Dagur - 30.11.1991, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 30. nóvember 1991
Stjörnuspá
Sigfús E. Arnþórsson
55
An ábyrgöar
íí
fyrir vikuna 30. nóvember-6. desember 1991
T
■H y'uiur-
21. mars - 19. apríl
Þó að enn séu erfiðleikar í ástarmálunum
og þótt helgin verði óvenju erfið (senni-
lega óvæntar en réttmætar ásakanir
byggðar á sanngirni og skynsemi, sem
aldrei hefur verið þín sterka hlið), þá bítur
þetta lítið á þér því þú ert í mikilli upp-
sveiflu í vinnunni/skólanum, enda óvenju
orkumikil(l) þessa dagana.
/s)aut
20. apríl - 20. maí
Það verður ekkert að gerast hjá nautum í
þessari viku, þ.e. ekkert umfram hið
venjulega. Hvorki til góðs né ills. Það er
helst að finna megi smá-pirring á tímabil-
inu frá kvöldmat á mánudag fram til mið-
vikudagskvölds. Einhver nákominn segir
þér að fara í megrun, eða eitthvað álíka
uppörvandi. Eins og nautin séu ekki alltaf
í megrun?
XI
'ITví(putAaf‘
21. maí - 20. júní
Þrátt fyrir að helgin verði með skemmti-
legra móti eru ýmsir váboðar á lofti hjá tví-
burunum um þessar mundir. Það eru
erfiðleikar í vinnunni/skólanum, hætta á
minniháttar slysum er yfirvofandi, þú átt
erfitt með að tjá þig svo aðrir skilji og síð-
ast en ekki síst er heilsan tæp. Ástarmálin
eru aftur á móti í miklum blóma.
Kr*abbi
21. júní - 22. júlí
Það verður óvenju lítið að gerast hjá
kröbbum í komandi viku. Enn eru einhver
vandræði í fjölskyldunni og nú um helgina
verður rifist og slegist og þú verður undir.
Á mánudagskvöld fer svo að rofa til og
þriðjudagur og miðvikudagur verða bestu
dagar vikunnar. Á föstudag byrja svo fjöl-
skylduvandræðin að leysast.
cR
L-jcm
23. júlí - 22. ágúst
Það er óvenju bjart í kringum Ijónin í
næstu viku. Þú verður í sviðsljósinu í
kvöld og á morgun og mánudag. A þriöju-
dag og miðvikudag lendir þú í einhverri
taugaspennu en á fimmtudag ertu aftur í
essinu þínu. Annars er sama hvert litið er,
allt er í blóma og verður það eitthvað
áfram.
W
JV\e.yja
23. ágúst - 22. september
Meyjan hefur allt á hornum sér þessa
dagana. Það er unnið gegn þér á vinnu-
stað/skóla, en þú ert of uppspennt(ur) til
að taka nokkrum viðvörunum, hvað þá að
taka skynsamlegar ákvarðanir. Óðagotið
á þér er slíkt að þú gætir lent í slysi þá og
þegar. Þriðjudagur og miövikudagur
verða skástu dagar vikunnar.
'9
23. september - 22. október
Þetta er þín helgi, njóttu hennar sem best.
Góður matur, góð tónlist og endalaus
skoðanaskipti um leiðir til að bæta og
fegra mannlífið nær og fjær, í bráð og
lengd, eru þín aðaláhugamál og helgin
býður upp á þetta allt og meira til. Ástir og
ferðalög eru enn á dagskrá og tilveran al-
mennt eins hagstæð vogum og hún getur
orðið.
%
Sporöd i^eki
23. október-21. nóvember
I komandi viku gerist ekki neitt hjá þér,
a.m.k. ekki neitt markvert. Hvorki til góðs
né ills. Umhverfis þig er fólk að lenda í
átökum og/eða vinna í happdrættum, en
það snertir þig ekki, er eins og enginn
heyri þig né sjái. Þriðjudag og miðvikudag
gerist eitthvað jákvætt í fjölskyldunni.
lE)ogmac)u v-
22. nóvember-21. desember
Það er líf og fjör í kringum bogmenn í
næstu viku. I dag og alveg fram á mánu-
dagskvöld verður þú í hugmyndafræði;
legum og skemmtilegum félagsskap. Á
fimmtudag eða föstudag ferðu í ferðalag.
Ástin blómstrar og í vinnunni/skólanum
ert þú sá/sú sem allir leita til, enda ert þú
gangandi uppspretta lífsgleði og gáska
þegar svona árar.
Y I Steingeit
' 22. desember- 19. janúar
Það eru ennþá væringar í fjölskyldunni og
komandi helgi er ekkert tilhlökkunarefni
fyrir þig. Sennilega verður þú sökuð um
nísku eða þröngsýni, jafnvel heimsku.
Þess verður og krafist að þú leggir fé eða
tíma til líknar- eða hugsjónamála sem þú
hefur enga trú á. Þriðjudag eða miðviku-
dag nærðu að svara fyrir þig, að nokkru.
