Dagur - 20.10.1991, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 22. október 1991
IÞRQTTIR____________________________________
Aðeins einn heimasigur í 1. deild
Man. Utd. og Arsenal skildu jöfn - Liverpool enn í öldudal
Mark Bright skoraði fyrra mark Crystal Palace í leiknum gegn Coventry.
Vegna landsleikja í síðustu
viku hefur ekkert verið leikið í
1. deildinni ensku, þar til á
laugardaginn að tekið var til
við baráttuna að nýju. Og það
voru margir spennandi leikir á
dagskrá, en athygli vekur að
fimm leikjum lýkur með úti-
sigri og aðeins vinnst einn
heimasigur. En þá eru það
leikir laugardagsins.
■ Stórleikur umferðarinnar,
leikur Man. Utd. gegn Arsenal var
sýndur í sjónvarpinu á laugardag
og þar sáu menn liðin skilja jöfn
eftir mikinn báráttuleik. Eins og
menn muna eflaust varð allt vit-
laust í leik þessara liða á Old
Trafford í fyrra, en nú fór allt vel
fram. Gæði knattspyrnunnar voru
ekkert sérstök, baráttan var í
fyrirrúmi, en mörkin voru glæsi-
leg. Arsenal komst yfir á 38. mín.
er David Rocastel, eftir einleik,
sá að Peter Schmeichel mark-
vörður Utd. var of framarlega í
markinu, lyfti laglega yfir hann af
löngu færi, en boltinn fór í
þverslá og þaðan í Schmeichel
og í netið. Glæsilegt mark, en
það hefði verið ósanngjarnt ef
það hefði ráðið úrslitum leiksins
því bæði Ryan Giggs og Brian
McClair áttu stangarskot fyrir
Manchester liðið. Steve Bruce
jafnaði fyrir Utd. með fallegu
skallamarki rétt fyrir hlé eftir
sendingu frá Giggs og þar við sat.
Utd. er því áfram í efsta sæti 1.
deildar og hefur enn ekki tapað
leik.
■ Það var nóg af mörkum og
góðri knattspyrnu í leik Notts
County og Leeds Utd. þar sem
Gary Lund náði forystu fyrir
County snemma í fyrri hálfleik.
Þegar flautað var til hálfleiks
hafði Leeds Utd. þó komist 2:1
yfir með mörkum þeirra Lee
Chapman og Steve Hodge. Leik-
menn Leeds Utd. hófu síðari
hálfleikinn með látum og voru
komnir í 4:1 eftir 10 mín. leik,
Chris Whyte og Gary McAllister
skoruðu. Tommy Johnson náði
þó að minnka muninn í 4:2 með
marki fyrir Notts County áður en
yfir lauk, en góður sigur Leeds
Utd. í höfn og liðið situr áfram í
öðru sæti deildarinnar.
■ Manchester City sigraði Tott-
enham á útivelli, en City hefur
gengið mjög vel á útivöllum í
haust. Lið þeirra er reyndar ekki
árennilegt, Keith Curle sem
Úrslit 1. deild
Chelsea-Liverpool 2:2
Covenlrv-Crjstal Palace 1:2
Everton-Aston Villa 0:2
Luton-Shefficld Wed. 2:2
Manchester Ctd.-Arsenal 1:1
Notts County-Leeds Utd. 2:4
Oldham-Wcst Ham 2:2
Sheffield Utd.-Nottingham For. 4:2
Southampton-Norwich 0:0
Tottenham-Manchester City 0:1
Wimbledon-Q.P.R. 0:1
2. deild
Tranmerc-Cambridge 1:2
Barnsley-Bristol City 1:2
Bristol Rovers-Plymouth 0:0
Charlton-Brighton 2:0
Derbv-Portsmouth 2:0
Grimsby-Middlesbrough 1:0
Ipswich-Millwall 0:0
Leicester-Wolves 3:0
Newcastle-Ovford 4:3
Port Vale-Sunderland 3:3
Swindon-Blackburn 2:1
Watford-Southend 1:2
klettur í vörninni, Peter Reid
góður stjórnandi á miðjunni og
frammi er Niall Ouinn sem vinn-
ur allt í loftinu. Það gengur hins
vegar erfiðlega fyrir Adrian
Heath að skora mörk fyrir liðið,
en hann hefur ekki skorað nú í
yfir ár. Tvívegis í fyrri hálfleik
gegn Tottenham fékk hann góð
færi, en hikaði í bæði skiptin og
Erik Thorstvedt varði af öryggi.
