Dagur - 04.01.1992, Qupperneq 19
Laugardagur 4. janúar 1992 - DAGUR - 19
Listaval poppsíðunnar
fyrir árið 1991
Hér á eftir fylgja listar Poppsíð-
unnar yfir það besta í dægur-
lagaheiminum á árinu 1991,
bæði hérlendis og erlendis.
Segja má með sanni að nýliðið
ár hafi verið viðburðaríkt í popp-
inu og mikið af góðum plötum
(diskum) kom út á árinu. A þetta
ekki hvað síst við um íslenska
tónlist og útgáfu á henni, sem
sjaldan hefur verið betri og meiri
en nú. Er því ekki hægt annað en
að hafa sérlista yfir 10 bestu
íslensku plöturnar samhliða lista
10 bestu erlendu platnanna. Þá
er listi yfir 10 bestu lögin, bæði
íslensk og erlend, auk sambæri-
legs lista yfir plötur, sem reyndar
hefur birst áður á öðrum vett-
vangi.
Það er svo rétt að geta þess að
þetta listaval er aðalega sett
saman til gamans, þannig að
ekki ber að taka það of alvarlega.
íslenskar plötur
1. GCD
Bubbi & Rúnar
2. Sálin hans Jóns míns
S.H.J.M.
3. Blue lce
Vinir Dóra, Jimmy Dawkins
og Chicago Beau.
4. Lucky One
KK Band.
5. Tifa, tifa
Egill Ólafsson.
6. Kettlingar
V.F. og Hendes Verden.
7. Yfir hæðir
Rúnar Þór
Neil Young með bestu plötuna
1991.
8. De luxe
Ný dönsk
9. Tvö líf
Stjórnin
10. Ýmsir
Stóru börnin leika sér
Erlendar plötur
1. Weld
Neil Young & Crazy Horse
2. Signals of Salvation
Armored Saint
3. On every street
Dire Straits
4. Electric Barnyard
The Kentucky Headhunters
5. Damr right l’ve got the blues
Buddy Guy
6. Ceremony
The Cult
7. Shades of two worlds
The Allman Brothers B.
8. Strange Affair
Wishbone Ash
9. Mr. Lucky
John Lee Hooker
10. For the sake of mankind
Artch
Bestu lögin
1. Nothing else matters
Metallica
2. Heimavistin er helvíti
Bless
3. Say goodbye to the blues
Walter Trout Band
4. Stop
Todmobile
5. Ghost town
Earl Slick
6. Smells like teen spirit
Nirvana
7. Tár eru tár
Sálin hans Jóns míns
8. Þófamjúk rándýr
GCD
9. I could have lied
Red hot chilli peppers
10. Siesta
Rúnar Þór
10 bestu
plötur ársins
1. Weld
Neil Young and Crazy Horse
2. Signals of Salvation
Armored Saint
3. On every street
Dire Straits
4. Bubbi & Rúnar
GCD
5. Electric Barnyard
Kentucky Headhunters
6. Sálin hans Jóns míns
S.H.J.M.
7. Damnrightl’vegottheblues
Buddy Guy
8. Ceremony
The Cult
9. Blue lce
Vinir Dóra, Jímmy Dawkins
& Chicago Beau
10. Shades of two worlds
Allman Brothers Band
Sálin er bæði með plötuna sína og eitt lag á iista Poppsiðunnar.
Hitt og þetta
Madonna
Eins og getið var um í annáli
Poppsíðu, þá voru sögusagnir í
desember á kreiki um að drottn-
ing poppsins hún Madonna, væri
sýkt af alnæmi. Kvað svo rammt
að þessum sögusögnum, aö for-
mælendur söngkonunnar sáu sig
tilneydda til að gefa út sérstaka
yfirlýsingu um að ekkert væri
hæft í þeim. Orðrómur um
alnæmissýkinguna kviknaði er
vinur Madonnu, Christopher Flynn
að nafni, lést úr sjúkdómnum fyrir
nokkru. Hefur síðan hlaðist utan
á söguna, þannig að undir þaö
síðasta átti að vera von á blaða-
mannafundi þar sem Madonna
myndi tilkynna formlega að hún
væri sýkt.
