Dagur - 20.10.1991, Side 9
Þriðjudagur 22. október 1991 - DAGUR - 9
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Langatöngin á loft og
Þórsarar enn án stiga
stjánsson skoruðu báðir 10 mörk fyrir
sysu“
sveinn Bergsveinsson varði 13/1 skot.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sigur-
geir Sveinsson. Réðu engan veginn við
hlutverk sín og ætluðu greinilega ekki að
láta kallá sig heimadómara.
Þórsarar burstuðu nýliða
Fjölnis, 34:13, þegar liðin
mættust í 2. deild Islandsmóts-
ins í. handbolta á Akureyri á
laugardag. Gríðarlegur getu-
munur var á liðunum en Þórs-
arar settu strax á fullt og völt-
uðu yflr gestina.
Fjölnir náði forystunni í upp-
hafi, 12:1, en síðan skildu leiðir í
snatri. Leikurinn var lítið fyrir
augaö, Þórsarar í vörn lengst af á
meðan þeir biðu eftir að Fjölnis-
menn misstu boltann og þá brun-
uðu þeir fram og skoruðu. Liðið
náði mjög sjaldan að stilla upp í
holunum
jánsdóttur og Heiðu Einarsdótt-
ur en fengið í staðinn Katrínu
Pálsdóttur og Karítas Jónsdóttur.
„Við getum gert betur en
þetta,“ sagði Birgitta Guðjóns-
dóttir sem tekið hefur við fyrir-
liðastöðunni. „Okkur vantar
samæfingu og svo var einbeiting-
in ekki nógu góð. En það er hægt
að gera gott úr þessu liði og ég er
nokkuð bjartsýn.
Þórsarar eru enn ekki farnir að
fá stig í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik þegar þrír leikir eru
að baki. A sunnudagskvöldið
töpuðu þeir sínum öðrum leik í
röð á heimavelli, 77:87 fyrir
Valsmönnum. Það var heitt í
kolunum og ekki nema 11
mínútur liðnar þegar Banda-
ríkjamanninum í liði Þórs,
Michael Ingram, var vísað úr
salnum fyrir að veifa fingri
framan í Leif Garðarsson,
dómara.
Þegar þetta gerðist voru Þórs-
arar búnir að vera mun ákveðnari
og þrátt fyrir að nýtingin í sókn-
arleiknum væri ekki upp á það
besta var mikill kraftur í vörn-
inni. Þeir höfðu fjögurra stiga
forystu, 17:13, þegar dæmdur var
ruðningur á Ingram og var ekki
annað að sjá en það væri hárrétt-
ur dómur. Ingram var þó greini-
lega ósáttur og lyfti fingri við litla
kátínu Leifs.
Brottvísunin sló Þórsara út af
laginu. Valsarar, með sína fjóra
tveggja metra menn, höfðu tögl
og hagldir fram að hléi, þegar
staðan var 29:40, og allt stefndi í
öruggan sigur þeirra.
En úrslitin voru ekki ráðin.
Þórsarar mættu gífurlega grimm-
ir til seinni hálfleiks, báru enga
virðingu fyrir risunum, og með
bræðurna Sturlu og Gunnar
Örlygssyni í fararbroddi náðu
þeir að saxa á forskotið og jafna
62:62 þegar 10 mínútur voru
liðnar. Næstu mínútur voru í
járnum en Þórsarar náðu einu
sinni að komast yfir, 73:72, og
virtust líklegir til frekari afreka
sókninni. Staðan í leikhléi var
16:4.
Fjölnisliðið sýndi frábærlega
lélegan leik og Þórsliðið verður
ekki metið af þessari viðureign.
Ingólfur Guðmundsson varði þó
ágætlega, Jóhann og Rúnar voru
sterkir og Ole Nielsen skoraði
þegar hann vildi en var hvíldur
Völsungur fékk sín fyrstu stig á
íslandsmótinu í handbolta þeg-
ar liðið sigraði Fjölni 23:19 á
Húsavík á föstudagskvöldið.