Það skipti þó ekki öllu í lokin,
því 15 mín. fyrir leikslok náði
Quinn að skora eina mark leiks-
ins og tryggja City þriðja útisigur
sinn í röð. Tottenham liðið virk-
aði slakt í leiknum og saknaði
greinilega Paul Stewart sem var í
banni, en við tapinu var ekkert
að segja, City liðið var einfald-
lega betra í leiknum.
■ Svo virðist sem Liverpool liðið
sé nú að breytast úr því yfirburða-
liði sem það hefur verið á Eng-
landi undanfarin ár í miðlungslið,
gott að vísu. Að udanskildum
góðum leik David Burrows og
mikilli baráttu frá Ray Houghton
og Steve McMahon var fátt sem
gladdi aðdáendur liðsins í jafn-
teflisleiknum gegn Chelsea. Vörn
liðsins var óörugg, sérstaklega í
háboltunum og vandræði skapast
jafnan þegar mótherjinn fær
hornspyrnur. Steve McManaman
náði þó forystu fyrir Liverpool
strax á 4. mín. vegna slakra varn-
artilburða Chelsea, en Vinnie
Jones jafnaði fyrir Chelsea áður
en fyrri hálfleik lauk eftir að
Bruce Grobbelaar hafði hálfvarið
skot Joe Allon. í síðari hálfleik
hálfvarði Grobbelaar síðan skot
frá Jones og hinn ungi Andy
Marsh hjá Chelsea kom liði sínu
yfir í 2:1. Forysta Chelsea entist
þó aðeins í 8 mín., þá jafnaði Ian
Rush með skoti sem fór af hinum
sterka miðverði Chelsea Paul
Elliott í markið. Jafntefli á úti-
velli gegn Chelsea er ekki sem
verst, en áhyggjuefni fyrir
Liverpool er þó að liðið hefur nú
leikið fimm deildaleiki í röð án
sigurs.
■ Ian Wright hefur verið sárt
saknað hjá Crystal Palace eftir að
hann var seldur til Arsenal á
dögunum, en liðið hefur nú keypt
góðan leikmann í hans stað,
Marco Gabbiadini frá Sunder-
land. Mark Bright og Wright
unnu mjög vel saman í framlínu
Palace um árabil, en nú virðast
Bright og Gabbiadini vera að ná
saman. Það voru þeir sem
tryggðu Palace sigurinn á útivelli
gegn Coventry. Bright skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir Palace
rétt fyrir hlé er hann afgreiddi
langt útspark markvarðar síns
Nigel Martyn í netið. Palace átti
að bæta við mörkum og þeir
Geoff Thomas og Andy Gray
réðu miðjunni fyrir liðið, en síð-
an fékk Coventry vítaspyrnu upp
úr þurru sem Micky Gynn jafnaði
úr og um tíma lifnaði yfir liði
Coventry. Robert Rosario mið-
herji þeirra var ógnandi í fram-
línunni, en meðherjum hans
tókst ekki að nýta þau færi sem
hann skapaði og 5 mín. fyrir
leikslok laumaðist Gabbiadini
inní markteig Coventry og skall-
aði inn sigurmark Palace.
■ Aston Villa kom á óvart með
sigri á útivelli gegn Everton 2:0
og síðast þegar það gerðist varð
Villa meistari, en yfir 10 ár eru
síðan og ekki líklegt að það
endurtaki sig nú. Cyrille Regis
skoraöi fyrra mark Villa á 32.
mín. og eftir það hefðu þeir
Mark Blake, Dalian Atkinson og
Tony Daley hæglega getað bætt
við mörkum fyrir liðið. Paul
McGrath og Kevin Richardson
áttu báðir stórleik hjá Villa og
Peter Beardsley var góður hjá
Everton. Síðara mark Villa var
mjög glæsilegt, snúningsbolti frá
Daley af um 20 metra færi sem
hinn frægi markvörður Everton
Neville Southall réði ekki við.
■ Leikmenn Q.P.R. sáu til þess
að Peter Withe sem stjórnaði nú
Wimbledon í fyrsta skipti færi
vonsvikinn heim. Hann hefur
örugglega verið óánægður með
sitt nýja lið í leiknum, liðið lék
illa og hann hafði meira að segja
skipt Alan Cork inná fyrir hlé.
Dennis Bailey skoraði eina mark
leiksins og sigurmark Q.P.R. á
81. mín. og ekki veitti liðinu af
öllum stigunum í fallbaráttunni.
■ Fjörugum leik Luton gegn
Sheffield Wed. lauk með 2:2
jafntefli. Mick Harford náði for-
ystu fyrir Luton, en David Hirst
náði að jafna fyrir Sheffield liðið
í 1:1. Kurt Nogan kom síðan
Luton yfir að nýju og það var
ekki fyrr en á síðustu mín. leiks-
ins að John Sheridan náði að
jafna fyrir Sheff. Wed. og tryggja
liði sínu jafnteflið.
