Dagur - 07.01.1992, Side 1

Dagur - 07.01.1992, Side 1
75. árgangur Akureyri, þriðjudagur 7. janúar 1992 3. tölublað Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Fljúgandi hálka í Gilinu í gær: Þrjár stúlkur fyrir bifreið Þrjár stúlkur sluppu nær ómeiddar þegar þær urðu fyr- ir stjórnlausri bifreið sem kom niður Kaupvangsstræti á Akureyri í gær. Stúlkurnar kváðust við hestaheilsu en voru þó fluttar til rannsóknar á slysadeild. Að sögn varðstjóra hjá lög- reglunni á Akureyri varð sluppu án teljandi meiðsla óhappið laust fyrir klukkan 14 í gær. Fljúgandi hálka var í Gil- inu og ökumaður bifreiðar missti stjórn á henni á leið niður Gilið með þeim afleiðingum að bifreiðin rann á þrjár stúlkur sem voru á gangstétt við Kaup- vangsstræti sunnanvert. Stúlkurnar sluppu vel og segja má að bifreiðin hafi stöðv- ast í tæka tíð því litlu munaði að hún lenti fram af allháum bakka. Helgin var tiltölulega róleg hjá lögreglunni á Akureyri. Þrír fengu að sofa úr sér ölvímu í fangageymslunum og einn öku- maður var tekinn grunaður um ölvun við akstur. SS Skemmdarverk í Múlagöngum Um helgina fékk rannsóknar- lögreglan á Akureyri þrjá pilta til yfirheyrslu, en þeir höfðu verið staðnir að skemmdar- verkum í Múlagöngum. Pilt- arnir hafa margoft komið við sögu lögreglunnar fyrir innbrot, þjófnaði og skemmd- arverk. Á laugardagskvöldið munu piltarnir hafa dundað við skemmdarverk af ýmsu tagi í Múlagöngum. Þeir skemmdu einn neyðarsíma, stálu verkfær- um í eigu Vegagerðarinnar, rifu niður merki og krotuðu með túss- penna á spegla; „voru öðrum til armæðu, tjóns og bölvunar“, eins og rannsóknarlögreglumaður komst að orði. SS Loðnan veiðist nú út af Austíjörðum: Höfum ekki afskrifað að hún fimiist norðar - segir framkvæmdastjóri Krossanesverksmiðjunnar Loðnuveiðin var treg nú um helgina en fyrstu loðnuskip voru komin á miðin á föstu- dag. Loðnan hefur gengið all- hratt austur og suður með Austfjörðunt síðan fyrir jól og er veiðisvæðið nú út af Glett- ingi. Verksmiðjurnar á Siglu- firði og í Krossanesi eru því í talsverðri fjarlægð frá veiði- svæðinu. Jóhann Pétur Andersen, fram- kvæmdastjóri Krossanesverk- smiðjunnar, segir að um sólar- hrings sigling sé nú af miðunum til verksmiðjunnar. „Það þarf engum að koma á óvart að loðnan sé komin svona langt en það er samt ekkert vonlaust að finnist önnur ganga norðar. Við höfum ekkert af- skrifað það,“ sagði hann. Sem kunnugt er kom engin Sættir tókust í bæjarfulltrúahópi sjálfstæðismanna í Ólafsfirði: Meirihlutasamstarfínu bjargað á síðustu stundu - tillaga um starfslok bæjarstjórans lögð til hliðar fyrir tvö sæti í bæjarráði Á fundi bæjarstjórnar Ólafs- fjarðar í gær var tilkynnt um samkomulag sem bæjarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn gerðu með sér nú um helgina. Eins og Dagur hefur skýrt frá komu þeir þrír fulltrúar flokksins, sem tóku sér leyfi frá bæjarstjórnarstörf- Veðrið: Breytilegt næstu daga Búist er við afar breytilegri veðráttu næstu sóiarhringa. í dag gerir Veðurstofa íslands ráð fyrir norðaustan hvassviðri og éljagangi um allt norðan- vert landið. Síðdegis á að fara að lægja og létta til og á morgun verður hæg vestlæg átt og léttskýjað um aust- anvert landið. Heldur hlýnar í veðri. Á fimmtudag er síðan búist við allhvassri suðvestan átt og hitastigi nálægt frostmarki. Úrkomulaust verður á Norður- landi. SS um í sumar, inn í bæjarstjórn nú um áramót en fyrir þann tíma hafði ekki verið leyst úr ágreiningi þeirra og fjórða full- trúa flokksins um störf bæjar- stjórans, Bjarna Grímssonar. Sem kunnugt er studdi Óskar Þór Sigurbjörnsson, forseti bæjarstjórnar, Bjarna og nú um helgina gerðu bæjarfull- trúarnir fjórir með sér sam- komulag um að slíðra