Dagur - 07.03.1992, Blaðsíða 6

Dagur - 07.03.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 7. mars 1992 Börnin okkar Kristín Linda Jónsdóttir jjFPÍ* 4 / J1 i i • i 1 i! • ii „Eg vil ekki borða matiim miim“ Til að börnin okkar öðlist góða heilsu og eðilegan líkams- þroska er holl fæða nauðsyn. Þess vegna ættum við foreldrar að leitast við að kenna börnunum okkar þegar frá upphafi góðar neysluvenjur hvað varðar mat og drykk. Það er rétt að hafa hugfast að matarvenjur mótast í æsku og hvort sem þær eru góðar eða slæmar eru sterkar líkur á að þær fylgi börnun- um okkar út ævina. Börn sem neyta óhóflega mikillar mjólkur og mjólkurvöru hafa ekki eðlilega lyst á öðrum fæðutegundum. Þau geta þjáðst af meltingartruflunum og blóð- leysi. Ef börn hins vegar fá of lítið af mjólk og mjólkurvörum er sú hætta fyr- ir hendi að þau fái ekki nægilegt magn af kalki og próteini. Hæfllegt magn af allri mjólkurvöru samtals, drykkjarvöru, skyri, jógúrt, súrmjólk og ostum, er um það bil fjögur glös á dag. í þessari grein er ekki talað um sælgæti vegna þess að sælgæti er ekki matur og ekki aukabiti, sælgæti er bara sælgæti. Sælgæti gefur yfírleitt nær ein- göngu hitaeiningar og lítið af vítamínum og steinefnum sem eru nauðsynleg til að nýta hitaeiningarnar. Fyrir börn er heppilegast að hafa eina nammi- stund á viku og gefum þeim ekki meira sælgæti en maginn þolir. Börn vita hvað þau vilja borða og drekka en ekki hvers þau þarfnast. Til að við getum vanið börnin okkar á að neyta hollrar og næringarríkrar fæðu og sneiða hjá óæskilegum fæðutegundum þurfum við þekkingu. Orval hverskyns matvæla er ótrúlegt og við framleiðslu þeirra eru ýmis sjónarmið höfð að leiðarljósi og í sumum tilfellum önnur er nær- ingargildið. Á markaðnum er fjölbreytt úrval ýmiskonar mat- reiðslubóka og leiðbeiningarrita um mat, matreiðslu og næringar- innihald matvæla. Fyrsta skrefið í þá átt að afla sér upplýsinga um ákjósanlegt mataræði fyrir okkur og börnin okkar gæti hugsanlega verið að kynna sér hinn svo nefnda, Fæðuhring. Fæðurhringurinn skiptir matnum í sex flokka eftir næringarefnum og tegundum matarins. Ef börnin okkar borða daglega mat úr öllum flokkunum í samræmi við vægi þeirra í fæðu- hringnum er næsta víst að þau verða bæði hraust og hress. Orrustan við eldhúsborðið Börn á forskólaaldri og raunar þótt eldri séu hafa lúmskt gaman af að neita að borða, jafnvel þótt maturinn sé enn í pottunum og lokin ógegnsæ, enda er það sniðug leið til að ná athygli önn- um kafinna foreldra. Þau viðhafa stórar fullyrðingar um hve vondur maturinn sé, lykt- in ógeðsleg, liturinn á matnum hræðilegur, gulur rauður og grænn. Maturinn er auk þess ýmist of heitur eða kaldur, linur eða seigur, oj bara, ulla bjakk, orðaforðinn er ótrúlegur! Það er því ekki undrunarefni þótt ótal foreldrar hafi gefist upp í baráttunni og gripið til þess ráðs að gefa börnunum það sem þau vilja borða. En því fjölbreyttari mat sem barnið okkar lærir að borða því betra. Þess vegna er nauðsynlegt að reyna að fá börn- in til að bragða á sem flestu. Það tekur sinn tíma að venjast nýju bragði, lykt og lit á matnum á diskinum. Heppilegast er að fara samningaleiðina og reyna að fá barnið til að smakka án þess að þvinga eða dekstra. Það getur gefið góða raun að hafa skammt- ana litla og umbuna barninu með lostætum, en hollum eftirrétti, svo sem appelsínu eða eplabát, vínberjum eða kíwí. Agi á matmálstímum í eldhúsinu er í fullu gildi sú upp- eldisregla að börn þarfnast aga. Við þurfum að koma börnunum okkar í skilning um það að eng- inn óskemmdur, hollur vel mat- reiddur matur er vondur eða ógeðslegur. Þau þurfa að læra að það eru ekki mannasiðir að setj- ast til borðs með öðru fólki og viðhafa slíkar yfirlýsingar. Hins vegar hefur hvert einasta barn vitaskuld fullan rétt á að segja: „Mér finnst þetta ekki gott, ekki meira takk!