Dagur - 23.11.1991, Side 2

Dagur - 23.11.1991, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 23. nóvember 1991 í DAGS-LJÓSINU Löggildingarmál Hauks Adólfssonar, pípulagningameistara á Akureyri: Þegar kerfiskarlarnir einblína á úrelta reglugerð „Ég lít út af fyrir sig ekki á þetta sem prófmál. Þarna er um að ræða reglugerðarákvæði, sem er úrelt og þarf að endur- skoða. Það getur ekki verið meining reglugerðar og sam- skipta embætta og sveitarfélaga eins og Hafnarfjarðar og Reykjavíkur að bygginganefnd Hafnarfjarðar þurfi að leita álits borgarráðs áður en við löggildum meistara,“ segir Erlendur Hjálmarsson, byggingafulltrúi í Hafnarfirði. Haukur Adólfsson, pípulagningameistari á Akureyri, sem þetta mál snýst allt um. Hann segist hafa það eitt til saka unnið í þessu máli að hafa fæðst á Akureyri! Ogjörningur er að spá fyrir um hvernig málinu lyktar, en hitt er Ijóst að það hefur komið af stað mikíum titringi í kerfinu og væntanlega mun það leiða til þess að slíkt geti ekki endurtekið sig í framtíðinni. Erlendur er hér að vísa til máls er varðar Hauk Adólfsson, pípu- lagningameistara á Akureyri og greint var frá í Degi í gær. Fyrir- tæki hans hefur að undanförnu unnið að stóru verkefni í Hafnar- firði, sem undirverktaki. Um er að ræða pípulagnir í fjölbýlishúsi við Setbergshlíð og var verkið komið á það stig í síðustu viku að óskað var eftir því við starfsmenn Hitaveitu Reykjavíkur að þeir hleyptu vatni á nýtt kerfi í umræddu húsi. Peirri málaleitan höfnuðu forsvarsmenn Hitaveit- unnar og vísuðu til reglugerðar frá 1961 um Hitaveitu Reykja- víkur þar sem m.a. segir: „Borg- arráð veitir pípulagningameistur- um löggildingu til starfa við hita- lagnir á veitusvæði Hitaveitu Reykjavíkur í umboði borgar- stjórnar.“ Umsögn löggildingar- nefndar í Reykjavík Á fundi borgarstjórnar þann 5. nóvember sl. var staðfest umsögn svokallaðrar löggildingarnefndar í Reykjavík um umsókn Hauks Adólfssonar, þar sem hann sótti um að fá löggildingu til að standa fyrir pípulögnum í Reykjavík. Umsögn löggildingarnefndar, sem í eiga sæti hitaveitustjóri, vatnsveitustjóri og gatnamála- stjóri í Reykjavík, er svohljóð- andi: „Þar sem umsækjandi upp- fyllir ekki öll þau skilyrði sem sett eru, er ekki hægt að mæla með umsókninni. Meistarabréf umsækjenda er útgefið 21. febrúar 1980. Ný byggingareglu- gerð tók gildi 16. maí 1979, sem krefst meistaraskólaprófs í iðn- inni. Lagaheimild virðist því bresta til að veita honum löggild- ingu.“ Þarna er löggildingarnefnd að vísa til byggingareglugerðar þar sem segir að bygginganefnd veiti iðnmeisturum viðurkenningu, enda hafi þeir lokið meistara- skóla, eða hlotið hliðstæða menntun og séu starfandi í iðn sinni. Síðan segir í bygginga- reglugerðinni: „Á meðan meist- araskóli er ekki fyrir hendi í næsta nágrenni bygginganefndar- umdæmis, þarf ekki meistara- skólapróf til viðurkenningarinn- ar.“ í raun má segja að þarna sé komið að kjarna málsins. Reykjavíkurborg gerir kröfu um að meistarar hafi að baki meist- araskólamenntun, eins og kveðið er á um í lögum og bygginga- reglugerð. Hins vegar lítur hún framhjá tilvitnaða ákvæðinu hér að framan. Haukur Adólfsson fékk meistaraprófsskírteini árit- að af Ásgeiri Pétri Ásgeirssyni, fulltrúa bæjarfógetaembættisins á Akureyri, þann 21. febrúar 1980 og þá var enginn meistaraskóli á Akureyri. Reglugerðin sem gleymdist að endurskoða Fyrir rúmu ári síðan, 14. nóvember 1990, samþykkti bygg- inganefnd Hafnarfjarðar erindi Hauks Adólfssonar um að „mega standa fyrir byggingarfram- kvæmdum í Hafnarfirði sem pípu- lagningameistari“ og þar með hlaut hann löggildingu til að þess að vinna sem slíkur í Hafnarfirði. Orðrétt segir í bréfi byggingafull- trúa Hafnarfjarðar til Hauks dag- sett 21. nóvember 1990: „Ber yður að starfa samkvæmt bygg- ingarreglugerð og gildandi reglu- gerðum Hafnarfjarðarkaupstað- ar varðandi vatns-, hita-, og hol- ræsalagnir." Erlendur Hjálmarsson, bygg- ingafulltrúi í Hafnarfirði, segir að í sínum huga sé vandinn í þessu máli sá að gleymst hafi að