Dagur - 18.01.1992, Side 10

Dagur - 18.01.1992, Side 10
10 - DAGUR - Laugardagur 18. janúar 1992 Stjörnuspá „Án ábyrgöar“ f-l mtur* 21. mars -19. apríl Þetta verður frekar leiðinleg helgi. Fjöl- skyldan er eitthvað að ergja þig. A mánu- dagsmorgun verður allt fallið í Ijúfa löð og verða mánudagur og þriðjudagur bestu dagar vikunnar. Enn eru blikur á lofti í lífi hrúta og þótt aðeins byrji að rofa til á þriðjudaginn skaltu enn um sinn forðast ferðalög og fjárhagslegar áhyggjur. Kt*abbi 21. júní - 22. júlí Þetta er þín helgi. Svona fjölskylduhelgi. Þar ertu líka best geymd(ur) þessa dag- ana. Staða þín í skólanum/vinnunni er ótrygg og heilsan er viðkvæm. Það ætti þó að vera óhætt aö líta á næturlífið í kvöld en klæddu þig vel. Engin ferðalög í þessum mánuði. Haltu þig heima og bak- aðu snúða. Sigfús E. Arnþórsson fyrir vikuna 18. - 24. janúar 1992 Vog 23. september - 22. október Steirvgeit 22. desember - 19. janúar Þetta verður afleit helgi. Fjölskyldugrátur og vasaklútar. Á mánudag fer hagur þinn að vænkast og á þriðjudag leikur allt í lyndi. Annars verður föstudagur besti dag- ur vikunnar. Enn um sinn skaltu fara vel með þig og taka enga óþarfa áhættu hvorki ferðalög né fjárhættuspil. Þetta er helgi hinna mörgu árekstra. Steingeitur munu reka hornin utan í allt og alla og ekki er víst að allir taki því af neinni þolinmæði. Annars eru tímarnir hagstæð- ir steingeitum og smáerjur eru bara hress- andi. Þú færð að líkindum góðar fréttir á miðvikudag eða fimmtudag. AJaut 20. apríl - 20. maí Þetta verður frábær helgi í góðum félags- skap fyrir nautin. Gott ef ástin er ekki með í spilinu. Á mánudag og þriðjudag þarftu að glíma við einhverja fyrirstöðu en á miðvikudag og/eða fimmtudag nærðu hagstæðum samningum í viðskiptum. Uppgangurinn heldur áfram en láttu hann ekki stíga þér til höfuðs. rO L)6* V* 23. júlí - 22. ágúst Eftir friðsama helgi lendir þú heldur betur í sviðsljósinu á mánudaginn og allt fram á þriðjudagskvöld munt þú láta Ijós þitt skína yfir réttláta sem rangláta og fá að launum alla þá athygli sem hugur þinn girnist. Föstudagur býður upp á gullin tækifæri á ýmsum sviðum, svo fremi þú komir auga á þau. Spor*ðdf*e ki 23. október - 21. nóvember Eftir nokkuð hagstæða tíma í vetur fer nú brátt að syrta í álinn hjá sporðdrekum. Helgin verður þó ágæt. Gott ef ekki ein sú besta í langan tíma. Mánudagur og þriðju- dagur mæta þér með þrjósku og íhalds- semi en á miðvikudag og/eða fimmtudag gæti þér áskotnast óvænt skotsilfur, þó ekki fyrirhafnarlaust. VatiAsb en 20.janúar- 18. febrúar Eftirtíðindalitla helgi lendirþú í hörkuátök- um á mánudag og þriðjudag við einhver yfirborðsleg og jafnvel upplogin sjónar- mið. En að öðru leyti verður vikan friösæl. Á þriðjudaginn gengur sólin inn í vatns- beramerkið og munu allir atburðir næstu vikna hér á jörðu bera þess vott. Tvíb MfQt* 21. maí - 20. júní AAeyja 23. ágúst - 22. september 13ocjmcxc)uií 22. nóvember - 21. desember Piskar* 19. febrúar - 20. mars Það er létt framundan hjá tvíburunum. Eft- ir tíðindalausa helgi lendir þú í heilmiklum ævintýrum á mánudag og þriðjudag. Ja, kannski ekki heilmiklum en það verður alla vega hlustað á þig. Þú flækist í ein- hverjum smáatriðum á miðvikudag og fimmtudag en annars má segja að ef ekki væri þessi óvissa í ástamálunum væri alls ekkert að gerast. Þetta verður að sönnu hin ánægjulegasta helgi en bestu dagar vikunnar verða þó miðvikudagur og fimmtudagur þegar allir hlutir ganga upp eins og af sjálfu sér. Annars eru góðir hlutir að gerast hjá meyjum, Júpíter er í meyjarmerkinu allt þetta ár (það gerist aðeins á 