Völsungar náðu forystunni
strax í upphafi og sigur þeirra
var aldrei í hættu.
Völsungar náðu mest 5 marka
forystu í fyrri hálfleik en misstu
hana niður í eitt mark fyrir hlé en
staðan þá var 10:9. í seinni hálf-
leik höfðu Völsungar örugga for-
ystu allan tímann og munurinn
var orðinn 6 mörk áður en Fjöln-
ismenn skoruðu tvö síðustu mörk
leiksins.
„Við lékum þokkalega og
þegar Sturla fékk sína fimmtu
villu fimm mínútum fyrir leiks-
lok. Þórsarar máttu ekki við því
áfalli og Valsmenn náðu að hala
inn sigur á lokamínútunum.
„Mér fannst dómgæslan hálf-
furðuleg á köflum. Ég fer
kannski með rangt mál en ég held
að hingað til hafi verið dæmd
tæknivíti fyrir fingur. Mér fannst
brottvísun mjög harður dómur,“
sagði Sturla Örlygsson, besti
leikmaður Þórsara í leikslok.
„Annars er ég þokkálega ánægð-
ur með þetta. Við spiluðum ágæt-
an körfubolta um tíma og Gunni
sýndi okkur hvað hann á eftir að
gera í vetur. Við þurfum að ná
betur saman en það eru bara þrír
leikir búnir og engin ástæða til
annars en að vera bjartsýnn."
Hvort sem brottvísun var harð-
ur dómur eða ekki var framkoma
Ingrams honum og Þórsliðinu til
lítils sóma. Þá var hún dýrkeypt,
sennilega réði þetta atvik úrslit-
um í leiknum auk þess sem Ing-
ram fer í a.m.k. eins leiks bann.
Þórsarar sýndu mikla baráttu í
seinni hálfleik og gerðu þá marga
góða hluti, bæði í vörn og sókn.
Sturla var geysilega drjúgur og
stjórnaði sínum mönnum eins og
herforingi og Gunnar sýndi stór-
skemmtilega takta. Birgir Birgis-
son var skemmtilega seigur í
vörninni þegar hann fékk að
spreyta sig og Georg virðist vera
að komast í gang.
Hjá Valsmönnum eru Franc
Booker og Magnús Matthíasson
yfirburðamenn. Booker geysi-
lega snöggur og lipur og skorar
grimmt og Magnús illviðráðan-
legur undir körfunni. Annars er
langtímum saman.
Mörk Þórs: Jóhann Samúelsson 11, Rún-
ar Sigtryggsson 9, Ole Nielsen 7, Geir
Aðalsteinsson 3, Sverrir Ragnarsson 2,
Atli Rúnarsson 1, Ingólfur Samúelsson 1.
Mörk Fjölnis: Heimir Morthens 8, Guðni
Guðfinnsson 2, Sigurður Sumarliðason 2,
Ólafur Óskarsson 1.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og Guð-
mundur Lárusson. Daemdu ágætlega.
erum á réttri leið en eins og ég
hef sagt áður þá eigum við ennþá
töluvert í land,“ sagði Arnar
Guðlaugsson, þjálfari Völsungs.
Völsungsliðið var jafnt í leikn-
um en Eiríkur varði vel í mark-
inu í seinni hálfleik. Karl Ómar
Karlsson var besti maður Fjölnis.
Mörk Völsungs: Vilhjálmur Sigmunds-
son 7, Arnar Bragason 4, Ásmundur
Arnarsson 4, Haraldur Haraldsson 4,
Skarphéðinn ívarsson 2, Jónas Emilsson
1, Kristinn Wium 1.
Mörk Fjölnis: Karl Ómar Karlsson 5,
Guðmundur Guðfinnsson 5, Sigurður
Sumarliðason 4, Ólafur Arnarson 3,
Magnús Guðfinnsson 1, Albert 1.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og Guð-
mundur Lárusson. Dæmdu vel.
liðið ekki jafn sterkt og búast
mátti við en sennilega á það eftir
að ná sér á strik.
