Dagur - 01.10.1991, Blaðsíða 9

Dagur - 01.10.1991, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 1. október 1991 - DAGUR - 9 Forskot Manchester Utd. nú sex stig - Ian Wright byrjar vel hjá Arsenal - sjö jafnteíli í 1. deild Bryan Kobson, fyrirliði Man. Utd., er maðurinn á bakvið velgengni liðsins í haust. Hann skoraði sigurmark liðsins gegn Tottenham. Það gekk illa fyrir leikmenn í 1. deildinni ensku að knýja fram úrslit í leikjum helgarinn- ar og sjö af leikjunum ellefu lauk með jafntefli. En þrátt fyrir það vantaði ekkert uppá baráttuna og mikið af mörkum sá dagsins Ijós að venju. En lít- um þá nánar á leiki helgarinn- ar. ■ Aðalleikur laugardagsins var leikur bikarmeistara Tottenham gegn efsta liði deildarinnar Manchester Utd. og þar var ekki sæst á jafntefli, gestirnir fóru heim með öll stigin og hafa nú sex stiga forskot í 1. deild og hafa ekki tapað leik. Bryan Robson sem átti stórleik fyrir Utd. tryggði liði sínu sigurinn með góðu marki undir lok leiksins eft- ir aukaspyrnu frá Clayton Black- more sem var nýkominn inná sem varamaður í stað Andrej Kantchelkis. Leikmenn Totten- ham voru þá aðeins 10 inná þar Úrslit 1. deild Chelsea-Everton 2:2 Coventry-Aston Villa ' 1:0 Crystal Palace-Q.P.R. 2:2 Liverpool-Sheffield Wed. 1:1 Luton-Notts County 1:1 Manchester City-Oldham 1:2 Nonvich-Leeds Utd. 2:2 Nottingham For.-West Ham 2:2 Shcffield Utd.-Wimbledon 0:0 Southampton-Arsenal 0:4 Tottenham-Manchester Utd. 1:2 2. deild Barnsley-Millwall 0:2 Blackburn-Tranmere 0:0 Brighton-Bristol Rovers 3:1 Bristol City-Portsmouth 0:2 Charlton-Port Vale 2:0 Grimsby-Ipswich 1:2 Middlesbrough-Sunderland 2:1 Newcastle-Derby 2:2 Oxford-Plymouth 3:2 Southend-Wolves 0:2 Swindon-Watford 3:1 Cambridgc-Leicester 5:1 Úrslit í vikunni. Deildabikarinn 2. umferð fyrri leikur Blackpool-Barnsley 1:0 Bradford-West Hant 1:1 Brentford-Brighton 4:1 Crewe-Ncwcastle 3:4 Everton-Watford 1:0 Hull Cify-Q.P.R. 0:3 Leyton Orient-Sheffield Wed. 0:0 Middlesbrough-Bournemouth 1:1 Oldham-Torquay 7:1 Port Vale-Notts County 2:1 Porfsmouth-Oxford 0:0 Scarborough-Southampton 1:3 Scunthorpe-Leeds Utd. 0:0 Sunderland-Huddersfield 1:2 Wigan-Shcffield Utd. 2:2 Wimbledon-Peterborough 1:2 Wolves-Shrewsbury 6:1 Bristol Rovers-Bristol City 1:3 Charlton-Norwich 0:2 Chelsea-Tranmere 1:1 Coventry-Rochdale 4:0 Derby-Ipswich 0:0 Grimsby-Aston Villa 0:0 Hartlepool-Crystal Palace 1:1 Leicester-Arsenal 1:1 Liverpool-Stoke City 2:2 Luton-Birmingham 2:2 Manchester City-Chester 3:1 Manchester Utd.-Cambridge 3:0 Millwall-Swindon 2:2 Nottingham For.-Bolton 4:0 Swansea-Tottcnhain 1:0 sem Paul Stewart hafði verið vik- ið af velli 15 mín. fyrir leikslok er hann braut gróflega á Gary Pallister, en hann hafði áður ver- ið bókaður í leiknum. Utd. liðið var þó ávallt sterkari aðilinn í leiknum og átti sigurinn skilinn, Mark Hughes náði forystu fyrir liðið um miðjan fyrri hálfleik eft- ir aukaspyrnu Ryan Giggs og hinn ungi Ian Walker í marki Tottenham átti ekki möguleika. Tottenham náði þó að jafna rétt fyrir hlé með umdeildu marki, Vinny Samways tók þá auka- spyrnu fyrir Tottenham án þess boltinn væri stöðvaður, Nayim tók við boltanum, sendi til Gary Lineker sem renndi til Gordon Durie sem skoraði af stuttu færi. En Bryan Robson má vera ánægður með sinn hlut í leiknum og ekki spillti það fyrir að lands- liðsþjálfari Englendinga var á leiknum, en háværar raddir eru uppi um það á Englandi að Rob- son verði á ný valinn í landsliðið. Guðni Bergsson lék með Totten- ham, en var skipt út af er 2 mín. voru til leiksloka og kom Scott Houghton kornungur leikmaður inná í hans stað í fyrsta sinn í 1. deildarleik. Guðni átti góðan leik og taldi þulurinn enski að verið væri að hvíla hann eftir frækilega frammistöðu gegn Spánverjum fyrr í vikunni. ■ Englandsmefstarar