Dagur - 20.10.1991, Blaðsíða 3

Dagur - 20.10.1991, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 22. október 1991 - DAGUR - 3 Fréttir Meint brot útgefenda sérsímaskráa: „Að einhverju leyti misskilningur“ - segir Sveinn Brynjólfsson, formaður knattspyrnudeildar KA „Við viljum meina að þetta sé að einhverju leyti misskilning- ur og að það sé hægt að fínna einhvern farveg út úr þessu. Við verðum að setjast niður með lögmönnum Pósts og síma og fínna lausn á málinu,“ sagði Sveinn Brynjólfsson, formaður knattspyrnudeildar KA, en deildin hefur gefíð út sérsíma- skrá sem lögmenn Póst- og símamálastofnunar telja að staðið hafí verið að með ólög- mætum hætti. Eins og Dagur greindi frá sl. föstudag telja lögmenn Póst- og símamálastofnunar að nokkrir útgefendur sérsímaskráa, þ.á m. KA og Gunnar Berg, hafi þver- brotið lög við útgáfuna. Par sem skránum hafi þegar verið dreift var ákveðið að gefa útgefendum Verkfall á kaupskipum: „Veldur óþægindiim og eykur kostnað“ - sagði talsmaður Eimskipa á Akureyri Vikuverkfall undirmanna á kaupskipum, þeirra sem eru í Sjómannafélagi Reykjavíkur, stendur nú yfír. Að sögn tals- manna Samskipa og Eimskipa á Akureyri veldur verkfallið ýmsum óþægindum, sem þó koma ekki að sök. „Útflutningsvaran fer. Henni er umskipað í Vestmannaeyjum. Skip fór frá Akureyri til Vest- mannaeyja á laugardag og kemur til baka nk. fimmtudag. Sé litið til innflutningsvörunnar, þá eru kaupskipin losuð í Reykjavík og ekkert vandamál er að ná til vörunnar. Par sem strandferða- skipin sigla ekki, þá er það nauðsynlegasta tekið norður með vöruflutningabílum. Verkfallið veldur óþægindum og eykur kostnað," sagði talsmaður Eim- skipa á Akureyri. ój Ekið á stúlku á Þingvallastræti: Lýst eftir vitmun Laust fyrir klukkan þrjú í gær ók piltur á léttu bifhjóli á stúlku á Þingvallastræti. Pilt- urinn fór af slysstað án þess að huga að stúlkunni. Stúlkan sem er sex ára var á leið yfir gangbraut við verslun Kaupfélags Eyfirðinga að Hrísa- lundi. Þar sem ökumaður bif- hjólsins fór af slysstað og sinnti ekki stúlkunni lýsir rannsóknar- lögreglan eftir vitnum að óhapp- inu og skorar jafnframt á öku- inanninn að gefa sig fram við lög- regluna. Litla stúlkan slasaðist ekki að sögn lögreglunnar, en var mjög hrædd og miður sín er nálæga vegfarendur bar að. ój tækifæri til að baáta ráð sitt með því að greiða leyfisgjald án tafar, en þar munu vera umtalsverðar upphæðir á ferð, annars verði lögð fram kæra. „Við sóttum skriflega um leyfi á sínum tíma og gerðum ráð fyrir að það gilti áfram. Pegar komið var að því að prenta skrána í ár voru engin gögn komin frá Pósti og síma og við settum hana upp eins og við höfum alltaf gert. Síð- an fengum við bréf á miðju sumri með skilyrðum fyrir útgáfunni en þá var of seint að snúa við,“ sagði Sveinn. í þessum skilyrðum segir m.a. sfðurnar úr símaskrá Póst- og símamálastofnunar skuli birtar óbreyttar í sérsímaskrá, með auglýsingum og öllu sem þar er að finna. Hins vegar sé heimilt að bæta við auglýsingum fyrir fram- an og aftan skrána. Sveinn sagði að KA hefði alltaf selt auglýsing- ar í sjálfa skrána og ekki hefðu verið gerðar athugasemdir við það til þessa. „Við höfum hug á því að gefa