“ Við foreldrar þurfum að gæta þess að gleyma ekki í flýti hvers- dagsins að kenna börnunum okk- ar almenna borðsiði. Yngstu börnin þurfa að fá tækifæri til að æfa sig að borða og drekka. Það tekur sinn tíma að læra að borða snyrilega og við foreldrarnir erum við matarborð- ið, sem annars staðar, fyrirmynd barnanna okkar. Ósamlyndi, rifrildi og skammir á matmálstíma veldur lystarleysi og neikvæðu viðhorfi til matar. Kveikjum á kerti og gerum mál- tíðina huggulega. Hvernig eru matmáls- tímarnir? Með breyttu þjóðfélagsmunstri verða þær færri og færri máltíð- irnar sem fjölskyldan borðar saman í friði og ró. Sífellt fleiri borða morgunmat á hlaupum eða skella í sig einu kaffi- eða mjólkurglasi, þrátt fyr- ir mikla umræðu um mikilvægi þessarar máltíðar. Hádegisverðurinn er ýmist snæddur á vinnustöðum, í skól- um eða þar sem yngstu börnin eru í gæslu. Á sumum heimilum geysast fjölskyldumeðlimir heim akandi eða hlaupandi og fá sér snarl til að bægja mestu svengdar- tilfinningunni frá. Miðdagskaffið er á flestum heimilum sá tími þegar fólkið tínist heim, á misjöfnum tíma, rífur upp ísskápshurðina og kíkir í brauðkassann. í von um að finna eitthvað ætilegt og bjargar sér hver sem betur getur. Loks þegar tekist hefur að elda aðalmáltíðina, kvöldverðinn, næringarríkan og hollan, borða börnin tvo bita. í raun er það ósköp eðlilegt. Þeirra degi er lokið og komið að háttatíma. Þau eru búin að bíða eftir matnum frá því þau komu heim og eru nú dauðþreytt, úrill og lystarlaus. Þeirra vegna væri heppilegt ef hægt væri að koma því við að hafa kvöldverðinn milli klukkan 5-6 síðdegis. Ef ekki, gefið þeim þá hollan auka- bita, meðan þau bíða, til dæmis ávöxt, brauðsneið eða bruðu. En munið, að eftir hálfa mjólkur- fernu hefur ekkert barn lyst á kvöldmatnum. í raun eru auka- bitar, ef rétt er valið, ekki slæmur kostur. Börn þurfa fleiri og smærri máltíðir en fullorðnir og benda má á að nú er talið heppi- legra fyrir þá sem eiga við offitu- vandamál að stríða að borða oft- ar og minna í einu. Mjó börn í megrun Við erum margir foreldrarnir sem alltaf erum í megrun. Á sumum heimilum inniheldur ísskápurinn og matarskápurinn nær eingöngu úrval hitaeininga- snauðra rétta. Þar er undanrenna, ýmsir diet-drykkir, létt þetta og létt hitt, grænmeti og hrökk- brauð. Því miður er raunin sú að stundum lenda börn þeirra sem eru í megrun á megrunarfæði án þess að vera kílói of þung! Höf- um hugfast að börn eiga aldrei að fara í megrun nema í samráði við lækni. Börn í örum vexti hafa þörf fyrir mjög fjölbreytta fæðu en alls ekki megrunarfæðu. Endalausa veislan Það er voða gott að fá sér hress- ingu í ótal tilfellum. Vegna þess að dagurinn var erfiður, eða sér- staklega skemmtilegur. Ef til vill á einhvern afmæli, einhver kem- ur í heimsókn eða við förum í heimsókn. Óskastundin eða Spaugstofukallarnir eru í sjón- varpinu, allir heima, kjörið að