Dagur - 07.01.1992, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 7. janúar 1992 - DAGUR - 13
Norrænt gigtarár:
„Ataks er þörf ‘
- segir Ingibjörg Sveinsdóttir, gigtarsjúklingur
„Á norrænu gigtarári ætla ég
að ganga 1992 kílómetra þ.e.
SVi kflómeter á dag. Með
þessu móti ætla ég að reyna að
vekja áhuga almennings á
málefnum gigtarsjúkra og
ástæður þess eru raunar marg-
þættar,“ sagði Ingibjörg
Sveinsdóttir gigtarsjúklingur á
Akureyri.
Ingibjörg er mjög illa farin af
liðagigt og sjúkdómurinn hefur
hrjáð hana í tugi ára. Oft hefur
hún þurft að leita sér lækninga til
Reykjavíkur og verið rúmföst
langtímum saman. Ingibjörg seg-
ir að gigtarsjúkdómar séu afar
algengir og að fimmti hver
íslendingur fái gigt.
„Eins og er get ég gengið og
því vil ég þakka fyrir mig með því
að ganga sem mest. Þeir eru
margir sem hafa veitt mér hjálp í
veikindum mínum bæði læknar
og ýmsir aðstandendur. Að
ganga er mér lífsnauðsyn sem
gefur að skilja. Gönguferðirnar
gefa líkamlegan sem sálrænan
styrk, en því miður get ég aðeins
gengið á jafnsléttu og ekki í
hálku né ófærð. Oft kemst ég
ekki nema stuttan spöl í einu og
þarf því að hvíla mig oft. Ég hef
því kosið að ganga milli biðskýla
strætisvagna, en þar eru bekkir
sem ég get tyllt mér á. Á Akur-
eyri vantar tilfinnanlega bekki
fyrir gangandi vegfarendur.
Gigtarársgönguna hóf ég á
nýársdag til minningar um
frænku mína Ástþrúði Sveinsdótt-
ur, sem var eiginkona Kristins
Jónssonar er var umdæmisstjóri
Flugfélags íslands á Akureyri á
árum áður. Ástþrúður var illa
farin af liðagigt þá er hún lést.
Eitt aðal markmið göngunnar er
að safna félögum í Gigtarfélag
Norðurlands eystra, en ætlunin
er að blása í félagið auknum
krafti á árinu. Eitt þrýnasta mál
gigtarsjúkra á Norðuríandi er að
fá fastráðinn gigtarlækni við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri. Auk þess að slíkur læknir
myndi annast þá fjölmörgu sent
gigtin hrjáir þá myndu kraftar
hans nýtast við kennslu hjúkrun-
arfræðinga við Háskólann hér í
bæ. Já, gangan er ætluð til að
vekja umræðu um brýnt málefni
Ingibjörg Svcinsdóttir, t.h.
og ég skora á gigtarsjúka’ að hafa
samband við mig eða aðra í Gigt-
arfélaginu á Norðurlandi. Hvern
fimmtudag kl. 17.00 mæta félagar
Gigtarfélagsins að Súlnabergi
hvar við drekkum kaffisopa og
ræðum um félagsstarfið. Reynsl-
an hefur kennt okkur að fólk lok-
ast inni og verður sambandslaust
þegar það er veikt af gigt.
Á gigtarárinu ætla ég að gefa
Gigtarfélagi Norðurlands 1992
trjáplöntur sem fjölskylda mín
hefur ræktað. Þessar plöntur ætla
ég að selja og andvirði þeirra
rennur til félagsins. Margt smátt
gerir eitt stórt og við sem erum
gigtarveik verðum að blása í her-
lúðra á norrænu gigtarári. Átaks
er þörf,“ sagði Ingibjörg Sveins-
dóttir frá Akureyri. ój
BORGARBÍO
Salur A
Þriðjudagur
Kl. 9.00 Addams Family
íslensk leiklist I
- eftir Svein Einarsson
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hef-
ur gefið út ritið íslensk leiklist 1
eftir Svein Einarsson rithöfund
og leikstjóra, en þar er rakið
upphaf að íslenskri leiklist, graf-
ist fyrir um rætur hennar og sagt
frá helstu einkennum, en einnig
fjallað um fyrstu leikrit íslend-
inga, svo og fyrstu leikara og
leikmyndahönnuði.