Arsenal keyptu í vikunni Ian Wright mið- herja Crystal Palace fyrir 2,5 milljón pund og hann átti sann- kallaðan stórleik með sínum nýju félögum gegn Southampton. Southampton var heldur sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og Iain Dowie var nærri að ná forystu fyrir liðið, en það var Arsenal sem leiddi leikinn í hálfleik með marki á 38. mín. David Rocastle skoraði markið eftir að Tim Flowers markvörður Southamp- ton hafði hálfvarið skot frá Wright. í síðari hálfleiknum lét Wright heldur betur að sér kveða og skoraði þrjú mörk fyrir Arsenal í glæsilegum 4:0 sigri liðsins. Fyrsta mark hans kom eftir stungusendingu frá Anders Limpar, því næst skoraði hann eftir undirbúning Alan Smith og þriðja mark hans kom er 16 mín. voru til leiksloka og yfirburðir meistaranna algerir. Greinilegt að Wright skerpir mjög sóknar- leik Arsenal liðsins með sínum mikla hraða og krafti. Southamp- ton átti ekkert svar við leik Arsenal í síðari hálfleik og Neil Ruddock miðvörður liðsins fékk sitt fimmta gula spjald í haust. ■ Leeds Utd. hóf leik sinn gegn Norwich af miklum krafti, bolt- inn gekk vel Og Gary McAllister lék mjög vel á miðjunni, en ekki tókst íeikmönnum að koma bolt- anum í markið í fyrri hálfleik. í upphafi þess síðari náði Norwich hins vegar forystu með marki Dale Gordon eftir góða sendingu Ruel Fox. Leikmenn Leeds Utd. gáfust ekki upp og eftir gífurlega pressu að marki Norwich jafnaði Tony Dorigo með marki beint úr aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Skömmu síðar náði Leeds Utd. forystu er Gary Speed slapp í gegnum rangstöðutaktík Norwich og skoraði, en 10 mín. fyrir leiks- lok náði Gordon að jafna 2:2 fyr- ir Norwich og lokakaflinn var spennandi. Gordon hefði hæg- lega getað tryggt Norwich sigur- inn í lokin, en honum mistókst í góðu færi. Áhorfendur hylltu bæði lið að leik loknum, en leikurinn var rnjög vel leikinn og skemmtilegur þar sem bæði lið lögu sig fram um að leika knatt- spyrnu og ekki hefði verið ósann- gjarnt að Leeds Utd. hefði sigrað í leiknum. ■ Peter Beardsley kostaði Everton milljón pund í sumar er hann var keyptur frá Liverpool, en þeim fjármunum var sannar- lega vel varið. Beardsley leikur gífurlega vel um þessar mundir, kraftmikill og ákveðinn og ekki ólíklegt að Liverpool sjái nú eftir að hafa selt hann. Hann bjargaði stigi fyrir Everton er hann jafnaði fyrir liðið gegn Chelsea 4 mín. fyrir leikslok. Hann stal þá bolt- anum af Ken Monkou miðverði Chelsea og skoraði sitt áttunda mark fyrir Everton í haust. Jafn- teflið var það minnsta sem Ever- ton átti skilið, John Ebbrell náði forystu fyrir liðið í fyrri hálfleik með skoti af löngu færi sem Dave Beasant í marki Chelsea hefði átt að verja. En Everton misnotaði fjölda góðra færa í síðari hálfleik, sérstaklega Mike Newell og yfir- burðir liðsins voru miklir. Kevin Wilson náði þó að jafna fyrir Chelsea eftir mistök Dave Wat- son í vörn Everton og hinn smá- vaxni Dennis Wise náði síðan forystu fyrir Chelsea 15 mín. fyrir leikslok er honum tókst á undar- legan hátt að stökkva hærra en hávaxnir varnarmenn Everton og skalla boltann inn. Sigurinn blasti því við Chelsea og áhorfendur voru farnir að tínast af vellinum er Beardsley tók til sinna ráða í lokin og jafnaði. ■ Liverpool gengur ekki vel þessa dagana, liðið gerði óvænt 2:2 jafntefli gegn Stoke City í Deildarbikarnum í vikunni og varð að láta sér nægja jafntefli gegn Sheffield Wed. á heimavelli á laugardaginn. Ray Houghton náði þó forystunni fyrir Liver- pool strax á 16. mín., en um miðjan síðari hálfleik jafnaði John Harkes með skalla fyrir Sheff. Wed. Leikurinn þótti slakur, en úrslitin sanngjörn og varnarleikur Liverpool langt frá því að vera góður og greinilegt að liðið verður að bæta hann veru- lega ef ekki á illa að fara. ■ Coventry