12 ára fresti) og hann mun færa þér þroska, uppskeru og nýjan lífsgrundvöll. Það er lítið fréttnæmt framundan hjá bog- mönnum. Þú ert að vísu óvenju mikið á ferðinni þessa dagana, skoðandi ótrúleg- asta fólk og hlustandi á sérkennilegustu sjónarmið. Þá eru ástarævintýri á hverju götuhorni og hjá bogmönnum í hjóna- bandi blómstrar samlífið. Mánudagur og þriðjudagur eru besti tími annars tíðinda- lítillar viku. Þetta verður hin indælasta helgi, tilvalin til útstáelsis (nema þú sért í prófum) og mannamóta af öllu tagi. Á miðvikudag og fimmtudag þarftu að gæta þín sérstaklega. Annars ganga allir hlutir upp hjá þér þessa dagana - flestir að minnsta kosti. Verst þetta með ástamálin, það hrekkur í lag næsta laugardag, þann 25. Vísitala jöfnunarhlutabréfa Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað út vísitölu almennrar verðhækkunar í sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1992 og er þá miðað við að vísitala 1. janúar 1979 sé 100. 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1980 vísitala 1981 vísitala 1982 vísitala 1983 vísitala 1984 vísitala 1985 vísitala 1986 vísitala 1987 vísitala 1988 vísitala 1989 vísitala 1990 vísitala 1991 vísitala 1992 vísitala 156 247 351 557 953 1.109 1.527 1.761 2.192 2.629 3.277 3.586 3.835 Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða innborgunar hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar skal miða við vísitölu 1. janúar þess árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin. RSK Rj KISSKATTST' < Auglýsing í Degi ber árangur Af erlendum vettvangi Trúað fólk er hraustara en aðrir von, sem mjög trúað fólk hefur um betri heim. Fólk með slíka trú þjáist miklu sjaldnar af streitu og hefur á reiðum höndum skýr- ingar á tilgangi lífsins. Sálfræðingarnir tveir segja ein- faldlega, að það sé hið jákvæða viðhorf trúaðra til lífsins og til- verunnar, sem valdi því, að þeir séu heilsubetri en aðrir. (Fakta 1/91. - Þ.J.) Mikil hætta á að geimfarar fái krabbamein aði, segir dr. Boyce. Hann líkir því að vera óvarinn úti í geimn- um við það, að starfsfólk í rönt- gendeildum sjúkrahúsa léti rönt- gengeislana leika um sig án nokk- urrar varnar. Hættan á að geimfarar fái krabbamein telst vera svo alvar- legt vandamál, að hjá Geim- ferðastofnuninni (NASA) er nú rætt um að kanna fjarlægari hluta himingeimsins einvörðungu með ómönnuðum geimskipum. Það er enda ástæðulaust að stofna heilsu manna að óþörfu í hættu vegna krabbameins, þegar hægt er með jafngóðum árangri að nota fjar- stýrð vélmenni til að safna upp- lýsingum. (Fakta 1/91. - Þ.J.) Geislunin í himingeimnum veld- ur því, að það er mun meiri hætta á að geimfarar fái krabbamein en aðrir. Þetta segir dr. Joseph Boyce, sérfræðingur í flug- lækningum hjá Geimferðastofn- un Bandaríkjanna. Því lengur, sem menn eru úti í geimnum, því meiri verður hættan á krabba- meini. Tæknileg vandamál, sem upp koma við geimferðir, tekst venju- lega að leysa, ef menn gefa sér góðan tíma til að fást við þau. En geislunin í himingeimnum verður ekki fjarlægð með neinum tækni- legum aðgerðum. Vegna hinnar stöðugu geislun- ar úti í geimnum, er ekkert vit í að menn fari út úr geimferjunum nema í sérstökum hlífðarklæðn- Fólk með mikla trúarvissu fær sjaldnar kvef og þjáist síður af höfuðverk en þeir, sem veikari eru í trúnni eða trúlausir. Þetta er niðurstaða tveggja amerískra sálfræðinga, sem fengist hafa við rannsóknir á þessu. Þar að auki hafa þeir trúuðu heilbrigðara hjarta, æðakerfi og lungu en van- trúaðir. Ástæðan til þessa er líklega sú

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.