Dagur - 14.12.1991, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 14. desember 1991
Stjörnuspá
Sigfús E. Arnþórsson
5?
An ábyrgöar
íí
T
•Hm+uP
21. mars - 19. apríl
Hrútarnir elska hasar og ætlir þú út í kvöld
færöu nóg af honum eftir miönætti. Á
morgun efnir þú til smáuppþota á heimil-
inu og á mánudag gerirðu byltingu í skól-
anum/vinnunni. Ekki er víst aö öll þessi
baráttugleði falli öllum jafn vel í geö, en þú
nýtur lífsins, enda gengur allt þér í haginn
þessa vikuna.
7\)au+
20. apríl - 20. maí
Þú nýtur lífsins í dag viö bakstur, jólafönd-
ur eöa aöra listræna sköpun. Á þriðjudag
eöa miövikudag lendir þú í veisluhöldum,
en annars er lítiö aö gerast. Nema í ásta-
málunum en þar eru einhver leyndarmál
að koma upp á yfirborðið. Uppgjör, tára-
flóð, ásakanir og alls óvíst aö persónutöfr-
arnir bjargi þér í þetta sinn.
n
Tvíb urar
21. maí - 20. júní
Þrátt fyrir erfiðan dag í dag og andsnúna
tilveru yfirleitt, gætir þú átt óvenju glaðan
dag á morgun og jafnvel á mánudag líka.
Það veröa óvæntar byltingar í gangi, sem
allar munu koma þér til góða. Eftir hádegi
á fimmtudag og reyndar á föstudag líka
verður þú svo alveg óvænt í sviösljósinu.
K^abbi
21. júní - 22. júlí
Dagurinn í dag veröur ánægjulegur í faömi
fjölskyldunnar viö laufabrauð „og klæöin
rauö“ og annan jólaundirbúning. Ætlir þú út
í kvöld vertu þá komin(n) heim upp úr miö-
nætti. Eftir þaö gætir þú lent í erfiðleikum.
Sama gildir um sunnudag og mánudag. Á
þriðjudagsmorgun léttir stríösástandinu og
viö taka veisluhöld fram á fimmtudag.
ál
Ljóia
23. júlí - 22. ágúst
Enn er stöðugur uppgangur á Ijónunum.
Þú verður í sviðsljósinu seint í kvöld og á
morgun færö þú alla athyglina sem laufa-
brauöið og föndriö áttu aö fá. Á mánudag
færðu svo verðskuldað hrós í vinnunni. A
þriðjudag og miövikudag þarftu aö sitja
undir einhverjum aðfinnslum en á fimmtu-
dag eða föstudag færðu gleöifréttir langt
aö.
W
JV[e.yja
23. ágúst - 22. september
í því skammdegismyrkri sem nú umlykur
meyjuna er ástin eina Ijósiö. Ástin og ná-
ungakærleikurinn sem nú birtist þér úr
ótrúlegustu áttum. Það er eins og einhver
dularfull öfl séu aö verki; allir eru reiðu-
búnir aö aðstoða. Dagurinn í dag veröur
erfiður, allt fer í vitleysu. Þriðjudagur og
miðvikudagur veröa skástu dagar vikunn-
ar.
fyrir vikuna14.~ 20. desember 1991
°9
23. september - 22. október
Haltu þig undir sæng eftir miönætti í
kvöld. Allt útstáelsi í nótt endar meö
ósköpum. Á morgun og á mánudag verö-
ur á þig ráðist hvar sem í þig næst. Látun-
um linnir á þriðjudagsmorgun, snemma.
Annars veröur vikan almennt hagstæð og
fimmtudag eöa föstudag færöu óvænta
heimsókn eða sendingu langt aö.
%
Spopðd peki
23. október - 21. nóvember
Þú siglir óvenju lygnan sjó þessa vikuna.
Það er helst aö eitthvað spennandi sé að
gerast í ástamálunum og það þá allt af
hinu góöa. Dagurinn í dag verður draum-
kenndur og þægilegur viö föndur, bakstur,
eöa jóla-eitthvaö. Á þriðjudag eða mið-
vikudag hleypir einhver peningalega sinn-
uö persóna (aurasál) í þig illu blóði. Smá-
mál.
IBogmachAV*
22. nóvember - 21. desember
Enn gengur bogmönnum allt í haginn. í
vinnunni jafnt sem á heimili er allt á ferö
og flugi og það er með ólíkindum hve bog-
menn geta verið á mörgum stöðum sam-
tímis. I dag reynir einhver að plata þig, en
upp úr miðnætti ferðu að hressast og dag-
urinn á morgun og mánudagur verða
hlaðnir óvæntum en ánægjulegum atvik-
um.
vr
S+eikvgeit
22. desember- 19.janúar
Dagurinn í dag verður óvenju ánægjuleg-
ur, en haltu þig innan dyra eftir miðnætti.
Á morgun og hinn verðurðu fyrir óvæntum
árásum, en þriðjudagur og miðvikudagur
fara í veisluhöld af ýmsum toga. Ástin
blómstrar hjá steingeitum í sambúð og
hinar einhleypu ættu að hafa augun hjá
sér þessa dagana.