\AA Va+rv sberi
T ▼ 20. janúar - 18. tebrúar
Það er ótal margt að gerast hjá vatnsber-
anum þessa vikuna og flestallt jákvætt.
Um miðjan dag í gær lauk ákveðnu erfið-
leikatímabili sem varð í vinnunni/skólan-
um og varað hefur síðan í byrjun október
og framundan eru uppgangstímar á því
sviði sem öðrum. Fram á mánudagskvöld
ertu í skapandi félagsskap, á þriðjudag og
miðvikudag þarftu að glíma við einhverja
heimsku blandaða tilfinningasemi, en á
fimmtudag ferðu aftur á flug.
X
Piskat"
19. febrúar-20. mars
Það á ekki af fiskunum að ganga þessa
dagana. Illskástu dagar komandi viku eru
þriðjudagur og miðvikudagur, því þá ger-
ist eitthvað skemmtilegt í fjölskyldunni.
Annars ertu á hættusvæði, bæði hvað
varðar vinnuna/skólann sem og öll sam-
skipti yfirleitt. Heilsan er tæp og slysa-
hættan vofir yfir hverju fótmáli. Farðu þér
hægt.
Bókatíðindi 1991 komin út
Út eru komin á vegum Félags
íslenskra bókaútgefenda Bóka-
tíðindi 1991. í ritinu kynna fjöl-
margir útgefendur bækur sínar
og er þar að finna margvíslegar
upplýsingar bæði um efni, verð
og annað sem máli skiptir.
Bókatíðindin hafa komið út í
nokkur ár og má orðið fá af þeim
talsverðan samanburð um
(slenska bókaútgáfu frá ári til árs.
í fyrra voru kynntir í tíðindunum
liðlega 340 titlar en í ár hefur
þeim fjölgað í rösklega 400. Þetta
er þó ekki vísbending um mikla
hlutfallsaukningu í bókaútgáf-
unni heldur sýnir einkanlega að
útgefendur telja Bókatíðindin
góðan og batnandi kynningarvett-
vang.
Helstu breytingar sem verða í
bókaflokkum frá síðasta ári til
ársins 1991 eru þær að þýddum
skáldverkum fyrir börn og ung-
linga fjölgar, en á öðrum bóka-
flokkum eru sáralitlar breytingar.
Samanburður á verði bóka frá
ári til árs er alltaf bæði erfiður og
varasamur, því sama bókin er
aldrei gefin út ár eftir ár. Sé litið
á það sem kalla mætti „meðal-
skáldsöguna" kemur hins vegar í
Ijós að lítil sem engin hækkun
virðist verða á milli ára að þessu
sinni. Þessi meðalskáldsaga kost-
ar í ár milli 2.400 og 2.500 krónur
eins og í fyrra. Bókaútgefendur
virðast því hafa kostað kapps um
að hagræða og spara þannig að
þeir gætu lagt sitt af mörkum til
að standa við margfræga þjóðar-
sátt og komið til móts við bóka-
vini á svartsýnistímum.
Undanfarin ár hefur verið unn-
ið að því að flýta útkomu Bóka-
tíðindanna jafnt og þétt og í ár
eru þau fyrr á ferð en í fyrra.
Jafnframt er gerð breyting á röð-
un bóka í hverjum flokki þannig
að mun fljótlegra á að vera að
finna titla sem notendur kannast
við og ennfremur er broti Bóka-
tíðinanna breytt svo að þau verði
handhægari og þægilegri í með-
förum.
Bókatíðindum 1991 verður
dreift á öll heimili landsins á
næstu dögum.
Ferjan Sæfari
Vetraráætlun hefur verið
tekin í notkun
Nú fer ferjan frá Akureyri til Hríseyjar og Gríms-
eyjar á mánudögum og fimmtudögum.
Nánari uppl. í síma ferjunnar 985-32211.
Lj óð
Áforai Fótboltaunnendur
Til æviloka Fótboltaunnendur
lifi ég hress, hvetja með klöppunum,
skyidi mér endast á krúnunni standa
aldur til þess. og hugsa með löppunum.
Bit Bíllinn og ég
Oft á því Bílinn minn þekki ég
hef orðið bit út og inn
hvað aðrír höfðu og orsakir bilana
mikið vit. strax ég finn.
Og eins á hinu hve öll sú greind að óvitaheimsku varð í reynd. Afl hans ég þekki er ek ég um veg, - en ekki mig sjálfan. Hver er ég? Olafur Gíslason. (Höfundur býr að Neðrabæ í Arnarfirði. Stefin eru úr Stefja- bókinni Nýjar áttir ’89.)
Uppbygging
Ég er að byggja upp betri mann, Leikur í laufi
sá betrí maður
ég er hann.
En naumt miðar yfirbót
nöðrukyns
gegn niðurrifsstarfsemi
djöfulsins.
Leikur í laufi
sólroðinn vindur.
Hlustar á heimsins gný.
Hjalar við blöðin
kveður með kossi.
Hittumst við enn á ný?
UIla-May Rögnvaldsson.