Dagur - 23.11.1991, Side 5

Dagur - 23.11.1991, Side 5
Laugardagur 23. nóvember 1991 - DAGUR - 5 Efst í HUGA Jólakvíði Jólakvíði, ótti við að manneskjan gleym- ist á komandi jólagjafakaupavertíð, er mér ofarlega í huga þessa dagana. Að margir fái enn einn gljáfægðan stálbakk- ann í hausinn úr jólapakkanum, þó þá dreymi t.d. um að eignast nýja sæng. (Ágætu vinir og vandamenn! Ég meina þetta ekki til ykkar. Mér þykja stálbakk- arnir sem þið hafið fært mér á undan- förnum missirum mikil stofuprýði. Ég hefði bara farið hjá mér ef ég hefði þurft að nota gamalt glerfat undir kransakök- una í fermingarveislunni í vor. Og bakk- inn sem er ætlaður fyrir flösku og glös; það er komið Ríki í bæinn og engin afsökun fyrir því lengur að bjóða vinkon- unum ekki sérryglas ef þær líta inn í kvöldkaffi. Þá er toppurinn að eiga svona bakka.) En líklega líta vinkonurnar ekkert inn í kvöldkaffi næstu vikurnar. Ætli þær séu ekki farnar að gera hreint og baka. Ætli ég fari ekki bráðum að taka á mig krók ef ég sé myndarlega húsmóður sem ég þekki á götu. Þegar jólabakstur er ekki hafinn á heimilinu er svo neyðarlegt að hitta fólk sem gengur um með glampa í augum, búið að baka níu sortir og nýtur þess að fá aðra til að viðurkenna að baukarnir séu tómir ennþá. Væri það ekki andstyggilegt af manni að spilla fyrir jólagleði þessa fólks, með því aö drífa í því seinnipartinn að baka fimm sortir, bara lítið af hverri, kaupa síðan sjö litla pakka af smákökum, mismun- andi tegundum, á mánudaginn og ganga á móti hverjum sem er með geislandi bros svarandi aðspurð: „Ja, ég ér nú komin með 12 smákökusortir." Jólin eru nú samt hið besta mál, sé rétt á málum haldið. Jólaljósin lýsa í svartasta skammdeginu og ýmiskonar bardús Ijær fólki um annað að hugsa. Fagnaðarerindið hefur náð að gera ótöldum fólksfjölda tilveruna bærilega, alveg jóla á milli. Það er einnig af hinu góða að þrífa þokkalega í kring um sig á stundum, gera fólkinu stöku sinnum til- breytingu í mat og drykk og gleðja með góðum gjöfum. Jólakvíði minn stafar af því að ég ótt- ast að ýmislegt fari úrskeiðis í jólaundir- búningnum. Að einhverjir eigi t.d. erfitt með að njóta jólagleði og kvíði skulda- dögunum, því þeim finnist þeir neyddir til að eyða langt um efni fram við kaup á glingri sem ekki veitir þiggjandanum þó þá gleði sem til stóð. Og að örþreyttar húsmæður sofni í jólaboðunum eftir bakstur og hreingerningar, langt umfram það sem þrekið leyfir. Vonandi tekst sem flestum að leyfa skynseminni að ráða við jólaundirbúnig- inn, og njóta síðan gleðilegra jóla með sér og sínum. Fjölmiðlar Þröstur Haraldsson Hafa Norðlendingar svona lítiö að segja? Stundum þegar ég er að hlusta á Svæðisútvarp- ið hér á Akureyri á morgnana veröur mér á að undrast tilganginn með þessari stöö. Af hverju er verið að reka svæðisútvarp ef ekkert gerist á svæðinu? Eöa hvaða ályktun á maður aö draga af því þegar lunginn af morgunútsendingunni er lagður undir frásögn manns af trúboði í Súdan og Eþíópíu? Er virkilega ekkert merkilegra aö gerast á samanlögðu Norðurlandi en sú stað- reynd að einn af sonum Akureyrar hefur lagt stund á trúboö í fjarlægum löndum? Raunar er þetta trúboðaviötal ekkert eins- dæmi. Oft hef ég á tilfinningunni aö í öllum landsfjórðungnum sé ekki til fólk sem hefur neitt að segja, amk. ekki í morgunútsendingu Svæð- isútvarpsins. Svo lít ég í kringum mig og sé að þetta er ekki rétt. Hér er allt fullt af mannlífi sem verðskuldar að um það sé fjallað í staðbundnu útvarpi. En af einhverjum orsökum fer allt þetta mannlíf framhjá þeim sem um morgunþættina sjá (sér?). Það sem ég er aö reyna aö segja er það aö mér finnst metnaðarleysið hafa tekið öll völd í morgunþætti Svæðisútvarpsins. Það er alltaf veriö aö tala við sama fólkið um sömu hlutina. Ég held ég sé búinn að hlusta á viötöl við alla vitavaröarfjölskylduna á Sauöanesi eins og hún leggur sig og allir tala um það sama. Og viðtölin sem þarna fara í lóftið bera því allt of oft vitni að sá sem þau tekur hefur ekki haft fyrir því að