Dagur - 07.03.1992, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 7. mars 1992
Fréttir
Vaka SU kom til Siglufjarðar sl. fimmtudag
Teljum að kaupin á Vökunni sé arðbær ijárfesting
- segir Róbert Guðfmnsson, framkvæmdastjóri Þormóðs ramma
Eins og fram kom í Degi í gær
var létt yfir Siglfirðingum sl.
fimmtudag þegar þeir tóku á
móti nýju og glæsilegu skipi,
Vöku SU. Út af fyrir sig þarf
engan að undra að heimamenn
hafi ekki getað annað en
brosað. Fyrir sjávarútvegsbæ
eins og Siglufjörð er koma nýs
skips eins og stóriðja.
Fyrir á Þormóður rammi tvo
ísfisktogara, Stálvík SI-1, sem
var smíðuð árið 1973 og lengd
árið 1986 og Sigluvík SI, sem var
smíðuð árið 1974. Meðalaldur
skipaflota fyrirtækisins lækkar
því umtalsvert með tilkomu
Vökunnar.
Það þarf vart að tíunda sögu
Vökunnar hér, svo oft hefur það
verið gert. Rétt er þó að rifja upp
að hún var smíðuð á Spáni og
afhent Eskfirðingi hf. á Reyðar-
firði á síðasta ári. Skipið er 620
brúttórúmlestir, en lestarrými er
996 rúmmetrar. Vélarafl er 3600
hestöfl og togkraftur á milli 46 og
47 tonn. Til samanburðar er rétt
að geta þess að skip Sjólastöðvar-
innar í Hafnarfirði, Haraldur
Kristjánsson HF-2, sem hvað
mest íslenskra fiskiskipa hefur
sótt á úthafskarfa, er með tæp-
lega 3000 hestafla vél og þar af
leiðandi minni togkraft en Vaka.
Pað þarf því ekki að koma á
óvart að auk úthafsrækjuveiða
horfi forráðamenn Þormóðs
ramma til þess að gera skipið út á
úthafskarfaveiðar.
Erum að skapa okkur
meiri breidd
En hver er ástæða þess að for-
ráðamenn Þormóðs ramma
ákváðu að ráðast í kaup á Vök-
unni. Róbert Guðfinnsson, annar
tveggja framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins svarar því.
„Við erum með fyrirtæki sem fór
í gegnum mikla endurskipulagn-
ingu á síðasta ári. Sú endurskipu-
lagning tókst. Fyrirtækið var
endurfjármagnað með nýju
hlutafé að hluta og stokkað upp
og það er staðreynd að eftir þá
uppstokkun er það í stakk búið
til þess að takast á við kaup á
þessu skipi.
Við rekum hér tvo ísfisk-
togara, rækjuverksmiðju og
reykhús. Við reiknum með því
að gera Vökuna út á úthafsrækju
að mestu leyti. Þar með verður
það hráefnisskapandi fyrir okkar
rækjuverksmiðju. Skipið eitt og
sér er arðbær fjárfesting til lengri
tíma að okkar dómi og okkar
ágætu ráðgjafa. Þar af leiðandi
hlýtur það að vera rétt ákvörðun
að kaupa það.
Það sem við erum að gera er að
skapa okkur meiri breidd. Við
verðum eftir sem áður í fisk-
vinnslu, rækjuvinnslu og útgerð.
Það sem við bætist er frystitogara-
útgerð. Það er ljóst að skipið hef-
ur mikla möguleika vegna þess
hve öflugt það er og hve mikla
frystigetu það hefur. Út frá því
munum við vinna. Þetta er fyrst
og fremst fjárfesting sem á ekki
að koma niður á öðrum deildum
fyrirtækisins, heldur miklu frem-
ur styrkja þær þegar til lengri
tíma er litið.“
3500 tonn af loðnu til
Hraðfrystistöðvarinnar
- Hvað kostaði Vakan?
„Kvótalaust kostaði skipið í
kringum 440 milljónir króna.
Kvótinn, sem í þessu dæmi er að
stærstum hluta loðnukvóti, er
metinn á milli tvö og þrjú hundr-
uð milljónir króna. Loðnukvót-
inn sem fylgir með Hörpunni er
2,8% af heildarloðnukvótanum
og 0,7%, eða 3500 tonn, af hon-
um fara til Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar hf. Hinu verður skipt
á milli útgerða, sem hafa landað
mikið á Þórshöfn."
- Er þetta ekki of stór biti fyrir
Þormóð ramma svo skömmu eft-
ir fjárhagslega endurskipulagn-
ingu fyrirtækisins?
Þoraióður rammi
er á réttri leið
- segir Björn Valdimarsson, bæjarstjóri
á Siglufirði
Björn Valdimarsson, bæjar-
stjóri á Siglufirði, sagði að
það hafí tvímælalaust verið
hans ánægjulegasta verk sem
bæjarstjóri til þessa að halda
ávarp við komu Vöku til
Siglufjarðar si. fímmtudag.
