Dagur - 04.01.1992, Page 11

Dagur - 04.01.1992, Page 11
Laugardagur 4. janúar 1992 - DAGUR - 11 Börn sr. Þórhalls, f.v. Björg, Anna Krlstín og Höskuldur Þór. Texti: Jóhann Ólafur Halldórsson Aðalmynd: Golli Þórhallur og Þóra Steinunn sátu á Mööruvötlum á 14 ár. koniið að l'ólk lítur þaft útgönguleið frá vantla sínum að leysa upp hjónahandið til að auka ráðstöfunartekjur sínar. einu leiðina til að hjarga sér og sínum að sundta fjölskyldunni. eins og hefur orðið hlutskipti æ fleiri í seinni tíð. þá sé eitthvað mikið að. Við höfuni í sannleika sagt ekki haft nokkra stefnu. Islendingar. í fjölskyldumálum og síst þá að miða þær leikreglur sem við setj- um við þá forsendu að fjölskyldan geti lifað af. Eða livers á sá að gjalda sem verður til- neyddur að sæta því að skuldir lians rjúka upp úr öllu valdi m.a. af því að ríkið þarf að auka tek jur sínar með hækkuðum þjónustugjöldum eða hækkun á söluvörúm svo sem áfengi og tóbaki. sem hækkar framfærsluvísitöluna og síðan lánskjaravísitöluna og þar með lánin. Og enn virðist eiga að beita sömu úrræðum? Og hvers á sá að gjalda sem vegna fram- færsluskyldu á fjölskyldu en um leið skammarlega lágra launa verður tilneyddur að taka ián með þei.m afarkostum sem héreru. en er svo fyrr en varir kominn á uppboð með'allt sitt þrátt fyrir þrotlaust strit og í mörgum til- fellum einnig neyslu sem aðeins er brot af því sem húsbóndi lians leyfir sér? Við búum betur en margir aðrir og við eig- um góða stjórnarskrá. islendingar. En hvers virði er t.d. ákvæðið um friðhelgi heimilisins þegar ofurvaldi mammons hefur verið tryggð- ur forgangsréttur til að ganga með fjárkröfur inn á innsta gatl heimilisins og rýja tjölskyld- urnar jafnvel öllu nema sængurfötum og rúm- stæðinu einu? Og hvers virði er ákvæðið um eignaréttinn þegar unnt er færa svo til eignir eftir blindu og sjálfvirku lögmáli. sem lolk getur engin áhrif haft á. þangað til það er að lokum öllu svift. I gjaldþrotalögum flestra vestrænna ríkja eru þau takmörk sett til vernd- ar tjölskyIdunni. að eftir standi a.m.k. lág- marks húsnæði og viðurværi fyrir fjölskyld- una - nema hér." Eg óttast þó að þessi mamnionsdýrkun síðustu ára. sem hefur sett peningana og hin peningalegu gildi á óhagganlegan goðastall. hafi þegar valdið svo geigvænlegri eignatilfærslu í landinu og rýrt svo hlut heimilisins og fjölskyldunnar. a.m.k. hjá þorra almúgafólks, að seint verði skaðinn bættur og seint brúað milli ríkra og fátækra með öllum þeim félagslegu vanda- málum sem því kann að fylgja, hvað þá ef við ætlum að halda áfram á sömu braut.? - Ég kalla á ábyrgð stjórnvalda og löggjafans að þessu leyti. Ég kalla á ábyrgð bankakerfisins og annarra lánastofnana. Ég kalla á ábyrgð allra þeirra sem vita innst inni að þetta getur ekki gengið svona mikið lengur.” Hvað er til ráöa? ,.Jú. við þurfum í fyrsta lagi annað verðmæta- mat en það sem mælir lífshamingjuna á vog- arskálum peninga. vaxta og verðbóta. Við þurfum að breyta viðhorfinu til heimilisins og vinna uppeldishlutverkinu og umönnunar- störfum á heimilinu virðingar á ný og al- mennrar viðurkenningar. Framtíðina sé ég hjá