Dagur - 23.11.1991, Page 8

Dagur - 23.11.1991, Page 8
8 - DAGUR - Laugardagur 23. nóvember 1991 Stjörnuspá Sigfús E. Arnþórsson 55 An ábyrgöar íí fyrir vikuna 9. nóvember- 15. nóvember 1991 T i'l mtui'' 21. mars - 19. apríl Þú færö óvæntar gleðifréttir í dag, en á morgun og hinn verður einhver hundur í fjölskyldunni. En það var nú hundur í henni fyrir og verður eitthvað áfram. (Er kannski raunverulegur hundur á heimil- inu? Ef svo er, þá er þetta allt honum að kenna!) Á þriðjudag eða miðvikudag kemstu á baksíðu Dags: „Hrútur beit hund...“ /\)aut 20. apríl - 20. maí Þótt enn sé ófriðlegt á vinnustað, sérstak- lega hjá þeim sem fæddir eru eftir 10. maí, má segja að allt sé nú að færast aftur í eðlilegt horf eftir erfiðleika undangeng- inna vikna. Seint í kvöld eða á morgun verður leitað til þín með óvenjulegt erindi og þú verður svo lánsamur (-söm) að geta hjálpað. rt Xvíb uv-c\v- 21. mai - 20. júní Þú ert að sigla inn í erfiðleikatímabil sem vara mun fram að áramótum. Nú er jóla- undirbúningurinn hafinn og hann er allur samkvæmt fornum venjum, rétt eins og stórhríðarnar. Tvíburarnir, hin hraðfleygu skáld vorsins, eru heft, bæði af snjósköfl- um og siðvenjum. Haltu þig við krossgát- urnar. Það koma frumlegri tímar. 21. júní - 22. júlí Þótt flestar heillastjörnurnar séu nú horfn- ar af himni krabbans eru engin ófriðarský sjáanleg svo að næsta vika verður ánægjuleg. Sérstaklega morgundagurinn, en það er svona ekta fjölskyldudagur. Tunglið í krabba og hnallþórur á lofti. í þessum hópi 50-60 ættmenna, sem alltaf heimsækja þig á svona dögum, verða ein- hver áflog: „Hann meiddi mig!“ „Nei, þú byrjaðir!" o.s.frv. svo að krabbinn kemst í sitt uppáhaldshlutverk; að hugga. cíl l_jórv 23. júlí - 22. ágúst Þetta verður frábær vika! Og það eru fleiri frábærar vikur framundan! Þú verður í sérkennilegum en stórskemmtilegum fé- lagsskap í dag, á þriðjudag og miðviku- dag baðarðu þig í lofræðum, sem þú átt sannarlega allar skilið og ástin blómstrar. Það kom óvenju björt og sterk orka inn í Ijónsmerkið seint í gærkvöld og hún mun umlykja þig fram að jólum a.m.k. ^ 23. ágúst - 22. september Það hrannast upp óveðursský yfir meyjun- um. Vinnugleðin er þó söm og fyrr en nú fer heilsan að gefa sig, ef þú hægir ekki á þér. Dagurinn í dag verður erfiður, en um mið- nætti ferðu að hressast. Á morgun og hinn ættirðu að halda þig sem mest í faðmi fjölskyldunnar og það verða bestu dagar vikunnar. 'og 23. september - 22. október Það er allt á uppleið hjá þér um þessar mundir. Þú ert enn í ferðabæklingunum og ástin blómstrar. Og frá í gær blönduð- ust fjarlæg lönd inn í málið. Ætlarðu að halda jólin á Suðurskautslandinu? Ef þú ætlar út í kvöld, vertu þá komin(n) heim fyrir miðnætti. m 23. október - 21. nóvember Seint í gærkvöld lauk fimm vikna breyt- ingatímabili hjá sporðdrekum og framund- an er lygnari sær. Allar munu þessar breytingar verða til góðs fyrir þig þegar til lengri tíma er litið, en þar sem sporðdrek- ar eru almennt mjög þrjóskir og lausir við nýjungagirni, kann þetta að hafa verið erf- itt á köflum. Vertu með fjölskyldunni