Dagur - 14.12.1991, Blaðsíða 26
26 - DAGUR - Laúgardagur 14. desember 1991
Bókhald/tölvuvinnsla
Bókhald fyrir fyrirtæki og einstaklinga, svo sem fjár-
hagsbókhald, launabókhald, VSK-uppgjör og fjár-
hagsáætlun.
Aðstoða einnig tímabundið við bókhald og tölvu-
vinnslu.
Tek líka að mér hönnun tölvuforrita, hvort sem er til
notkunar hjá fyrirtækjum, við félagsstarfsemi eða til
einkanota.
Rolf Hannén, sími 27721.
Iþróttir
Kennari!
Kennara vantar í heila stöðu að Barna-
skóla Sauðárkróks, vegna forfalla, frá
áramótum í tvo til þrjá mánuði.
Upplýsingar gefa yfirkennari og skólastjóri í síma
95-35178 á skólatíma eða heimasímum 95-25848
og 95-35254.
Kennarar - Kennarar
Frá næstkomandi áramótum vantar kennara að
Sólgarðsskóla í Eyjafjarðarsveit.
Um er að ræða kennslu yngri barna (1. og 2. bekkur)
og handmennt.
Húsnæði í boði.
Umsóknarfrestur til 20. desember.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 96-31330.
heimili oldraðra
Fótasnyrtir
Dvalarheimilið Dalbær óskar eftir að ráða fóta-
snyrtisérfræðing.
Góð vinnuaðstaða, vinnutími eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Ingimundardóttir for-
stöðumaður í síma 61379 eða 63140.
Frá Frá Frá Frá
Húsavík Akureyri Húsavík Akureyri
lau. 14. des. 10.00 17.00 mið. 25. des. engin ferð
sun. 15. des. 17.00 19.00 fim. 26. des. engin ferð
mán. 16. des. 8.00 16.00 fös. 27. des. 8.00 16.00
þri. 17. des. 10.00 16.00 lau. 28. des. engin ferð
mið. 18. des. 8.00 16.00 sun. 29. des. engin ferð
fim. 19. des. 10.00 16.00 mán. 30. des. 8.00 16.00
fös. 20. des. 8.00 16.00 þri. 31.des. engin ferð
lau. 21.des. 10.00 17.00 mið. Ljan. engin ferð
sun. 22. des. 17.00 19.00 fim. 2.jan. 8.00 16.00
mán. 23. des. 8.00 16.00 fös. 3. jan. 8.00 16.00
þri. 24. des. engin ferð og síðan venjuleg vetraráætlun.
Desembertilboð!
20% afsláttur af almennum fargjöldum.
50% afsláttur fyrir börn 11 ára og yngri.
Athugið! Gildir aðeins ef keypt er „fram og til baka“
Frábær frammistaða
BJORN SIGURÐSSON - HUSAVIK
Garðarsbraut 7 - 640 Húsavík- Sími 96-42200 - Fax 42201
Jólaáætlun 1991
Sérleyfisferðir Húsavík-Akureyri-
Húsavík
Það er sjálfsagt ekki á neinn
hallað þótt sagt sé að FH-ingar
hafi allt að því stolið sigri á Þór
í 8 liða úrslitum bikarkeppn-
innar í handknattleik á Akur-
eyri á fimmtudagskvöldið.
Lokatölurnar urðu 28:29 og
tókst Þórsurum að velgja efsta
liði 1. deildar svo undir uggum
að tvær framlengingar þurfti til
að knýja fram úrslit og þegar
þau loksins fengust var varla
hægt að tala um að þau væru
sanngjöm. Þórsarar fengu fjöl-
mörg tækifæri til að gera út um
leikinn en þrátt fyrir að það
hafi ekki tekist er ástæða til að
óska liðinu til hamingju með
þennan frábæra leik. Hver
hefði trúað því að FH-ingar
myndu stíga villtan dans af
fögnuði þegar þeir væru búnir
að ieggja 2. deildarlið að velli?
Þórsliðið hefur sýnt og sannað
að það er reiðubúið í 1. deild-
ina og það verður mikið slys ef
það leikur ekki þar á næsta ári.
Kristján Arason, þjálfari FH,
var ánægður með sigurinn og
sagði leikinn hafa verið mjög erf-
iðan. „Við spiluðum kannski
ekki eins og við gerum best en
þeir léku mjög vel og það er synd
að þetta lið sé fallið út úr keppn-
inni. Þeir spila eins og gott 1.
deildarlið, agaðan og skemmti-
legan handbolta, og ég er virki-
lega hrifinn af þeim,“ sagði
Kristján.
Leikurinn var jafn fyrstu mín-
úturnar en um miðjan fyrri hálf-
leik voru FH-ingar greinilega
búnir að ná undirtökunum og
höfðu á tímabili 4 marka forskot.
Þórsarar tóku hins vegar mikinn
endasprett og staðan í hléi var
13:14.
