Dagur - 30.11.1991, Síða 3

Dagur - 30.11.1991, Síða 3
Laugardagur 30. nóvember 1991 - DAGUR - 3 Fréttir Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri: Mótmælir harðlega hugmyndum um a5 hafa verslanir opnar á sunnudögum „verslun dreifist og kostnaður verslunareigenda eykst“ Verslunar- og skrifstofufólk á Akureyri mótmælir harðlega öllum hugmyndum um að hafa verslanir á félagssvæðinu opn- ar á sunnudögum í desember. var Alyktun þar að lútandi samþykkt á fjölmennum fundi sl. fimmtudagskvöld. Ályktun fundarins er svohljóð- andi: Enn er tekist á um loðnuverð: „Loðnusjómenn skilja ekki dæmið og eru fídir“ „Við erum lagðir í 'ann a ny. Erum norður af Hrísey á Ieið austur. Okkur tókst ekki að negla niður loðnuverðið við Krossanesverksmiðjuna. Þó var okkur lofað því sem best gengur miðað við stím. Trú- lega verður verðinu þrúkkað upp I Seyðisfjarðarverðið þ.e. 4600 krónur fyrir tonnið,“ sagði Bjarni Bjarnason, skip- stjóri Súlunnar EA 300, í birt- ingu í gærmorgun. Að sögn Bjarna, fengu loðnu- skipin mörg hver 5000 krónur fyrir tonnið í byrjun árs og nú er borðliggjandi að afurðaverð hef- ur hækkað um 20-30 prósent. „Loðnusjómenn telja að þeir eigi að njóta verðhækkunar. í dag bjóða verksmiðjurnar flestar Frá og með 1. desember hækkar áskriftargjald Dags úr 1.100 krónum í 1.200 krónur á mánuði. Frá sama tíma er lausasöluverð blaðsins 110 krónur. Auglýsingaverð helst óbreytt frá því sem nú er; grunnverð dálksentimetra er 725 krónur. Það skal tekið fram að áskriftargjald hinna dagblað- anna fimm var hækkað 1. október sl. Dagur er því tveimur mánuðum síðar á ferðinni en hin dagblöðin að þessu leyti. 4000 krónur fyrir tonnið. Við erum búnir að róa uppá þessar litlu 4000 krónur síðan 1986. Loðnusjómenn skilja ekki dæmið og eru fúlir. Við gætum svo sem siglt með aflann, en slíkt er ekki á dagskrá sem stendur. Já, við á Súlunni ætlum að reyna að landa áfram hér á Akureyri. Hins vegar þykir okkur helvíti skítt að við sem erum að berjast við veiðarn- ar fyrstir með óntældri fyrirhöfn komum alltaf verst frá dæminu. Þessir sem ausa upp loðnunni nánast verðlausri síðla vetrar fá alltaf besta verðið og fyrirhöfnin er ntikið minni," sagði Bjarni Bjarnason. ój „Almennur fundur hjá Félagi verslunar- og skrifstofufólks, Akureyri og nágrenni haldinn í Skipagötu 14, 28. nóvember 1991 mótmælir harðlega öllum hug- myndum um að hafa verslanir á félagssvæðinu opnar á sunnudög- um í desember. Telur félagið að þegar auglýstur opnunartími í desember sé óhóflega langur þó sunnudögum sé ekki bætt við. Engin rök er hægt að færa fyrir því að verslun verði meiri þó opnunartími verði lengdur held- ur dreifist verslun og kostnaður verslunareigenda eykst. Skýtur það skökku við í yfirstandandi kjaradeilu ef verslunareigendur telja sig nú geta greitt allt að tvö- föld laun fyrir óbreytta verslun. I þessu sambandi má einnig benda á messutíma kirkjunnar kl. 14.00 á sunnudögum." Eins og Dagur hefur greint frá hafa kaupmenn á Akureyri verið að velta því fyrir sér að fylgja í fótspor starfsbræðra sinna í Reykjavík og hafa verslanir opn- ar a.m.k. einhverja sunnudaga í desember. Stjórn Kaupmanna- félags Akureyrar hyggst koma saman til fundar urn inálið 