Dagur - 04.01.1992, Blaðsíða 16
16 - DAGUR - Laugardagur 4. janúar 1992
Dagskrá FJÖLMIÐLA
Sjónvarpið
Laugardagur 4. janúar
14.00 Beint í mark.
Endursýndur þáttur frá
gamlársdegi.
15.30 Styðjum strákana.
Bein útsending úr Laugar-
dalshöll þar sem fram fer
pressuleikur í handknatt-
leik. Fjölmargir listamenn
koma fram til stuðnings
landsliðinu. Úrslit dagsins
verða birt um klukkan 17.50.
18.00 Múmínálfarnir (12).
18.30 Kasper og vinir hans
(37).
(Casper & Friends.)
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Poppkorn.
19.30 Úr ríki náttúrunnar.
Hreiðursögur.
(Wildlife on One - Nest Side
Story.)
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Fyrirmyndarfaðir (13).
(The Cosby Show.)
21.10 Frank Sinatra í Osló.
Seinni hluti.
22.15 í skugga hrafnsins.
íslensk bíómynd frá 1988.
Hér er sögð sagan af
Trausta, ungum manni sem
flytur heim að loknu prests-
námi í Noregi. Hann kynnist
ísold, ógiftri móður, og er
kastað inn í hringiðu örlag-
anna á miklum ófriðartímum
í íslandssögunni.
Aðalhlutverk: Tinna Gunn-
laugsdóttir, Reine Brynjolfs-
son, Egill Ólafsson, Sveinn
M. Eiðsson, Helgi Skúlason,
Kristbjörg Kjeld og Sune
Mangs.
00.15 Barnsránið.
(No Crying He Makes).
Bresk sakamálamynd frá
1989, byggð á sögu eftir
Ruth Rendell. Ungabarn
hverfur úr barnavagni og
Wexford lögreglufulltrúa er
falið að upplýsa málið.
Aðalhlutverk: George Baker
og Christopher Ravenscroft.
01.35 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok.
Sjónvarpið
Sunnudagur 5. janúar
13.20 Lífsbarátta dýranna.
Þriðji þáttur: Mörg er matar-
holan.
Þátturinn var áður á dagskrá
15. desember en verður
endursýndur vegna þess að
þá var sjónvarpslaust á Suð-
ur- og Vesturlandi.
14.10 Sæbörnin.
(The Water Babies).
Bresk/pólsk ævintýramynd
frá 1978, þar sem saman fer
leikur og teiknimyndakaflar.
Sögusviðið er ýmist Bretland
fyrir hálfri annarri öld eða
óþekktir undraheimar og
söguhetjumar em gallagrip-
ir og gott fólk.
Aðalhlutverk: James
Mason, Billie Whitelaw,
Bernard Cribbins og Joan
Greewood.
15.40 Árni Magnússon.
Seinni hluti.
16.30 Ef að er gáð (1).
Fyrsti þáttur: Hjartagallar.
íslensk þáttaröð um börn og
sjúkdóma.
16.40 Lífsbarátta dýranna (5).
Fimmti þáttur: Ratvísi.
(The Trials of Life).
Breskur heimildamynda-
flokkur í tólf þáttum þar sem
David Attenborough athug-
ar þær furðulegu leiðir sem
h'fvemr hvarvetna á jörðinni
fara til þess að sigra í lífs-
baráttu sinni.
17.30 í uppnámi (10).
Skákkennsla í tólf þáttum.
17.50 Sunnudagshugvekja.
Jón Pálsson guðfræðinemi
og kirkjuvörður flytur.
18.00 Stundin okkar (11).
Fjölbreyttur þáttur fyrir
yngstu bömin.
18.30 Sögur Elsu Beskow (5).
Afmæli brúnu frænkunnar -
fyrir hluti.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Vistaskipti (17).
(A Different World).
19.30 Fákar (20).
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Svartur sjór af síld.
Lokaþáttur.
Heimildamynd um síldar-
ævintýrið á íslandi.