und- irbúa sig, spurningar hans eru ómarkvissar og tilviljanakenndar, af því þær eru ekki hugsaðar heldur samdar á staðnum. Það getur vissulega veriö skemmtileg tækni, en hún krefst þess aö sá sem viðtalið tekur sé búinn að setja sig vel inn í það sem viömælandinn hefur aö segja. Mér finnst leiðinlegt aö þurfa aö segja þetta því margt af þvf sem Svæðisútvarpið hefur upp á að bjóöa og hefur sýnt af sér er gott og áhuga- vert efni sem kemur okkur viö. Sennilega er þó þörfin á aö hrista upp í starfsfólkinu og halda þvf við efnið hvergi eins rík og á þessum fámennu fjölmiðlum okkar. Það er svo hætt við að viö dettum ofan í einhverja holu þar sem okkur líður vel og viö sjáum enga þörf fyrir að breyta til. En þannig má ekki hugsa á fjölmiðlum. Þar verðum við að hafa fyrir því aö fylgjast með og halda augunum opnum. Ég nefni sem dæmi að ef maöur hlustar á morgunþátt Svæðisútvarpsins gæti maður hald- iö að á Akureyri væri enginn framhaldsskóli. Þar eru þó sífellt að gerast athyglisverðir hlutir, til dæmis allir fyrirlestrarnir og umræöurnar sem eiga sér staö í Háskólanum. Þar er oft bryddað upp á hlutum sem koma okkur öllum viö, eða í það minnsta fjölmennum hópum. En allt of sjald- an fáum við að heyra af þessu í Svæðisútvarp- inu. Og þetta er bara eitt dæmi af fjölmörgum. Efnið er úti um allt, það er bara að opna augun. Væri ekki úr vegi aö breyta aðeins til? Frétta- útsendingarnar á kvöldin eru ágætlega geröar og þar er stundum lifandi fréttamennska. Væri ekki hægt að láta það líf sem þar þrífst hafa áhrif á morgunþáttinn? En fyrst ég er farinn aö nöldra þetta vil ég spyrja um annað atriði l rekstri Ríkisútvarpsins þessa dagana. Nú stendur yfir keppni um svo- nefnt Landslag. Þetta er keppni sem Stöö tvö kom á fót í samkeppni við Evrópusöngvakeppn- ina í Sjónvarpinu. Nú er Stöð tvö búin aö missa áhugann á því að halda úti Landslagskeppninni og seldi því Sjónvarpinu hugmyndina. Um þetta er svo sem ekki nema gott eitt að segja. Þó skil ég ekki alveg hvers vegna Sjón- varpið þarf að halda úti tvenns konar dægur- lagakeppni. Var ekki alveg nóg aö drekkja dóm- nefnd Evróvisjón-keppninnar á hverju ári í lög- um? Eða er önnur keppnin hugsuð fyrir innan- landsmarkað en hin til útflutnings? En hvaö sem líöur tilgangi forráðamanna RÚV meö þessari tvöfeldni þá vildi ég aðeins spyrja þá hvort þeir treysti sér ekki til aö halda gildandi útvarpslög í heiðri og fleygja þessum ramma sem hafður er um iögin. Ég held aö þaö sé bannað að rjúfa útsendingu meö auglýsing- um á þann hátt sem gert er í Landslagskeppn- inni. Eða var ekki hægt að fá pakkann keyptan hjá Stöð tvö nema þær fylgdu með? Frostrásin FM 98,7 Útvarp á Norðurlandi með aðsetur á Akureyri. Pétur Guðjónsson er með ykkur milli kl. 14-17 og spilar góða tónlist og rabbar við hlustendur í síma 27687. Frostrásin FM 98,7 Sími 11657 ★ Útvarp með sál. Viltu vera sjálfstæður? Til sölu matvöruverslun í Innbænum í fullum rekstri. Góð velta. Upplýsingar í síma 25655 milli kl. 16 og 18. Sérsmíði eftir þínum óskum Fataskápar, Eldhúsinnréttingar Baðinnréttingar Hilluro.fi. -Við björgum málinu- Þeir sem þurfa viðhaldsvinnu fyrir jól hafi samband sem fyrst. FÖST VERÐTILBOÐ Fjalar h.f. S. 41346. Bændaskóiinn á Hvanneyri Innritun á vorönn er hafin Athygli er vakin á því að unnt er að hefja nám í Bændaskólanum á Hvanneyri um áramót. Fyrsta önn hefst 6. janúar Stúdentar, sem fara styttri leið, geta hafið nám í janúar, apríl eðajúní Kennsla á 5. önn hefst 6. janúar Búfræðingar hafið samband Námið skiptist í fjórar annir, þar af ein verkleg á viðurkenndu býli. A síðustu önn er kennt á tveimur sviðum: búfjárræktarsviði og rekstrarsviði. í undirbúningi er þriðja sviðið, landnýtingarsvið. Dæmi um valgreinar kenndar veturinn 1991-1992: hrossarækt, ullariðn, skógrækt, vinnuvélar, búsmíði, sláturhúsastörf, ferðaþjónusta o.fl. Við veitum upplýsingar í síma 93-70000 Umsóknarfrestur er til 10. desember 1991 Bændaskólinn á Hvanneyri 311 Borgarnes

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.