heimilunum og í þeim störfum sem þar verða unnin en ekki í því að reisa nýjar og nýjar stofnanir fyrir unga sem gamla, sjúka og fatl- aða. Hin kristnu lífsgildi kærleika og um- hyggju. tillitssemi og samhjálpar þarf að hetja til vegs og leggja aukna rækt við þau í fjöl- skyldusamfélaginu þar sem tilfinningaböndin eru sterkust. Þetta sjáum við gerast á jólum og þá líður okkur líka best. Við þurfum því í raun nýja efnahagsstefnu. efnahagsstefnu út frá forsendum heimilisins. sem hefur alla tíð ver- ið og á að vera hornsteinn í okkar þjóðfélagi. Hér er því að mínum dómi brýnt að afnema allar skerðingar vegna hjúskapar og heimilis- vinnu í stað þess að höggva stöðugt í þann sama knérunn. Hér þarf að tryggja að öll börn séu velkomin og öryggi þeirrra sé ekki háð efnahag foreldranna. Og hér þurfa þeir sem goldið hafa fyrir mammonsdýrkun undanfar- inna ára síðast en ekki síst að finna að þeir búa ekki í miskunnarlausu þjóðfélagi þar sem þeir eru stöðugt minntir á að herða sultarólina og aðeins hinn sterkari lifir.” Viö erum ríkir Islendingar Sr. Þórhallur segir að víst kunni erfiðir tímar að vera framundan en sá barlómssöngur og úrtölur sem hljómi daglega í eyrum nái þó ekki nokkurri átt. „Það er ekki aðeins verið að draga máttinn úr mönnum til athafna og aðgerða heldur líka ræna þá kjarki sem síst mega við því. Ég vil að þeir sem lökust kjör hafa finni að þeir hafi samúð og skilning en ekki þveröfugt. Á þessu krepputali eiga fjölmiðlarnir nokkra sök. En mér hefur líka stundum fundist sem sumir stjórnmálamenn sitji í einskonar „fíla- beinsturni," þar sem þeireru óvitandi um kjör hins almenna borgara. eða a.m.k þeirra sem berjast í bökkunt. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að dýrkun hinna hörðu gilda verður að linna og þetta gjaldþrotaástand sem hér hefur ríkt er ekki aðeins eitthvert peninga- dæmi sem hefur mistekist. Þetta er mannlegur harmleikur sem leiðir af sér vansæld. óham- ingju og upplausn í mörgum hjónaböndum og fjölskyldum. Menn ganga áfram sárir og það virðist enginn í þessu þjóðfélagi hafa opinber- ar skyldur til að liðsinna þeim sem lenda í þessum hremmingum. Því gengur þetta fólk aftur út í lífið án þess að hafa gert þessa sáru reynslu upp við sig og án þess að augu þeirra hafi opnast fyrir því hvað fór úrskeiðis og er því í þeirri hættu að sama sagan endurtaki sig. Þjóðfélagið er því að bregðast þessu fólki." Heimiliö er hornsteinninn „Ég tel að sú hugarfarsbreyting þurfi að verða að allar stjórnvaldsaðgerðir eða laga- setningar verði látnar þjóna því meginmark- miði að vernda og styrkja hag fjölskyldunnar og heimilisins og ganga út frá því hver sem fjölskyldugerðin er. Hafi þær ekki slíka við- rniðun eru þær dæmdar til að missa marks að mínum dómi og eru stefnulausar handahófs- aðgerðir á hvaða sviði þjóðlífsins sem er. Við höfum ekki efni á því að leysa vanda þjóðar- búsins endalaust á kostnað þeirra sem minna mega sín eða á kostnað heimilanna, á kostnað barna, sjúkra eða gamalla. Við eigum mörg önnur ráð. eins og ég hef bent á,“ segir sr. Þór- hallur.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.