunblaðið á sunnudagmn viðtal við Friðrik Soph- usson, fjármálaráðherra. í viðtalinu kveður við ná- kvcemlega sama tón og hjá Einari Oddi tveimur dögum fyrr. Þar segir Friðrik að hann telji að gera eigi kjarasamninga til tveggja eða þriggja ára - án nokkurra launahcekkana fyrsta árið í það minnsta! Orðrétt segir fjármálaráðherrann: „Við gerð kjara- samninganna verða menn að hafa í huga að það liggur fyrir - og því verður því miður ekki breytt - að kaupmáttur dregst saman á ncesta ári vegna minni afla og minni framleiðslu. Þess vegna er ekkert til skiptanna á ncesta ári ...og fremur þarf að freista þess að ná fram raunverulegum kjarabótum á síðari hluta samningstímabilsins." í framhaldi aí þeirri full- yrðingu talar hann um nauðsyn þess að „menn skipti byrðunum á milli sín". Með tveggja daga millibili hafa tveir lykilmenn í þeim kjarasamningaviðrceðum sem í hönd fara, for- maður Vinnuveitendasambands íslands og fjár- málaráðherra ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar, flutt launþegum skýr og skorinorð skilaboð um að til- gangslaust sé að fara fram á kaupbcetur hvað þá hcekkun í þeim samningaviðrceðum sem senn hefj- ast. Á sama tíma er ríkisstjórnin sem óðast að leggja nýjar álögur á þegnana, og fyrirtceki og stofnanir, ekki síst á vegum hins opinbera, að hcekka gjald- skrár sínar. Þeir félagarnir eru því beinlínis að boða verulega kjaraskerðingu. Fróðlegt verður að fylgjast með viðbrögðum al- mennings og verkalýðsforystunnar við þessum boð- skap. Hann verður vœntanlega ekki meðtekinn steinþegjandi og hljóðalaust. Launþegar eru orðnir langþreyttir á að bíða eftir betri tíð með blóm í haga - tíð sem síðan er alltaf jaínlangt undan þegar að samningaborðinu kemur. BB. Lesendahornið______________ Um harkalegar innheimtu- aðgerðir fógetaembættisins - mín krafa að fógeti stilli bæði menn og tæki á kurteisari aðferðir „Ég get ekki orða bundist og er þó eiginlega orðlaus yfir aðferð- um bæjarfógetaembættisins. Ég tel mig hafa staðið í skilum við innheimtu ríkissjóðs síðustu 20 árin og þeir hafi ekki mikið yfir mér að klaga. í haust beið ég átekta eftir svari frá skattstjóra, en til hans hafði ég leitað eftir breytingum á óréttlátri álagningu. Því fór svo að ég hafði ekki greitt ágúst- greiðsluna fyrir 1. september en sú greiðsla er hin fyrsta af fimm mánaðargreiðslum. Þann 5. september er skrifuð tilkynning til mín um að inn- heimtuaðgerðir til tryggingar greiðslu verði hafnar hið fyrsta og ef ég vilji komast hjá lögtaki er skorað á rnig að greiða skuld- ina eigi síðar en 12. september. Ég varð auðvitað forviða yfir slíkum skrifum og þótti ómak- lega að staðið og tónninn allur hinn valdsmannlegasti og jafnvel dónalegur vegna skuldar sem var komin 3 virka daga fram yfir gjalddaga. Þar sem ég er af gamla skólan- um og kann illa við að skulda fram yfir gjalddaga greiddi ég skuldina þann 12. september enda hafði ég þá fengið umrætt svarbréf. Taldi mig hafa goldið keisaranum það sem honum bar. En viti menn!! Þann 20. september sæki ég ábyrgðarbréf á póstinn og nú er fógeti hinn versti. Þar sem ég skuldi eftirtalin gjöld hafi inn- heimtumaður ríkissjóðs krafist þess að gert verði hið fyrsta lög- tak hjá mér til tryggingar greiðslu gjaldanna, sem eru: allar tölur á núlli!! auk dráttarvaxta og kostn- aðar við lögtakið. Mér er síðan stefnt að viðlagðri ábyrgð að lög- uni (nema greitt sé áður) til að mæta hjá fulltrúa á embættinu þar sem gerðin verður tekin fyrir o.s.frv. Ekki breytti það neinu að mæta ekki! Nú nær dónaskapurinn hámarki. Hvers eigum við, í hæsta máta skilvísir þegnar þessa lands, að gjalda með slíkum aðförum? Eru opinberir starfsmenn, þjónar fólksins, ekki á algjörum villigötum? Ég lít svo á að þeir sem