Dagur - 04.01.1992, Qupperneq 5
Laugardagur 4. janúar 1992 - DAGUR - 5
Efst í huga
Svavar Ottesen
Væntiþess að nýja árið
verði gott og gjöfult
Þaö sem flestum er efst í huga á nýju
ári er hvaö áriö ber í skauti sér og hvaö
hæst ber í minningunni um áriö sem
var aö kveðja.
Ársins 1991 verður eflaust minnst í
mannkynssögunni sem ársins er
skipulag kommúnismans hrundi til
grunna og stór-Rússland leið undir lok,
en í staðinn koma mörg sjálfstæö ríki,
sem sennilega hafa nána samvinnu í
mörgum málum. Innanlands er sjálf-
sagt efst í huga fólks stjórnarskiptin á
árinu og gjörbreytt stefna í mörgum
málum, sem valdiö hefur miklum deil-
um í þjóöfélaginu, sem ekki er séö fyrir
endann á.
Það er í sjálfu sér ekkert óeölilegt við
það aö skipt sé um ríkisstjórn aö
afloknum kosningum. Þaö er eðli lýö-
ræöisins. Hitt er miklu alvarlegra aö
stjórnmálamenn geri allt annaö en lof-
að var fyrir kosningar. Því var lofað fyrir
kosningar aö skattar hækkuöu ekki,
persónuafsláttur yröi hækkaður og kjör
fólks almennt myndu batna. En því
miður hefur ekkert af þessu ræst. Held-
ur hafa efnahagssérfræöingarnir
keppst viö undanfarna mánuöi aö
draga upp þá dekkstu mynd af því sem
framundan er í efnahagsmálum þjóö-
arinnar á þessu nýbyrjaða ári. Þá hafa
landsfeöurnir ekki látið sitt eftir liggja
og málað skrattann á vegginn. Nú er
svo komið aö mörgum málsmetandi
mönnum í þjóðfélaginu þykir alltof
langt gengiö í bölsýnisspánum og
benda réttilega á aö íslendingar hafa
margoft á undanförnum áratugum orö-
iö fyrir barðinu á aflasamdrætti og ann-
arri óáran og alltaf unniö sig út úr vand-
anum. Þaö sem fer mest í taugarnar á
láglaunafólki er þegar máttarstólpar í
þjóöfélaginu eru kallaöir til í sjónvarpi
til aö lýsa erfiðleikunum og segja aö
allt sé svart og menn veröi aö heröa
„ólarnar". Yfirleitt eru þessir ágætu
menn meö 400-800 þús. kr. laun á
mánuöi og draga verður stórlega í efa
aö þeir hafi hugmynd um hvað þeir eru
aö segja, þegar þeir eru aö tala niöur til
láglaunafólksins og segja því aö draga
saman seglin. Væri ekki ráð fyrir fjöl-
miölafólk aö ræða viö fólk meö 60-80
þús kr. mánaðarlaun og spyrja þaö aö
því hvernig það nái endum saman?
Ef viö lítum okkur næst hér á Eyja-
fjaröarsvæöinu, þá er þaö trú mín,
þrátt fyrir allar svartsýnisspár, aö þetta
nýja ár veröi okkur gott og gjöfult.
Sannleikurinn er nefnilega sá aö
undangengin ár hefur enginn upp-
gangur veriö á þessu svæöi og fólk er
því undir þaö búiö aö lifa viö ástandið
eins og þaö er. Og þrátt fyrir allt hefur
fólki fjölgaö á svæðinu og menn hafa
lítinn hug á aö flytja á suðvesturhornið.
Fjölmiðlar
Þiöstui Haraldsson
Vaöið úr einu í annaö
í upphafi árs
Um hátíðirnar fara fjölmiölarnir í sparifötin og
sýna bestu hliðar sínar. Einkum á þetta við um
Ijósvakamiðlana því blöðin eru oftast uppfull af
skylduefni á borð við jólagátur, annála og upp-
talningar á því hvar hægt er aö fá ýmsa þjónustu
þessa háheilögu daga. Allt er þetta vissulega
hið besta efni en þrengir óneitanlega að mögu-
leikum blaðanna á að gera sérstaklega vel við
lesendur sína um hátiðina.
