Dagur - 01.10.1991, Blaðsíða 8

Dagur - 01.10.1991, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 1. október 1991 ÍÞRÓTTIR Þórhallur Pálsson hefur verið atkvæðamikill á innanfélagsmótum GA í sumar. Mynd: JHB KEA BRAUÐGERÐ Eplakaka 289 Smjörkaka 218 Tilboðið stendur frá 25. sept. til 4. okt. Golf: Flugleiðir og Þórhallur unnu Firmakeppnina - Þórhallur lék Flugleiðir - Innanlandsflug varð sigurvegari í Firmakeppni Golf- klúbbs Akureyrar sem fram fór á Jaðarsvelli á laugardag. Það var Þórhallur Pálsson sem lék fyrir Flugleiðir en Þórhallur hef- ur verið með eindæmum sigur- sæll í sumar. 98 fyrirtæki tóku þátt í keppn- inni en leiknar voru 18 holur með forgjöf. Þórhallur krækti í 1. sætið á 62 höggum nettó en hann lék seinni níu á 32 seinni níu holumar á aðeins 32 höggum. Sigurður H. Ringsted, sem lék fyrir verslunina Brynju, varð í 2. sæti á 64 höggum og Erla Adólfsdóttir, sem lék fyrir Tann- læknastofu Harðar Þórleifssonar, varð í þriðja sæti, einnig á 64. Vertíðinni hjá GA lýkur um næstu helgi en þá fer fram hin ár- lega Bændaglíma. Á laugardags- kvöldið verður síðan lokahóf Greifamótanna þar sem kylfingar gera sér glaðan dag. Frjálsar íþróttir: íslendingar í 16. sæti í Evrópubikarkeppni - Ómar Kristinsson UMSE jafnaði sveinamet íslendingar lentu í 16. sæti í Evr- ópubikarkeppni félagsliða ung- linga í frjálsum íþróttum sem fram fór í Aþenu á laugardag. Alls tóku 22 lið þátt í mótinu. Eins og nafnið ber með sér er keppnin félagakeppni en smáríki, eins og ísland, mega senda lands- lið til leiks. Þama voru eingöngu strákalið en samskonar keppni fyr- ir stelpurnar fór fram í París fyrir skömmu. Árangur Islendinga var í heild þokkalegur, Omar Kristinsson, UMSE, jafnaði t.d. sveinamet í 400 m hlaupi og nokkrir fleiri bættu persónulegan árangur sinn, sumir verulega. Frjálsar íþróttir: Námskeið fyrir þjálf- ara og leiðbeinendur Námskeið fyrir þjálfara og leið- beinendur í frjálsíþróttum verður haldið í íþróttamiðstöð íslands á Laugarvatni helgina 11.-13. októ- ber nk. Námskeiðið hefst kl. 18 á föstu- deginum og lýkur kl. 16 á sunnu- deginum. Kennarar verða tveir, Karl Zilch og Frank Hensel, sem eru viðurkenndir fyrirlesarar af Al- þjóða frjálsíþróttasambandinu. Hensel hefur m.a. verið landsliðs- þjálfari Þjóðverja í grindahlaupi. Námskeiðsþættir/greinar: Þjálf- un afreksfólks í fjölþraut, sprett- og grindahlaupi. Kennslan verður bæði bókleg og verkleg. Námsefni verður dreift á staðnum. Þátttöku- gjald er 4400 kr. og er innifalið námsefni, fæði og gisting. Þátttökutilkynningar berist til FRÍ, sími 91-685525, Kára Jóns- sonar, sími 98-61153, eða Egils Eiðssonar, sími 91-71058. íþróttir fatlaðra: Norræna Trinmilandskeppnm hefst í nóvember Nú er að hefjast sjötta „Norræna trimmlandskeppnin“ og stendur hún yfir í októbermánuði á öll- um Norðurlöndunum. Þátttakendur í keppninni geta verið allir fatlaðir einstaklingar fé- lags- eða ófélagsbundnir. íþrótta- samband fatlaðra hefur einnig boð- ið öldruðum að vera með enda margir hverjir hreyfihamlaðir. Skrásetning fer fram hjá trúnaðar- mönnum ÍF um land allt s.s. hjá í- þróttafélögum fatlaðra, starfsfólki heilsugæslustofnana, skóla, dval- arheimila, sambýla fatlaðra o.fl. Keppnisgreinar eru ganga, hlaup, sund, hjólastólaakstur, sigl- ingar, hjólreiðar, hestamennska, dans og leikfimi/líkamsrækt. Hvert trimm verður að standa yfir í a.m.k. 30 mínútur og aðeins er unnt að fá eitt stig á dag. Hver þátt- takandi hefur eitt þátttökuskírteini og við hvert trimm skráir hann dagsetningu og einkenni greinar- innar á skírteinið. Skila þarf út- fylltum þátttökuskúteinum til skrifstofu íþróttasambands fatl- aðra, Iþróttamiðstöðinni Laugar- dal, sem fyrst eftir að keppni líkur og eigi síðaren 15. nóvember. Fyrsta keppnin fór fram 1981 og sigraði Island þá með glæsibrag sem og næstu keppnir 1983 og 1985. Var