á morgun. Bc ogmoöuv 22. nóvember - 21. desember Það verður vegið harkalega og ómaklega að lífsskoðun þinni í dag. En það er líka nánast eini skýhnoðrinn á þínum himni þessa vikuna.. Á þriðjudag eða miðviku- dag færðu tækifæri til að komast í sviðs- Ijósið eitt augnablik og viðra víðsýni þína. Slikum tækifærum hafnar bogmaður aldrei. vr SteikAgeit 22. desember- 19. janúar Ef þú ætlar út ( kvöld, vertu þá komin(n) ■ aftur heim fyrir miðnætti. Frá miðnætti og fram á mánudagsmorgun verða einhverj- ar óskemmtilegar vættir á sveimi, senni- lega fjölskyldudrama með hjartnæmum ásökunum í allar áttir. Morgundagurinn gæti orðið „sjö vasaklúta" dagur. Sem sagt: Ekki þín deild. VatkAsb en 20.janúar- 18. febrúar Dagurinn í dag verður skemmtilegur dag- ur, sérstaklega eftir að þú hefur lesið þessa skemmtilegu stjörnuspá. Þú færð óvænta heimsókn eða heyrir óvenjulegar skoðanir og það á nú við þig. Á þriðjudag eða miðvikudag verður þín freistað, án árangurs. Að mönnum skuli detta í hug að vatnsberi afneiti hugsjónum sínum fyrir hégóma. Óekkí. X UiskaE 19. febrúar-20. mars Þú hefur séð betri daga, svo mikið er víst. Og eins víst er það að betri dagar eru framundan, en ekki strax. Þetta byrjar ekki að lagast fyrr en um jólin og það er fyrst um miðjan janúar sem allt verður orðið eins og þú vilt hafa það. Dagurinn í dag verður erfiður, eins og gærdagurinn, en seint í kvöld fer þér að líða betur. Ungbarnasundnámskeið hefjast í Sundlaug Akureyrar í næstu viku: Styrkir tengsl bams og foreldra - segir Auðunn Eiríksson, sem sér um námskeiðin ásamt Wolfgang Sahr Ungbarnasund hefur verið að ryðja sér til rúms á Islandi á síðustu misserum og óhætt er að segja að þau ungbarnasund- náinskeið, sem haldin hafa verið á höfuðborgarsvæðinu3 hafí vakið áhuga og eftirtekt. I næstu viku hefjast fyrstu ung- barnasundnámskeiðin á Akur- eyri. Fyrir þeim standa þeir Auðunn Eiríksson, íþrótta- kennari, og Wolfgang Sahr, íþróttafræðingur og sundþjálf- ari Sundfélagsins Oðins á Akureyri. Til þess að fræðast um ungbarnasund átti Dagur spjall við Auðunn Eiríksson. Tengsl, hreyfiþroski og köfun Auðunn sagðist hafa lesið mikið um ungbarnasund auk þess sem hann hafi kynnt sér ungbarna- sundkennslu Snorra Magnússon- ar í Mosfellsbæ. Hann segir að markmið með ungbarnasundi sé þrennskonar. „í fyrsta lagi að styrkja tengsl milli barns og foreldra. Barnið lærir með þessu að treysta for- eldrunum. í öðru lagi stuðlar sundið að auknurn hreyfiþroska barnsins og til þess er beitt mörg- um ólíkum æfingum. I þriðja lagi er köfunarviðbragð barnsins æft. I rauninni þarf kannski ekki að kenna barninu að kafa, því að það er hæfileiki sem það fæðist með, en eldist síðan af því ef ekkert er gert til þess að halda honunt við. Þarna er um að ræða svokallað kyngi- eða kafvið- bragð, sem gerir það að verkum að þegar barnið verður fyrir áreiti á vitum, munni eða nefi, þá hættir það að anda og byrjar ekki að anda fyrr en það er búið að kyngja. Talið er að þessi hæfileiki barnsins dofni um sex til sjö mán- uða aldurinn og því er eðlilegt að þurfi að hafa meira fyrir því að kenna barninu eftir því sem það er eldra.