Dagur - 06.02.1992, Síða 2

Dagur - 06.02.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 6. febrúar 1992 Fréttir Dagmæður á Akureyri: Breyting á gjaldskrá kallar á viðbrögð - Félagsmálastofnun Akureyrarbæjar boðaði viðskiptavini dagmæðra til fundar eftir að dagmæður ákváðu að taka upp gjaldskrá reykvískra dagmæðra Nokkrar umræður hafa spunn- ist meðal foreldra og starfs- manna Félagsmálastofnunar Akureyrarbæjar vegna breyt- inga sem dagmæður á Akur- eyri hafa tilkynnt á gjaldskrá sinni. Af því tilefni var haldinn fundur á mánudaginn þar sem „viðskiptavinir dagmæðra ræddu sín hagsmunamál í fyrsta sinn,“ eins og Jón Björnsson félagsmálastjóri komst að orði. Nýja gjaldskráin tók gildi um síðustu mánaðamót en hún er að heita má óbreytt gjaldskrá dag- mæðra í Reykjavík. Að sögn dagmæðra er tilgangurinn með breytingunni sá að samræma gjaldskrárnar og er það gert í ljósi þess að dagmæður hyggja á stofnun landssambands. Veruleg breyting er á uppbygg- ingu gjaldskrárinnar. í fyrsta lagi er börnunum nú skipt upp í þrjá aldursflokka í stað tveggja áður. Nú er þeim skipt við átta mánaða aldurinn og tveggja ára en áður voru tveir flokkar, yngri og eldri en eins árs. í öðru lagi breytist fæðisgjaldið. Fullt fæði fyrir eins árs og eldri var 8.147 kr. á mán- uði en nú er fullt fæði fyrir 8 mán- aða til tveggja ára 3.748 kr. á mánuði og fyrir eldri en tveggja ára 7.568 kr. Á móti kemur svo nokkur hækkun á kaupi. Samkvæmt útreikningum Dagvistardeildar Akureyrarbæjar er hækkun tíma- kaups frá 15-21% fyrir dagmæður með börn eldri en tveggja ára en 23-27% fyrir þær sem eru með yngri börn. Þá hækkar yfirvinnu- kaup töluvert en þar vegur á móti að dagvinnan er nú frá kl. 8-18 en var frá kl. 8-17. Dagvistardeildin hefur reiknað út þær breytingar sem verða á heildargreiðslum til dagmæðra við gjaldskrárbreytinguna. Sam- kvæmt þeim tölum hækka greiðslur fyrir barn í fjögurra tíma gæslu um 20-23%, sé barnið yngra en tveggja ára, en um 13- 17%, sé barnið eldra. Fyrir barn, eldra en tveggja ára, sem er í átta tíma vistun hækkar gjaldið um 9- 12%. Minnsta hækkunin er fyrir yngri börnin í átta tíma vistun, 0,2-3% og í einu tilviki lækkar gjaldið um 2%. Þetta skýrist einkum af því að vægi fæðis- kostnaðar er meira þegar um heilsdagsgæslu er að ræða. Jón Björnsson félagsmálastjóri sagði að á fundinum á mánudag- inn hefðu verið 25 manns, mest foreldrar barna sem eru hjá dag- mæðrum. Þar voru rædd ýmis sameiginleg hagsmunamál og tveir fulltrúar kosnir til að halda utan um hagsmuni hópsins. „Hingað til hafa dagmæður sett allar leikreglur í skjóli þess að viðskiptavinir þeirra hafa ekki verið sameinaðir. Burtséð frá gjaldskrármálinu er gott fyrir for- eldra að hafa samráð og því fer fjarri að þessu sé á einhvern hátt stefnt gegn dagmæðrum. Þarna voru saman komnir bestu vinir dagmæðra.“ Um gjaldskrárhækkunina sagði Jón að honum fyndust rök- in fyrir hækkuninni, þe. væntan- leg stofnun landssambands dag- mæðra, ekki trúverðug. „Þetta samband hefur ekki verið stofnað og því ekki tekið neina afstöðu til gjaldskrár. Ef af stofnun þess verður er ekkert víst að þessi gjaldskrá verði lögð til grundvall- ar. Það er út af fyrir sig skiljan- legt að dagmæður séu óánægðar með kjör sín, en af hverju er þessi hækkun ákveðin núna þeg- ar framfærsluvísitalan fer lækk- andi?“ Jón bætti því við að þetta setti Akureyrarbæ í nokkurn vanda. Bærinn endurgreiðir einstæðum foreldrum hluta af gjaldinu til dagmæðra og það hefði ekki ver- ið gert ráð fyrir þessari hækkun við afgreiðslu fjárhagsáætlunar. -ÞH Lögreglan: Nokkrir smáárekstrar í gær - ökumenn misreikn- uðu sig í hálkunni Nokkrir smávægilegir árekstr- ar urðu á Akureyri í hálkunni í gær. Engin slys urðu á mönn- um og skemmdir á ökutækjum verða að teljast litlar. Nokkrir ökumenn misreikn- uðu sig í hálkunni í gær og náðu ekki að stöðva bíla sína í tíma. Af því hlutust nokkrir smávægi- legir árekstrar auk þess sem ein- um kyrrastæðum bíl leiddist bið- in eftir húsbónda sínum og hélt af stað hjálparlaus niður næstu