21.30 Leiðin til Avonlea (1).
Fyrsti þáttur.
(Road to Avonlea.)
Kanadískur myndaflokkur
fyrir alla fjölskylduna,
byggður á sögu eftir Lucy
Maud Montgomery sem
skrifaði sögurnar um Önnu í
Grænuhlíð. Þættirnir hafa
unnið til fjölda verðlauna en
í þeim er sagt frá ævintýrum
ungrar stúlku.
Aðalhlutverk: Sarah Polley.
22.25 Ljóðið mitt.
Lokaþáttur.
Að þessu sinni velur sér ljóð
Guðmundur Arnlaugsson
fyrrverandi skólameistari.
22.35 í örugga höfn.
(To a Safer Place.)
Leikin, kanadísk heimilda-
mynd um stúlku sem var
misnotuð kynferðislega af
föður sínum þangað til hún
fór að heiman fjórtán ára.
23.25 Útvarpsfréttir i dag-
skrárlok.
Stöð 2
Laugardagur 4. janúar
09.00 Með Afa.
10.30 Vesalingarnir.
10.40 Á skotskónum.
11.00 Dýrasögur.
11.15 Lási lögga.
11.40 Maggý.
12.00 Landkönnun National
Geographic.
12.50 Skrýtin jólasaga.
(Scrooged)
Frábær gamanmynd um
ungan sjónvarpsstjóra sem
finnst lítið til jólanna koma
og þess umstangs sem jól-
unum fylgir. Eins og í
þekktri sögu eftir rithöfund-
inn Charles Dickens fær
hann til sín þrjá drauga sem
eiga að reyna að telja honum
hughvarf.
Aðalhlutverk: Bill Murray,
Karen Allen, John Forsythe,
John Glover og Bobcat
Goldthwait.
15.00 Þrjúbíó.#
Litla risaeðlan.
(Land before Time)
Skemmtileg teiknimynd fyrir
alla fjölskylduna. Myndin
fjallar um unga, munaðar-
lausa risaeðlu og vini
hennar.
16.05 Tónar á Fróni.
17.00 Falcon Crest.
18.00 Popp og kók.
18.30 Gillette sportpakkinn.
19.19 19:19.
20.00 Fyndnar fjölskyldusög-
ur.
(Americas Funniest Home
Videos.)
Þessir vinsælu þættir hefja
nú göngu sína á ný.
20.25 Maður fólksins.
(Man of the People).
Splunkunýr gamanmynda-
flokkur um mann sem hefur
komið víða við á lífsleiðinni.
Svindl, brask og veðmang
eru meðal þess sem hann
hefur tekið sér fyrir hendur
og reynist það honum góður
undirbúningur undir nýja
starfið; stjómmál.
20.50 Glæpaspil.
(Scene of the Crime).
21.45 á heljarþröm.#
(Country).
Átakanleg og mögnuð kvik-
mynd um fjölskyldu nokkra
sem á í stríði við viðskipta-
banka sinn. Þeir hjá bankan-
um hóta að ganga að veðum
fólksins sem þá myndi missa
jörð sína.
Aðalhlutverk: Jessica
Lange, Sam Shepard,
Wilford Brimley og Matt
Clark.
23.30 Svart regn.#
(Black Rain).
Hörkuspennandi sakamála-
mynd sem svo sannarlega
tekur á taugarnar. Banda-
rískir lögreglumenn leggja
land undir fót til að hafa upp
á strokufanga. Leiðin liggur
til Japans en þar er skúrkur-
inn á heimávelli.
Aðalhlutverk: Michael
Douglas, Andy Garcia, Ken
Takakura og Kate Capshaw.
Sranglega bönnuð börnum.
01.30 Lyfsalinn.
(Medizinmanner).
Lögreglumaðurinn þýski,
Schimanski, er í þessari
mynd að rannsaka morð á
manni þar sem ungur dreng-
ur er eina vitnið.
Aðalhlutverk: Götz George
og Eberhard Felk.
Bönnuð börnum.
