Dagur - 20.10.1991, Page 16
Akureyri, þriðjudagur 22. október 1991
Kodak
Express
Gæöaframköllun
★ Tryggðu f ilmunni þinni
Jfoesta ^PcdfSmyndir
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Við vígsluathöfnina í Skagastrandarkirkju sl. sunnudag. Biskup íslands, hr. Ólafur Skúlason, vígði kirkjuna en
auk hans tóku þátt í athöfninni vígslubiskuparnir sr. Bolli Gústavsson og sr. Sigurður Guðmundsson og þeir
prestar sem hafa þjónað Skagastrandarkirkju undanfarin ár.
Skagaströnd:
Biskup vígir nýja kirkju
Ný kirkja var vígð á Skaga-
strönd sl. sunnudag. Biskup
íslands, herra Ólafur Skúla-
son, vígði kirkjuna. Auk hans
tóku þátt í athöfninni vígslu-
biskuparnir, séra Bolli Gúst-
avsson og séra Sigurður
Guðmundsson og þeir prestar
sem þjónað hafa Skaga-
strandarkirkju undanfarin ár.
Að sögn Steindórs Haralds-
sonar, kirkjuvarðar, tókst
athöfnin í alla staði vel og var
kirkjan full út úr dyrum. Um
350 manns sátu kaffiveislu í fé-
lagsheimilinu Fellsborg að lok-
inni vígslunni og þar heiðraði
sóknarnefndin smiðina Sigmar
Jóhannesson og Sigurð Björns-
son fyrir vel unnin störf
ásamt byggingameistaranum
Helga Gunnarssyni.
Kirkjunni voru færðar marg-
ar gjafir í tilefni vígslunnar eins
og vasar á altari og sálmabækur.
Annars er byggingarkostnaður
við hana kominn í um 70 millj-
ónir króna og segir Steindór að
fjórðungur þess fjár sé gjafafé.
Fyrsta samkoma í hinni
nývígðu kirkju verður í kvöld
og sjá þeir Helgi Hróbjartsson
og Skúli Svavarsson frá Kristni-
boðasambandi íslands um
hana. SBG
Iðja - félag verksmiðjufólks:
Samþykkt að veita heim-
ild til verkfaUsboðunar
- engin ákvörðun tekin um hvenær heimildinni verður beitt
Dalvík:
Lenti í steininum
fyrir þvermóðsku
Lögreglan á Dalvík þurfti að
stinga einum manni í steininn
um helgina. Sá hafði með öllu
þvertekið fyrir það að greiða
fyrir leigubíl sem hann hafði
tekið frá Akureyri til Dalvík-
ur.
„Hann var settur inn á endan-
um, annað var ekki hægt að gera
í stöðunni," sagði Sævar Freyr
Ingason, lögregluþjónn á Dalvík.
Lögreglan skutlaði manninum
síðan til Akureyrar þar sem hann
gerði upp sín mál við leigubíl-
stjórann.
Einn ökumaður var tekinn á
Dalvík um helgina grunaður um
ölvun við akstur. SS
Bifreiðaskoðun
íslands hf.:
Byggir skoðunar-
stöð á Húsavík
Bifreiðaskoðun íslands hf. hef-
ur boðið út byggingu skoðun-
arstöðvar á Húsavík. Skoðun-
arstöðin verður að Haukamýri
2, 140 fm bygging á þrjú þús-
und fm lóð og er útboðið mið-
að við fullfrágengna byggingu,
utan og innan, og frágengna
lóð.
Sverrir Norðfjörð, arkitekt,
teiknaði skoðunarstöðina. Um
lokað útboð er að ræða fyrir fjóra
aðila, en Boi^, Fjalari, Norðurvík
og Stefáni Oskarssyni er gefinn
kostur á að bjóða í byggingu
hússins.
Tilboðin verða opnuð á Húsa-
víkurflugvelli 30. okt. nk. kl.