þá fyrirséð að ísland myndi vinna allar slíkar keppnir vegna höfðatölureglunnar sem í gildi var og áhugi hinna Norrænu þjóðanna minnka og keppnin missa marks. ísland lagði því fram 1986 tillögu um breyttar reglur sem voru samþykktar og nú sigrar sú þjóð sem hefur mesta aukningu á fjölda þátttakenda. Þýskaland: Frankftirt hirti toppsætið ■ Leikur helgarinnar var tvímælalausti við- ureign Hamburger SV og Stuttgart í Ham- borg. Leiknum lauk 1:1 og þau úrslit kofet- uðu Stuttgart efsta sætið, liðið hefur 15 sfig eins og Frankfurt en lakara markahlutfall. Leikurinn var liðinu einnig dýr að öðru leyti því Scháfer meiddist og fékk að auki að líta rauða spjaldið. Daum segist hins vegaí ætla að biðja um að málið verði endurskoðað þ.ví Schafer hafi ekki átt rauða spjaldið skilið.i ■ Fyrri hálfleikur var mjög skemmtilegur en þrátt fyrir að Stuttgart hafí þá átt Ibetri marktækifæri var Hamburg á undan að ná forystunni með marki Spörls á 4. mínútu en hann var besti maður vallarins.Frontzeck jafnaði metin fyrir Stuttgart beint úr auka- spymu á 37. mínútu. Hamborgarar áttu.mun meira í seinni hálfleik en náðu lítið að ógna. Eyjólfur Sverrisson kom inná á 56. mínútu og stóð sig vel, fékk 4 í einkunn. Þess má geta að hvorki Sammer né Buch léku með Stuttgart vegna meiðsla. ■ Stuttgart á erfitt prógramm framundan þvf liðið spilar við ungverska liðið Tech í Evrópukeppninni á miðvikudag. Stuttgart vann fyrri leikinn 4:1. Næsta laugardag verður síðan annar stórleikur þegar Stuttgart fær topplið Frankfurt í heimsókn. ■ Leikmenn Stuttgart eiga góðu gengi að fagna á fleiri vígstöðvum en knattspyrnu- völlunum þessa dagana. Mikil frjósemi hef- ur gripið um sig í hópnum, Sammer eignaðist nýlega stúlku, Kastl strák óg Frontzeck bíður eftir því að hans annað bam komi í heiminn. Var reiknað með því í gær. ■ Entenmann, fyrrum þjálfari Stuttgart, sat í stúkunni á leik liðsins við Hamburg en hann þjálfar nú Nurnberg. Alexander Strehmel, sem ekki komst í liðið undir stjórn Entenmanns, en er fastamaður hjá Daum, sagði að engu breytti þó Entenmann hefði skrifað tvær blokkir af athugasemdum, Stuttgart myndi sigra Niimberg eftir hálfan mánuð. ■ Kaiserslautern sigraði Borussia Mönch- engladbach 4:2. Mönchengladbach: rak þjálfara sinn í síðustu viku en það var aðeihs í annað sinn sem félagið gerir það. Fyrsta skiptið var í fyrra. ■ Frankfurt skaust í efsta sætið með 3:0 sigri á Borussia Dortmund. Besti maður Frankfurt var Ole Stein sem fékk 1 í einkunn en Falkenmeier fékk sömu einkunn. Liðið fékk reyndar mjög góða dóma í heild sinni og í pistli sínum í Bild í gær skrifaði Paul Breitner að miðjan hjá liðinu væri sú besta í deildinni í dag. ■ Hansa Rostock og Stuttgart Kickers gerðu 1:1 jafntefli í daufum leik. Áhorfendur voru aðeins 12 þúsund en til samanburðar má nefna að þegar Stuttgart heimsótti Rostock komu 70 þúsund áhorfendur. ■ Schalke sigraði Karlsruher 3:1. Karlsru- her komst í 1:0 en missti dampinn ænda megnið af liðinu á sjúkrahúsi. ■ Danski landsliðsmaðurinn Bent Christi- ansen, sem var keyptur til Schalke fyrir< 5 milljónir marka, var í upphafi kallaður Turbo Christiansen. Frammistaða hans hef- ur hins vegar valdið vonbrigðum og nú er hann kallaður Trabbi Christiansen. Haán fékk 5 í einkunn fyrir leikinn um helgina. i ■ Dynamo Dresden og Duisburg gerðu markalaust jafntefli. ■ Sömu úrslit urðu í leik Fortuna Dúss- eldorf og Werder Bremen. ■ Bayer Leverkusen vann 2:0 útisigur á Bochum. Með sigrinum komst Leverkusen á toppinn ásamt Frankfurt og Stuttgart. ■ Köln hefur enn ekki náð að vinna sigur í deildinni og á því varð ekki breyting um helgina. Liðið gerði jafntefli 1:1 við Wattenscheid. ■ Nágrannamir í Núrnberg og Bayern Múnchen áttust við og gerðu 1:1 jafntefli í skemmtilegum leik. Einar Stefánsson, Þýskalandi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.