Ingram í
leíkbann
Michael Ingram, leikmanni
körfuknattleiksliðs Þórs, var
vísað af leikvelli í leik Þórs og
Vals á sunnudagskvöldið eins
og fram kemur annars staðar á
síðunni. Hann fer í leikbann og
verður að öllum líkindum ekki
með í leik Þórs og KR á sunnu-
daginn.
Ingram var ósáttur við dóm-
gæsluna og sýndi Leifi Garðars-
syni fingurinn og var þá vísað úr
salnum. í starfsreglum aganefnd-
ar KKÍ segir að leikmaður, sem
vísað sé af leikvelli, skuli
úrskurðaður í að minnsta kosti
eins leiks bann. Hægt er að dæma
leikmenn í nokkurra leikja bann
en það er gert þegar þeir hafa
sýnt „ofsalega framkomu eða
alvarlega grófan leik,“ og á það
tæpast við í þessu tilfelli.
Fundir aganefndar eru haldnir
á þriðjudögum og verður mál
Ingrams tekið fyrir ef leikskýrsla
hefur borist. Bannið tekur þá
gildi um hádegi á föstudag þannig
að Ingram getur leikið með Þórs-
urum gegn Haukum í Hafnarfirði
á fimmtudag.
Áskorun til
KA-fólks
Eins og allir vita hefur Knatt-
spyrnufélag Akureyrar nú lok-
ið byggingu nýs og glæsilegs
íþróttahúss sem vígt var á
dögunum. Margir félagar hafa
unnið ótrúlega óeigingjarnt
starf og gert drauminn að
veruleika. En betur má ef
duga skal.
Eins og allir vita eru fram-
kvæmdir sem þessar kostnað-
arsamar og félagið hefur haft
allar klær úti til að afla fjár-
magns í húsið. Það hefur m.a.
selt miða í byggingahapp-
drætti en því miður hafa
undirtektir ekki verið jafn
góðar og vonast var til. Drætti
hefur nú verið frestað til 6.
nóvember og viljum við undir-
ritaðir skora á alla KA-menn
og aðra velunnara félagsins að
leggja hönd á plóginn með því
að kaupa einn eða tvo miða.
Miðasala fer m.a. fram í KA-
heimilinu og er hægt að
hringja í síma 23482 og láta
senda sér miðana heim. Miða-
verð er 1000 kr. og í vinning er
glæsileg Mazda bifreið að
verðmæti 885.000 kr. Aðeins
verður dregið úr seldum
miðum.
KA-menn. Tökum höndum
saman og sýnum stuðning í
verki.
Guömundur Heiðreksson
Haukur Jóhannsson
Jóhannes Bjarnason
Stefán Gunnlaugsson
Stefán Jónasson
Handbolti, 2. deild:
Leikur kattar að mús
- þegar Þór burstaði Fjölni
Fyrstu stig Völsungs
Punktar frá
Fýskalandi
■ Stuttgart hefur eignast nýjan varnar-
mann. Sá er íslenskur og heitir Eyjólfur
Sverrisson. Hann fékk nýtt hlutverk í Ieik
Stuttgart og Bayern Múnchen um helgina.
Hann byrjaði á miðjunni en í seinni hálf-
leik var hann settur í vörnina til höfuðs
Olaf Thon. Honum fórst það vel úr hendi
og fékk góða dóma í þýsku pressunni, flest
blöð gáfu honum þrjá í einkunn en einn er
það besta sem gefið er.