Va+KvsbeH
T ▼ 20. janúar-18. febrúar
Ætlir þú út í kvöld get ég lofað miklu fjöri í
nótt. Sama gildir um morgundaginn og
mánudag, alls staðar er verið að lofta út og
byltingar eiga sér stað. Á þriðjudag og mið-
vikudag þarftu að glíma við einhverja þrjóska
persónu, en á fimmtudag eða föstudag
færðu góðar fréttir. Velgengnin helduráfram.
X
PiskaK
19. febrúar-20. mars
Dagurinn í dag er þinn dagur og í kvöld
munu margir ætla út að dansa. En um tvö-
leytið í nóttfertunglið inn í hrútsmerkið og
allt verður logandi í slagsmálum og gler-
brotum fram undir morgun. Eftir svona
laugardagskvöld eru blöðun alltaf stútfull
af æsifréttum. Hafðu vaðið fyrir neðan þig
og vertu komin(n) heim upp úr miðnætti.
Á GÓÐU VERÐI
Leyndardómar stjarnanna á myndbandi
Hvaða leyndardómar tengjast stjörnumerki þínu?
Bækur
Ráðgátan í
Barsmíðahúsi
Iðunn hefur gefið út bókina Ráð-
gátan í Barsmíðahúsi eftir Enid
Blyton og er þetta fimmta sagan
sem út kemur í þessum vinsæla
bókaflokki.
Það gengur stundum dálítið
mikið á þegar Snúður frændi og
hundurinn hans, Bjálfi, koma að
heimsækja Reyni og Dóru og for-
eldra þeirra í jólaleyfinu. En svo
heppilega vill til að vinur krakk-
anna, sirkusstrákurinn Bjarni,
hringir og býður þeim að dvelja
með sér í gömlu húsi uppi í fjöll-
um - Barsmíðahúsi. Þau hafa
ekki verið þar lengi þegar undar-
leg högg fara að heyrast inni í
húsinu. Enginn veit hvaðan þau
koma, og ráðskonan segir að
meira en hundrað ár séu síðan
þessi dularfullu högg heyrðust
síðast í Barsmíðahúsi. Og þegar
allt fer á kaf í snjó og síminn bilar
verður krökkunum ljóst að þau
verða að ráða þessa undarlegu
gátu á eigin spýtur.
Álfheiður Kjartansdóttir
þýddi.
Pétur prakk-
ari og hesta-
þjófamir
Út er komin hjá bókaútgáfunni
Stofni barnabókin Pétur prakkari
og hestaþjófarnir. Sagan er eftir
rithöfundinn góðkunna, Tryggva
Emilsson, en myndir eru eftir
Grétu V. Guðmundsdóttur.
í Pétri prakkara og hestaþjóf-
unum segir frá því að landsfræg-
um kappreiðahestum hefur verið
rænt. Pétur prakkari og vinir
hans fá það verkefni að finna þá
og skila þeim heilum heim.
Krakkarnir lenda í ótal ævintýr-
um og hættum því í ljós kemur að
hestarnir eru í tröllahöndum.
Sagan er spennandi og prýdd
fallegum litmyndum.
Hverri bók fylgir fjölskylduspil
í kaupbæti sem heitir Leitin að
týndu hestunum. Þeir sem spila
það lenda í svipuðum ævintýrum
og Pétur prakkari og vinir hans í
sögunni.
Tryggvi Emilsson er þekktast-
ur fyrir æviminningar sínar,
Fátækt fólk, Baráttuna um
brauðið og Fyrir sunnan. Eftir
hann hafa einnig komið út skáld-
sögur og ljóðabækur. Pétur
prakkari og hestaþjófarnir er
fyrsta barnabók Tryggva.
Gréta V. Guðmundsdóttir er
ungur myndlistarmaður. Þetta er
fyrsta barnabókin sem hún
myndskreytir.
Pétur prakkari og hestaþjóf-
arnirer 32 blaðsíður að stærð, öll
litprentuð í stóru broti.
Leyndarmál
gamla hússíns
Leyndarmál gamla hússins er tit-
ill nýrrar skáldsögu fyrir börn og
unglinga eftir Heiði Baldursdótt-
ur. Þetta er þriðja bók Heiðar,
en fyrsta bók hennar, Álaga-
dalurinn, hlaut íslensku barna-
bókaverðlaunin árið 1989.
Á bókarkápu Leyndarmats
gamla hússins segir svo: „Guðrún
er nýflutt í borgina úr litlu þorpi
utan af landi. Þar kynnist hún
fljótt krökkunum Björk, Gunn-
ari, Jóhönnu og Arnari og fyrr en
varir lenda þau í dularfullum
atburðum. Leyndarmál gamla
hússins er spennu- og ævintýra-
sága fyrir börn og unglinga eins
og þær gerast bestar. Heiður
Baldursdóttir kemur enn á óvart
og skipar sér á bekk með fremstu
höfundum barna- og unglinga-
bóka á íslandi.“