Dagur - 07.01.1992, Blaðsíða 8

Dagur - 07.01.1992, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 7. janúar 1992 ÍÞRÓTTIR Akureyrarmótið í handknattleik: Ivrii'hafna rlítill sigur KA - en fjölmargir áhorfendur urðu fyrir vonbrigðum KA-menn unnu nokkuð auð- veldan sigur á Þór, 19:14, í fyrri umferð Akureyrarmóts- ins í handknattleik í meistara- tiokki á sunnudagskvöldið. Menn höfðu beðið leiksins með nokkurri eftirvæntingu enda bæði lið verið á góðri siglingu upp á síðkastið. En fjölmargir áhorfendur urðu fyrir vonbrigðum, hið unga Þórslið náði sér aldrei á strik og sigur KA var auðveldari en flestir höfðu búist við. KA-menn náðu strax foryst- unni og héldu henni til leiksloka. Mestur varð munurinn fjögur mörk í fyrri hálfleik en staðan í hléi var 11:8. Það var fyrst og fremst varnarleikur og ágæt markvarsla sem lagði grunn að sigri KA og áttu Þórsarar oft í miklum vandræðum í sókninni, skoruðu t.d. ekki fyrsta markið fyrr en eftir 7 mínútur. í sókninni voru Alfreð og Sigurpáll í aðal- hlutverkum og virtist Alfreð skora þegar hann vildi. Hjá Þór var Ole Nielsen sá eini sem eitthvað virtist hafa að gera í KA-vörnina. Hann lék mjög vel, skoraði m.a. fyrstu fimm mörk liðsins á fyrstu 25 mínútunum. Hermann Karlsson varði á köfl- um ágætlega en aðrir voru langt frá sínu besta. Sterkasta vopn liðsins, breiddin, var ekki til stað- ar og sést það m.a. á því að tveir leikmenn skoruðu öll mörk þess í fyrri hálfleik. Mörk KA: Sigurpáll Árni Aðalsteinsson 6/3, Altreð Gíslason 5, Pétur Bjarnason 3, Guðmundur Guðmundsson 2, Stefán Kristjánsson 2, Erlingur Kristjánsson 1. Axel Stefánsson varði 14/1 skot. Mörk Þórs: Ole Nielsen 9, Jóhann Sam- úelsson 2, Rúnar Árnason 2/2. Sævar Árnason 1. Hermann Karlsson varði 11 skot. Dómarar: Stefán Arnaldsson og Guð- mundur Lárusson. Voru ekki bestu menn vallarins en ekki heldur þeir verstu. Akureyrarmótið: KA vann 9 leiki af 11 -10 rauð spjöld í 3. flokki KA-menn höfðu nokkra yfir- burði í fyrri umferð Akureyr- armótsins í handknattleik sem fram fór um helgina. Þeir unnu 9 leiki af 11 en 2 lauk með jafn- tefli. Leikið var á tveimur stöðum, í íþróttahöllinni og íþróttahúsi Glerárskóla. Úrslit urðu þessi (Þór á undan): 6. fl. karla A: 10:14 6. fl. karla B: 8:8 6. fl. karla C: 2:3 4. fl. kvenna: 4:10 5. tl. karla A: 10:13 5. fl. karla B: 8:9 4. fi. karla A: 12:24 4. fl. karla B: 8:12 3. fl. karla A: 18:18 1. fl. karla: 11:18 Eini flokkurinn sem ekki var . leikið í um helgina var 2. flokkur karla. Umfjöllun um leikinn í meistaraflokki er annars staðar á íþróttasíðunni. Leikurinn í 3. flokki karla var í meira lagi sögulegur. Bæði lið virtust nokkuð ákveðin í að tapa ekki og þegar upp var staðið hafði 10 rauðum spjöldum verið brugðið á loft! Leikur gömlu jaxlanna í 1. flokki var stórskemmtilegur og þar sáust tilþrif af öllu geröum. Hér er KA-maðurinn Jóhann Einarsson tekinn föstum tökum á meðan einn liðsmanna Þórs boðar fagnaðarerindið. Mynd: jhb Úrvaldsdeildin í körfuknattleik: Samkvæmt bókiimi í Grindavík - þegar Þór tapaði 66:96 Þórsurum tókst ekki að hrista af sér slenið í leik sínum gegn Úrvalsdeildin A-riðill UMFN-Skallagrímur 130:68 KR-Tindastóll 83:74 UMFN 14 12- 2 1317:1097 24 KR 14 11- 3 1293:1155 22 Tindastóll 14 6- 8 1260:1288 12 Snæfell 12 3- 9 959:1118 6 Skallagrímur 14 2-12 1142:1390 4 B-riðill UMFG-Þór 96:66 Valur-Haukar 80:76 ÍBK 13 12- 1 1314:1087 24 Valur 14 8- 6 1294:1238 16 UMFG 14 7- 7 1200:1128 14 Haukar 13 4- 9 1055:1161 8 Þór 14 3-11 1091:1251 6 heimamönnum í Grindavík í úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik á sunnudagskvöldið og falldraugurinn nartar því enn í hæla þeirra. Grindvíkingar tóku fljótlega forystuna og héldu henni auðveldlega til loka, staðan var orðin 41:31 í hléi en lokatölur urðu 96:66. Það var um miðjan fyrri hálf- leik sem líf færðist í norðan- menn, eins og þeir væru að taka sig á og véita mótspyrnu. Þeir minnkuðu þá muninn, sem var orðinn 14 stig, niður í 5 stig, 