En ég var að tala um spariföt og sú einkunn
átti afar vel viö Sjónvarpið okkar allra. Þar var
dagskráin mjög vönduð og hlutur innlends efnis
stór. Þar stendur að mínum dómi hæst mynd
sem gerð var um myndlistarmanninn Sverri Har-
aldsson og sýnd sunnudaginn milli hátíða. Þar
voru áhugaverðu lífshlaupi gerö verðug skil. Og
af erlendu efni hlýt ég að nefna hina skandínav-
ísku framhaldsmynd í góðu skyni eftir þá meist-
ara Bille August og Ingmar Bergman. Þessir
þættir voru í sama flokki og það efni sem mér
hefur fundist hvað best í sjónvarpinu, Fanny og
Alexander eftir téðan Bergman og hina dönsku
sápu Matador. í þeim hefur fariö saman gott
handrit, afbragðs leikur og falleg myndataka,
sum atriöín sem við fengum aö sjá um hátíðina
voru hreinasta augnakonfekt.
Ég sá ekki nema hluta af áramótaþætti Rásar
tvö og Sjónvarpsins á gamlársdag en það sem
ég sá réttlætti fyllilega flutning þessara ágætu
uppgjörsþátta af rásinni yfir á skerminn. Forset-
inn stóö fyrir sínu að vanda og pólitíkusarnir
reyndu að vera afslappaöir og mannlegir og
tókst það öllum nema fslendingi ársins, hann sat
pikkfastur í fortíðarvandanum.
Og svo var það áramótaskaupið, þessi
ómissandi partur af því aö vera íslendingur. Að
vanda var þar að verki landsliöiö úr leikarastétt
undir stjórn Ágústs Guðmundssonar. Það voru
gömlu mennirnir sem slógu í gegn, Rúrik og
Gísli voru hreint óborganlegir sem aldurhnignir
popparar. f heild var skaupið í sæmilegu meðal-
lagi en á mínum bæ þótti mönnum stjórnmála-
menn vera einum of plássfrekir, það er hægt að
hlægja að ýmsum öðrum en þeim.
Og vendi ég þá mínu kvæöi i kross. Nú er
komið nýtt ár og farið að sfga á seinnihluta þess
tíma sem stjórn Nýmælis hf. gaf sjálfri sér til
þess að búa til nýtt blað. Ef marka má áramóta-
ávarp Steingríms Hermannssonar í Tímanum er
kominn einhver kengur í þær umræður og á
honum að heyra að ekki sé eins líklegt og áöur
að nýja blaðið verði að veruleika.
Reyndar hefur teiknum um það fjölgað að
undanförnu aö erfiðlega gangi að koma krógan-
um á koppinn. Stjórn Stöövar 2 féll frá því að
fjárfesta I nýja blaðinu þótt ekki væri lokað fyrir
það aö einstakir hluthafar gerðu það. Eins var
haldið opnum möguleikanum á að Stöö 2 semji
við nýja blaðið um að dreifa Sjónvarpsvísi
hennar með helgarblaðinu.
Ráðstafanir Framsóknarmanna vegna útgáfu
Tímans eru þó enn merkilegri. Enn er talað um
nýja blaðiö sem raunhæfan möguleika en samt
er skipt um ritstjóra og boöað aö nú skuli hafin
herferö til söfnunar nýjum áskrifendum. Jafn-
framt er stofnaö nýtt hlutafélag um reksturinn og
peningum eytt I að flikka upp á útlit blaðsins.
