Dagur - 07.01.1992, Side 11
Þriðjudagur 7. janúar 1992 - DAGUR - 11
í átta ár hefiir Paul Vuillard
unnið að endurbyggingu Ponunerol
Paul Vuillard, skurðlæknir, er
sérstæður maður og framkvæmir
það sem honum dettur í hug.
Fyrir átta árum greiddi hann 1800
dollara fyrir þorpið Pommerol í
Frakklandi, sem var sannkallað-
ur draugabær og rústir einar.
Paul, sem í dag er 55 ára, var á
ferð um Frakkland og kom til
Pommerol. Strax og hann sá
þorpið fékk hann þá hugmynd að
gaman væri að endurbyggja húsin
22. í snarheitum var gengið frá
kaupum á þorpinu og Paul sagði
starfi sínu lausu á sjúkrahúsinu,
enda var hann löngu orðinn
þreyttur á skurðstofuvafstrinu.
„Sem betur fer er ég nokkuð
handlaginn og ákveðinn. Ég
þurfti að kaupa kennslubækur er
tóku til burðarþolsfræði og stein-
hleðslu, trésmíði og pípulagna,
rafmagns og raunar alls er lýtur að
byggingu húsa. Einnig átti ég
góða að sem ég get ráðfært mig
við. í dag hef ég endurbyggt 14
hús með eigin höndum og leigi
þau út til ferðamanna. Ágóðinn
rennur til uppbyggingarstarfsins,
því enn skal haldið áfram. Pegar
húsin 22 verða öll endurbyggð
ætla ég að byggja kastala efst á
hæðinni þar sem gott verður að farinn veg,“ segir Paul Vuillard
setjast í helgan stein og líta yfir hróðugur.
Með magaverk vegna ofáts
Hver kannast ekki við verki í maga vegna ofáts? Hvað er til ráða þegar svo er komið? Björninn á myndinni
borðaði yfir sig um jólin og fékk slæma kveisu og því var ekkert annað að gera en halda um magann. Hvort
sú viðleitni bangsa bar árangur fylgir ekki sögunni, en ósköp er hann aumkunarverður þar sem hann hefur
hent sér niður með lokuð augun.
Tapað —
Fundið
Tapast hafa nokkrir félagar úr sundfélaginu Pottormar í
Glerárhverfi. Þeir heita, ísleifur Ingimarsson, Guðmund-
ur Sigurbjörnsson, Guðmundur Jóhannsson, Guðmund-
ur Svansson, Eiríkur Rósberg, Sverrir Torfason, Hall-
grímur Einarsson, Benedikt Guðmundsson, Svavar
Guðjónsson, Stebbi á Benzanum, Jón M. Ragnarsson,
Áskell Einarsson.
Þeir sem verða varir við áðurnefnda félaga eru
vinsamlegast beðnir að skila þeim í sundlaugina
við Glerárskóla. Móttaka alla virka daga frá kl.
6.45-7.00. Fundarlaun.
Sundþjálfárar.
Lögtaksúrskurður
20. desember sl. var kveðinn upp almennur lögtaks-
úrskurður fyrir ógreiddum og gjaldföllnum aðstöðu-
gjöldum og fasteignagjöldum álögðum árið 1991, til
sveitarsjóðs Svalbarðsstrandarhrepps. Mega lögtök
fyrir gjöldum þessum, ásamt dráttarvöxtum og
kostnaði, fara fram að 8 dögum liðnum frá birtingu
úrskurðar þessa.
Vinsamlegast gerið skil hið fyrsta, svo komist verði
hjá óþægilegum innheimtuaðgerðum.
Sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhrepps.
Fegurðarsmkeppni
Norðurlands I992
verður haldin í Sjallanum í febrúar.
Tilkynningar um þátttöku svo og allar
ábendingar skulu berast til Sjallans í síma
22770 eða Dansstúdíós Alice í stma 24979.
Sigurvegari í kepptiinni „Fegnrðardrottning Norðurlands'
verður fulltrúi Norðurlands í keppninni um
„Fegurðardrottningu íslands".
Allar upplýsingar eru ||
gefnar í Sjallanum í
SJALLINN
S KÓLI N N
Vorönn
Hljómskólans
Vikuna 6.-10. jan.
hefst innritun
á vorönn skólans. _____________
Innritun fer fram á skrifstofu skólans Gránufélags-
götu 4 (JMJ húsið) á III. hæð milli kl. 9 og 17. Sími
skólans er 11880.
Nemendur sem stunda nám við skólann og ætla að
halda áfram námi á vorönn eru beðnir að staðfesta
eldri umsóknir tímanlega með greiðslu eða greiðslufyr-
irkomulagi.
Annaskipti skólans eru 25. janúar 1992.
Kennt verður í eftirfarandi greinum:
Fornám
Tónföndur frá 4-7 ára - Kennari: Örn Viðar.
Klassískur gítar frá 4 ára - Kennarar: Örn Viðar og Halldór Már.
Rafgítar frá 8 ára - Kennari: Kristján Edelstein.
Pjóðlagagítar frá 12 ára - Kennarar: Örn Viðar og Sigríður Arnar.
Hljómborð frá 8 ára - Kennari: Kristján Edelstein.
Trommur frá 10 ára - Kennari: Karl Petersen.
Hliðargreinar 6.-8. stig - Kennari: ívar Aðalsteinsson.
Enn er verið að athuga kennslu á rafbassa og munnhörpu,
auglýst síðar.
Sérstök áhersla verður lögö á fullorðins kennslu á vorönn
skólans á dægurlagabrautum (gítar, hljómborð).
Visa - Euro - Samkorta þjónusta.