Dagur - 20.10.1991, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 22. október 1991
ÍÞRÓTTIR
Handknatdeikur
1. deild
2. umferð:
KA-FH 28:33
HK-Fram 22:22
Selfoss-Víkingur 29:33
IBV-Valur 29:29
Grótta-Haukar 17:23
UBK-Stjarnan 16:26
FH 3 3-0-0 86:59 6
Víkingur 3 3-0-0 86:72 6
Stjarnan 3 2-1-0 71:65 5
Fram 3 1-2-0 67:66 4
HK 2 1-1-0 53:42 3
Selfoss 3 1-1-1 85:81 3
Haukar 3 1-1-1 70:72 3
ÍBV 2 0-1-1 49:50 1
Valur 2 0-1-1 53:61 1
KA 2 0-0-2 54:60 0
Grótta 3 0-0-3 51:74 0
UBK 3 0-0-3 45:75 0
2. deild
Völsungur-Fjölnir 23:19
Þór-Fjölnir 34:13
KR-Ögri 29:13
Armann-HKN 14:26
Þór 2 2-0-0 62:33 4
HKN 2 2-0-0 55:25 4
ÍR 2 2-0-0 47:34 4
Afturelding 2 2-0-0 45:32 4
ÍH 1 1-0-0 27:13 2
KR 3 1-0-2 65:52 2
Völsungur 2 1-0-1 43:47 2
ÍH 3 1-0-2 60:70 2
Ármann 3 1-0-2 56:66 2
Fjölnir 4 1-0-3 65:85 2
Ógri 4 0-0-4 62:107 0
Alfreð Gíslason fékk óblíðar móttökur hjá FH-vörninni og hér er hann tekinn föstum tökum af Gunnari Beinteins-
syni og Kristjáni Arasyni. Myndir: Goll
Sigurpáll Aðalsteinsson og Stefán Kri:
KA en það dugði ekki til.
KA-menn töpuðu vígsluleiknum í nýja húsinu:
„Fórum út í algera vitle
- sagði Alfreð Gíslason eftir 28:33 ósigur gegn FH
Úrvalsdeildin
A-riðill
UMFN-KR 96:81
SnæfelI-UMFN 82:83
Skallagrímur-KR 77:93
UMFN 4 4-0 358:304 8
KR 3 2-1 280:252 4
Snæfell 3 1-2 226:235 2
Tindastóll 3 1-2 240:261 2
Skallagríntur 3 0-3 209:261 0
B-riðill
ÍBK-Ilaukar 116:82
ÍBK-UMFG 88:77
Þór-Valur 77:87
ÍBK 3 3-0 296:230 6
UMFG 4 3-1 313:304 6
Valur 3 1-2 257:255 2
Haukar 3 1-2 259:304 2
Þór 3 0-3 218:250 0
Blak
1. deild karla
Umf. Skeið-Þróttur N. 0:3
HK-Þróttur N. 3:2
ÍS 2 2-0 6:1 4
Þróttur N. 4 2-2 10:7 4
HK 3 2-1 7:6 4
KA 11-0 3:12
Þróttur R. 4 1-3 6:11 2
Umf. Skeið 2 0-2 0:6 0
1. deild kvenna
Völsungur-Sindri 3:0
Víkingur-Þróttur N. 3:0
KA-Sindri 3:0
Völsungur-UBK 3:0
HK-Þróttur N. 3:0
KA-UBK 1:3
Víkingur 3 3-0 9:1 6
Völsungur 3 3-0 9:2 6
UBK 4 2-2 6:8 4
KA 2 1-1 4:3 2
HK 3 1-2 6:6 2
ÍS 2 1-1 4:5 2
Þróttur N. 4 1-3 5:9 2
Sindri 3 0-3 0:9 0
„Þetta var mjög lélegt hjá
okkur. Við byrjuðum ágætlega
en fórum út í algera vitleysu og
fengum á okkur hvert hraða-
upphlaupið á fætur öðru. Við
prófuðum ýmislegt nýtt í seinni
hálfleik og það gekk í sjálfu sér
ágætiega en munurinn var bara
orðinn allt of mikill,“ sagði
Alfreð Gíslason, þjálfari KA,
eftir að liðið tapaði fyrir FH,
28:33, í vígsluleik í hinu nýja
íþróttahúsi KA-manna á föstu-
daginn. Úrslitin réðust strax í
fyrri hálfleik þegar KA-menn
fengu á sig átta mörk á 11
mínútum án þess að ná að
svara fyrir sig.
Kristján Arason, þjálfari FH-
inga, var ánægður í leikslok.
„Við spiluðum mjög góðan hand-
bolta í 40 mínútur og náðum þá
að stjórna hraðanum í leiknum.
Þeir hafa sennilega verið tauga-
óstyrkir út af húsinu og gerðu
mikið af mistökum sem við náð-
um að nýta okkur með hraða-
upphlaupum. En KA-menn
þurfa ekki að vera svartsýnir, það
hafa orðið breytingar á liðinu og
það tekur alltaf tíma að ná
samæfingu en þeir eiga eftir að
verða ofarlega í deildinni.“
Það var KA-maðurinn Guð-
mundur Guðmundsson sem skor-
aði fyrsta markið í hinu nýja húsi
og KA-menn höfðu síðan foryst-
una þar til staðan var 7:6 og 15
mínútur liðnar. Þá kom hrikaleg-
ur kafli heimamanna sem gestirn-
ir nýttu sér einstaklega glæsilega.
