Dagur - 01.10.1991, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 1. október 1991 - DAGUR - 13
MlNNING
Hún Helga í Þríhyrningi er látin.
Þegar ég fékk þessa frétt birtust
myndir liðinna ára fyrir augum
mér. Helga var ein af þeim sem
ætíð hafði heimili sitt opið öllum
þeim sem leið áttu um hennar
hlað og ég varð þeirrar gæfu
aðnjótandi að eiga leið um hlaðið
á Þríhyrningi.
Ég var þá nýlega byrjaður að
kenna við Þelamerkurskóla og
hafði kynnst þeim bræðrum
Hauki, Guðmundi og Þórði sem
síðar urðu meðal minna bestu
vina, en í gegnum kynni mín af
þeim hóf ég að spila knattspyrnu
í sveitinni. Eftir mína fyrstu
æfingu kom Þórður að máli við
mig og bauð mér að koma heim
með honum í kaffi. Við fórum
saman nokkuð margir í bíl og er
við komum heim í hlað í Þríhyrn-
ingi man ég ekki betur en Helga
liafi komið út á tröppur og boðið
öllum hópnum inn. Ég átti ekki
orð yfir þessari gestrisni og ekki
Óska eftir feitum hrossum til
siátrunar á Japansmarkað.
Uppl. gefur Ingólfur Gestsson, Ytra-
Dalsgerði. Sími: 96-31276 og Slát-
ursamlag Skagfirðinga, Gísli Hall-
dórsson, sími: 95-35246.
Hross til sölu!
Fyrir byrjendur, litið vana. Ættbók-
arfærð, lítið tamin. Ótamin og folöld.
Á sama stað hvítt vatnsrúm til
sölu.
Uppl. í síma 26670, helst á kvöldin.
Brúðarkjólar til leigu og skírnar-
kjólar til sölu og leigu.
Geymið auglýsinguna.
Uppl. í síma 21679. Björg.
Víngerðarefni:
Vermouth, rauðvín, hvítvín,
kirsuberjavín, Móselvín, Rínarvín,
sherry, rósavín.
Bjórgerðarefni:
Þýsk, dönsk, ensk.
Plastbrúsar, síur, vatnslásar,
alkohólmælar, sykurmælar, líkkjör-
ar, filter, kol, kísill, felliefni, suðu-
steinar o.fl.
Sendum í eftirkröfu.
Hólabúðin hf.,
Skipagötu 4, sími 21889.
„Mumniumorgnar“
- opið hús í safnaðar-
hcimili Akureyrarkirkju.
Miðvikudaginn 2. októ-
ber frá kl. 10-12.
Frjáls tfmi, kaffi og spjall.
Allir foreldrar velkomnir með börn
Sálarrannsóknarfélagið
á Akureyri
Strandgötu 37 b • P.O. Box 41,
Akureyri • 96-27677
Frá Sálarrannsóknarfclaginu á
Akureyri.
Við byrjum vetrarstarfið með
almennum félagsfundi miðvikud. 2.
okt. kl. 20.30 í Strandgötu 37 b.
Allir velkomnir. Mætuiri vel.
Stjórnin.
Ruby Gray miðill starfar á vegum
félagsins dagana 8.-19. október.
Tekið verður á móti pöntunum á
einkafundi í síma 27677 laugardag-
inn 5. okt. kl. 13.00-15.00.
Félagsmenn sitja fyrir.
Fyrirhugað er að hafa námskeið fyr-
ir byrjendur ef næg þátttaka fæst.
vantaði meðlætið með „kaffisop-
anum“.
Síðan hcfur mikið vatn runnið
til sjávar og var ég löngu hættur
að undrast þó Helga biði heilu
knattspyrnuliði í kaffi, það var
bara svo sjálfsagt þegar Helga
átti í hlut.
Helga Þórðardóttir var fædd 2.
mars 1911. Hún giftist Steindóri
Guðmundssyni frá Þríhyrningi
árið 1938 og hófu þau þá þegar
búskap. Steindór lést 14. júní
1966 langt um aldur fram.