Útgefandi kynnir bók og höf-
und með þessum orðum á kápu
íslenskrar leiklistar 1:
„Þessi bók er fyrsta tilraun til
að rekja skipulega sögu íslenskr-
ar leiklistar, grafast fyrir um ræt-
ur hennar og segja frá helstu ein-
kennum.
Almennt hefur verið talið, að
leiklistarsaga okkar hefjist fyrir
250 árum með Herra-næturhaldi
Skálholtspilta. Hér er þó reynt að
kanna hvort eitthvað hafi verið
eldra, sem talist geti leiklistar-
kyns og sjónunt einkum beint að
trúðum og frásögnum af þeim í
fornum ritum, að eddukvæðunum
og síðan ekki síst galdri, seið og
dansi. í öðrum kafla bókarinnar
er svo lýst Herranóttinni, tengsl-
um hennar við erlenda leiki af
svipuðum toga og það sem hún
fæddi af sér: íslenska leikritun.
í þriðja hluta bókarinnar segir
frá fyrstu leikritum íslendinga,
fyrstu leikurum og lcikmynda-
hönnuðum og sagan rakin frant
til síðustu aldamóta. í öðru bindi
verður svo fjallað um framhald-
ið.
Islensk leiklist I er 391 bls. að
stærð og prýdd myndum.
Leiðréttíng
í Degi sl. föstudag, var farið
rangt með nafn móður fyrsta
barnsins sem fæddist á árinu á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri. Hún heitir Linda Björg
Reynisdóttir en ekki Linda
Björk. Þetta leiðréttist hér með
og eru hlutaðeigandi beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
Salur B
Þriðjudagur
Kl. 9.05 Rakettumaðurinn
BORGARBIO
S 23500
Vlnningstölur
laugardaginn
FJ0U3I
VINNINGSHAFA
UPPHÆÐAHVERN
VINNINGSHAFA
6.935.244,-
733.966,-
3.
186
6.843,-
4.
5.839
505,-
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
11.883.860.-
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI91 -681511 LUKKULÍNA991002
ir
-Ú- l 4. 1 K Q — 5 -
0-i w \ "1 9— ^
0 C ?
Kennsla á orgel,
hljómborð og
rafinagnsorgel
Byrjenda- og framhaldskennsla fyrir
börn og fullorðna.
Innritun og upplýsingar eftir kl. 17 í
símum 24769 og 23181.
Orgelskóli Gígju.
Aðstoðarmann vantar
á rannsóknastofu
Upplýsingar gefur Jón Jóhannesson í síma 21466.
K. Jónsson & Co. hf.
Fiskvinnsla!
Óskum aö ráöa starfsfólk til vinnu viö snyrtingu oq
pökkun.
Uppl. í síma 96-61710 og 96-61707.
Fiskvinnslustöð KEA Hrísey.
Verslunarstjóri
Kaupfélag Eyfirðinga óskar eftir að ráða verslun-
arstjóra til starfa við nýja verslun félagsins, sem
opnuð verður fyrri hluta ársins.
Leitaö er eftir traustum og áhugasömum starfs-
manni, meö reynslu í verslunarrekstri og stjórnun.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Hannes Karlsson deildar-
stjóri Matvörudeildar KEA, sími 96-30373.
Umsóknir um starfiö þurfa aö berast aðalfulltrúa
félagsins fyrir 24. janúar nk.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Innilegar þakkir færi ég öllum þeim
sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum
og skeytum á 100 ára afmælinu mínu,
24. desember sl.
Sérstakar þakkir til bæjarstjórnar
Ólafsfjarðar, stjórnar Hornbrekku og
fjölskyldu minnar, fyrir ógleymanlegan dag.
Guð blessi ykkur öll.
ELÍN BJÖRG GUÐBJÖRNSDÓTTIR,
Hornbrekku.
Móðir okkar og tengdamóðir,
ELÍSABET INGIBJÖRG SVEINBJÖRNSDÓTTIR
er lést 27. desember verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 7. janúar kl. 13.30.
Randver Karlesson,
Arnbjörn Karlesson, Jakobína Sigurvinsdóttir.