Dagur


Dagur - 20.10.1991, Qupperneq 7

Dagur - 20.10.1991, Qupperneq 7
Þriðjudagur 22. október 1991 - DAGUR - 7 Knattspyrna: Sveinbjöm Hákonarson í viðræðum við Þórsara - Kristján og Siguróli aftur í t>ór? Sveinbjörn Hákonarson, knattpyrnumaður úr Stjörn- unni, hefur átt í viðræðum við Þórsara um að leika með liðinu í 1. deildinni næsta sumar. Sveinbjörn vill sjálfur ekki tjá sig neitt um málið en sagði í samtali við blaðið: „Eg get ekki neitað því að ég var á Akureyri um helgina.“ Þá eru fleiri inni í myndinni hjá liðinu, gamla kempan Kristján Kristjánsson er byrj- aður af æfa með Þórsurum og Dagur hefur heimildir fyrir því að rætt hefur verið við Siguróla Kristjánsson. ■ ■ Sveinbjörn. Sveinbjörn þekkja allir áhugamenn um knattspyrnu en hann hefur verið burðarás í Stjörnuliðinu síðustu ár en áður lék hann með Skagamönnum og í Svíþjóð. Hann á 8 A-lands- leiki að baki og hefur spilað um 160 leiki í 1. deild. Er ekki nokkur vafi á að hann myndi styrkja Þórsliðið með sinni gíf- urlegu reynslu. Kristján Kristjánsson lék með Þórsurum um árabil og hefur samtals spilað 116 leiki í 1. deild. Síðastliðin tvö ár hefur hann þjálfað og leikið með Magna á Grenivík. „Ég hef ver- ið að æfa með Þór síðustu vikur Kristján. en er ekki búinn að ákveða hvað ég geri næsta sumar. En það væri vissulega gaman að spila í 1. deildinni aftur,“ sagði Kristján. Siguróli Kristjánsson hefur spilað 82 leiki í 1. deild með Þór en hann þjálfaði og lék með Reyni Árskógsströnd sl. sumar. Nokkur lið hafa áhuga á Sigur- óla, Reynismenn vilja halda honum auk þess sem bæði Þór og Leiftur hafa rætt við hann. Siguróli hefur ekki ákveðið sig og ætlar fyrst að fá á hreint hvort hann verður góður af bak- meiðslum sem hann hefur átt við að stríða síðan í sumar. Siguróli. íþróttasamband fatlaðra: 12 hafa sett heimsmet - þar á meðal Akureyringurinn Rut Sverrisdóttir Landsliðshópurinn í alpagreinum: Guðrún út - Harpa inn - sex keppa um sæti á ÓL íþróttasamband fatlaðra heiðr- aði á föstudag núverandi og fyrrverandi heimsmethafa sambandins. Nýlega voru stað- fest 7 heimsmet fatlaðra frá sumrinu og eiga þá íslcndingar 19 gildandi heimsmet, 6 í flokki hreyfihamlaðra, 1 í flokki sjónskertra og 12 í flokki þroskaheftra. Meðal heimsmethafanna er Akureyr- ingurinn Rut Sverrisdóttir, sundkona úr Oðni. ísland hefur nú á að skipa fötl- uðu íþróttafólki sem hefur verið í fremstu röð í heiminum undan- farin ár eins og árangur þess á mótum erlendis hefur sýnt. 12 íslendingar hafa sett heimsmet í greinum sínum og hlutu þeir silf- urmerki ÍF á föstudaginn. Rétt er að vekja sérstaka athygli á árangri Sigrúnar H. Hrafnsdóttur, sund- konu úr Ösp, sem á heimsmet í 7 greinum af 11 sem keppt er í. Eftirtaldir aðilar eiga gildandi heimsmet: Ólafur Eiríksson, ÍFR. 2:13.21 í 200 m skriðsundi og 9:41.9 í 800 m skriðsundi. Geir Sverrisson, UMFN. 1:19.20 í 100 m bringusundi. Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR. 1:46.35 í 100 m bringusundi. Rut Sverrisdóttir, Óðni. 3:02.80 í 200 m baksundi. Lilja María Snorradóttir, SH. 1:10.96 í 100 m skriðsundi. Haukur Gunnarsson, KR. 12.8 í 100 m hlaupi. Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp. 6:04.60 í 400 m skriðsundi, 1:16.45 í 100 m skriðsundi, 3:09.21 í 200 m fjórsundi, 1:28.63 í 100 m baksundi, 1:31.13 í 100 m bringusundi, 34.2 í 50 m skrið- sundi og 42.29 í 50 m bringu- sundi. Guðrún Ólafsdóttir, Ösp. 44:31 í 50 m baksundi og 3:28.41 í 200 m baksundi. Heimsmethafínn Rut Sverrisdóttir. Gunnar Þór Gunnarsson, Suðra. 33.03 í 50 m flugsundi og 2:47.94 í 200 m fjórsundi. Hrafn Logason. 1:31.95 í 100 m flugsundi. Sigurður H. Jónsson, lands- liðsþjálfari í alpagreinum, hef- ur valið 6 manna lið til að taka þátt í lokaundirbúningi fyrir vetrarólympíuleikana í Albert- ville í Frakklandi í febrúar. Skíðasambandið mun að öllum líkindum senda 3-4 keppendur á leikana og munu þessi 6 því berjast um sæti í liðinu. Athygli vekur að besta skíða- kona landsins undanfarin ár, Akureyringurinn Guðrún H. Kristjánsdóttir, er dottin út úr hópnum en Harpa Hauksdóttir hefur tekið hennar sæti. Ekki náðist í Sigurð H. Jóns- son áður en Iandsliðshópurinn hélt utan en Gunnar Harðarson, formaður alpagreinanefndar SKÍ, sagði ýmsar ástæður fyrir því að Guðrún hefði ekki verið valin. „Við höfum óskað eftir því við keppendur að þeir gefi ákveðið svar um hvort þeir séu tilbúnir að vera með. í sumar, þegar fyrsta æfing var, fengum við ekki skýr svör frá Guðrúnu fyrr en á síðasta degi áður en far- ið var og þá gat hún ekki komið þar senr hún fékk ekki frí í vinnu og hún fór því ekki með í næstu ferð í Kerlingafjöll. Hún fór síðan, eftir að verulegum þrýst- ingi hafði verið beitt, með f síð- ustu ferð til Austurríkis. Síðan fengum við einfaldlega ekki skýr svör við því hvort hún gæti verið Allar líkur eru á að Guöjón Guðmundsson, sem þjálfað hefur Hauka undanfarin þrjú ár, þjálfi 3. deildar Iið Dalvík- inga í knattspyrnu næsta sumar. „Það er rétt að við höfum verið í viðræðum við hann og erum orðnir sammála um flesta hluti en þetta er ekki frágengið,“ sagði með í undirbúningnum í vetur. Fleiri ástæður má nefna, eins og þá að verið er að velja lið til framtíðarinnar og niðurstaðan var að velja Hörpu og Ástu. En það er auðvitað alltaf spurning hvenær sé rétt að skipta,“ sagði Gunnar Harðarson. Þegar hann var spurður hvort ekki hefði verið eðlilegt að velja Maríu Magnúsdóttur í liðið sagði hann að litið hefði verið á ýmsa þætti og reynt að meta möguleika keppendanna til að ná árangri 1994. „Það var litið á ýmislegt eins og líkamsástand, áhuga og fleira og niðurstaðan var að velja Hörpu. Það varð hins vegar nokkur urnræða um þetta val og það hefði allt eins getað orðið á hiri.n veginn,“ sagði Gunnar. Landsliðshópinn skipa Arnór Gunnarsson, ísafirði, Kristinn Björnsson, Ólafsfirði, Valdemar Valdemarsson, Akureyri, Örnólfur Valdimarsson. Reykja- vík, Ásta Halldórsdóttir, ísafirði, og Harpa Hauksdóttir, Akureyri. Búist er við að endanlegt lið verði valið í janúar. Landsliðið hélt á sunnudag til Hintertux í Austurríki þar sem það æfir í þrjár vikur. Kristinn Björnsson tekur reyndar ekki þátt í þeirri ferð en hann stundar nám og æfingar við skíðamennta- skóla í Noregi. Liðið fer í aðra ferð til Austurríkis í desember. Björn Friðþjófsson, formaður UMFS Dalvík. Hann sagði að Guðjón kæmi að öllum líkindum norður um næstu helgi og þá yrði væntanlega gengið frá málinu. Guðjón leikur þá einnig með lið- inu. Guðjón hefur einnig þjálfað og leikið með ÍK en hann lék með Þór á árum áður eins og menn muna. Knattspyrna: Guðjón til Dalvíkur?

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.