■ Raunasaga Bayern heldur áfram en
Stuttgart vann leikinn 3:2. Bayern er í 14.
sæti og er þetta versta byrjun liðsins í 15
ár. Stuttgart fékk óskabyrjun og staðan
var orðin 2:0 eftir 8 mínútur. Gaudino
skoraði á 4. mínútu og Walter bætti öðru
marki við á 8. mínútu. Leikurinn var mjög
opinn og skemmtilegur eftir þetta og
Bayern sýndi að liðið hefur ennþá þann
„karakter" sem það er frægt fyrir. Flestir
eru sammála um að það eigi eftir að rífa
sig upp úr lægðinni á næstu dögum enda er
ekkert til sparað. Búist er við að Schumach-
er fari í markið þangað til Aumann er
orðinn góður og jafnvel er búist við að
Augenthaler verði við ósk Lerbys um að
taka fram skóna á nýjan leik. Þá verða
Beckenbauer og Rummenigge í forystu-
sveit Bayern frá og með morgundeginum
og er mál manna að þessar breytingar
hljóti að skila árangri.
■ Fyrir leikinn töluðu nokkrir til áhorf-
enda og báðu þá að baula ekki á Stefan
Effenberg en hann er óvinsælasti leikmað-
ur Þýskalands um þessar mundir, svo óvin-
sæll að áhorfendur bauluðu á hann í lands-
leiknum gegn Wales á dögunum en það er
einsdæmi. Effenberg hefur þótt kjaftfor en
hann hefur ákveðnar skoðanir og er ófeim-
inn við að láta þær í ljós. Þrátt fyrir tilmæl-
in bauluðu áhorfendur á Effenberg en
hann fékk uppreisn æru þegar hann skor-
aði seinna mark Bayern úr vítaspyrnu.
■ Stuttgarter Kickers hefur ekki náð sér á
strik síðan liðið burstaði Bayern á dögun-
um og um helgina tapaði liðið 1:3 fyrir
Borussia Dortmund. Þetta var þriðji tap-
leikur Kickers í röð en Dortmund er hins
vegar á mikilli sigurbraut og er í toppbar-
áttu með 17 stig eins og Stuttgart.
■ Wattenscheid tapaði 2:4 á heimavelli
fyrir Frankfurt. Úrslitin komu síður en svo
á óvart því Frankfurt spilar það vel að tal-
að er um að ekkert lið hafi neitt í það að
segja. Hefur verið sagt að þeir spili fót-
bolta eins og hann hljóti að vera á öðrum
stjörnum. Það styttist í að liðið verði
haustmeistari og tölfræðin sýnir að lang-
algengast er að haustmeistari verði sigur-
vegari í deildinni.
■ Bayern Leverkusen og Hamburger SV
gerðu 1:1 jafntefli. Leverkusen er í topp-
baráttunni en sárafáir mæta þó jafnan á
heimaleiki liðsins, aðeins 13 þúsund fylgd-
ust með viðureigninni og meðaltalið er 15
þúsund. Til samanburðar má geta þess að
70 þúsund fylgdust með leik Stuttgart og
Bayern.
■ Fortuna Dússeldorf og Schalke gerðu
einnig jafntefli 1:1.
■ Hansa Rostock og Dynamo Dresden
áttust við í Rostock en þetta var fyisti inn-
byrðisleikur liða úr austurhlutanum í
úrvalsdeildinni. Aðeins 9 þúsund áhorf-
endur sáu Rostock vinna 3:0.
■ Köln tók loksins upp á því að vinna leik
og sigraði Karlsruher 1:0 á útivelli. Þjálfari
Köln var rekinn upp í stúku og þaðan
fylgdist hann með liði sínu í fyrsta sigur-
leiknum síðan 11. maí.
■ Borussia Mönchengladbach sigraði
Núrnberg 1:0. Jupp Heynckes, fyrrum
þjálfari og leikmaður Mönchengladbach,
kom sem áhorfandi á leikinn og var fagnað
mun meira en leikmönnum.
■ Duisburg og Kaiserslautern gerðu 1:1
jafntefli og þótti Duisburg spila mun betur
en meistararnir þrátt fyrir að Stefan Kunz
sé búinn að ná sér af meiðslunum og byrj-
aður að spila með.
■ Werder Bremen sigraði Bochum 3:0 og
er stóll þjálfara þeirra síðarnefndu farinn
að hitna. Einar Stefánsson, Þýskalandi.