Ég og mín fjölskylda bund-
umst einstökum vináttuböndum
við Helgu og alla hennar fjöl-
skyldu. Það voru ófáar stundirn-
ar sem við áttum í Þríhyrningi
þegar ég bjó fyrir norðan og voru
synir mínir Haraldur og Davíð
þar heimagangar og minnast með
þakklæti alls þess sem Helga var
þeim.
Ef við vorum boðin í síðdegis-
kaffi þá fórum við ekki heim fyrr
en drukkið hafði verið kvöld-
kaffi, svo notalegt var að heim-
sækja Helgu. Og nú eftir að ég
settist að fyrir sunnan höfum við
hjónin ekki farið norður öðruvísi
en að heimsækja Helgu í Þrí-
hyrningi.
Já, myndir af Helgu eru sem
ljóslifandi fyrir augum mínum.
Það væri hægt að minnast á svo
margt, svo ótal margar minningar
eru tengdar Helgu. en kannski er
sterkasta myndin sem fyrir augu
mín ber, af smávaxinni konu meö
augu sem horfðu á mann með
hlýju og heiðarleika, konu sem
ætíð var á fullri ferð og féll aldrei
starl' úr hendi, konu sem hefur
gefið svo mikið af sér til okkar
sem eftir erum í þessu lífi.
Þeim bræörum Hauki, Guð-
mundi og Þórði ásamt fjölskyld-
um þeirra sendum við Ester okk-
ar samúðarkveðjur.
Haíldór Sigurðsson.
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
ÁskriftaríZ=2‘ 96-24222
Módeldagar!
Urval af módelum
Lím og litir
15%
afsláttur
Leikfangadeild
Styrktarfélag vangefinna
Noröurlandi heldur almennan félagsfund aö
Iðjulundi, þriðjudaginn 2. október kl. 20.30.
Félagsmenn fjölmennið!
Stjórnin.
Aðalfundur
Skákfélags Akureyrar
veröur haldinn föstudaginn 4. október kl. 20.00
Skákheimilinu Þingvallastræti 18.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Kúlu-, rúllu- og þrýstilegur
ÆwSTRAUMRÁS s.f
Furuvöllum 1 sími 26988
Þar sem þjónustan er í fyrirrúmi.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð RARIK 91003
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
smíði birgðastöðvar og skrifstofu að Sólbakka 1,
Borgarnesi.
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins Sólbakka 6, Borgarnesi og Laugavegi
118, 105 Reykjavík, frá og meö þriðjudeginum 1.
október 1991 gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboöum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins Sólbakka 6, Borgarnesi fyrir kl. 14.00 þriöju-
daginn 15. október 1991 og verða þau þá opnuð í
viðurvist þeirra bjóöenda sem þess óska.
Verkinu á að vera að fullu lokið þriðjudaginn 15
september 1992.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merkt RARIK 91003 -
Borgarnes - Svæðisútibú.
L'
LAN DSVIRKJUN
Útboð á þrýstipípu og iokum
fyrir stækkun Búrfellsvirkjunar
Landsvirkjun auglýsir eftir tilboðum í framleiðslu,
afhendingu og uppsetningu á þrýstipípu og lokum
fyrir 100 MW stækkun Búrfellsvirkjunar, samkvæmt
útboðsgöngum BFO 20.
Verkið felur í sér hönnun, framleiðslu, afhendingu og
uppsetningu á einni þrýstipípu, ásamt lokum víð inn-
tak og frárennsli meö tilheyrandi búnaði.
Útboðsgögn verða fáanleg hjá Landsvirkjun, Háa-
leitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með þriðjudeg-
inum 1. október, 1991 gegn óafturkræfri greiðslu að
fjárhæð kr. 5.000 fyrir fyrsta eintak, en kr. 3.000 fyrir
hvert viðbótareintak.
Tilboðum skal skila til Landsvirkjunar, Háaleitisbraut
68, 103 Reykjavík eigi síðar en kl. 12.00, föstudag-
inn 29. nóvember 1991.
Tilboðin verða opnuð kl. 14.00 samadag í stjórnstöð
Landsvirkjunar, Bústaðavegi 7, Reykjavík.