Dagur - 07.01.1992, Síða 2

Dagur - 07.01.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 7. janúar 1992 Fréttir Fj armalaraðuneytið: Innheimtuhlutfall útsvars í staðgreiðslu 7,25% -11 sveitarfélög hækka útsvarsprósentuna í samræmi við lög um tekju- stofna sveitarfélaga hefur inn- heimta útsvars í staðgreiðslu á árinu 1992 verið ákveðið 7,05 prósent. Hækkun þessi hefur í för með sér að samanlagt inn- heimtuhlutfall staðgreiðslu til ríkis og sveitarfélaga á árinu 1992 verður 39,85 prósent í stað 39,79 prósent á yfirstand- andi ári, þar sem hlutur ríkis- sjóðs verður óbreyttur, eða 32,80 prósent, á árinu. Undanfarin tvö ár hefur inn- heimtuhlutfall útsvars verið 6,99 prósent, en hækkar nú vegna Húsavík: Björn Guðmunds- son í forsvari fjrir skatt- stoíunni ákvörðunar nokkurra sveitarfé- laga um að nýta sér heimild til hækkunar útsvars í 7,5 prósent. „Þrátt fyrir að einungis 11 sveitarfélög hafi ákveðið að hækka útsvarsprósentuna og 4 sveitarfélög ákvæðu að lækka hana, en öll önnur sveitarfélög þ.á m. Reykjavíkurborg breyttu ekki hlutfallinu, þá hafa nokkur þessara sveitarfélaga það mikið vægi, s.s. Hafnarfjörður, Mos- fellsbær, Grindavík og Njarðvík, að það veldur þessari hækkun. Önnur sveitarfélög sem ákváðu hækkun eru Kjalarneshreppur, Reykholtshreppur, Innri-Akra- hreppur, Leirár- og Melahrepp- ur, Lundarreykjadalshreppur, Hálsahreppur, Stafholtstungna- hreppur og Rauðasandshreppur. Þau fjögur sveitarfélög sem lækk- uðu útsvarið eru Eyjarhreppur, Reykjafjarðarhreppur, Snæfjalla- hreppur og Ásahreppur,“ segir í fréttatilkynningu frá fjármála- ráðuneytinu. ój Um helgina var settur skjöldur með nafni Jónasar Sigur- björnssonar á gönguhús Skíðaráðs Akureyrar í Hlíðar- fjalli. Það var Guðrún Frímannsdóttir, ekkja Jónasar, sem afhjúpaði skjöldinn. Jónas lést árið 1989 langt fyrir aldur fram en með þessu vill SRA tengja nafn Jónasar við starfsemi ráðsins í Hlíðarfjalli. Jónas sem hannaði gönguhúsið, var mjög góður skíðamaður og ötull og drífandi í Skíðaráði Akureyrar síðustu árin. í sumar var húsið stækkað um 45 ferm. en þar er nú setustofa, eldhús, snyrting og aðstaða fyrir skíðamenn, m.a. til þess að smyrja skíði sín. Mynd: hb Jóhann Hermannsson lét um áramótin af starfi umboðs- manns skattstjóra í Norður- landsumdæmi eystra á Húsa- vík. Jóhann varð sjötugur í október sl. Björn Guðmundsson, frá Lóni í Kelduhverfi, hefur verið beðinn að vera í forsvari fyrir skattstof- unni á Húsavík, en Björn hefur starfað þar í nokkur ár. Skatt- stofan á Húsavík verður starf- rækt áfram eins og verið hefur, að minnsta kosti fyrst um sinn. IM Sælgætisframleiðendur sjá fram á umtalsverða hækkun á súkkulaði vegna afnáms niðurgreiðslna á mjólkurdufti: Verðhækkun mun leiða af sér minnkandi neyslu - segir Sigurður Arnórsson, framkvæmdastjóri Súkkulaðiverksmiðjunnar Lindu Súkkulaði mun á næstunni hækka í verði, bæði innlent sem innflutt. Ástæða þessa er ákvörðun stjórnvalda um að hætta niðurgreiðslum á mjólk- Nú hristum við af okkur slenið Líkamsrækt: Kvennatímar - hóptímar - einstaklingstímar (hjónaafsláttur). Bak, háls og herðar: Morguntímar frá kl. 7.45. Skvass: Pantið salinn sem fyrst. GUFUBÖÐ NUDDPOTTUR LJÓSABEKKIR (tíminn 27 mín.) Líkamsræktarstöðin BJARG Bugðusíðu, sími 26888 urdufti til súkkulaðigerðar sem þýðir að hreint súkkulaði þarf að hækka um 15%. Sigurður Arnórsson, framkvæmdastjóri Súkkulaðiverksmiðjunnar Lindu, segir að framleiðendur muni draga eins og mögulegt er að hækka verð og reyna jafnframt að halda verðhækk- uninni í lágmarki en