“ 2-15% barna hafa ekki „köfunarhæfileikann“ „Langtímamarkmiðið með köf- unaræfingum er t.d. að tveggja ára barn sé fært um að bjarga sér detti það ofan í laug eða hcitan pott. Því miður höfum við dæmi um að börn hafi drukknað í jafn- vel mjög grunnum pottum vegna þess að þau hafa ekki verið fær um að krafla sig að bakkanum. En tengsl foreldra og barna er helsta markmiðið,“ sagði Auð- unn og bætti við að samkvæmt athugunum hafi á bilinu 2-15% barna ekki þann hæfileika að loka vitum sínum í kafi. Við meðhöndlun þeirra væri aukin áhersla lögð á hina tvo þættina; Hér er Auðunn með dóttur sína, sem er tvíburi, í innilauginni í Sundlaug Akureyrar. Myndir: Goiii Eins og kunnugt er er ntjög misjafnt hversu gömul börnin eru þegar byrjað er að fara með þau í sund. Hvaða aldur telur Auðunn að sé heppilegastur? „Tveggja og hálfs til þriggja mánaða tel ég að sé héppilegasti aldurinn. Hins vegar er vel hægt að byrja á fyrstu æfingunum nteð sjö til átta vikna gamalt barn í baðkerinu heima. Þannig er hægt að venja börnin við vatnsáreiti, að fá vatnið framan í sig og yfir sig, og undirbúa þau vel áður en þau fara í sundlaugina.“ Kkkert mál - bara eins og að drekka vatn! að efla hreyfiþroskann og styrkja tengslin við foreldrana. Auðunn segir að ungbarna- sund hafi lengi verið kennt erlendis, t.d. við íþróttaháskól- ann í Osló. „Kennari þar hefur þróað þetta á undanförnum árunt og haldið ungbarnasundnámskeið sl. fimmtán ár. Hann kom hingað fyrir þrem til fjórum árum síðan og sagðist þá hafa verið nteð tæp- lega tíu þúsund börn á þessum námskeiðum og aldrei hafi neitt kornið upp á. Bætt aðstaða í Sundlaug Akureyrar Auðunn er nýlega fluttur til Akureyrar. Hann hefur að undan- förnu starfað sem íþróttakennari á Laugarvatni, en hafði áður kennt til skamms tíma á Akur- eyri. „Ég heillaðist svo af bænum að við ákváðum að flytja hingað norður," sagði Auðunn. Eins og áður segir byrjar ung- barnasundið í næstu viku. Kennt verður í innisundlauginni í kjall- ara Sundlaugar Akureyrar og þar hefur verið stórbætt aðstaða fyrir „Einn, tveir og kafa...“ yngstu borgarana. Komið hefur verið fyrir skiptiborðum og sturt- um við innilaugarbakkann og því þarf ekki lengur að klæða börnin úr og í föt uppi í karla- og kvenna- klefum. Einnig er ætlunin að koma upp skiptiborðum í karla- og kvennaklefum og bæta þannig úr brýnni þörf fyrir foreldra með ungabörn. Stefnan að kenna foreldrum að kenna börnum sínum Þrjú ungbarnasundnámskeið verða fram að jólum og er hvert þeirra átta klukkustundir. Eftir áramót verður framhald á, bæði byrjendanámskeið og framhalds- námskeið fyrir þá foreldra sern þess óska. „En stefnan hjá okkur kennurunum er að kenna foreldr- unum að kenna börnum sínum þegar fram líða stundir,“ sagði Auðunn. Hann lagði að lokunt áherslu á að ungbarnasund hefði ekkert með venjulega sundkennslu að gera. Ekki væri sjálfgefið að ungabörn, sem færu á slík ung- barnasundnámskeið, yrðu fljót- ari en önnur börn að læra að sy.nda síðar meir. óþh

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.