18.45. IM
Húsavík:
Maður fannst
látiiui í Þorvalds-
staðaárgUi
Björgunarsveitin Garðar á
Húsavík leitaði ungs manns
á laugardag. Hann fannst
látinn í Þorvaldsstaðaárgili,
um 200 metrum ofan við
golfvöllinn.
Hinn látni hét Höskuldur
Goði Þráinsson, fæddur 29.
mars 1962, til heimilis að Brá-
völlum 7. Höskuldur var
ókvæntur en lætur eftir sig
aldraðan föður.
Höskuldur Goði fór að
heiman frá sér um kl. 18 á
föstudag. Strax um kvöldið
var farið að leita hans, og leit-
aði lögregla fram á nótt. Á
laugardag var lýst eftir
Höskuldi í útvarpi og gerð
allsherjarleit sem 35-40 manns
tóku þátt í. Leitað var bæði á
landi og af sjó og fannst hinn
látni kl. 15.15.
Höskuldur var mikill trimm-
ari og göngumaður og lá ein af
hans mörgu gönguleiðum um
gilið þar sem hann fannst.
Rannsókn slyssins er ekki lok-
ið og vildi lögregla ekki geta
sér til um hugsanlegar orsakir
þess. En um þetta leyti var
víða snjóföl á jörð, hálka og
ísing á steinum. IM
Félagsmenn í Iðju - félagi
verksmiðjufólks á Akureyri
samþykktu á fundi sl. laugar-
dag að veita stjórn og trúnað-
armannaráði félagsins heimild
til verkfallsboðunar.
Að sögn Ármanns Helgason-
ar hjá Iðju, sóttu um 60
manns fundinn og samþykkti
þorri fundarmanna heimild til
verkfallsboðunar.
„Þarna var einfaldlega verið að
veita stjórn og trúnaðarmanna-
ráði heimild til verkfallsboðunar.
Þetta er ekki verkfallsboðun og
það hefur engin ákvörðun verið
Þrjú ungmenni, tvær stúlkur
og einn piltur, urðu fyrir bif-
reið á gangbraut við Þingvalla-
stræti á Akureyri um kiukkan
hálf eitt aðfaranótt laugardags.
Stúlkurnar voru fluttar á
sjúkrahús en fengu að fara
fljótt heim, að sögn lögreglu,
en önnur mun þó hafa gengist
undir aðgerð á fæti.
Gangbrautarljós eru á þessum
stað, gegnt gömlu spennistöð-
inni, og voru ungmennin á leið-
inni yfir gangbrautina þegar þau
tekin um hvenær heimildinni
verður beitt. Ákvörðun um það
bíður fundar stjórnar og trúnað-
armannaráðs og þróunar í við-
ræðum félagsins og Landssam-
bands iðnverkafólks við viðsemj-
endur," sagði Ármann.
Félagsmenn í Iðju eru um 500
talsins. Af stórum fyrirtækjum á
Akureyri þar sem þeir vinna má
nefna Islenskan skinnaiðnað hf.,
Foldu hf., Víking-brugg, Lindu
hf. og Kjötiðnaðarstöð KEA.
í samþykkt fundarins sl. laug-
ardag eru átaldar framkomnar
huginyndir ríkisstjórnarinnar,
lentu fyrir bílnum. Að sögn lög-
regluvarðstjóra mun ökumaður-
inn ekki hafa séð fólkið fyrr en of
seint. Gula ljósið mun hafa verið
farið að blikka móti ökumannin-
um en fólkið var enn á leið ýfir
gangbrautina.
„Blikkandi ljós er til að hreinsa
gangbrautina og það má enginn
fara af stað meðan einver er á
leiðinni yfir götuna en í þessu til-
viki sá ökumaðurinn ekki
fólkið," sagði lögregluvarðstjóri í'
samtali við Dag. SS
sem endurspeglast í fjárlaga-
frumvarpinu, um félagslegan
niðurskurð á ýmsum sviðum og
fyrri ályktanir félagsins um
verndun velferðarkerfisins eru
ítrekaðar. óþh
Dröfn, skip Hafrannsókna-
stofnunar er um þessar mundir
að rannsaka innfjarðarrækju á
miðunum í Húnaflóa. Búið er
að skoða Skagafjörðinn og að
sögn Jónbjörns Pálssonar,
leiðangursstjóra er ástand
rækjustofnsins svipað og í
fyrra.
