Dagur - 14.12.1991, Blaðsíða 14

Dagur - 14.12.1991, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Laugardagur 14. desember 1991 Dulspeki Einar Guðmann Spuming um jafnvægi foreldrahlutverkið og andleg iðkun Það að feta hinn gullna með- alveg getur verið erfitt þegar reynt er að halda jafnvægi á milli vinnu, fjölskyldulífs og reglulegra æfinga. Það að slaka á og snúa sér inn á við er nauðsynlegt til þess að ná þeim andlega skýrleika sem þarf til þess að takast á við það sem lífið ber æði oft með sér. Það er hins vegar vanda- mál fyrir fjölskyldufólk að finna tíma sem hægt er að nota til að iðka í friði yoga- æfingar, öndunaræfingar, hugleiðslu eða hvað svo sem menn stunda. Þeir sem stund- að hafa einhverjar reglulegar æfingar í þessa áttina kannast við það hve gott það getur verið að geta haft daglega frið við að stunda hugleiðslu t.d. Þegar börnin bætast hins veg- ar við fer aftur á móti allur auka tími í að sinna þeim og þá er annað uppi á teningn- um. Þetta kannast þeir við sem hafa stundað yoga og gerast síðan fjölskyldumenn. Menn hafa þá velt fyrir sér hvort virkilega sé hægt fyrir foreldra að stunda yoga reglulega. Fyrir ekki alls löngu rakst ég á grein þar sem talað var um hina fornu Veda og aðferð þeirra hvað fjöl- skyldufólk varðaði. Út frá sjónarmiði yogans er greini- legt að foreldrahlutverkið er gífurlegt tækifæri til persónu- legrar umbreytingar. Hefð Vedanna gerði ráð fyrir því að lífið skiptist niður í fjögur stig: Nema, fjölskyldumann, skógarbúann sem er einsetu- maður og síðast flakkandi meinlætamann. Hægt er að líta á líf mannsins sem skóla þar sem hvert stig lífsins gef- ur tækifæri til að læra eitt- hvað sérstakt. Það að vera! „nemi“ í skóla er ætlað til þess að móta bæði persónu- leikann sem og líkama og sál. Það stig hins vegar að gerast Þeir sem stunda erilsama vinnu og þurfa ýmsu að sinna, ætttu að hugsa til trúðsins í fjöileikahúsinu. Hann heldur sex appelsínum á lofti í einu, en grípur einungis eina eða tvær í senn. fjölskyldumaður með allri þeirri ábyrgð og skyldum sem því fylgir, felur í sér tækifæri sem og þörf til þess að afneita öllum persónulegum löngun- um og óskum og snúa allri einbeitni að því að fullnægja þörfum annarra. Það að tak- ast á við hlutverk fjölskyldu- mannsins með réttu hugarfari hjálpar til við að moka allri eigingirni út úr sjálfinu. í hefðum Vedanna var þriðja stigið - einsetustigið - brú á milli einsetumannsins og meinlætamannsins. Ein- setumaðurinn bjó ekki í skóginum til þess að forðast alla ábyrgð og skyldur heldur til þess að minnka allt sem truflar sjálfsrannsókn hans. Það að hugsa um þessar hefðir Vedanna hjálpar mönnum að líta á andlega iðkun út frá víðara sjónar- sviði sem miðast frekar við að hugsa um andlega þróun út frá allri ævinni en ekki andar- takinu. Ástundun yoga eða hug- leiðslu felst ekki einungis í því að iðka reglulega æfingar, heldur það að gefa af sér. Einhvern tímann sagði yogi við mig að maður sem iðkaði yoga til þess að geta verið fær um að gefa af sér til annarra og umheimsins væri að iðka yoga í hinum eina rétta til- gangi. Þar er ekki tilgangur- inn sá einn að geta tekist bet- ur á við lífið eða það að þroska sjálfan sig. Hægt er að senda frá sér jákvæðar, frið- sælar og þroskandi „bylgjur“ til annarra hvert á land sem er. Með alla ævina í huga þá er sá tími sem við erum foreldr- ar ekki langur. Hins vegar felur sá tími í sér mikla þroskamöguleika. Hins vegar er svarið við tímaleysinu í foreldrahlutverkinu ekki það að fresta allri yogaiðkun þar til komið er á fimmtugs eða sextugsaldurinn. Yoga eða andleg iðkun hvaða nafni sem hún á að nefnast á að vera heildræn. Nauðsynlegt er að skapa ákveðið jafnvægi sem gerir kleift að iðka það sem óskað er eftir. Til þess að koma á slíku skipulagi þarf að prófa sig áfram. Lausnin kann að felast í því að athuga hvort það nægi að sofa hálf- tíma minna eða