10. desember nk. SS „Sameinumst gegn alnæmf - 1. desember er helgaður alþjóðlegri baráttu gegn alnæmi „Sameinumst gegn alnæmi“ er yfirskrift alþjóða alnæmisdags- ins sem er 1. desember ár hvert. Það er Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin (WHO) sem stendur að baki þessu árlega framtaki en því er ætlað að vekja athygli á sjúkdómn- um og hvetja fólk til að standa saman í því að hefta útbreiðslu hans. í frétt frá Landsnefnd um alnæmisvarnir segir að í lok sept- ember sl. hafi 66 einstaklingar á íslandi greinst með smit af völd- um HlV-veirunnar, en svo nefn- ist veiran sem veldur alnæmi. Á þessu ári hafa 7 greinst með HIV- smit en fjórir með alnæmi. Sam- tals hafa 20 manns hér á landi greinst með lokastig sjúkdóms- ins, alnæmi, og eru 11 þeirra látnir. Lengi vel var álitið að í áhættu- hópi vegna HlV-smits væru svo til eingöngu hommar, eiturlyfja- neytendur og dreyrasjúklingar en reynslan hefur leitt í ljós að eng- inn er óhultur fyrir smiti og nú breiðist það ört út meðal gagn- kynhneigðra hér á Vesturlönd- um. Það er því fyllta ástæða fyrir alla að huga vel að kynhegðun sinni og setja öryggið á oddinn. -ÞH Hvað er að gerast Handknattleiksdeild Þórs: Selur jóladagatöl um helgina Sölumenn á vegum handknatt- leiksdcildar Þórs ganga í hús á Akureyri í dag og morgun og bjóða til sölu happdrættisjóla- dagatöi. Schwarzenegger í Borgarbíói Borgarbíó á Akureyri sýnir um helgina kl. 9 Tortímand- ann 2 með m.a. Arnold Schwarzenegger. Einnig sýnir Borgarbíó Beint á ská 2Vi (Naked Gun 2Vi) kl. 9.05, Hörkuskyttuna með Tont Selleck í aðalhlut- verki kl. 11 og Leikaralögguna (The Hard Way) kl. 11.05. Á sunnudag kl. 3 verða sýndar myndirnar Fuglastríðið og Litla hafmeyjan. Hvert jóladagatal er númerað og það gildir í leiðinni sem happ- drættismiði. Vinningar verða dregnir út á degi hverjum frá 1. til 24. desember. Vinningsnúmer verða birt í Degi 10. 17. og 28. Heilmikil hátíð verður í Stóru- tjarnaskóla í dag, er minnst verður 20 ára afmælis skólans sem settur var fyrsta sinni 8. nóv. 1971. Sverrir Thorstensen, skóla- stjóri, sagðist búast við um 320 manns á afmæ'lishátíðina, en þangað væru allir velkomnir. Hátíðin hefst kl. 13.30 er húsið verður opnað og gestum gefst kostur á að ganga um og skoða skólann og 7-800 myndir sem lírndar hafa verið upp í tilefni desember. Vinninga er hægt að vitja í Hamri frá kl. 17-19 alla daga. Verð á einu dagatali er 300 krónur, 500 krónur fyrir tvö og þrjú kosta 700 krónur. dagsins. Klukkan 15 hefst kaffi- samsæti með ræðuhöldum söng og spili. IM NairanáKEA Hljómsveitin Namm sér um fjör- ið á Hótel KEA á Akureyri í kvöld og má geta þess að þetta er síðasti dansleikur ársins á KEA. Sigfús Arnþórsson leikur fyrir matargesti. Stórutjarnaskóli: 20 ára aímæli skólans minnst 9amkvæmt tóbaksvarnalögum er óheimilt að reykja í hvers konar verslunum, þar með taldir gangar fyrir framan verslanirnar! TÓBAKSVARNANEFND BSAM. BÍLAVERKSTÆÐI * BÍLARÉTTING * BÍLASPRAUTUN Söluumboð fyrir Camp-let * IsimjKil jiÉs* eyp Laufásgötu 9 • P.O. Box 358 602 Akureyri • Símar: 96-26300 & 96-23809 í JÓLAUMBÚÐUM Á JÓLAVERÐI í JÓLAKÖKURNAR, JÓLAMATINN OG JÓLAGOTTIÐ!

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.