Niðurstöður úr rannsóknunum
í Skagafirði liggja fyrir og er Haf-
rannsóknastofnun búin að
leggja til að leyfðar verði veiðar á
400 tonnum af innfjarðarrækju
þetta árið á móti 500 tonnum í
fyrra. Að sögn Jónbjörns virðist
vera heldur minna magn af
Skagafjarðarrækju í ár, en stærð
hennar er samt svipuð og áður,
meðaltalið 260 rækjur í kílóinu.
Veðrið:
Haustblíðan
mun haldast
Veðurblíðan sem hefur kætt
Norðlendinga að undanförnu
mun haldast svo langt sem
auga veðurfræðinga eygir, eða
að minnsta kosti fram undir
liclgi. Ef fram heldur sem horf-
ir munu blóm lifna í görðum og
skordýr fara á stjá. Bjartsýn-
ustu menn segja vorið komið
eftir óvenju skamman vetur.
Að öllu gamni slepptu þá feng-
um við bjartsýnisspá frá Veður-
stofu íslands í gær. f dag verður
suðvestlæg átt og hlýtt í veðri á
Norðurlandi en einhver væta fyr-
ir sunnan. Sennilega munu skil
ganga yfir Norðausturland
aðfaranótt fimmtudags með
dálítilli rigningu en það er ekkert
til að gera veður út af.
Á miðvikudag og fimmtudag
er búist við að suðlægar áttir leiki
um landið með vætu sunnanlands
en björtu, þurru og hlýju veðri
norðanlands. SS
„Hnefaleikari“
á Akureyri:
Fékk útrás á
póstkössum
Það voru heldur argir gestir
sem yfirgáfu samkvæmi í fjöl-
býlishúsi við Keilusíðu á Akur-
eyri um helgina. Á leiðinni út í
leigubíl lét a.m.k. einn gest-
anna hnefahögg dynja á póst-
kössum í anddyrinu svo þeir
löskuðust talsvert. Póstkassi
húsráðandans, sem gestirnir
höfðu verið í heimsókn hjá,
fékk þó að vera í friði.
Þetta mál kom til kasta lögregl-
unnar á Akureyri eins og allmörg
önnur um helgina. Ekki bar þó
mikið á ölvun og óspektum en
fjórir fengu að gista fangageymsl-
ur.
Sex ökumenn voru teknir fyrir
of hraðan akstur og þrír vegna
gruns um ölvun við akstur. Þá
urðu fjórir smávægilegir árekstr-
ar á Akureyri um helgina. SS
Þegar Dagur hafði samband
við Jónbjörn í gær, var skipið
statt í Húnaflóa og búið að skoða
miðin í Hrútafirði og Miðfirði.
Hann sagði að þeir staðir sem
búið væri að prófa á í Flóanum
reyndust svipaðir og í fyrra og
rækjan ekki slakari. Undir lok
vikunnar verður síðan lokið við
að rannsaka Húnaflóann og í
framhaldi af því ákveðið hversu
mikið verði leyft að veiða þar.
Bátar rækjuvinnslanna á
Norðurlandi vestra eru farnir að
setja sig í stellingar fyrir veiði á
innfjarðarrækju og býst m.a.
Halldór Jónsson, framkvæmda-
stjóri Meleyrar hf. á
Hvammstanga, við að þurfa að
ráða fleira fólk ef veiði verður
góð. SBG
Akureyri:
Ungmenni fyrir bfl
InnQarðarrækja við Norðurland vestra:
Ástand stofnsins
svipað og í fyrra