Ijóst megi vera að framleiðslugreinin sé ekki þannig stödd að hún geti tekið þessa hráefnisverðhækk- un á sig. „Það er ákvörðun stjórnvalda að neytendur sælgætis skulu greiða niður frantleiðslu á mjólk- ur- og undanrennudufti. Það er einfalt og afkoman í greininni er ekki þannig að við getum tekið þetta á og okkur, enda ekki ætl- ast til þess,“ segir Sigurður. Hann segir að þessi fyrirsján- lega hækkun komi til með að hafa áhrif víðar en í sælgætinu, t.d. á þeim brauðtegundum sem notað er súkkulaði til framleiðslu á. Hvað varðar sælgætið muni hækkunin eðlilega verða mest á hreinu súkkulaði en minni á konfekti. „Okkur finnst það hastarleg ákvörðun að þessi atvinnugrein sem er í sjálfu sér óskyld land- búnaði skuli ekki fá að kaupa inn hráefni á þeim verðum sem við hefðum getað best, þ.e. með inn- flutningi. Þar af leiðandi er verið að velta vandamálum bænda- stéttarinnar yfir á okkur og neyt- endur á okkar vörum. Það er klárt mál að 15% hækkun á súkkulaði mun leiða af sér minnkandi neyslu. Okkur sælgæt- isframleiðendum finnast þetta ósanngjarnar aðgerðir," sejþr Sigurður. JÓH Heildarútlán íslandsbanka: Jukust um 5,5 milljarða - áætlað að fækka starfsmönnum í 750 á árinu Heildarútlán íslandsbanka námu 41,3 milljörðum króna í Iok síðasta árs og höfðu aukist um 5,5 milljarða króna eða 15,6% á árinu. Á sama tíma jukust innlán bankans um allt að 3,9 milljarða króna eða 13,6% og námu 32,2 milljörð- um í árslok. Innlán og verðbréf bankans voru samtals 38,9 milljarðar króna í lok ársins samanborið við 34,7 milijarða um áramótin 1990 til 1991 og nemur sú aukning um 12%. Á árinu 1991 reyndist hæsta raunávöxtun á sparileiðum bankans vera 7,14%. í árslok var niðurstaða efna- hagsreiknings bankans um 56 milljarðar króna en var 51 millj- arður í upphafi ársins. Gefur þessi tala ákveðna vísbendingu um heildaruntsvif bankans þótt tölur um endanlega afkomu hans á nýliðnu ári li|gi ekki fyrir enn sem komið er. I frétt frá íslands- banka segir að af þessu sé ljóst að tekist hafi að snúa taprekstri á fyrri hluta ársins í liagnað þótt enn sé óljóst hvort tekist hafi að jafna tap ársins í heild. í fréttinni segir að tvennt hafi einkum haft afgerandi áhrif á afkomu bank- ans á liðnu ári. Munur inn- og útlánsvaxta hafi farið minnkandi og er áætlað að hann verði um 3,4% á árinu í heild, samanborið við 4% á árinu 1990 og 4,2% á árinu 1989. Einnig er gert ráð fyr- ir að afskriftir útlána verði meiri en árið áður og höfðu alls 506 milljónir króna verið færðar á afskriftareikning í lok ágúst, sem er hátt í eins há fjárhæð og allt framlag á afskriftareikning útlána á árinu 1990 en þá voru afskrifuð útlán fyrir 564 milljónir króna. í frétt frá íslandsbanka kemur einnig fram að á árinu hafi marg- víslegum hagræðingaraðgerðum verið haldið áfram og hafi bank- inn meðal annars selt húsnæði fyrir um 350 milljónir króna. Bankinn notar nú um 3000 færri fermetra fyrir starfsemi sína en bankarnir fjórir sem sameinaðir voru í Islandsbanka gerðu áður en sameiningin fór fram. Þá hef- ur útibúum bankans fækkað um sex, úr 38 í 32. Starfsfólki hefir einnig fækkað, án þess að til verulegra uppsagna hafi komið og nemurfækkunin nú 9,45%. Er bankinn hóf starfsemi sína voru 893 stöðugildi á vegum hans en áætlað er að þau verði komin nið- ur í 750 í lok þessa árs, sem þýðir 143 starfsmenn eða um 16% fækkun stöðugilda. ÞI ÞURRKUBLÖÐIN VERÐA AÐ VERA ÓSKEMMD og þau þarf að hreinsa reglulega. Slitin þurrkublöð margfalda áhættu i umferðinni.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.