Dagur - 07.01.1992, Side 3

Dagur - 07.01.1992, Side 3
Þriðjudagur 7. janúar 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Jrr •mrÆ&JmrjF /r •: •,* n. ' * -m— . *.. Mynd: Páll A. Pálsson Samherji hf.: Víðir EA til heimahafiiar - eftir gagngerar breytingar í Póllandi Togarinn Víðir EA 910 sem er í eigu Samherja hf. kom til Akur- eyrar sl. sunnudag eftir gagn- gerar breytingar í Póllandi. Að sögn Árna Þórðarsonar, fyrsta stýrimanns, var skipið lengt um tæpa níu metra og mælist nú 1144 tonn. Einnig var sett stærri skrúfa á togarann sem skrúfu- hringur og nýtt stýri. „Við för- um til veiða eftir viku til tíu daga þegar lokið er við að setja frystilínu í togarann, en það verk annast Slippstöðin hf.,“ sagði Árni stýrimaður. Skip- stjóri Viðis EA er Gísli Arn- bergsson. ój Togarar Útgerðarfélags Akureyringa hf.: Báru að landi 23.675 tonn á liðnu ári Heildarafli togara Útgerðarfé- lags Akureyringa hf. var 23.675 tonn á liðnu ári, en árið áður 22.580 tonn. Afli liðins árs er heldur minni en 1990 sé litið til fjölda sóknardaga. Samkvæmt upplýsingum Ein- ars Óskarssonar hjá Útgerðarfé- lagi Akureyringa hf. var afli Sléttbaks EA 304 4.292 tonn á liðnu ári. Aflaverðmæti er 469 milljónir og úthaldsdagar 295. Sléttbakur er frystitogari sem og Sólbakur EA 307. Úthaldsdagar Sólbaks EA voru 281, aflinn 3.112 tonn og aflaverðmæti 319 milljónir. Útgerðarfélag Akureyringa hf. gerði út fimm ísfisktogara á árinu 1991. Kaldbakur EA 301 var 207 daga á sjó en ungan úr sumrinu var togarinn í slipp þar sem unnið var að gagngerum breytingum á skipinu. Afli Kaldbaks EA var 2.679 tonn og aflaverðmæti 133 inilljónir. Afli Svalbaks EA 302 var 4061 tonn, úthaldsdagar 262 og aflaverðmæti 187 milljónir. Úthaldsdagar Harðbaks voru 275 og aflinn 4.542 tonn að verðmæt- um 275 milljónir. Gamli Sólbak- ur EA 305 bar að landi 2.323 GATT-viðræðurnar: Bændasamtökin hafiia drögum að nýju samkomulagi I ályktun sem stjórnir Búnað- arfélags íslands og Stéttar- sambands bænda sendu frá sér í gær um drög að nýju GATT- samkomulagi segir meðal ann- ars að samningsdrög þessi séu með öllu óaðgengileg fyrir íslcnskan landbúnað. Verði drögin að veruleika sé útilokað að framfylgja sjálfstæðri land- búnaðarstefnu í landinu og matvælaöryggi þjóðarinnar stefnt í hættu. I ályktuninni er bent á að á meðan verulegar útflutningsbæt- ur og annar stuðningur verði heimill í samkeppnislöndum okkar verði íslenskir bændur í mörgum tilvikum varnarlitlir gagnvart innflutningi. Stórfelldur samdráttur búvöruframleiðslunn- ar verði óumflýjanlegur og þar með yrði fækkun starfa í sveitum og við úrvinnslu landbúnaðar- afurða að veruleika. Því myndi síðan fylgja ógnvekjandi röskun á byggð landsins og eyðing heilla byggða vofa yfir. Bænda- samtökin krefjast þess að ríkis- stjórnin hafni umræddum drög- um að GATT-samkomulagi og reynist ekki unnt að tryggja1 samning, sern íslenskur landbún- aður geti búið við verði íslend- ingar að fá sérstöðu sína viður- kennda með sérákvæðum innan samningsins. PI tonn og úthaldsdagarnir voru 241. Afiaverðmæti reyndist 119 milljónir en aflaverðmæti Hrím- baks EA 306 var 137 milljónir. Úthaldsdagar voru 271 og aflinn 2.665 tonn. ísfisktogararnir lönd- uðu öllum afla til vinnslu í hrað- frystihúsi Útgerðarfélagsins. ój