■ Annað 2:2 jafntefli varð í leik
Oldham og West Ham þar sem
Neil McDonald nýkeyptur frá
Everton náði forystunni fyrir
Oldham. Mike Small jafnaði fyrir
West Ham, en Oldham komst
síðan yfir að nýju með sjálfsmarki
Tim Breaker. Það var síðan eng-
inn annar en Frank McAvennie
sem skoraði jöfnunarmark West
Ham, en honum hefur gengið
mjög illa að undanförnu vegna
meiðsla og um tíma var talið að
hann væri búinn að vera.
■ Sheffield Utd. tók á móti
Nottingham For. og þar vannst
eini heimasigur umferðarinnar.
4:2 sigur Sheffield liðsins kom á
óvart þar sem það var í botnsæt-
inu og er enn, en Forest liðið er
talið mjög sterkt. Dane White-
house, Tony Agana, Ian Bryson
og Jamie Hoyland skoruðu
mörkin fyrir Sheff. Utd. Mörk
Forest skoruðu þeir Garry Parker
og Steve Chettle.
■ Southampton og Norwich
gerðu síðan markalaust jafntefli í
sínum leik og svo virðist sem
Southampton liðsins bíði ekkert
annað en 2. deildin að ári.
2. deild
■ Neil Woods skoraði sigurmark
Grimsby gegn Middlesbrough
sem þó er enn í efsta sætinu þar
sem Ipswich gerði aðeins marka-
laust jafntefli gegn Millwall.
■ Colin Gordon skoraði tvö
mörk og Tommy Wright það
þriðja í sigri Leicester á Wolves.
■ David Speedie skoraði fyrir
Blackburn á útivelli gegn
Swindon, en það dugði hinu nýja
liði Kenny Dalglish skammt því
leikmenn Swindon skoruðu tví-
vegis.
■ Gary Nelson og Colin Walsh
skoruðu mörk Charlton gegn
Brighton bæði í fyrri hálfleik.
Þ.L.A.
Staðan
1. deild
Manchester Utd. 12 8-4-« 19: 4 28
Leeds Utd. 13 7-5-1 24:12 26
Manchestcr City 13 7-1-5 16:15 22
Arsenal 12 6-3-3 27:18 21
Sheffield Wednesday 13 6-3-4 23:16 21
Coventry 13 6-2-5 16:12 20
Crystal Palace 12 6-2-4 22:24 20
Aston Villa 13 5-3-5 18:14 18
Chelsea 13 4-6-3 23:20 18
Liverpool 11 4-5-2 13:10 17
Wimbledon 13 5-2-6 21:20 17
Nottingham For. 12 5-1-6 23:21 16
Everton 13 4-4-5 19:17 16
Tottenham 10 5-1-4 17:15 16
Norwich 13 3-7-3 15:17 16
Oldham 12 4-3-5 19:19 15
Notts County 13 4-3-6 17:23 15
West Ham 13 2-6-5 14:18 12
QPR 13 2-6-5 11:19 12
Southampton 13 2-4-7 10:21 10
Luton 13 2-4-7 8:29 10
Sheffield Uld. 13 2-3-8 18:28 9
2. deild
Middlesbrough 14 8-24 19:11 26
Cambridge 12 8-1-3 24:15 25
Ipswich 13 7-4-2 22:18 25
Swindon 12 7-2-3 28:16 23
Charlton 12 7-2-3 18:12 23
Derby 13 64-3 20:13 22
Leiccster 12 6-1-5 16:17 19
Bristol City 14 5-4-4 17:20 19
Blackburn 12 5-34 16:13 18
Wolvcs 12 5-3417:1618
Southend 12 5-3-414:1318
Portsmouth 12 5-34 12:12 18
Grimsby 12 4-2-6 18:20 17
Port Vale 14 4-5-515:1717
Millwall 12 4-3-5 20:19 15
Tranmcre 12 3-6-3 17:16 15
Sunderland 13 4-3-6 24:25 15
Brighlon 13 4-3-6 19:23 15
Barnsley 14 4-2-8 14:22 14
Watford 12 4-1-7 14:16 13
Newcastlc 13 34-6 21:2613
Oxford 12 3-1-8 17:23 10
Bristol Rovers 12 2-3-7 13:20 9
Plymouth 12 2-3-7 14:26 9
David Speedie skorar nú í hverjum leik fyrir Blackburn í 2. deild en mark
hans dugði þó skammt gegn Swindon.