03.00 Dagskrárlok.
Stöð 2
Sunnudagur 5. janúar
09.00 Túlli.
09.05 Snorkarnir.
09.15 Fúsi fjörkálfur.
09.20 Litla hafmeyjan.
09.45 Pétur Pan.
10.10 Ævintýraheimur
NINTENDO.
10.30 Vesalingarnir.
10.40 í sumarbúðum.
(Camp Candy)
11.05 Blaðasnáparnir.
(Press Gang)
11.30 Naggarnir.
(Gophers).
12.00 Popp og kók
12.30 Atvinnumenn.
Fjallað er um Guðmund
Torfason. Þetta er endurtek-
inn þáttur.
13.25 ítalski boltinn.
Bein útsending.
15.20 NBA-körfuboltinn.
Fylgst með leikjum í banda-
rísku úrvalsdeildinni.
16.25 Stuttmynd.
Lucas Hass, sem lék unga
drenginn í Vitninu, er hér í
hlutverki drengs sem er log-
andi hræddur við kjarnorku.
17.00 Listamannaskálinn.
(The South Bank Show).
í þessum þætti er fjallað um
hinn merka leikstjóra Spike
Lee sem hefur markað djúp
spor í sögu kvikmyndagerð-
ar, þótt ungur sé.
18.00 60 mínútur.
18.50 Skjaldbökurnar.
19.19 19:19.
20.00 Klassapíur.
(Golden Girls.)
20.25 Lagakrókar.
(L.A. Law)
Margverðlaunaður fram-
haldsþáttur um líf og störf
lögfræðinganna hjá
MacKenzie-Brackman. Nú er
komið að þáttaskilum hjá
þeim því síðast þegar við lit-
um við hjá þeim voru
Michael Kuzack, Victor
Sifuentes og Grace Van
Owen hætt hjá fyrirtækinu
og eru þá góð ráð dýr.
21.15 Gaby - Sönn saga.#
(Gaby - A True Story).
Átakanleg og sönn mynd
um Gaby Brimmer sem hald-
in er sjúkdómnum Cerebral
Palsy. Líkami hennar er nán-
ast lamaður en ekkert heftir
huga hennar.
Aðalhlutverk: Liv Ullman,
Norma Aleandro, Robert
Loggia og Rachel Levin.
23.05 Arsenio Hall.
Frábær spjallþáttur þar sem
gamanleikarinn Arsenio Hall
fer á kostum sem spjallþátt-
arstjórnandi. Arsenio fær til
sín góða gesti og spyr þá
spjörunum úr.
23.50 Nautnaseggurinn.
(Skin Deep).
Skondin gamanmynd um
mann sem á erfitt með að
neita sér um holdsins lysti-
semdir.
Aðalhlutverk: John Ritter.
Bönnuð börnum.
01.30 Dagskrárlok.
Stöð 2
Mánudagur 6. janúar
16.45 Nágrannar.
17.30 Jólin allra barna.
18.10 Litli Folinn og félagar.
18.30 Kjallarinn.
19.19 19:19.
20.10 ítalski boltinn.
Mörk vikunnar.
20.30 Systurnar.
21.10 Örlagasaga.
(Die Bertinies).
Þriðji þáttur af fimm í þess-
um vandaða þýska fram-
haldsþætti um örlög
gy ðingafj ölskyldu.
22.45 Booker.
23.35 Smáborgarar.
(The Burbs).
Gamanmynd með hinum
óborganlega Tom Hanks í
hlutverki manns sem veit
ekkert skemmtilegra en að
eyða sumarfrínu sínu heima
við.
01.15 Dagskrárlok.
Spói sprettur
Þjónusta lögmanna og aðila
í byggingariðnaði:
Hagsmunir neytenda
verði tryggðir
með lögum
Gamla myndin
Stjórn Neytendasamtakanna
telur að gera verði þjónustuað-
ilum skylt með lögum að leggja
fram tryggingar til þess að
vernda hagsmuni neytenda.