SkagaQörður: Fjölgun á ferðum sjúkra- bifreiða Sjúkrabifreiöar Skagafjarðar- deildar Rauða kross Islands voru kallaöar oftar út á nýliðnu ári en árið 1990. Einn- ig voru fleiri brunaútköll í Skagafirði í fyrra, en árið á undan. Skagafjarðardeild RKÍ er með tvær sjúkrabifreiðar í sinni þjón- ustu og er önnur staðsett á Sauð- árkróki en hin á Hofsósi. Sjúkra- flutningar hjá deildinni urðu 134 á árinu 1991 og þar af 22 vegna slysa. Samsvarandi tölur ársins 1990 er 121 sjúkraflutningur og þar af 18 vegna slysa. Brunaútköll hjá slökkviliðs- mönnum í Skagafirði voru ellefu talsins á nýliðnu ári, en einungis fimm árið á undan. Að sögn Guðbrands Frímannssonar, slökkviliðsstjóra á Sauðárkróki, urðu engir stóreldsvoðar á árinu í Skagafirði, en mest um útköll vegna sinubruna. SBG Akureyri: Fjölgun skilnaða að borði og sæng Leyfisbréfum vegna hjóna- skilnaða að borði og sæng fjölgaði á síðasta ári hjá bæjar- fógctacmbættinu á Akureyri samanborið við árið 1990. Einnig fjölgaði sambúðarslita- málum umtalsvert milli ára og sömuleiðis var faðerni barns úrskurðað með blóðrannsókn mun oftar á síðasta ári en árið 1990. Alls voru 34 leyfisbréf vegna hjónaskilnaða að borði og sæng gefin út á síðasta ári hjá bæjar- fógetaembættinu á Ákureyri. Þetta er umtalsverð aukning, því árið á undan voru gefin út 27 leyfisbréf, en 31 árið 1989. Guð- jón Björnsson, hjá bæjarfógeta- embættinu á Akureyri, segir að ýmsar ástæður séu fyrir skilnuð- um. Fjárhagsmál komi þar vissu- lega við sögu í sumum tilfellum, en aðrar ástæður séu líka til- greindar. Sambúðarslitamál voru 36 á síðasta ári samanborið við 31 árið 1990 og 22 árið 1989. Kveðnir voru upp 24 meðlags- úrskurðir á síðasta ári, 29 árið 1990 og 14 árið 1989. Þá skal þess getið að í fyrra voru framkvæmdar 10 blóðrann- sóknir vegna barnsfaðernismála, en aðeins 3 árið 1990 og 5 árið 1989. óþh Hér er stærsta tækifærið ta að vinna í stórhappdrætti UMBOÐSMENN SÍBS Á NORÐURLANDI: BORÐEYRI: Pálmi Sæmundsson, sími 95-11123 HVAMMSTANGI: Róberta Gunnþórsdóttir, Lækjargötu 6, simi 95-12380 BLÖNDUÓS: Kaupfélag Húnvetninga, sími 95-24200 SKAGASTRÖND: Kristín Kristmundsdóttir, Fellsbraut 6, sími 95-22858 SAUÐÁRKRÓKUR: Friörik A. Jónsson, Háuhlíö 14, sími 95-35115 HOFSÓS: Ásdís Garðarsdóttir, Kirkjugötu 19, sími 95-37305 SIGLUFJÖRÐUR: Birgir Steindórsson, Aöalgötu 26, sími 96-71301 GRÍMSEY: Kristjana Bjarnadóttir, Sæborg, sími 96-73111 ÓLAFSFJÖRÐUR: Valberg hf., sími 96-62208 HRÍSEY: Erla Siguröardóttir, sími 96-61733 DALVÍK: Sólveig Antonsdóttir, Verslunin Sogn, sími 96-61300 AKUREYRI: Björg Kristjánsdóttir, Strandgötu 17, sími 96-23265 SVALBARÐSEYRI: Sigríöur Guðmundsdóttir, Svalbaröi, sími 96-23964 GRENIVÍK: Brynhildur Friöbjörnsdóttir, Túngötu 13B, simi 96-33227 LAUGAR REYKDÆLAHREPPI: Rannveig H. Ólafsdóttir, sími 96-43181 MÝVATNSSVEIT: MIÐINN KOSTAR AÐEINS 500 KR. Hólmfríöur Pétursdóttir, Víöihlíö, sími 96-44145 AÐALDALUR: Kristjana Helgadóttir, Hraungeröi, sími 96-43587 HÚSAVÍK: Jónas Egilsson, Árholti, sími 96-41405 KÓPASKER: Óli Gunnarsson, sími 96-52118 RAUFARHÖFN: Vilhjálmur Hólmgeirsson, sími 96-51150 ÞÓRSHÖFN: Sparisjóöur Þórshafnar og nágrennis, sími 96-81117 - MEÐ MESTU VINNINGSLÍKURNAi

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.