fá sér eitthvað gott! Hvað með máltíðirnar sjálfar, er veisla hjá okkur allar helgar? Hve langt þarf að ganga til að skapa tilbreytingu um jól eða páska? Hafa börnin okkar gott af öll- um þessum hressingum og veislu- mat? Ef til vill er lausnin í því fólgin að skapa börnunum okkar þann- ig matarvenjur að saman fari hressing, veisla og hollusta. Það er svo ótalmargt fleira gott en sætindi og gosdrykkir. Hafið þið prófað að blanda í skál sól- blómafræi og rúsínum, gott snakk. Veljum popp, sveskjur, harðfisk og grænmeti. Bökum lít- ið sætt gerbrauð, gulrótarkökur, eplakökur og vöfflur. Utbúum ávaxta- og ísrétti, ostapinna, litlar lystugar samlokur úr grófu brauði og hollu áleggi. Berum grænmeti og ávexti fram á fjöl- breyttan listaukandi hátt fyrir börnin okkar. Útbúum hollt og gott nesti handa okkur og börnunum, sam- lokur, gróf muffins, gerdeigsboll- ur, hafrakex og kakó, hvort sem börnin taka nestið með sér á leik- völlinn eða við förum með þeim í göngu- eða hjólreiðaferð. Barnanna vegna er gott að reyna að draga úr saltneyslu á heimilinu. Drögum smátt og smátt úr saltneyslu á heimilinu. Börn geta vanist á að borða popp ósaltað og mjög salt álegg eins og ýmsir ostar er óhollt fyrir ung börn. Veljum matvæli sem inni- halda leyfilegt magn aukaefna frekar en matvæli sem nánast byggjast upp á aukaefnum. Vatn Kennum börnunum okkar að drekka vatn við þorsta. Efna- skipti barna eru svo ör að þau þurfa mikinn vökva og oft átta þau sig ekki á hve þyrst þau eru. Þegar börn eru óróleg og ónóg sjálfum sér er gott ráð að gefa þeim vatn að drekka, oft líður þeim strax betur eftir að hafa drukkið eitt eða tvö glös. Berum vatn fram í fallegum flöskum eða könnum og lærum að meta gæði þess. Viðhorf til matar, hvað er matur? Hvað læra börnin okkar af okkur þegar við veljum mat í verslun- um, matreiðum hann í eldhúsinu og borðum? Hugsum málið hver fyrir sig. í framhaldi af því er ágætt að spjalla við börnin og gefa þeim tækifæri til að taka þátt í þessu ferli. Hvað vilja þau kaupa í búð- inni sem þeim finnst gott og við vitum að er hollt? Er sú hætta fyrir hendi að börnin okkar verði eins og stórborgarbörn erlendis sem telja jafnvel kjöt, fisk og mjólk framleitt í verksmiðjum? Leitumst við að fræða börnin okkar um þau hráefni sem matur- inn er unninn úr. Gætum þess að þau læri að borða mat í sem upp- runalegastri mynd en ekki ein- göngu unnin matvæli. Stöppum ekki allan mat í ógreinilega kássu á diskinn þeirra, gefum þeim tækifæri til að sjá kjötbitana. Leyfum þeim að fylgjast með og síðar að hjálpa til þegar við slægj- um fisk og setjum í pott, krydd- um lambalæri, tökum upp kart- öflur og rófur og þegar við bök- um gerbrauð, sem lyftist svo skemmtilega upp úr skálinni. Sýnum þeim að við borðum hollan mat með jákvæðu hugar- fari. Prófum sjálf eitthvað nýtt! Viö vinnslu greinarinnar var haft samráð við Kristínu Sigfúsdóttur hússtjórnar- kennara á Akureyri. Fæðuhringurinn Fæðuhringurinn ætti að vera i hverju eldhusi. Það er tilvalið að setjast niður með börnunum á heimilinu og bua til fæðuhring. Teikna hann og lita. Um leið má spjalla um i hvaða fæðuflokki vinsælasti og algengasti maturinn á heimilinu er og hvort magn hverrar fæðutegundar samsvari þvi vægi sem æskilegt er samkvæmt fæðuhringnum. Næsti þáttur: Börn og hreyfing/hreyfingarleysi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.