Lögmenn og aðiiar í bygging-
ariðnaði eru sérstaklega nefnd-
ir í þessu sambandi, enda eru
þess mörg dæmi að neytendur
hafi orðið fyrir tjóni vegna við-
skipta sinna við þessa aðila.
Ályktun stjórnar Neytenda-
samtakanna er svohljóðandi
(samþykkt á fundi 12. desember
s.l.):
„Stjórn Neytendasamtakanna
beinir því til stjórnvalda, að þau
hlutist til um að sett verði lög sem
skylda þá sem hafa með höndum
fjárvörslu fyrir almenning á
grundvelli leyfisbundinnar
atvinnustarfsemi til að kaupa sér
fullnægjandi tryggingar.
Bent er á að með lögum nr. 34/
1986 um fasteigna- og skipasölu
er þeim sem þá þjónustu stunda
gert að leggja fram tryggingu fyr-
ir greiðslu kostnaðar og tjóns
sem viðskiptamenn viðkomandi
kunna að verða fyrir af þeirra
völdum. Pað er falið í vald dóms-
málaráðuneytisins að ákveða
hver tryggingarupphæðin skuli
vera. Benda má á fleiri tilvik, þar
sem þjónustuaðilum er skylt að
leggja fram tryggingar vegna
hagsmuna viðskiptamanna
þeirra.
Iðulega hafa þjónustuaðilar í
höndum verulega fjármuni frá
viðskiptamönnum sínum, jafnvel
svo mánuðum skiptir, áður en
nokkrar efndir geta orðið á
skyldu þjónustuaðilans. Pá
kunna þjónustuaðilar að hafa
tekið við fjármunum frá
viðskiptamönnum stnum til varð-
veislu og/eða ávöxtunar um
nokkurt skeið eða ótímabundið.
Það er Ijóst að margir neytendur
hafa orðið fyrir tjóni vegna þess
að þessir aðilar hafa ekki haft
tryggingar. Pað er því brýnt að
skylda þá til þess að hafa trygg-
ingar.
Sérstök athygli er vakin á
nauðsyn þess að lögmönnum,
sem venjulega hafa verulega
fjármuni í vörslu sinni fyrir við-
skiptavini sína, verði gert skylt
með lögum að hafa tryggingar.
Þá er einnig nauðsynlegt að þeir
sem stunda byggingarstarfsemi
hafi lögboðnar tryggingar, því
iðulega eru viðskiptamenn þeirra
að hætta aleigu sinni án þess að
hafa nokkuð í höndunum annað
en samning um að ákveðin fast-
eign verði byggð á ákveðinni
holu sem er til staðar þá er samn-
ingur er gerður milli aðila. Þá er
bent á nauðsyn þess að þeir sem
taka að sér viðgerðir fyrir fólk,
einkum húsaviðgerðir, hafi
skyldutryggingu. Þess eru mörg
dæmi að þessum aðilum sé greitt
fyrir verk án þess að þeir Ijúki við
þau. Einnig eru verkin á stundum
haldin bótaskyldum göllum, en
verktakinn gjaldþrota þegar til á
að taka.
Meðal annars af framangreind-
um ástæðum beina Neytenda-
samtökin því til ríkisstjórnarinn-
ar að hún hlutist til um lagasetn-
ingu sem geri þjónustuaðilum
skylt að hafa tryggingar til að
tryggja hagsmuni neytenda í við-
skiptum við slíka aðila.“
M3-2074 Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson og synir/Minjasafnið á Akureyri.
Hver kannast
við fólkið?
Ef lesendur Dags telja sig
þekkja fólkið á myndinni hér
eru þeir vinsamlegast beðnir að
koma þeim upplýsingum á
framfæri við Minjasafnið á
Akureyri (pósthólf 341, 602
Akureyri) eða hringja í síma
24162.
Hausateikningin er til að auð-
velda lesendum að merkja við
það fólk sem það ber kennsl á.
Þótt þið kannist aðeins við
örfáa á myndinni eru allar
upplýsingar vel þegnar. SS