í seinni hálfleik léku Þórsarar
enn betur og munaði þar mestu
um að vörnin fór að láta finna
fyrir sér og Hermann byrjaði að
verja eins og berserkur í mark-
inu. Liðið jafnaði leikinn, 18:18,
eftir 14 mínútur og þegar á leið
virtist Þór ætla að standa uppi
sem sigurvegari. Þegar þrjár
mínútur voru til leiksloka var
staðan 22:20 fyrir Þór og liðið
með boltann en þá fór reynslu-
leysið að segja til sín. FH-ingar
náðu að minnka muninn í 1 mark
rúmri hálfri mínútu fyrir leikslok
og Þórsarar hófu sókn. En í stað
þess að reyna að „fiska“ aukakast
til að vinna tíma lét liðið dæma á
Ole Nielsen átti frábæran leik fyrir Þór og skoraði 9 glæsileg mörk. Hér er
eitt þeirra í fæðingu og Hans Guðmundsson kemur engum vörnum við.
Mynd: Golli
sig töf og Hans Guðmundsson
jafnaði leikinn 7 sekúndum fyrir
leikslok og flautað var til fram-
lengingar. Það er skemmst frá
því að segja að hún var í járnum
allan tímann en FH-ingar náðu
að jafna 25:25 á síðustu sekúnd-
unum og framlengja varð aftur.
Þórsarar voru þá komnir yfir
28:27 en FH-ingar jöfnuðu og
Hans Guðmundsson skoraði svo
sigurmarkið fjórum sekúndum
fyrir leikslok. Tæpara mátti það
ekki standa og úrslitin hefðu sem
best getað orðið önnur, ekki síst
ef Þórsarar hefðu ekki misnotað
5 af 6 vítaköstum sem þeir fengu.
Þrátt fyrir ósigurinn var Jan
Larsen, þjálfari Þórs, ánægður
með leik sinna manna. „Strák-
arnir sýndu að þeir geta spilað
góðan handbolta og ég er ánægð-
ur með frammistöðu þeirra. Við
fengum tækifæri til að klára þetta
Systir okkar og mágkona,
BIRNA INGIMARSDÓTTIR,
sem andaðist miðvikudaginn 11. des verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 16. des. kl. 13.30.
Þórdfs Ingimarsdóttir,
Arnþrúður Ingimarsdóttir, Jón Kristinsson,
Halldóra Ingimarsdóttir, Jóhann G. Benediktsson,
Oddný Ingimarsdóttir,
Jóhann Ingimarsson, Guðrún Helgadóttir,
Ingimar Ingimarsson, Sigríður Sigurgísladóttir.
Þá rauður
loginn brann
Viðtöl Haraldar Jóhannssonar vió
ýmsa forystumenn sósfalisma og
verkalýóshreyfingar, lífs og lióna
en þeir fengu líka sín færi. Aðal-
atriðið er við náðum að sýna að
við erum með gott lið og getum
gert góða hluti þegar við fáum
stuðning. Akureyringar geta
eignast tvö 1. deildarlið og von-
andi fáum við stuðning til að gera
það að veruleika."
Það eru ekki mörg lið sem hafa
náð að standa uppi í hárinu á FH-
ingum í vetur og það eitt er afrek
hjá 2. deildarliði. Þórsliðið lék
frábærlega í sókninni allan
tímann, vörnin var svolitla stund
í gang en mjög sterk þegar á leið.
Liðsheildin er eitt sterkasta vopn
Þórsara en ekki verður hjá því
komist að nefna tvo menn sér-
staklega, Ola Nielsen og Her-
mann Karlsson, sem báðir léku
geysilega vel.
Hjá FH var Kristján mjög
sterkur og ógnandi og Hans var
drjúgur, sérstaklega á lokamínút-
unum. Þess má geta að Berg-
sveinn Bergsveinsson, markvörð-
ur, fékk skot í höfuðið og var
fluttur á sjúkrahús í upphafi seinni
hálfleiks. Haraldur Ragnarsson
tók stöðu hans og stóð sig vel.
Mörk Þórs: Ole Nielsen 9, Sævar Árna-
son 7, Rúnar Sigtryggsson 4, Atli Rún-
arsson 3, Jóhann Samúelsson 3/1, Ingólf-
ur Samúelsson 2. Hermann Karlsson
varði 14/1 skot.
Mörk FH: Hans Guðmundsson 11/4,
Kristján Arason 7/1, Hálfdán Þórðarson
3, Sigurður Sveinsson 2, Gunnar Bein-
teinsson 2, Pétur Petersen 2, Þorgils Ótt-
ar Mathiesen 2. Haraldur Ragnarsson
varði 13/2 skot og Bergsveinn Berg-
sveinsson 5/3.
Dómarar: Guðmundur Stefánsson og
Arnar Kristinsson. Voru mikið í sviðs-
ljósinu og það kann sjaldnast góðri lukku
| að stýra. Eiga að geta mun betur.
BBókaútgáfan
Hildur
AUÐBREKKU 4 - 200 KÓPAVOGUR
SÍMAR 91-641890 0G 93-47757