31:36, en dýrðin stóð stutt - allt fór úr böndunum og vonleysis- bragur kom á liðið - allt að því áhugaleysi. í það heila tekið var viðureign þessara liða með slakara móti og engu líkara en átið hafi verið tek- ið fram yfir æfingar um jólahátíð- ina af hálfu leikmanna beggja liða. Yfirburðamenn í Grindavík- urliðinu voru þeir Guðmundur Bragason og Joe Hurst, enda skoruðu þeir bróðurpart stiga liðsins, Hurst 38 og Guðmundur 27. Konráð Óskarsson var að venju bestur Þórsara, skoraði 17 stig. Högni Friðriksson stóð sig þokkalega en Joe Harge varð að júta í lægra haldi fyrir Guðmundi Bragasyni sem gætti hans vel og dró þar með einn sterkasta jaxl- inn úr Þórsliðinu. MG Slig UMFG: Joe Hurst 38, Guðmundur Bragason 27, Rúnar Árnason 7. Bergur Hinriksson 7, Pálmar Sigurðsson 6, Mar- el Guðlaugsson 6, Hjáimar Hallgrímsson 4, Pétur Guðmundsson 1. Stig Þórs: Konráð Óskarsson 17, Högni Friðriksson 14, Joe Harge 11, Guðmund- ur Björnsson 8, Björn Sveinsson 6, Jó- hann Sigurðsson 6, Örvar Erlendsson 2, Árni Þór Jónsson 2. Dómarar: Leifur Garðarsson og Brynjar Pór Þorsteinsson. Voru í hærri gæða- flokki en leikmenn. Erlingur Kristjánsson reynir að brjótast í gegnum vörn Þórs en Kristinn Hreinsson og Jóhann Samúelsson eru fastir fyrir. Mynd: Golli Úrvaldsdeildin í körfuknattleik: Mikilvægur sigur KR á Tindastól „Eins og vid spilum núna eig- um við ekki skilið að leika í úrslitakeppninni. Við vorum alls ekki nógu góðir og KR- ingar voru betra liðið þótt þeir hafi oft leikið betur,“ sagði Pétur Guðmundsson, leikmað- ur Tindastóls, eftir ósigur gegn KR í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik á Seltjarnarnesi á isunnudagskvöldið. KR vann sanngjarnan sigur, 83:74, og með þessum úrslitum hafa möguleikar Tindastóls á sæti í úrslitakeppni deildarinnar minnkað verulega. Liðið lék langt undir getu og virtist jóla- steikin sitja í mönnum. | Tindastóll réði ekki við hrað- ann í leiknum framan af og KR- ingar höfðu forystuna þar til fimm mínútur voru til hlés en þá jafnaði Tindastóll 31:31. KR-ing- ar höfðu forystuna í hléi, 44:41, og ekki tókst norðanmönnum að rétta frekar úr kútnum í seinni hálfleik. Liðið skoraði aðeins 8 stig á fyrstu 10 mínútunum en KR-ingar, með ungu strákana í fararbroddi, léku hins vegar skynsamlega og náðu mest 13 stiga forskoti. Tindastóll náði einu sinni að minnka muninn í fjögur stig, 62:66, fimm mínútum fyrir leikslok en vegna villuvand- ræða og klaufaskapar í sókn og vörn komust þeir ekki nær og munurinn jókst aftur í lokin. KR-ingar unnu þennan leik á breiddinni. Ungir og öflugir leik- menn þeirra eru óðum að koma til og taka stöður þeirra eldri með glæsibrag. Þess má geta að gamli refurinu Axel Nikulásson lék ekki með KR vegna veikinda. Lykilleikmenn Tindastóls, Pétur, Valur, Ivan og Einar náðu sér aldrei á strik og á meðan voru unglingalandsliðsmenn Tinda- stóls látnir verma varamanna- bekkinn. Slík leikstjórn kann ekki góðri lukku að stýra. Sverrir Sverrisson lék með Tindastól að þessu sinni en gat litlu breytt þrátt fyrir ágætar tilraunir. Þjálfari KR, Birgir Guðbjörns- son, var ánægður í leikslok. „Þetta var mjög góður og mikil- vægur sigur. Tindastóll hefur ver- ið á uppleið og er það lið sem ógnar okkur í slagnum um sæti í úrslitakeppninni en við ætlum okkur sigur í riðlinum." -bjb Slig KR: Jon Baer 23, Hermann Hauks- son 21, Guðni Guðnason 14, Óskar Kristjánsson 12, Sigurður Jónsson 5, Páll Kolbeinsson 4, Lárus Árnason 4. Stig Tindastóls: Valur Ingimundarson 23, Pétur Guðmundsson 22, Ivan Jonas 18, Haraldur Leifsson 7, Einar Einarsson 4. Dómarar: Kristinn Albertsson og Helgi Bragason. Voru sæmilegir en sá fyrr- nefndi virtist ekki alveg búinn að ná átt- um eftir fríið. Úrvalsdeildin: Tindastóll- UMFN í kvöld Tindastóll tekur í kvöld á móti Islandsmeisturum Njarðvíkinga í úrvalsdeildinni f körfuknattleik. Leikurinn fer fram í íþróttahús- inu á Sauðárkróki og hefst kl. 20.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.