beita slíkum aðferðum þurfi í endurhæfingu í mannlegum samskiptum og almennri kurteisi. Ég þykist vita að ég sé bara einn af mörgum sem fær slíkar kveðjur og ef þetta á að gilda í framtíðinni væri betra að geta skipað sér í hóp stórskuldaranna, sem á endanum fá milljónir í af- slátt ef þeir aðeins eru svo væntir að borga restina!! Þetta er alla- vega ekki hvatnig til að standa í skilum. Mín krafa verður sú að fógeti biðjist afsökunar á dóna- skapnum og stilli bæði menn og tæki á kurteisari aðferðir. Þær aðferðir sem hér er lýst minna á einræðisaðfarir en ekki lýðræð- is.“ Skattgreiðandi (4486-4436). „Fyllirís-grein“ blaðamanns „The Guardian“: Raunsönn lýsing á nætur- lífinu í miðbæ Akureyrar - það eru svörtu sauðirnir sem umtalinu valda íbúi í miðbæ Akureyrar hringdi og sagðist vilja leggja orð í belg um grein breska blaðamannsins Kevin Pilleys um Akureyri, sem Dagur birti í síðustu viku undir yf- irskriftinni: „Að drekka - um það snýst lífið á Akureyri". Lýsing blaðamannsins á nætur- lífinu í miðbæ Akureyrar um helg- ar er að mínum dómi hvorki róg- burðurné lygi. Hún er þvert á móti sannleikanum samkvæmt, eða að niinnsta kosti eins nálægt sannleik- Bréf frá Svíðþjóð til Akureyrar: Fjóra mánuði á leiðinni Kona á Akureyri hringdi: „Þið voruð að skrifa um góða póstþjónustu á dögunum en ég hef aðra sögu að segja. Mánu- daginn 23. september fékk ég bréf frá vinkonu minni í Svíþjóð og það hafði vægast sagt verið lengi á leiðinni. Bréfið var sent frá Malmö 7. maí eins og sést greinilega á póststimplinum og hefur það því verið fjóran og hálfan mánuð á leiðinni. Auðvit- að trúi ég því ekki að bréfið hafi legið allan þennan tíma á póst- húsinu, sjálfsagt hefur það mis- farist á einhvern hátt, en þetta er innlegg mitt í umræðuna um góða póstþjónustu.“ anum og hægt er að ætlast til í grein sem þessari. Blaðamaðurinn alhæfir reyndar á köflum og færir í stílinn og gefur þannig vissan höggstað á sér. En það er líka allt og sumt sem finna má grein hans til foráttu. Við sem búum í og við miðbæ- inn þekkjum vel þann veruleika sem lýst er í blaðagreininni. Reyndar finnst mér lýsingin á stúlkunni allgróf en vil ekki þræta fyrir að svona gangi hlutirnir fyrir sig í sumum tilfellum. Ég endur- tek að mér finnst ekki rétt af grein- arhöfundi að alhæfa um að íslenskt kvenfólk sé lauslátt og til í tuskið ellegar íslenskir strákar séu léttir á bárunni og sukki látlaust um helg- ar. En þrátt fyrir þessa annmarka er miðbærinn á Akureyri um helg- ar því miður nokkurn veginn alveg eins og honum er lýst f greininni. Ég hvet þá, sem ekki trúa mér, til að gera vettvangskönnun upp á eigin spýtur. Drukkin ungmenni uppi í ljósastaurum er algeng sjón þegar líða tekur á nótt um helgar. Spýjuna er einnig víða að finna á göngugötunni og nágrenni hennar og miðbærinn í heild er ófögur sjón snemma á laugardags- og sunnudagsmorgnum, áður en hreinsunardeild bæjarins fjarlægir verksummerkin. Með grein breska blaðamanns- ins Kevin Pilley sannast það enn einu sinni að glöggt er gests augað. Ástandinu í miðbænum um helgar verður ekki með orðum lýst. Ég held það sé full ástæða fyrir unga fólkið sjálft að taka sig saman og breyta þessu. Það þarf að gerast sín eigin lögga, því staðreyndin er sú að mikill minnihluti ungmenn- anna hefur komið óorði á allan hópinn. Þorri unglinga hagar sér prýðilega í miðbænum um helgar og fer þangað fyrst og fremst til að sýna sig og sjá aðra. Það eru svörtu sauðimir sem umtalinu valda og hafa m.a. orðið kveikjan að títtnefndri grein blaðamanns „The Guardian“. Lesendur! Hringið eða skrifið Við hvetjum lesendur til að láta skoðanir sínar í Ijós hér í lesendahorn- inu. Síminn er 24222.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.