Þeir náðu að þétta hjá sér vörn-
ina og Bergsveinn fór að verja í
markinu og það var ekki að sök-
um að spyrja. KA-menn glopr-
uðu boltanum niður hvað eftir
annað og FH-ingar refsuðu þeim
með því að skora 8 mörk í röð og
breyta stöðunni í 7:14. Þar með
voru úrslitin í raun ráðin. KA-
liðið hresstist reyndar til muna í
seinni hálfleik en FH-ingar léku
alltof skynsamlega til að sigur
þeirra kæmist einhvern tímann í
verulega hættu. Þeir létu að vísu
slá sig út af laginu í lokin þegar
KA-menn spiluðu maður á mann
og náðu að skora 5 mörk í röð en
tíminn var of naumur og munur-
inn of mikill og tvö mörk FH-
inga á lokamínútunni gulltryggðu
sigurinn.
Það er hvergi veikur hlekkur í
FH-liðinu sem er sennilega það
besta á landinu í dag. Þá á Guð-
jón Árnason eftir að bætast í
hópinn og ekki versnar liðið við
það. Hans Guðmundsson átti
stórleik gegn sínum gömlu félög-
um og „klikkaði“ varla á skoti.
Kristján var geysilega öflugur f
vörn og sókn og tók m.a. vel á
móti Alfreð félaga sínum sem
skoraði ekki mark fyrr en fimm
mínútur voru liðnar af seinni
hálfleik. Þorgils Óttar var seigur
eins og venjulega og Bergsveinn
góður í markinu.
Það eru margir ljósir punktar í
KA-liðinu en margt á greinilega
eftir að slípa til. Vörnin var ekk-
ert alltof traustvekjandi og mark-
varslan slök sem sést best á loka-
tölunum. Þá kom alltof lítið út úr
línuspilinu. Þetta var ekki dagur
KA-manna og kannski ekki við
því að búast. Það sem helst
gladdi augað voru stórskemmti-
leg tilþrif Sigurpáls og Stefán var
farinn að finna sig í lokin.
Mörk KA: Stcfán Kristjánsson 10,
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson 10/6,
Alfreð Gíslason 3, Árni Stefánsson 2,
Guðmundur Guðmundsson 1, Jóhann
Jóhannsson 1, Pétur Bjarnason 1. Axel
Stefánsson varði 6/1 skot og Björn
Björnsson 2.
KA lék um helgina fyrstu leiki
sína í 1. deild kvenna á íslands-
mótinu í blaki. A laugardaginn
vann liðið átakalítinn sigur á
nýliðum Sindra frá Höfn, 3:0,
en á sunnudaginn mátti liðið
sætta sig við 1:3 ósigur á móti
Breiðabliki.
Leikurinn gegn Sindra varð
aldrei spennandi né skemmtileg-
Mörk FH: Hans Guðmundsson 10/3,
Kristján Arason 6/2, Gunnar Beinteins-
son 5, Þorgils Óttar Mathiesen 5, Pétur
Petersen 3, Hálfdán Þórðarson 2, Óskar
Helgason 1, Sigurður Sveinsson 1. Berg-
ur, til þess var hann alltof ójafn.
KA sigraði 15:7, 15:5 og 15:1.
KA vann fyrstu hrinuna gegn
Blikum 15:6 en komst síðan ekki
lengra. Breiðablik. vann aðra
hrinu 15:6, sú þriðja var jöfn en
Breiðablik vann hana 15:9 og þá
þriðju og síðustu 15:4.
KA-liðið hefur breyst töluvert
frá í fyrra, hefur misst þær Sigur-
hönnu Sigfúsdóttur, Birnu Krist-
Blak, 1. deild kvenna:
Völsungur í 2. sætið
Völsungur situr í 2. sæti 1.
deildar kvenna eftir tvo góða
sigra um helgina. Liðið vann
nýliða Sindra næsta auðveld-
lega í þremur lirinum á föstu-
dagskvöldið og á laugardag
fengu Blikastúlkur sömu út-
reið á Húsavík.
Sigur Völsungs á Sindra var
nokkuð auðveldur enda mót-
herjarnir ekki sterkir. Varalið
Völsungs spreytti sig og úrslitin
urðu 15:5, 15:11 og 15:4.
Leikur Völsungs og Breiða-
bliks var skemmtilegur og vel
leikinn en Völsungar höfðu
undirtökin og sigrúðu í þremur
hrinum, 15:10, 15:10 og 15:9.
Völsungsliðið lék mjög vel, sér-
staklega í lágvörninni og má
kannski segja að hún hafi tryggt
sigurinn. Eyrún Sveinsdóttir og
Jóna Óskarsdóttir léku alira
manna best í þessurn leik.
„Ég held að Breiðabliksstelp-
urnar hafi ekki átt von á þessari
mótspyrnu og við áttum reynd-
ar ekki von á þessum úrslitum
heldur. Við fórum seint af stað
og ætluðum ekki að vera með
en það er að færast alvara í
þetta hjá okkur. Þá hjálpar það
okkur mikið að það er góð mæt-
ing á leikina hjá okkur og við
fáum góðan stuöning frá áhorf-
endum,“ sagði Jóna Matthías-
dóttir, leikmaður og formaður
blakdeildar Völsungs.
KA-liðið enn í start