endur- skoða það reglugerðarákvæði um Hitaveitu Reykjavíkur frá 1961, með seinni breytingum, að pípu- lagningameistarar á veitusvæði Hitaveitunnar þurfi löggildingu borgarráðs Reykjavíkurborgar. „Þessi íeglugerð er samin áður en orkusalan fór út fyrir Reykjavík- urborg. Að mínu mati hefur gleymst að endurskoða þetta ákvæði. í byggingareglugerð er skýrt kveðið á um að menn þurfi að öðlast löggildingu á hverju bygginganefndarsvæði. Hana hefur Haukur í Hafnarfirði og því á hann að geta starfað þar sem löggiltur pípulagningameist- ari með öllu sem því fylgir. Þessi agnúi er á og þar af leiðandi get- ur hann nánast ekki starfað sem pípulagningameistari í Hafnar- firði,“ sagði Erlendur og bætti við: „Það sem mér finnst leiðin- legast í þessu máli er að hita- veitustjórinn í Reykjavík skuli hafa komið fram í sjónvarpsvið- tali og verið þar með dylgjur vit- andi betur um að hér starfi ann- ars flokks meistarar og löggilding af okkar hálfu sé athugaverð. Forsenda fyrir löggildingu Hauks er úrskurður ráðherra á ákveð- inni túlkun laga og reglugerðar og lengra er ekki hægt að fara í ákvörðunarstiganum,“ segir Erlendur. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki að ná í Gunn- ar Kristinsson, hitaveitustjóra í Reykjavík í gær. Fyrsta málið sem „fer alla leið“ Óhætt er að segja að þetta mál Hauks hafi vakið mikla athygli, enda fyrsta sinnar tegundar, sem kemur upp í opinberri umræðu og varðar samskipti Hitaveitu Reykjavíkur og nágrannasveitar- félaga Reykjavíkur. Hins vegar hafa mál sem þetta áður komið upp, en það sem gerir mál Hauks sérstakt er að það „fer alla leið“, ef svo má að orði komast. Forsvarsmenn Meistarafélags byggingamanna á Norðurlandi og Meistara- og verktakasambands byggingamanna telja að þarna sé um mjög óeðlilega málsmeðferð að ræða. Sigurður Jónsson, hjá Meist- arafélagi byggingamanna á Norðurlandi, segir að þetta til- tekna máls Hauks Adólfssonar sé með ólíkindum og furðulegt sé að Hitaveita Reykjavíkur geti neitað honum um vatn í hús í Hafnarfirði, þar sem hann hafi fullgild leyfi, með þeim rökum að hann hafi ekki löggildingu sem pípulagningameistari í Reykja- vík. Sömu reglur gildi um allt ísland í erindi sem Sigurður flutti á Iðn- þingi í haust fjallaði hann um, sem hann kallaði átthagafjötra í meistaralöggildingu hér á landi, og varpaði fram þeirri spurningu hvort eðlilegt geti talist að meist- ari utan Reykjavíkur sé ábyrgur fyrir stærri mannvirkjum, jafnvel sem ríki eða sveitarfélög byggi, en sé hins vegar ekki ábyrgur fyr- ir bílgeymslu, einbýlishúsi eða öðrum mannvirkjum í Reykja- vík. Orðrétt sagði Sigurður í erindinu: „Það er krafa frá öllum meisturum, sem eru uppáskrift- arskyldir vegna byggingafram- kvæmda og hafa löggildingu í dag í sinni heimabyggð, að hún gildi um allt ísland. Og þegar kemur að því að veita umsögn, ef það verður svo, um það hverjir fái Evrópuskírteini til að starfa sem meistarar utan íslands, verði þeim sem hafa löggildingu þá ekki mismunað eftir búsetu.“ Umhverfisráöuneyti kynnt málið Ingvar Guðmundsson, formaður Meistara- og verktakasambands byggingamanna, segir að í þessu máli, sem sé í hæsta máta hlálegt, hafi komið í ljós ákveðnar brota- lamir í samskiptum milli bæjar- yfirvalda í Hafnarfirði og borgar- yfirvalda í Reykjavík. „Við erum með í undirbúningi að benda umhverfisráðuneytinu á, sem byggingareglugerðir heyra nú undir, að nauðsynlegt sé að laga þessi mál. Við höfum reyndar þegar sett okkur í samband við ráðuneytið og það sendi okkur til umsagnar endurskoðuð bygg- ingalög og -reglugerðir. Þar er gert ráð fyrir að mál eins og umrætt mál hans Hauks geti ekki endurtekið sig. Við teljum auðvitað óeðlilegt að það að fá heitt vatn frá Hita- veitu Reykjavíkur ógildi bygg- ingareglugerðir nágrannasveitar- félaganna, í þessu tilfelli bygginga- reglugerð Hafnarfjarðar," segir Ingvar. Kerfiskörlunum verður ekki hnikað Eins og áður segir hafnaði Reykjavíkurborg erindi Hauks um löggildingu í Reykjavík og vísaði til þess að hann hefði ekki meistaraskólapróf eins og bygg- ingareglugerð frá 16. maí 1979 kveður á um. Ingvar Guðmunds- son segist ætla að langa starfs- reynslu meistara megi meta til jafns við þá menntun sem menn afli sér í meistaraskólanum, enda sé hún sniðin eftir reynslu af störfum iðnaðarmanna í gegnum árin. „Við hljótum því að ætla að reynslan sé sá skóli sem ætti að duga til þess að fá fullgilda lög- gildingu. En þegar kerfiskarlarn- ir hengja sig í reglugerðirnar og þeirra orðanna hljóðan, þá verð- ur þeim ekki hnikað.