Dagur - 23.11.1991, Blaðsíða 15

Dagur - 23.11.1991, Blaðsíða 15
Laugardagur 23. nóvember 1991 - DAGUR - 15 Bækur Kjallarínn - ný skáldsaga eftir Steinar Sigurjónsson Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér skáldsöguna Kjallarinn eftir Steinar Sigurjónsson. Steinar hefur sent frá sér tæpan tug skáldsagna frá því Ástarsaga kom út árið 1958. Hann hefur með sögum sínum leitað nýrra leiða í íslenskri skáldsagnaritun, bæði í stíl og persónusköpun. Ekki leikur vafi á að hlutur Stein- ars í endurnýjun íslenskrar sagnagerðar á síðustu áratugum er stærri en margur hyggur. Næg- ir þar að minna á bækur á borð við Hamingjuskipti, Biandað í svartan dauðann og Sáðmenn. I kynningu Forlagsins segir: „Kjailarinn segir af baráttu manns við draugana sem safnast upp í lífi hans og holdgervast heima í kjallara hjá honum. Draugarnir naga huga hans og hræra í minningunum svo honum er að lokum meinað að hafa nokkra stjórn á lífi sfnu. Sagan er í senn kímin frásögn og ógnvæn- leg afhjúpun á veikleika mann- anna í stríði þeirra til að móta eigið líf.“ Kjaliarinn er 110 bls. Valgarð- ur Gunnarsson málaði mynd á kápu. Fuglar - Fyrsta ljóðabók Pórunnar Valdimarsdóttur Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út bókina Fugiar eftir Þórunni Valdimarsdóttur. Þetta er fyrsta ljóðabók Þórunnar en áður hafa birst eftir hana ljóð í tímaritum og safnritum. Þó að Fuglar séu fyrsta eigin- lega skáldverk Þórunnar Valdi- marsdóttur, hefur hún engu að síður verið afkastamikill og sér- stæður rithöfundur og eftir hana liggja sagnfræðirit og ævisögur sem vakið hafa mikla athygli: Sveitin við Sundin er saga af búskaparháttum og hversdagslífi í Reykjavík: Af Halamiðum á Hagatorg, ævisaga Einars Ólafs- sonar í Lækjarhvammi og Snorri á Húsafelli, saga frá 18. öld. Á síðasta ári samdi hún ásamt Meg- asi sögu lítillar píslar úr Austur- bæ, bókina, Sól í Norðurmýri. Um ljóðabókina Fuglar segir svo í kynningu Forlagsins: „Hér eru óljós skil milli manna, fugla og trjáa, landið er líkami.manna og dýra, og efnakljúfurinn mikli - dauðinn - heldur utan um gang- verkið. I kverinu er þetta sam- hengi líkast trúarskynjun; mörk- in milli manns, dýra og lands eru máð út og tíminn leystur upp.“ Fuglar er 62 bls. íslensk bók um drauma Draumar - fortíð þín. nútíð og framtíð nefnist ný bók sem kom- in er út hjá Hörpuútgáfunni. Höfundur bókarinnar er Kristján Frímann draumamaður og skáld. Hann hefur í mörg ár kannað drauma og boðskap þeirra, tákn og merki. Hann hef- ur ritað um drauma í blöð og tímarit, stjórnað útvarpsþáttum um efnið og haldið námskeið. Bókin er afrakstur rannsókna hans. í frétt frá útgefanda segir m.a.: „Hvað boðar draumur þinn? Er hann viðvörun, eða styrkir hann ákvarðanir þínar í daglegu lífi? Boðar hann góða heilsu, stóru ástina, góðan vin, trausta atvinnu og öryggi eða táknar hann veik- indi og aðra óáran, hamfarir nátt- úru og manna? Flestir spyrja sig um tákn drauma sinna en oft veröur fátt um svör. Hér er bókin sem hjálpar þér að ráöa gátur draumanna, finna réttu svörin og lykla að völundarhúsi drauma- lífsins." Bókin „Draumar“ er 231 bls. prýdd fjölda mynda, m.a.: eftir höfundinn, sem einnig gerði kápumynd. Ný alíslensk fjTidni Örn og Örlygur hafa gefið út bókina Ný alíslensk fyndni, í samantekt Magnúsar Óskarsson- ar, borgarlögmanns. í frétt frá útgefanda segir m.a.: „Segja má að þjóðin hafi rekið upp skellihlátur þegar bókin Alíslensk fyndni eftir Magnús Óskarsson borgarlögmann kom út fyrir nokkrum árum. Ekki síst skemmtu menn sér konunglega yfir úrklippusafni Magnúsar, sem var algjört nýmæli en þar var að finna úrval af drepfyndnum setn- ingum, fyrirsögnum og greina- brotum úr íslenskum dagblöðum. Auk þess voru í bókinni gaman- sögur, limrur, „spakmæli“ og vísur, allt saman dýrlegur alís- lenskur húmor. Nú hefur borgarlögmaður brugðið aftur á leik og sett saman nýja bók, ekki síðri en þá fyrri. í þessa bók hefur hann valið hátt á annað hundrað nýjar úrklippur, sem birtast í upprunalegri mynd og eru þær helmingur bókarinn- ar. í hinum helmingnum eru eins og í fyrri bókinni margvísleg gamanmál, limrur, brot úr útvarpsfréttum og gamansögur, sem höfundur hefur einstakt lag á að segja þannig að fyndni þeirra njóti sín. Sá maður er dauður sem ekki hlær við lestur þessarar bókar.