sverð og að fallið verði frá tillögunni um starfslok Bjarna. í staðinn fá bæjarfulltrúarnir þrír meiri áhrif í stjórn bæjarins því tveir þeirra munu nú taka sæti í bæjarráði. Mikil fundahöld voru í röðum sjálfstæðismanna í Ólafsfirði um helgina. Þingmenn flokksins í kjördæminu, Halldór Blöndal og Tómas Ingi Olrich, voru í Ólafs- firði á föstudag og laugardag og reyndu með ýmsu móti að lægja öldurnar. Allt leit út fyrir að meirihlutasamstarf flokksins væri að bresta en eftir ýmsar hug- myndir féllust aðilar á þá lausn á laugardagskvöld að Sigurður Björnsson og Þorsteinn Ásgeirs- son taki nú sæti í bæjarráði og á móti verði fallið frá tillögu um starfslok bæjarstjórans. Allir full- trúarnir fjórir lýsa því yfir stuðn- ingi við Bjarna. Óskar Þór Sigurbjörnsson verður áfram forseti bæjarstjórn- ar en gefur nú eftir sæti sitt í bæjarráði. Fyrir ágreininginn í vor var Þorsteinn Ásgeirsson annar fulltrúi flokksins í bæjar- ráði og tekur þar sæti á ný ásamt Sigurði. Óskar Þór segist ánægður með þessa niðurstöðu en nú skipti miklu hvernig þessum brevting- um reiði af. „Ég vænti þess að þetta sé sú besta lausn sem hægt var að finna og nú reynir á að menn standi við hana. Ég vona að menn geri það,“ sagði Oskar. Þótt Bjarni Grímsson, bæjar- stjóri, hafi ekki verið beinn aðili að þessari deilu er ljóst að hann er samþykkur þessu samkomu- lagi. Hann verður því áfram í stól bæjarstjóra og starfar með meiri- hluta sjálfstæðismanna þrátt fyrir fyrri ágreining enda styður meiri- hlutinn hann nú óskiptur. JÓH Sjö nýir eyjaskeggjar: Frjú böm í Grímsey - íjögur í Hrísey Þrír dreng'r fæddust í Grímsey á liðnu ári og í Hrísey fjögur börn. Sé litið til fæðinga í eyjunum tveimur Grímsey og Hrísey þá eru þær ekki margar á árinu 1991. Þannig fæddust þrír drengir á liðnu ári í Grímsey. í maímán- uði 1990 fæddust tvær stúlkur í eynni, en þá höfðu eingöngu fæðst drengir frá því í desem- loðna til Siglufjarðar á haustver- tíðinni en til Krossaness komu rúm 6300 tonn. Jóhann Pétur sagði að miðað við heildarveiðina á haustvertíðinni megi vel við þetta magn una en þetta er um 11% af heildarveiðinni. Hann segir að engin vandræði skapist við að standa við sölusamninga enda hafi samningar ekki verið gerðir nema fyrirsjáanlega verði unnt að standa við þá. JÓH bermánuði 1982. Ibúar Gríms- eyjar eru nú 118. íbúar Hríseyjar voru um ára- mót 272 og eyjaskeggjar eignuð- ust fjögur börn árið 1991. Jafnt er komið á með kynjunum því 136 karlar og drengir eru búsettir í eyjunni og 136 konur og stúlkur. Hríseyjarhreppur er eitt af ör- fáum byggðarlögum á íslandi sem svo er. ój Dalvík: Beit félaga sinn í ennið Aöfaranótt sunnudags lenti tveimur mönnuni saman á Dalvík. Höfðu þeir setið að sumbli og þegar lækkaði í flöskunni slettist upp á vin- skapinn. Lauk viðskiptuin þeirra þannig að annar beit hinn í cnnið. Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni á Dalvík að greini- legir áverkar hefðu verið á enni annars mannsins, sem staðfestu að hinn hefði beitt tönnum sínum ódrengilega. Ekki voru áverkarnir alvarleg- ir og var ekki talin ástæða til að færa hinn bitna undir læknishendur. SS Eyjafjarðarsýsla: Fleiri gjald- þrot í fyrra en árið 1990 Gjaldþrotabciðnir hjá bæjarfógetaembættinu á Akureyri á síðasta ári voru 155, en 114 árið 1990. Gjaldþrotaúrskurðir á síð- asta ári voru hins vegar 76, en voru 28 á árinu 1990. Nauðungaruppboössölur á fasteignum hjá bæjarfógetaembættinu á Akureyri voru 41 á síðasta ári. Árið 1990 voru 52 nauðungar- uppboðssölur á fasteignum. Þá voru þingfestingar 287 tals- ins á síðasta ári. Fjárnám voru 645 á móti 663 árið 1990 og 538 lögtök á móti 461 árið 1990. óþh

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.