“ Hvað með starfsreynsluna? „Haukur fékk meistarabréf sitt eftir gildistöku reglna um meist- araskóla, en honum er þó ekki skylt að fara í skólann ef hann starfar þar sem meistarskólinn er ekki til staðar. Hins vegar var Hauki Ijóst allan tímann, að ef hann ætlaði að vinna á þeim svæðum þar sem þessar reglur giltu, þá þyrfti hann meistara- skólann. Síðan eru liðin nokkur ár og spurningin er þessi; er hægt að meta starfsreynslu hans og allra hinna aðilanna, sem svipað er ástatt um, til ígildis meistara- náms? Við þessari spurningu er ekki hægt að gefa eitt ákveðið svar. Við erum að skoða þessi mál og framhaldið verður það að við munum fara fram á við umhverfisráðuneytið að þessar reglur verði samræmdar þannig að við getum litið á íslands sem eitt vinnusvæði fyrir fyrirtæki og meistara. í raun hefur það þegar verið gert með lögum frá áramót- um 1989-1990, þar sem meistara- skóla er krafist í öllum greinum. Veitustofnanir eru hins vegar ekki undir þessum ákvæðum byggingareglugerða. Um þær gilda sérstök lög og þar koma inn ákvæði, eins og gildir um Hita- veitu Reykjavíkur, sem nema almenn ákvæði byggingareglu- gerða úr gildi. Það er þarna sem við viljum að verði tekið á sam- ræmingunni; að heitt vatn, sem rennur frá Reykjavík til Hafnar- fjarðar ógildi ekki reglugerðir sem þar eru í gildi,“ segir Ingvar. „Skil vel gremju meistara á Akureyri“ Sú skoðun hefur heyrst á meðal iðnaðarmanna úti á landi að mál Hauks sé ákveðinn prófsteinn á byggðastefnu og rétt iðnaðar- manna til að taka að sér verkefni á höfuðborgarsvæðinu hliðstætt því að iðnaðarmenn í Reykjavík geti tekið að sér verkefni úti á landi. Ingvar Guðmundsson er þessu ósammála. „Það geta allir unnið hvar sem er á landinu. Hitt er annað mál að kröfur reglu- gerða um ákveðna menntun manna til þess að taka að sér ákveðin verk eru víðtækastar í Reykjavík og þeir sem ekki upp- fylla þær fá ekki starfsleyfi í hendurnar. Það er slæmt mál og við getum auðvitað ekki sætt okkur við það til frambúðar. Enda hefur máium verið svo fyrir komið að við munum vinna okk- ur út úr því. Ég skil vel gremju meistara á Akureyri út af þessu máli og bendi á að það er ákaf- lega erfitt að geta ekki ráðið við kerfi eins og þetta, jafnvel þó að það sé á brauðfótum, og það skuli bitna á starfsaðstöðu manna. En það má í þessu sam- bandi minna á að til langs tíma hefur einmitt ákveðinn húsa- smíðameistari á Akureyri sótt um löggildingu í Reykjavík og ekki fengið. En ég get ekki annað sagt en að það er af hinu góða að Haukur fór út í þetta mál og opinberaði það. Þetta mál gefur okkur tæki- færi til þess að vinna að því að reglur sem hafa eða setja skilyrði á, byggingameistara, séu samræmd- ar almennum byggingareglugerð- um sem í gildi eru,“ segir Ingvar. Óvíst með niðurstöðu málsins Ekki er á þessari stundu ljóst hvernig þetta mál æxlast fyrir Hauk Adólfsson. Byggingafull- trúi og bæjarlögmaður í Hafnar- firði gengu í gær á fund Markúsar Arnar Antonssonar, borgar- stjóra, til þess að finna flöt til lausnar á málinu. Ekki fengust upplýsingar um niðurstöðu þess fundar áður en Dagur fór í prent- un í gær. Hitt er ljóst að Haukur hefur skaðast verulega á þessu máli, eða eins og hann sagði í bréfi til byggingafulltrúa og bæjarstjórans í Hafnarfirði dag- settu 18. nóvember sl.: „Nú er ljóst að ég verð fyrir umtalsverðu fjárhagslegu tjóni, vegna kröfu verkkaupa og síðan hefur þetta mál skaðað það traust sem ég hafði áunnið mér á síðastliðnu ári hjá viðkomandi verktaka." óþh

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.