“ Fimmnýjar bækur komnar út - í bókaflokknum „Skemmtilegu smábarnabækurnar“ Bókaútgáfan Björk gefur út á þessu hausti 5 nýjar bækur í hin- um kunna bókaflokki: Skemmti- legu smábarnabækurnar Þær eru allar prentaðar í 4 lit- um og mynd á hverri blaðsíðu. Sigurður Gunnarsson fyrrv. skólastjóri og Stefán Júlíusson rithöfundur hafa þýtt bækurnar á íslensku. í bókaflokki þessum hafa alls komið út 30 titlar og eru umræddar bækur nr. 26-30. Þær heita: Villi hjálpar mömmu (nr. 26); Panda málar (nr. 27); Þegar Kolur var lítill (nr. 28); Hvar er Glói? (nr. 29) og Jól í Betlehem (nr. 30). Auk þess hefur Björk endurút- gefið í haust 2 bækur í sama bókaflokki: Benna og Báru (nr. 3), sem kemur út í 6. útgáfu og Kalli segir frá (nr. 15). Hún er í 2. útgáfu. „Skemmtilegu smábarnabæk- urnar hafa átt miklum vinsældum að fagna. Sumar þeirra hafa komið út í áratugi, en eru þó allt- af sem nýjar. Þær eru hinar vönd- uðustu að efni og frágangi, sem völ er á fyrir lítil börn, enda vald- ar og íslenskaðar af hinum fær- ustu skólamönnum," segir í frétt frá útgefanda. Lífróður komin út Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur sent frá sér bókina Lífróð- ur eftir Ingólf Margeirsson. Bók- in hefur að geyma æviminningar Árna Tryggvasonar leikara. Árni Tryggvasson er löngu þjóðþekktur fyrir leikferil sinn en hann er einnig þekktur af smá- bátaútgerð sinni frá æskueyju sinni, Hrísey. Ingólfur Margeirs- son rithöfundur er þekktur fyrir ritverk sín og hæfileika að nálgast viðmælendur sína í áreynslu- lausri frásögn. í frétt frá útgefanda segir m.a. „Lífróður er ævisaga í hæsta gæðaflokki. Náið samstarf Árna og Ingólfs hefur skilað vönduðu og miklu verki. Árni rekur hið litríka lífshlaup sitt á tæplega 400 síðum; allt frá æskuárunum í Hrísey, unglingstímanum við sjó- mennsku, á handfærum og á síld og við innanbúðarstörf í kaupfé- laginu á Borgarfirði eystra, uns örlagavefurinn skolaði honum á leikhúsfjalir höfuðborgarinnar. Bókin greinir frá lífinu á sviðinu jafnt sem baksviðs og segir frá fjölda eftirminnilegra samferða- manna Árna, óþekktu alþýðu- fólki jafnt sem þjóðkunnum ein- staklingum og bregður upp myndum af horfnum þjóðháttum og varpar nýjú ljósi á leiklistar- sögu íslendinga. Árni segir á lifandi, hispurs- lausan og einlægan hátt frá öllu þessu mikla lífshlaupi, ekki síst þegar frægðin og lífið bak við leiktjöldin urðu honum ofviða og baráttan við „svarta hundinn“ - þunglyndið - tók við. Árni segir undanbragðalaust frá þeirri miklu glímu sem verður að teljast einstök frásögn í íslenskri ævi- sagnaritun. Lífróður er rituð af lipurð og innsæi og segir sögu Árna Tryggvasonar af heiðarleik og innlifun en einnig með kímni og hlýju og af næmum skilningi á umhverfi og persónum bókarinn- ar.“ Bókin er prýdd fjölda Ijós- mynda. Til sölu! Trésmíðaverkstæðið að Lambeyri Lýtingsstaða- hreppi, Skagafirði er til sölu, ásamt vélum. Einnig er til sölu á sama stað Man vörubíll 15-168, árg. 1973, 6 hjóla með framdrifi og 3t Faco krana. Upplýsingar gefur Friðrik Friðriksson í síma 95- 38037 eða 985-29062. W jj Tf VEITINGAHUSIÐ Sími 26690 Gildir laugardagskvöld og sunnudagskvöld Veislueldhús Greifans Menu Súpa og salatbar. Pönnusteiktar svartfuglsbringur með portvínssósu og sykurgljóðum kartöflum. Sítrónufromage með ferskum jarðarberjum. Verd kr. 1.730,- Frí heimsendingarþjónusta ó pizzum föstudags- og laugardagskvöld til kl. 04.30.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.