brekku. För hans endaði á öðrum bíl en þar sem ferð hans var lítil var ekki um miklar skemmdir að ræða. Sömu sögu er að segja af þeim árekstrum er urðu þar sem ökumenn sátu undir stýri - engan mann sakaði og skemmdir á öku- tækjum voru litlar. Að sögn lög- reglu fara flestir rólega í umferð- inni nú þegar sumarblíðan er yfirstaðin en þó ber við að menn ofmeta bremsuhæfni ökutækja sinna. ÞI Sauðárkrókur: Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráð hefur samþykkt að Sauðárkrókskaupstaður taki þátt í stofnun hlutafélags um að koma á fót stjórnsýslu- miðstöð á Sauðárkróki. Áðrir þátttakendur í hlutafélaginu verða Héraðsnefnd Skagfirð- inga, Kaupfélag Skagfirðinga og Byggðastofnun. Heima- aðilar verða með jafnan hlut í félaginu, en leita á eftir að hlutur Byggðastofnunar verði 40% af 20 milljón króna hluta- fé. ■ Bæjarráð tekur undir áskor- un Landssambands smábáta- eigenda um að sjávarútvegs- ráðherra beiti sér nú þegar fyr- ir breytingu á Iögum nr 38/ 1990 um stjórn fiskiveiða á þann veg, að ekki myndist framseljanlegar veiðiheimildir innan banndagakerfisins og það verði jafnframt fest varan- lega í sessi. ■ Bæjarráð hefur samþykkt kaupsamning, vegna gripa- húsa í Kristjánklauf, rriiíli Maríu Ragnarsdóttur og Sauðárkrókskaupstaðar. ■ Bæjarráð samþykkti að veita Briddsfélagi Fjölbrauta- skólans 20 þús. króna styrk til kaupa á verðlaunum fyrir Tslandsmót framhaldsskóla í bridds sem fram fór á Sauðár- króki 31. jan.-l. feb. ■ Jón Sigurðsson hefur óskað eftir því við Bæjarráð að það mæli með umsókn hans um sérleyfi til fólksflutninga á leiðinni Siglufjörður-Reykja- vík með viðkomu á Sauðár- króki. Bæjarráð hefur sam- þykkt að verða við erindinu. ■ Bæjarráð hefur samþykkt niðurfellingu álagðs fasteigna- skatts vegna ársins 1992 og samkvæmt lista nemur sú upp- hæð 86.944 krónum. ■ Sigurlaug Viðarsdóttir hef- ur verið ráðin í starf við ræst- ingar í Gagnfræðaskóla fram til vors að fenginni tillögu skólastjóra og húsvarðar. ■ Bygginganefnd hefur borist fyrirspurn frá Tengli hf. um hugsanlega nýtingu lóðarinnar að Aðalgötu 26 og tekur hún jákvætt í hugmyndirnar. ■ Kiwanisklúbburinn Drang- ey hefur spurt bygginganefnd um hentuga lóð fyrir ca. 150 fermetra félagsheimilisbygg- ingu. ■ Vegna þess að bygginga- nefnd telur þörf á að undirbúa endurskoðun aðalskipulags hefur nefndin óskað eftir því að Tæknideild bæjarins láti gera úttekt á kostnaði við að gera byggingarhæf þau svæði er næst verða tekin undir íbúðabyggð. ■ Félagsmálaráð hefur sam- þykkt að ráða Sigríði Ingi- marsdóttur til starfa í heimilis- hjálp. ■ Bæjarstjórn hefur falið bæjarráði leita eftir samvinnu á kjördæmagrundvelli milli sveitarstjórna, heilbrigðis- stofnana og annarra opin- berra stofnana, um samstarf á sviði sálfræðiþjónustu, félags- ráðgjafar og skyldrar starf- semi. Samanburður á gjaldskrá dagmæðra á Akureyri nú og fyrir breytíngu Eldri en 2ja ára - 4 klst. vistun Fyrir 1. febrúar Laun Fæöi Samtals 7.047 1.799 8.846 Laun 8.401 Fæöi 1.694 Eftir 1. febrúar Samtais Mismunur 10.095 1.249 Mismunur % 14% Yngri en 2ja ára - 4 klst. vistun Laun Fæöi Samtals 8.694 1.799 10.493 Laun 10.898 Fæöi 1.694 Samtals 12.592 Mismunur 2.099 Mismunur% 20% Eldri en 2ja ára - 8 klst. vistun Laun Fæöi Samtals 14.094 8.147 22.241 Laun 16.805 Fæöi 7.568 Samtals 24.373 Mismunur 2.132 Mismunur % 10% Yngri en 2ja ára - 8 klst. vistun Laun Fæði Samtals 17.388 8.147 25.535 Laun 21.281 Fæöi 3.748 Samtals 25.029 Mismunur -506 Mismunur % -2% Útreikningamir eru geröir af Dagvistunardeild Akureyrarbæjar. Allsstaöar er miöaö viö 2. taxta í gjaldskrá dagmæðra. Þar sem taxtar eru ekki sambærilegir vegna fjölgunar eöa fækkunar flokka er notast viö meöaltalstölur. Föstudags- koöld: Sálin hans Jóns míns Peir sem mæta á föstudag fá frítt inn á laugardag Laugardagskvöld: Okkar geysivinsæla diskótek Aðgangur aðeins kr. 800 Fimmtudag og laugardag: Valgeir Skagfjörð skemmtir gestum Clppans Snyrtilegur klæönaður Borðapantanir í síma 24199

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.