Ég játa það að þetta er stjórnkænska sem er
ofar mínum skilningi. Hvað er ætlunin að bjóða
nýjum áskrifendum Tímans? Er veriö aö selja
þeim blaö sem kannski hættir að koma út eftir 3-
4 mánuði? Og ef meiningin með því aö stofna
nýtt hlutafélag er að minnka ítök flokksins I blað-
inu, hvers vegna er þá ákveðið um leið aö láta
þingmenn skipta meö sér verkum viö ritstjórn?
líklegasta skýringin á þessu dularfulla and-
láti og upprisu Tímans er sú að útgefendur hans
hafi misst trúna á að nokkuö veröi úr stofnun
nýja blaösins. Þeim lýst aö öllum líkindum held-
ur dapurlega á aö stofna blaö með útgefendum
Þjóöviljans og Alþýðublaösins einum saman.
Fái nýja blaðið ekki víðari grundvöll en flokks-
blöðin þrjú er hætt viö því aö þaö verði ekki sú
löngu tímabæra endurnýjun á íslenskum blaöa-
markaöi sem beðiö hefur verið eftir. Kannski
væri leiðin að gera Nýmæli aö almenningshluta-
félagi og boða opinn fund. Þaö hefur stundum
gefist vel.
Vorönn
Hljómskólans
Vikuna 6.-10. jan.
hefst innritun
á vorönn skólans.
Innritun fer fram á skrifstofu skólans Gránufélags-
götu 4 (JMJ húsið) á III. hæð milli kl. 9 og 17. Sími
skólans er 11880.
Nemendur sem stunda nám við skólann og ætla að
halda áfram námi á vorönn eru beðnir að staðfesta
eldri umsóknir tímanlega með greiðslu eða greiðslufyr-
irkomulagi.
Annaskipti skólans eru 25. janúar 1992.
Kennt verður í eftirfarandi greinum:
Fornám
Tónföndur frá 4-7 ára - Kennari: Örn Viðar.
Klassískur gítar frá 4 ára - Kennarar: Örn Viðar og Halldór Már.
Rafgítar frá 8 ára - Kennari: Kristján Edelstein.
Þjóðlagagítar frá 12 ára - Kennarar: Örn Viðar og Sigríður Arnar.
Hljómborð frá 8 ára - Kennari: Kristján Edelstein.
Trommur frá 10 ára - Kennari: Karl Petersen.
Hliðargreinar 6.-8. stig - Kennari: ívar Aðalsteinsson.
Enn er verið að athuga kennslu á rafbassa og munnhörpu,
auglýst síðar.
Sérstök áhersla verður lögð á fullorðins kennslu á vorönn
skólans á dægurlagabrautum (gítar, hljómborð).
Visa - Euro - Samkorta þjónusta.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Laus er staða sérfræðings
við Barnadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri.
Staðan veitist frá 1. febrúar nk. í 6 mánuði.
Umsóknum skal skilað til framkvæmdastjóra sjúkra-
hússins fyrir 15. janúar nk.
Allar frekari upplýsingar veitir Baldur Jónsson yfir-
læknir í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Starf meinatæknis
við Meinafræðideild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar n.k.
Frekari upplýsingar veitir Þorgeir Þorgeirsson yfir-
læknir og Fanney Kristbjarnardóttir deildarmeina-
tæknir.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
MARKAÐSSTJÓRI
Folda h.f. á Akureyri er nýtt opið hlutafélag, sem
starfrækir tvær framleiðsludeildir, fatadeild og vef-
deild. Starfsmannafjöldi er rúmlega 130. Stærsti
hluti framleiðslunnar fer til útflutnings.
Við leitum að markaðsstjóra fyrir fatadeild. Æski-
legt er að umsækjandi hafi reynslu í markaðssetn-
ingu og sölu erlendis og hafi háskólapróf í viðskipta-
fræði, markaðsfræöi eða hliðstæðu námi.
Þeir sem áhuga hafa eru beðnir að senda umsókn
til:
Folda h.f.
„Markaðsstjóri“
Pósthólf 100, 602 Akureyri.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál
og öllum umsóknum svarað. Umsóknarfrestur er til
15. jan. nk. Nánari upplýsingar veitir Baldvin Valde-
marsson, framkvæmdastjóri i sima 96-21900.