koma á sam- komulagi við makann um að deila niður tíma til iðkunar. Þeir sem stunda erilsama vinnu, hafa stóra fjölskyldu eða þurfa mörgum tímafrek- um störfum að sinna ættu að hafa í huga að það að koma mörgu í verk krefst þess að menn líti á sig eins og trúð í fjölleikahúsi. Hann hendir sex appelsínum upp í loftið og heldur þeim öllum gang- andi á milli handana í einu. Hann grípur einungis eina eða tvær appelsínur í einu en allar haldast þær á lofti. Úr gömlum degi Sterku vínin Hér á Akureyri hófst vínsalan í fyrradag. Alls seldist fyrir 985 krónur þann dag. Er það tæpur 25-eyringur á hvern bæjarbúa, en hlutfallslega um þrisvar sinnum minna en í Reykjavík og um sex sinnum minna en á Siglufirði, sé sú fregn sönn, er hér gekk í gær, að þar háfi verið selt áfengi fyrsta daginn fyrir um 3000 krónur. Mjög Íítið mun hafa borið hér á ölvun í fyrradag, að undantekn- um nokkrum mönnum, er um miðnæturleytið létu nokkuð hávært á sér bera í miðbænum. - Er vonandi að sú verði raunin á, að áfengisnautn aukist hér eigi sjáanlega, eða a.m.k. raunveru- lega, þrátt fyrir löglega aðkomu hinna sterkustu áfengistegunda. (14. febrúar 1935) Sprenging á Siglufirði Á mánudagsmorguninn var sprakk miðstöðvarofn í búð Hall- dórs Jónssonar á Siglufirði og eyðilagði vörur o.fl., svo að met- ið er til meira en 1800 króna. Sem betur fór varð manntjón ekkert, því að enginn bjó í hús- inu, en sprengingin varð um 10 mínútum áður en komið var í búðina. Eigi hafa menn hugmynd um orsök sprengingarinnar, en engum kvað detta í huga að hún hafi orðið af mannavöldum. (7. febrúar 1935) Röskur unglingur Fyrir skömmu hermdi útvarps- fregn frá Blönduósi, að Sigurgeir bóndi Björnsson frá Orrastöðum á Ásum hefði ætlað að stytta sér leið með því að ríða Laxárvatn á ísum. í för með honum var ungl- ingsstúlka, Torfhildur Hannes- dóttir, 13 ára að aldri. Allt í einu brast ísinn undan fótum hestanna og féllu þeir í vatnið. En um leið kastaðist Torfhildur fram af hest- inum og upp á skörina. Náði hún síðan hendi til Sigurgeirs og hjálpaði honum upp úr vökinni. Sendi hann hana þegar til næsta bæjar eftir hjálp, en reyndi sjálf- ur á meðan að halda hestunum upp úr við vakarbarminn. Er hjálpin kom, hafði Sigurgeir misst annan hestinn undir ísinn og fórst hann þar auðvitað. Hin- um varð bjargað. Telur Sigur- geir, að hann myndi tæplega, eða alls ekki hafa bjargazt einn úr vökinni. (28. mars 1935) Alltaf í huga mér Lítum þá á auglýsingu frá Nýja bíói. Það er myndin Alltaf í huga mér, tal- og hljómmynd í 10 þátt- um sem er á hvíta tjaldinu. Með aðalhlutverk fara Barbara Stan- wyck og Otto Kriiger. í auglýs- ingunni er vitnað í Akureyring sem segir svo frá: „Eg sá þessa mynd í einu stærsta kvikmyndahúsi Kaup- mannahafnar nýlega. Undir eins í fyrsta þætti myndarinnar ríkti í húsinu hátíðleg kyrð, og var auð- fundið að myndin hertók hugi áhorfendanna, sem voru fjölda margir. Eg hefi enga mynd séð fegurri - rómantískt ástaræfintýri - hamingjusamt heimili. Enga mynd séð áhrifaríkari - áhyggjur, stríð og sorg, allt listavel leikið, enda mátti sjá á hverju einasta andliti hve djúp sálræn áhrif myndin hafði á áhorfendur. - Myndin biður um frið - frið milli allra þjóða. Ef hann fáist ekki, muni þjóðirnar tæma þann eitur- bikar, er ríði þeim að fullu án til- lits til alls þjóðernis.“ (16. maí 1935) Fjórtánda konan Hinn aldraði, tyrkneski heiðurs- maður, Zaro Aga, sem nú er 159 ára, og almennt er talinn elztur allra núlifandi manna, er nú á biðilsbuxunum í 14. sinni á æfinni. Sú tilvonandi er fertug blómarós. En af því að gamli maðurinn þykist ekki hafa nægar tekjur til þess að framfleyta nýrri fjölskyldu, þá hefir hann sent bæjarstjórninni í Istanbul (Konstantínopel) beiðni um að tvöfalda ellistyrk sinn. Annars er sá aldraði við beztu heilsu og hinn sprækasti. (19. apríl 1934) SS tók sarnan

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.