vann góðan sigur gegn Aston Villa þar sem frábært mark útherjans Peter Ndluvo frá Zimbabwe á 40. mín. réði úrslit- um. Coventry varðist stöðugri sókn Aston Villa í síðari hálfleik með miklum krafti, en Villa hefði þó átt að ná minnsta kosti jafntefli úr leiknum. Markvörður Coven- try, Steve Ogrizovic, var þó á öðru máli og varði allt sem á mark hans kom, en Peter Billing og Brian Borrows leikmenn Coventry voru bókaðir fyrir of mikla hörku í varnarleiknum. ■ Crystal Palace án Ian Wright náði aðeins 2:2 jafntefli gegn Q.P.R. á heimavelli og mátti þakka fyrir það. Palace skoraði bæði mörk sín á síðustu 9 mín. leiksins og voru þeir Mark Bright og Stan Collymore þar að verki. Q.P.R. virtist hafa tryggt sér sigurinn í leiknum er Simon Barker á 6. mín. og Roy Wegerles úr vítaspyrnu í síðari hálfleik höfðu náð 2:0 forskoti í leiknum. Heppnin var hins vegar með Palace í lokin þrátt fyrir að Q.P.R. væri sterkara liðið í leiknum. ■ David White náði forystu fyrir Manchester City á 19. mín. gegn Oldham í fjörugum leik. Það dugi liðinu þó ekki til sigurs því Graeme Sharp, sem Oldham keypti frá Everton í sumar, náði að jafna og hann skoraði síðan sigurmark Oldham undir lok leiksins. Sigur Oldham liðsins kom nokkuð á óvart, en City virðist vera að slaka á eftir góða byrjun í mótinu og ekki bætti úr skák að City missti Keith Curle meiddan út af í leiknum. ■ Sheffield Utd. og Wimbledon gerðu jafntefli í leik sínum sem er merkilegur fyrir þá sök að honum lauk án þess að mark væri skorað. Óvenjulegt þessa dag- ana. ■ Fjörugum leik Nottingham For. og West Ham lauk með 2:2 jafntefli. Ian Woan náði forystu fyrir Forest með góðu skoti strax á 1. mín. En Mike Small jafnaði fyrir West Ham 6 mfn. síðar og hann kom liði sínu síðan yfir rétt fyrir hlé með marki úr víta- spyrnu. í síðari hálfleiknum tryggði Teddy Sheringham For- est jafntefli með góðu marki. ■ Eftir markalausan fyrri hálf- leik náði Mick Harford forystu fyrir Luton gegn Notts County. Svo virtist sem mark hans myndi duga liðinu til sigurs, en alveg í lokin tókst Tommy Johnson að jafna fyrir County. 2. deild ■ Toppliðið Middlesbrough sigraði Sunderland 2:1 með mörkum Bernie Slaven og Paul Wilkinson, en mark Sunderland gerði Kieron Brady. ■ Bobby Davison frá Leeds Utd. og Ian Ormondroyd frá Aston Villa komu Derby í 2:0 gegn Newcastle, en þeir Hunt og Mick Quinn jöfnuðu fyrir New- castle. ■ Alex Rae skoraði bæði mörk Millwall gegn Barnsley. ■ David Lowe og Gavin John- son skoruðu mörk Ipswich gegn Grimsby. Þ.L.A. Staðan 1. deild Manchester Utd. 10 8-2-0 18:3 26 Leeds Utd. 10 5-5-0 16:6 20 Arsenal 105-2-3 23:15 17 Sheffield Wed. 105-2-316:1117 Chelsea 114-5-2 19:1517 Coventry 115-2414:1017 Tottenham 8 5-1-216:1116 Manchester City 11 5-1-5 12:14 16 Liverpool 9 4-3-2 11:8 15 Norwich 11 3-6-2 14:14 15 Notts County 114-3-414:16 15 Crvstal Palace 94-2-318:1914 Nottingham For. 10 4-1-519:17 13 Everton 113-4-416:1413 Oldham 10 4-1-5 16:1613 Aston Villa 113-3-512:1412 Wimbledon 103-2-516:1711 West Harn 112-5-412:1511 QPR 111-6-410:17 9 Luton 112-3-6 6:23 9 Southampton 112-2-7 9:20 8 Sheffield Utd. 111-3-711:22 6 2. deild Middlesbrough 118-1-2 18:8 25 Ipswich 10 6-2-2 18:15 20 Cambridge 9 6-1-2 19:1319 Swindon 9 5-2-2 21:13 17 Wolves 95-2-2 16:1117 Leicester 9 5-1-313:1316 Portsmouth 9 4-3-2 9:7 15 Tranmere 9 3-5-115:12 14 Charlton 9 4-2-313:12 14 Southend 94-2-3 9:8 14 Grintsby 93-2-416:1614 Brighton 104-2-415:1514 Derby 10 34-3 12:11 13 Bristol City 11 3-4-313:1513 Blackburn 93-3-3 7:8 12 Millwall 9 3-2-416:1411 Sunderland 103-2-517:1711 Watford 9 3-1-511:1310 Port Vale 112-4-5 9:1310 Plymouth 92-2-512:17 8 Barnsley 112-2-7 9:19 8 Oxford 9 2-1-612:17 7 Newcastle 10 1-4-5 14:20 7 Bristol Rovers 91-2-611:18 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.