þessa skrá út áfram en ef okkur er gert það ókleift verðum við því miður að leggja þessa þjónustu niður,“ sagði Sveinn. SS Mynd: Golli Akureyri: Tveir menn björguðust úr sökkvandi trillu Tveir Hríseyingar komust í hann krappann þegar trilla þeirra sökk skammt undan Eimskipafélagsbryggjunni á Akureyri síðdegis á föstudag. Lögreglan kom með gúm- björgunarbát en gat ekki not- að hann vegna klakahröngls í höfninni og var Oddeyrin EA, sem lá við bryggjuna, ræst út til aðstoðar. Sjónarvottar tilkynntu lög- reglunni um tvo menn sem áttu í vandræðum á trillu sinni 50 m frá bryggjunni. Trillan, sem er V/i tonn, míglak og reyndu mennirnir hvað þeir gátu að ausa úr henni en það var von- laust verk. Lögreglan gat ekki komið björgunarbátnum á flot en skipverjar á Oddeyrinni sáu að Ægir var að hremma trilluna og mennina tvo og leystu þeir þá landfestar í flýti. Oddeyrin kom til aðstoðar á hárréttu augnabliki því skip- verjar voru ekki fyrr búnir að koma böndum á trilluna er hún sökk en þá var hún í öruggum höndunt. Mönnunum var bjarg- að um borð í Oddeyrina, annar þeirra fór í sjóinn stundarkorn en varð ekki meint af. Tildrög óhappsins voru þau að trillan lenti í ís skömmu eftir að hún lagði upp frá Torfunefs- bryggju og kom gat á hana. SS 16. þing Verkamannasambands íslands sett í kvöld: Ný forysta tekur við sambandinu - formaður, varaformaður og ritari munu biðjast undan endurkjöri Arsþing Yerkmannasambands íslands, hið 16. í röðinni, verð- ur sett í Kristalsal Hótels Loft- leiða í Reykjavík í kvöld kl. 20.30 og stendur fram á föstu- dag. Kjörorð þingsins er; Stækkum þjóðarkökuna - jöfn- um og treystum lífskjörin. Fyrr um daginn verða haldnir aðalfundir deilda sambandsins, þ.e. fiskvinnsludeildar, deildar verkafólks við byggingar og mannvirkjagerð og deildar verkafólks hjá ríki og sveitarfé- lögum. Gert er ráð fyrir að þingstörf- um ljúki síðdegis föstudaginn 22. okt. með kosningu nýrrar forystu fyrir sambandið. Fram hefur komið að formaður, varaformað- ur og ritari sambandsins, Guð- mundur J. Guðmundsson, Karl Steinar Guðnason og Ragna Bergmann, rnunu biðjast undan endurkjöri. Rétt til þingsetu nú eiga 149 fulltrúar frá 53 aðildarfélögum og er það einu félagi færra en á síð- asta reglulega þingi VMSÍ. Ástæðan er sú að tvö aðildarfélög hafa sameinast á tímabilinu. í aðildarfélögunum eru alls um 27.500 félagsmenn. Auk venjulegra þingstarfa verður staða og horfur í atvinnu- og kjaramálum aðalverkefni þingsins. Tveir gestir flytja erindi á þinginu, þeir Þórður Friðjóns- son, forstjóri Þjóðhagsstofnunar Már Guðmundsson, hag- og fræðingur. -KK Vísitala byggingarkostnaðar: Hækkun mM mánaöa 0,2% Hagstofan hefur reiknað vísi- tölu byggingarkostnaðar eftir verðlagi um miðjan október 1991. Reyndist hún vera 187,3 stig eða 0,2% hærri en í sept- ember. Þessi vísitala gildir fyr- ir nóvember 1991. Síðastliðna tólf rnánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 8,1%. Síðustu þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 0,5% og samsvarar það 2,2% árshækkun. TÍLBÖÐ Herragarðskaka 338 Karamellukaka 305 Tilboðið stendur frá 16. til 24. okt. KEA 1 i BRAUÐGERÐ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.