Dagur


Dagur - 23.11.1991, Qupperneq 3

Dagur - 23.11.1991, Qupperneq 3
Laugardagur 23. nóvember 1991 - DAGUR - 3 IÞRÓTTIR Bikarkeppnin í handknattleik: Þórsarar áfram eftir öruggan sigur á Fram - og eru komnir í 8 liða úrslit „Þetta var tvímælalaust sigur liðsheildarinnar. Það var mikil barátta í þessu og við vorum svolítið æstir í byrjun en náð- um að komast á okkar plan og halda út. Ég held einfaldlega að við séum með betra lið en þeir,“ sagði Jóhann Samúels- son eftir að Þórsarar gerðu sér lítið fyrir og slógu 1. deildarlið Fram út úr bikarkeppninni í handbolta í fyrrakvöld með sannfærandi sigri, 24:20. Það var ekki spurning að betra liðið vann í þessum leik. Fyrri hálfleikur var mjög jafn, Þórsar- ar náðu einu sinni tveggja marka forystu en annars var jafnt á öll- um tölum og staðan í hléi var 10:10. Þegar seinni hálfleikur var hálfnaður hafði Þór náð þriggja marka forystu og eftir það var aldrei spurning um úrslitin. Var það að stórum hluta Hermanni Karlssyni að þakka en hann kom inn á eftir hlé og varði oft mjög vel. Vörn Þórsara var þétt og sóknarleikurinn fjölbreyttur og árangursríkur eftir að þeir fóru að slaka svolítið á. Það er hægt að taka undir með Jóhanni að þetta var sigur liðs- heildarinnar. Þórsliðið var jafnt en þó verður vart komist hjá því að nefna Hermann í markinu, skytturnar Rúna'r og Jóhann og Atla sem sýndi skemmtileg tilþrif í hægra horninu. Þórsliðið verður varla bikarmeistari en spili það áfram eins og það gerði í þessum leik er ótrúlegt annað en það komist upp í 1. deild. Framarar náðu sér aldrei á strik fyrir framan sterka Þórs- vörnina og létu mótlætið fara í taugarnar á sér. Karl Karlsson var þeirra bestur en alltof bráður. JHB Mörk Þórs: Rúnar Sigtryggsson 7, Jóhann Samúelsson 7/1, Atli Rúnarsson 4, Ole Nielsen 4, Sævar Árnason 2. Hermann Karlsson varöi 7/1 skot og Ing- ólfur Guðmundsson 5. Mörk Fram: Karl Karlsson 6, Gunnar Andrésson 5, Davíð S. Gíslason 4, Páll Þórólfsson 2, Andri V. Sigurðsson 2, Andreas Hansen 1. Sigtryggur Albefts- son varði 5 skot og Þór Björnsson 1. Dómarar: Gísli H. Jóltannsson og Haf- steinn Ingibergsson. Mjög slakir í fyrri hálfleik en skánuðu aðeins í seinni. Jóhann Saniúelsson átti ágætan leik með Þór gegn Fram og skoraði 7 mörk. Mynd: Golli Sparisjóðsmótið í bridds: Anton og Pétur sigruðu Þann 16. nóvember var haldið Bridgemót í Ljósvetningabúð. Spilaður var tvímenningur og tóku þátt, 21 par. Ungmenna- félagið Gaman og Alvara stóð að þessu móti í samvinnu við bridgefélagið. Styrktaraðili mótsins var Sparisjóður Suður- Þingeyinga eins og tvö undan- farin ár. Veitt voru verðlaun fyrir fimm efstu sætin. Bikarar fyrir fyrstu þrjú sætin og að auki bókaverð- laun fyrir fyrstu fimm sætin. Reiknimeistari mótsins var Mar- grét Þórðardóttir. Árni Jónsson sparisjóðsstjóri útibús Sparisjóðs Suður-Þingeyinga á Fosshóli afhenti verðlaunin. Röð efstu para: stig 1. Anton Haraldsson og Pétur Guðjónsson 531 2. Jakob Kristinsson og Stefán Ragnarsson 508 3. Frímann Frímannsson og Ólafur Ágústsson 501 4. Gissur Jónsson og Ragnhildur Gunnarsd. 473 5. Sveinn Aðalgeirsson og Friðrik Jónasson 472 MGG EIMSKIP VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ EIMSKIP heldur uppi öflugri þjónustu við landsbyggðina með áætlunarsiglingum til helstu strandhafna landsins og landflutningaþjónustu í tengslum við þær ferðir. Á undanförnum árum hefur átt sér stað ótrúlega hröð uppbygging innanlandsþjón- ustunnar: Fullkomnari skipa- stóll, stærri bílafloti, gáma- væðing, fjölgun viðkomustaða og aukinn viðkomufjöldi skipa. Sem dæmi um hina öru þróun má nefna að áætlaður heildar- viðkomufjöldi skipa í innan- landssiglingum mun aukast á þessu ári úr 846 í 1037 eða um 23%. Kynntu þér hagræðið sem þér býðst með því að skipta við innanlandsdeild okkar. Þjónustan við landsbyggðina eykst stöðugt: 23% AUKNING Á VIÐKOMU SKIPA INNANLANDS Á ÞESSU ÁRI! HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.