Misheppnaðir
styrktartónleikar
Það eru fleiri en aðstandendur
styrktartónleika til þyrlukaupa,
sem lagt hafa upp með góðan
Madonna ekki með eyðni.
ásetning að undanförnu, en orðið
fyrir vonbrigðum. í Brixton
Academy tónleikahöllinni í Bret-
landi voru nefnilega fyrir skömmu
haldnir tónleikar til styrktar eyðni-
rannsókna, sem mistókust herfi-
lega. Aðeins um 1.800 manns
mættu á tónleikana, í höll sem
tekur fleiri þúsund gesti. Ekki
vantaði þó að tónleikarnir, sem
kallast Red, hot and dance og eru
partur af heimsátaki, væru illa
skipaðir því meðal þeirra sem
komu fram voru nýstirnið Seal,
Lisa Stansfield og Crystal Waters.
Þannig að eitthvað annað en
skortur á frægum nöfnum var
orsökin fyrir lélegri aðsókn líkt og
í Laugardalshöllinni.
Vixen hætt
Kvennarokkhljómsveitin Vixen,
sem náð hafði töluverðri hylli
með sínum tveimur fyrstu
plötum, Vixen og Rev it up, hefur
nú nokkuð óvænt lagt upp laup-
ana. Söngkonan Janet Gardner
og bassaleikarinn Shane Pedersen
hyggjast þó starfa saman áfram
og eru að leita að karlgítar-
leikara. Hvað hinn helmingur
Vixen, Roxy Petrucci trommuleik-
ari og Jan Kuehnemund gítarleik-
ari hyggst gera, er hins vegar á
huldu.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Öldungadeild
Innritun í öldungadeild á vorönn fer fram á skrifstofu
skólans 7.-10. janúar nk. að báðum dögum meðtöldum.
Setning og afhending stundaskráa gegn greiðslu
gjalda fer fram miðvikudaginn 15. janúar kl. 18.00 á
sal skólans. Kennsla hefst sama kvöld samkvæmt
stundaskrá.
Viðtalstímar kennslustjóra eru kl. 13.00-15.00 eða
eftir samkomulagi.
Skólameistari.
Þrettánda-
flugeldar
Opiö í Lundi viö Skógarlund mánudag-
inn 6. janúar frá kl. 13-1
Þökkum bæjarbúum
og nærsveitafólki
veittan stuöning
á liðnu ári.
Gleðilegt nýtt ár!
_ •c s
V—I ^7 W 1 r Þ ^
-T^W - ^ m ^ f *—ít-
r ^-7— * n—7-
AiZ 3— M I r I i —v—
.? 3
Kennsla á orgel,
hljómborð og
rafmagnsorgel
Byrjenda- og framhaldskennsla fyrir
börn og fullorðna.
Innritun og upplýsingar eftir kl. 17 í
símum 24769 og 23181.
Orgelskóli Gígju.
Móðir okkar og tengdamóðir,
ELÍSABET INGIBJÖRG SVEINBJÖRNSDÓTTIR
er lést 27. desember verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 7. desember kl. 13.30.
Randver Karlesson,
Arnbjörn Karlesson, Jakobína Sigurvinsdóttir.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalang-
amma,
GUÐRÚN PÁLÍNA JÓHANNSDÓTTIR,
frá Syðstabæ,
verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 4. janúar
kl. 14.
Hulda Helgadóttir, HaJldor Kristinsson,
Sigurbjörg Heigadóttir,
María Helgadóttir,
Jófríður Helgadóttir, Eiríkur Friðriksson,
Sigríður Helgadóttir,
Sumarrós Helgadóttir, Klemens Jónsson,
Sesselja Helgadóttir, Hörður Jóhannesson,
Guðlaug Helgadóttir, Snorri Halldórsson,
Ásta Helgadóttir, Kristján H. Jónsson,
Birna Eiríksdóttir,
Jóhann Helgason, Hildur Magnúsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.