Björn sagði aðspurður að
ekki hafi verið reiknað
nákvæmlega út hversu miklar
tekjur mætti ætla að bærinn
fengi af skipinu þegar til lengri
tíma væri litið. „En það má öll-
um ljóst vera að það skiptir
gríðarlega miklu máli fyrir
Siglufjörð að fá þetta skip í
bæinn. Fyrir það fyrsta er
stærsta útgerðarfyrirtækið í
bænum að styrkja mjög sína
stöðu og við það bætast fjöl-
mörg góð störf fyrir sjómenn.
Mér er efst í huga þegar þetta
skip leggst hér að bryggju að
fyrirtækið Þormóður rammi,
undir stjórn þeirra sem því
stjórna, er á réttri leið. Það að
þeim skuli takast að festa kaup
Björn Valdimarsson.
á þessu skipi staðfestir að þarna
eru menn að gera góða hluti og
það gefur okkur tilefni til að
vera bjartsýn á framtíðina.“
óþh
„Það má ekki gleyma því að
bakhjarl okkar í þessu dæmi er
okkar ágæti viðskiptabanki,
íslandsbanki, sem hefur staðið
sig með eindæmum vel við að
endurskipuleggja fyrirtækið. Þeir
ágætu menn myndu ekki hleypa
okkur út í þessa fjárfestingu ef
þeir teldu að við vissum ekki
hvað við værum að gera.
Fjárhagsleg staða fyrirtækisins
er orðin það sterk að við getum
þetta og til marks um það er eigið
fé þess um 400 milljónir króna.“
- Hversu margir verða í áhöfn
skipsins?
„Sautján manns, en það hefur
ekki verið gengið frá ráðningu
áhafnarinnar. Það vantar enn rafal
í skipið sem bilaði og við bíðum
eftir að fá frá Spáni. Honum
verður komið fyrir strax og hann
kemur og við áætlum að skipið
fari á veiðar að hálfum mánuði
liðnum og á þeim tíma ráðum við
skipstjóra og hann mun síðan
ganga frá ráðningu á áhöfn."
Ekki búið að ákveða
nafn á skipið
- Hvað með nýtt nafn á skipið?
„Við höfum verið svo upptekn-
ir við að koma skipinu lieim að
Róbert Guðfinnsson.
við höfum ekki mátt vera að því
að hugsa um það.“
- Nú eru ísfisktogarar Þor-
móðs ramma, Sigluvík og
Stálvík, orðnir nokkuð gamlir.
Þurfið þið ekki bráðlega að huga
að frekari endurnýjun fiskiskip-
anna?
„Þessi togarar eru vissulega
orðnir gamlir, en þeim er og hef-
ur verið mjög vel haldið við. Það
liggur fyrir að einhvern tímann
þarf að endurnýja þá, en sá tími
er ekki kominn. Aldur skips segir
ekki mikið. Aðalatriðið er að
halda þeim vel við eins og raunin
er með bæði Sigluvík og Stálvík.
Ég get nefnt að héðan er gert út
rækjuskip, Helga, sem er eitt
aflahæsta rækjuskip landsins.
Hún er um tíu árum eldri en okk-
ar ísfisktogarar. Aldurinn segir
því ekki allt.“
- Siglufjörður hefur lengi ver-
ið í lægð í atvinnulegu tilliti. Eru
kaupin á Vöku til marks um að á
þessu sé að verða breyting?
„Ég held að það sé ekki
spurning. Það er kominn fjár-
hagslegur styrkur inn í flest fyrir-
tæki í bænum auk þess sem
bæjarsjóður stendur betur nú en í
langan tíma. Fyrirtæki eins og
Siglfirðingur hf., Þormóður
rammi hf., Ingimundur hf. og
ýmis smærri þjónustufyrirtæki
auk bæjarsjóðs Siglufjarðar eiga
orið þokkalega sterkan grunn og
á honum ætlum við að byggja. Ég
trúi því að þetta byggðarlag muni
styrkjast tiltölulega hratt. Ég sé
Siglufjörð ekki fyrir mér sem
mjög stórt byggðarlag. Hins veg-
ar sé ég bæinn fyrir mér sem
byggðarlag sem hefur sterka
atvinnustöðu." óþh
Hér fyrir ofan er Rúnar Marteins-
son, verkstjóri hjá Þormóði
ramma, að skera fyrstu sneiðina
af veglegri tertu sem fyrirtækið
bauð bæjarbúum upp á í tilefni
dagsins. Að sjálfsögðu fékk
bæjarstjórinn fyrsta bitann. Ólaf-
ur Proppe, stjórnarformaður
Þormóðs ramma, (að neðan) hélt
ávarp við komu skipsins til nýrrar
heimahafnar. Eins og sjá má á
myndinni hér til hægri er Vaka
glæsilegt skip. Fjölmargir Sigl-
firðingar skoðuðu það við kom-
una til Siglufjarðar sl. fimmtu-
dag. Myndir: Golli